Þjóðviljinn - 02.02.1975, Síða 27

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Síða 27
Sunnudagur 2. febrúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 27 KROSSGATA Skemmtilegur leikur Á löngum vetrarkvöldum i sveitinni eða i bænum er gaman að fara i leiki. Hér er skemmti- legur leikur handa ykkur. Það þarf ekki annað en tvenn spil, og svo er hægt að byrja. Það eru allir látnir fara út úr herberginu nema sá sem leiknum stjórnar. Hann flýtur sér að fela önnur spilin hingað og þangað um stofuna, undir púðum, bak- við skápa, uppi i ljósakrónunni og bak við myndir. Sum spilin reynir hann að fela mjög vandlega svo erfitt verður að finna þau. Siðan kalla hann á hina inn og gefur nú hverjum og einum þrjú spil af þeim sem eftir voru. Þegar hann hefur lokið þvi hrópar hann: „Byrjið”, og þá flýta allir sér að finna þau þrjú spil, sem eru samstæð við þau við þau er hann hefur á hendi.öll önnur spil lætur hann aftur á sama stað. Sá sem fyrstur hefur fundið spilin þrjú hann vinnur. Hann fær að stjórna næsta leik. Hver er þaö? 1. Vatnið ýfist við honum. Trén hrista krónuna að honum. Blómin hneigja höfuðið fyrir honum. Skýin hlaupa undan honum. 2. Þú sérð hann i sólskini i tunglsljósi og bjarma lampans. Hann eltir þig hvert sem þú ferð en segir aldrei orð. (Kinverskar gátur) Þessa mynd sendi Guðrún Hálfdánardóttir, 8 ár 17, Hellu, Rangárvöllum Eftir Klas Gustafson 5. Þegar verkafólkið fékk fram kröfur sinar um 8 stunda vinnudag vildu eigendur framleiðslutækjanna nýta betur vinnudag þess. Til þess höfðu þeir ýmsan hátt á. — Áður fyrr fengu verkamenn margvisleg og breytileg verk- efni að vinna. Með tilkomu nýrra véla og siaukinni iðn- væðingu urðu verkefnin ein- hæfari. Hver verkamaður fékk ákveðið verk, sem kannski var bara að styðja á takka einhverrar vélar, og þetta átti hann svo að gera dag eftir dag. Fái menn borgað eftir afköstum er það kallað ákvæðisvinna eða bónus. Þá þurfa menn að keppast við. 6. Til að komast að þvi hvernig er hægt að ljúka verkefni á sem stystum tima, er vinnan metin. Hvert handtak og hver augnhreyfing er mælt. Til að mæla þetta er sekúnda of stór mæli-eining. Hverri sekúndu er deilt i 28 hluta til að hægt sé að mæla hverja agnar- hreyfingu (Reynið sjálf að deila 28 i hverja sekúndu!!) Þetta er kallað að athuga timann.Manni finnst kannski undarlegt hvað eytt er löngum tima i það. Timaathuganir eru mikið gerðar i iðnaðinum, en þó er varla athugað hvað skrifstofufólkið er lengi að lyfta simtólinu eða skrifa undir. PENNAVINIR Steinunn Helga Sigurðardóttir, Mánabraut 8, Vik, Mýrdal, og Arndis Þórðardóttir, Mýrarbraut 4, Vik, Mýr- dal. Steinunn og Arndis hafa áhuga á ferðalögum, bæði i bil og gangandi, böllum og alls konar skemmtunum, strákum og popptónlist. Sendið Kompunni Ijóö, sögur, Ijósmyndir, teikningar og vísur eftir ykkur sjálf

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.