Þjóðviljinn - 02.02.1975, Page 24

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Page 24
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. febrúar 197? cTklyndir úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka Samtimis þessu byrjuðu menn að halda ræður til mann- fjöldans af steingarðinum úti fyrir húsinu. 1 ræðum þessum voru menn hvattir til að knýja bæjarstjórnina til hlýðni með valdi. Flýðu gegnum kjallarann Hófust nú átök innan húss og meiddust nokkrir, ma. einn lög- regluþjónn, sem fékk djúp sár á höfuð. Nokkrir bæjarfulltrúar reyndu að stilla til friðar og koma á samkomulagi um þá lausn, að atvinnubótavinnunni yrði haldið áfram með sama kaupi og verið hefði þar til öðru- vísi yrði ákveðið. En verkamenn voru orðnir hvekktir og neituðu að gefast upp og ganga að þessu nema jafnframt yrði fjölgað i bæjar- vinnunni. „Kom þar brátt”, segir siðan, ,,að ekki heyrðist mannsins mál fyrir hávaða köllum og hrind- ingum. bustu nú allmargir fundarmenn inn fyrir grindurn- ar og bjuggust til að leggja hendurá bæjarfulltrúana. Aðrir áheyrendur, er úti voru i fordyri hússins, sóttu einnig að lögregl- unni og kröfðust inngöngu. Litla stund tókst lögreglunni að standast áhlaupin. Notuðu flestir bæjarfulltrúar hlé þetta og hurfu niður i kjallara hússins og þaðan út um bakdyrnar. Var gerður aðsúgur að tveimur þeirra og féll annar, Jakob Möller, i götuna, en reis brátt upp aftur og komst leiðar sinnar lltið eitt hraktur.” Þegar verkamenn urðu þess varir að bæjarfulltrúar voru horfnir komu fram háværar raddir um að sækja þá og draga með valdi aftur i fundarsalinn. Hópur ætlaði að ryðjast niður i kjallarann og ná i einn fulltrú- anna, sem þar hafði leitað skjóls og ekki treyst sér gegnum f jöld- ann útifyrir, en lögregluþjónar gerðu mótárás og varð úr bar- dagi um allt húsið. Lögreglu- þjónar beittu kylfum, en hinir gripu til tiltækra stóla og bekkja og brutu niður i barefli. Harðasta hriðin Eftir að lögreglunni hafði borist liðsauki og tekist að ryðja húsið var þétt mannþyrping fyr- ir utan, sem neitaði að hlýða skipun lögreglustjóra og hverfa á brott. Hann ræðst þá með lögreglumönnunum á þyrping- una. „Hófst nú hinn ákafasti bar- dagi” segir i „öldinni”. „Tókst þeim, sem að lögregl- unni þrengdu, að umkringja lögreglumennina og veita þeim harða hrið. Voru margir upp- hlaupsmanna vopnaðir barefl- um, enda fengu flestir lögreglu- mennirnir áverka, mismunandi mikla. Barst viðureignin út á Kirkjutorg og næstu götur. Urðu þá meiðsli, meira og minna ál- varleg, bæði i liði lögreglunnar og þeirra, sem að henni sóttu. Eftir alllanga hrið og harða lauk viðureign þessari. Þeir, sem litt voru meiddir úr hvorutveggja liði fluttu félaga sina i næstu lækningastofur. Mun nokkuð á þriöja tug manna hafa leitað læknishjálpar eftir bardaga þennan, a.m.k. tveir handleggs- brotnir og margir með áverka á höfði. Ekki er þó talið, að neinn hafi hlotið lifshættuleg meiðsl i orustunni.” Framhald á 26. siðu Varnarlið verkalýðsins og 9. nóvember 1932 1 ljósmyndasafni Dagsbrúnar eru til nokkrar myndir, sem eru óvenjulegar að þvi leyti, að þær eru af islenskum mönnum i nokkurskonar einkennisbún- ingi, sem eru þó ekki lögreglu- menn. skátar eða Lúðrasveitar- menn. Búningurinn er sið utan- yfirblússa með leðurbelti og skáól yfir öxlina og i höndum bera þeir fána isjálfsagt rauða) á stuttum stöngum. Aftaná myndunum segir til skýringar, aö þetta séu menn úr Varnarliði verkalýðsins og stengurnar hafi jafnframt verið hugsaðar sem kylfur ef á þyrfti að halda. Um þetta varnarlið er þvi miður ekki margt að finna i heimildum, en vafalaust gætu ýmsir þeirra sem skipuöu sér i þessa sveit og enn lifa sagt frá liöinu og tilgangi þess og er hérmeð skorað á þá að gera það, hvort sem væri i sam- bandi við þessa þætti eða annarsstaðar á prenti. t bók sinni „Vor i verum” fjallar Jón Rafnsson hvergi sér- staklega um varnarlið verka- lýðsins, en getur þess á einum stað. að það hafi verið stofnað uppúr átökunum 9. nóvember 1932. En þá segir hann að bar- áttan gegn kreppupólitik vald- hafanna hafi risið hæst, „þegar verkalýður Reykjavikur gersigrar fjölmenna lögreglu i götubardaga og hrindir launa- lækkun. sem ihaldsbæjarstjórn höfuðstaðarins ætlaði að koma i framkvæmd i skjóli atvinnu- leysisins.” Nánar segir Jón ekki frá þess- um átökum —hefur sennilega ekki verið viðstaddur sjálfur vegna baráttunnar úti á landi, sem hann tók þátt i af lifi og sál —, en i „öldinni okkar 1931-50”, sem Gils Guðmundsson ritstýrði er að finna frásögn af þessum atburðum. Þar segir um að- dragandann: „Reykjavikurbær hefur haldið uppi atvinnubótavinnu siðan i ágústmánuði. Hafa að undanförnu verið i vinnunni 200 manns. Hefur vinnunni verið jafnaö þannig niður, að atvinnu- leysingjar fengu vinnu eina til þrjár vikur i mánuði, eftir þvi hve marga þeir hafa á framfæri sinu. Daglegur vinnutimi var 6 stundir, en dagkaup 9 króhur. Á bæjarstjórnarfundi 3. nóv. lýsti forseti bæjarstjórnar þvi yfir, að aðeinns 50-60 þús. kr. væru eftir af þvi fé, sem bærinn hefði ætlað til atvinnubóta. Bar hann fram tillögu þes efnis, að kaupgjald fyrir atvinnubóta- vinnuna skuli framvegis vera „1 króna fyrir raunverulega vinnu- stund almennra verkamanna, og lækki annað kaup við þessa vinnu hlutfallslega.” Tillaga þessi var samþykkt með 8 atkvæðum gegn 6. Verkalýðsfundur og kröfuganga Hinn 6. nðv. var haldinn ai- mennur verkalýösfundur i porti Miðbæjarskólans. Fundurinn var mjög fjölmennur. Þar voru samþykktar kröfur til bæjar- stjórnar um aó nema þegar úr gildi samþykktina um kaup- lækkun i atvinnubótavinnunni. Að fundi loknum var farin kröfuganga um bæinn, en nefndir, sem kosnar voru á fundinum, færðu borgarstjóra og forsætisráðherra þær til- lögur, sem samþykktar höfðu verið.” Morguninn 9. nóvember er svo haldinn bæjarstjórnar- fundur um atvinnuleysismálin I Góðtemplarahúsinu og er salurinn þéttskipaður áheyr- endum og mikill mannf jöldi úti- fyrir. Þegar gefa átti matarhlé kröfðust áheyrendur að málið yrði afgreitt áður, en bæjarfull- trúar létu sig ekki fyrr en lögreglustjóri hafði lofað, að að- gangur yrði frjáls að fundar- salnuin eftir hádegið. Er fundur hófst aftur að matarhléi loknu voru flest sæti skipuð á áheyrendabekkjum, en forstofu haldið auðri. Frá fund- inum segir svo i „Öldinni okk- ar”: „Fyrstur á mælendaskrá var Jakob Möller, en frá honum var komin fram tillaga þess efnis, að bæjarstjórn héldi fast við fyrri ákvörðun sina. Er hann hafði talað litla stund, gerðist mikil ókyrrð i salnum, og þó einkum utan dyrá. Kröfðust þeir, er þar voru, að fá að kom- ast inn, en lögreglan varði hús- yrnar. Var stöðugt þrýst fastar á, og að lokum greip lögreglan til trékylfa sinna. Gerðist þá all- snarpur bardagi fyrir dyrum úti, og fékk lögreglan ekki varið dyrnar. Svo mikill hávaði var nú orðinn i salnum, að ekki heyrðist mannsins mál. Var jafnan gert hróp að ræðumanni, er hann reyndi að tala, og varð hann að hætta. Eftir itrekaðar en árangurslausar tilraunir til að þagga niður hávaðann, sleit fundarstjórinn Pétur Halldórs- son fundinum. Öx nú hávaðinn um allan helming. Hrópuðu ýmsir, að bæjarstjórnin skyldi verða barin, ef atvinnuleysis- málið yrði ekki tafarlaust tekið fyrir á ný. Urðu þarna hrindingar nokkrar og smápústrar, en hróp mikil og köll til bæjarfulltrúanna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.