Þjóðviljinn - 02.02.1975, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Blaðsíða 23
Sunnudagur 2. febrúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 23 LEITIÐ, og . .. FRÍMERKJAÞÁTTUR Hinn 3. mai 1959 komu út 2 fri- merki til minningar um það, að þann dag voru 200 ár liðin frá andláti Jóns Þorkelssonar, fyrr- verandi Skálholtsrektors. Myndin á merkjunum synir Jón sitja á tali við tvö börn, en að of- an er nafn hans ásamt ártölun- um 1759-1959. — Verðgildin voru 2 kr. grænt og 3 kr. brúnfjólu- blátt. Upplag þessara merkja er hálf miljón af lægra verðgild- inu, en 400 þús. af því hærra. Tökkunin er 13 1/2—14. Jón Þorkelsson fyrrum rektor i Skálholti, var samstarfsmaður Harboes biskups á Islandi árin 1741-1745. Þeir félagar, Jón og Harboe,ferðuðust viða um land- ið þessi fjögur ár og kynntu sér ástandið i menningarmálum presta og almennings. Yfirleitt fengu prestar heldur lélega ein- kunn hjá þeim og reyndist sitt að hverjum, þótt nokkrir fengju hrós. Drykkjuskapur, vankunn- átta og slæleg barnafræðsla voru hlutir, sem viða böguðu prestana, einnig var fátæktin mikil hjá þeim mörgum, svo sem sjá má af þvi að sumir þeirra höfðu jafnvel ekki ráð á að eignast bibliuna. Vafalaust hefur Jóni Þorkels- syni, þeim ágæta fræðimanni, runnið til rifja hið bága ástand i menningarmálum almennings og lestrarkunnátta barna. Var það svo i sumum sveitum og landshlutum, að aðeins einn af hverjum þremur mátti kallast læs á bók og flestir illa skrif- andi, enda var landið þá barna- skólalaust. Sums staðar voru munaðarlaus börn jafnvel á ver- gangi. — Jón Þorkelsson var vel efnum búinn, og skömmu fyrir andlát sitt ákvað hann að gefa allar eigur sinar fátækum og munaðarlausum I Kjalarnes- þingi til uppeldis og menningar og fékk hann staðfestingu kon- ungs á þeirri erfðaskrá. Eignir þær, er runnu i þennan sjóð.voru tiu jarðir og jarðarhlutar á Is- landi og rifleg f járhæð á vöxtum i banka i Kaupmannahöfn. — Bókásafn Jóns var einnig með I gjöfinni og átti það fyrst um sinn að geymast i kirkjunni i Njarðvik, en þar var æskuheim- ili gefandans. — Koma átti á fót skóla eða stofna fyrir ágóða af eignum sjóðsins, og áttu bæk- urnar þá að flytjast þangað. I stofnun þessari ,,áttu börnin að njóta fæöis og klæða og þar á að venja þau á hreinlæti og spar- semi, uns þau geta sjálf séð sér farborða.” Jón Þorkelsson rektor vann alla ævi að aukinni menntun á Islandi. Honum mun hafa verið ljóst, aöbyrja þurftiá hinu unga Islandi, börnunum. Með dánar- gjöf sinni vildi hann leggja sitt lóö á þá metaskál. Myndin á frimerkinu er af minnismerki, sem Rikharður Jónsson gerði, og reist var fyrir nokkrum árum i Njarðvik. AF HVERJU? Af hverju? Já, af hverju skyldi nú þessi mynd vera? •QBAq BmatQ •nijaq p ipuesgnq Jijaoq mas ‘jmtQBUIBUg J3 B113<J :JBAS Munið þiöeftir svona teiknileik úr skólanuin? Maður teiknar eitthvert smáatriði og svo á sessunauturinn að giska. hvaö það er. Við skorum á lesendur að taka þátt i grininu og senda teikningar i þessuin stil. Aðall- inn er: Nógu einfaldar. Það skiptir ekki máli, hvort þiö „kunniö” að teikna eða ekki. Skrifið utaná til Sunnudags- blaðs Þjóðviljans. öagbék apótek Kvöld- nætur og helgidaga- varsla apóteka vikuna 31 jan. - 6. feb. er i Laugavegs Apóteki og Holts Apóteki Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna á sunnudögum, helgidögum og almennum fridögum. Einnig næturvörslu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni, virka daga. Kópavogur Kópavogsapótek er opið virka daga frá 9 til 19 og kl. 9 til 12 á hádegi á laugardögum. Hafnarfjörður Apótek Hafnarfjarðar er opið virka daga frá 9 til 18.30, laug- ardag 9 til 12.30 og sunnudaga og aðra helgidaga frá 11 til 12 f.h. slökkviliðið Slökkvilið og sjúkrabflar t Reykjavik — simi 1 11 00 t Kópavogi — simi 1 11 00 i Hafnarfirði— Slökkviliðiö simi 5 11 00 — Sjúkrabill simi 51100. lögreglan Lögreglan I Rvik— simi 1 116fi Lögreglan i Kópavogi — simi 4 12 00 Lögregian i Hafnarfiröi — simi 5116 læknar Slysa varðstofa Borgarspital- ans: Slysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. Simi 8 12 00. — Eftir skiptiborðslokun 8 12 12 Kvöld- nætur- og helgidaga- varsla: I Heilsuverndarstöðinni við Barónsstig. Ef ekki næst I heim- ilislækni: Dagvaktfrá kl. 8.00 til 17.00 mánud. til föstudags, simi 1 15 10. Kvöld- nætur- og helgi- dagavarsla, simi 2 12 30. Tannlæknavakt: Tannlæknavakt er i Heilsu- verndarstöðinni frá 17—18 alla laugardaga og sunnudaga. — A laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar en læknir er til viðtals á Göngu- deild Landspitalans, simi 2 12 30. — Upplýsingar um lækna og lyf jabúðaþjónustu eru gefnar i simsvara 18888. minningarspjöld Minningarspjöld flugbjörgunar- sveitarinnar fást á eftirtöldum stöðum Bókabúð Braga Brynjólfssonar Siguröi M. Þorsteinssyni simi 32060 Siguröi Waage simi 34527 Magnúsi Þórarinssyni simi 37407 félagslíf Skagfirska söngsveitin Skagfirska söngsveitin efnir til bingós I Lindarbæ sunnudaginn 2. febrúar kl. 15. Sunnudagsgangan verður um ströndina sunnan Straumsvikur. Álverið skoðað.. Brottför kl. 13. frá B.S.I. Verð 300 krónur. — Ferðafélag islands. Nemendasamband Menntasól- ans á Akureyri (NEMA) Svo sem áður hefur verið skýrt frá var Nemendasamband Menntaskólans á Akureyri (NEMA) stofnað á fundi á Hótel Esju 6. júni siðastliðinn. Til- gangur sambandsins er m.a. sá að treysta tengsl milli fyrrver- andi nemenda M.A. og stuðla að auknu sambandi þeirra við nemendur og kennara skóláns. — NEMA heldur fyrsta aðalfund sinn á Hótel Esju, 2. hæð föstu- daginn 7. febrúar n.k., kl. 20.30. Verður þar m.a. rætt um þá hugmynd, sem fram kom á stofnfundi, að stefnt verði að þvi aö reisa skála fyrir nemendur Menntaskólans á Akureyri. Ennfremur verður tekin ákvörðun um gjald I félagssjóð sambandsins. — Húsið verður opið til kl. 1. Kvenfélag Laugarnessóknar Aðalfundur verður haldinn 3. febrúar kl. 8.30 Venjuleg aðal- fundarstörf. Ársfundur Hins islenska bibliu- félags, verður i safnaðarsal i kirkju Filadelfiusafnaðarins, Hátúni 2, Reykjavik sunnudaginn 2. febr. n.k. i framhaldi af guðsþjónustu I kirkjunni, er hefst kl. 14.00. Ræöumenn: Forseti Bibliu- félagsins, herra Sigurbjörn Einarsson biskup og forstöðu- maöur Filadelfiusafnaðarins, Einar Gislason stjórnarmaður Bibliufélagsins. Dagksrá fundarins: Aðalfundarstörf/ fyrri hluti: Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra, kosning fjögurra manna i stjórn, og eins endurskoðanda — kaffiveitingar — (Reikningar félagsins fyrir árið 1974 verða lagðir fyrir framhaldsaðalfund siðar) — Umræður um lestur Bibliunnar og daglega notkun hennar — Bibliusýning (sölusýning) verður i samband við fundinn. Auk félagsmanna er öðrum vel- unnurum Bibliufélagsins einnig velkomið að sitja fundinn og þar geta þeir gerst félagsmenn. Bibliufélagið tekur þátt i útgáfu og útbreiðslu Bibliunnar i ETHIÖPIU og viðar á veguin SAMEINUÐU BIBLIU- FÉLAGANNA. Fjárfram- lögum til styrktar starfi Hins isl. Bibliufélags verður veitt móttaka á Bibliudaginn við allar guðsþjónustur i kirkjunum og samkomur kristilegu félag- anna. Heitið er á landsmenn i öllum söfnuðum að styðja og styrkja starf Bibliufélagsins. — Stjórnin bridge Vestur lét hjarta niu og drepið var i borði með drottningunni. Þá uppgötvuðust um leið lita- svikin, og kallað var i keppnis- stjóra. Viðurlögin voru þau, að Suður varð að fylgja lit Vestur mátti taka niuna og spila hvaða hjarta sem hann vildi, en drottningin varð að liggja. Vestur var ekki seinn á sér að skella ásnum ofan á drottning- una og hirða sina fiinin slagi á hjarta. Hitt er svo annað mál hvort það er beint iþróttamannslegt að þiggja svona lögverndaðar ölmusur. Krossgáta Lárétt: 1 framgjarn 5 beiðni 7 utan 9 röskur 11 þráður 13 óhreinka 14 gangflöturinn 16 eins 17 hnöttur 19 logn. Lóðrétt: 1 undantekning 2 bók- menntafélag 3 dá 4 elska 6 brekku 8 fljót 10 stefna 12 grind 15 ilát 18 eins. Lausn á siðustu krossgátu. Lárétt: 1 systir 5 orð 7 árna 8 bý 9ungar 11 má 13 auði 14 óði 16 tiltaka Lóðrétt: 1 skákmót 2 sonu 3 trana 4 ið 6 mýrina 8 bað 10 gufa 12 áði 15 il. skák Lögin um litarsvik hafa oft þótt nokkuð gloppótt og stundum hreint og beint óréttlát. Tökum eftirfarandi spil frá leik milli Bandarikjanna og Italiu i heimsmeistarakeppni fyrir nokkrum árum. ♦ K D 7 3 V D 8 3 ♦ D 10 4 « 10 5 4 ♦ 10 5 4 2 4G986 V A 10 9 7 4 2 V G 5 ♦ K G 2 ♦ A986 ♦ ekkert ♦ K 7 6 ♦ A V K 6 ♦ 7 5 3 ♦ A D G 9 8 3 2 Á báðum borðum varð loka- sögnin þrjú grönd i Suður. I lokaða salnum unnu Bandarikin fimm grönd. I opna salnum var Belladonna, Italiu, sagnhafi. Vestur lét út lághjarta og Bella-' donna drap gosa Austurs með kónginum. Siðan lét hann út laufaás og meira lauf, sem Austur drap með kónginum. Nú lét Austur út hjarta, og Bella- donna lét óvart tigulþristinn. Nr. 26 Hvitur mátar f öðrum leik. Lausn þrautar Nr. 25 var: 1. d4 hótar fráskák með hrók á e4 og f3. Ekki dugði e3 vegna 1....Bxc3 og opnar e5 reitinn. 18. janúar 1975 voru gefin saman i hjónaband af sr. Are- liusi Nielssyni Áslaug Guð- mundsdóttir og Einar Finnsson. Heimili þeirra er að Barðarvogi 22, Rvik. — Nýja myndastofan, Skólavörðustig 12'.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.