Þjóðviljinn - 07.02.1975, Page 3
Föstudagur 7. febrúar 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Við viljum brú
yfir Dýrafjörð
Þingeyri 20. jan. 1975
Tiöarfar hefur veriö siæmt frá
miöjum desember til 15. jan.
Þann 11.-15. jan. geisaöi hér
noröaustanóveöur. Litiar
skemmdir munu þó hafa oröiö
t.d. hafa rafmagns- og sfma-
linur aiveg sloppiö viö
skemmdir. Snjóalög eru tals-
vert mikil, en J»ó ekki meiri en
oft hefur veriö um þetta ieyti
árs.
Héðan er gerður út skuttogari
Framnes I 1S 708 og einn bátur,
sein stundar linuveiðar, en það
er Framnes IS 608. Atvinna
hefur verið minni en undan-
farna vetur t.d. mun litið sem
ekkert hafa verið unniö i fiski
um helgar, en hins vegar unnið
alla virka daga, og þá oftast 10
klukkustundir á dag. Hrað-
frystihúsið ráði i haust 10
stúlkur frá Ástralfu til vinnu við
pökkun og snyrtingu, og munu
þær verða hér þar til i mai.
Fiskiðja Dýrafjarðar fékk
nýtt 140 lesta skip haustið 1973,
gerði það út i eitt ár, en seldi
það svo á siðast liðnu hausti, og
hefur ekki tekið neinn fisk til
vinnslu I vetur.
Vegurinn inni i Dýrafirði milli
Ketilseyrar og Lainbadals er nú
algerlega lokaður vegna snjóa
og talið mikið verk að opna hann
á ný. Það er skoðun heima-
manna, að eina lausnin á þeim
samgönguerfiðleikum að
vetrinum sé brú eða fylling yfir
fjörðinn frá Kjaransstöðum yfir
iLambadalsodda. Þau mál hafa
nú verið I athugun hjá Vegagerö
rikisins um nokkurt skeið, en
endanlegar niðurstöður rann-
Guðmundur Friögeir Magnús-
son
Fréttabréf frá
Guðmundi
Friðgeir,
Þingeyri:
sókna munu enn ekki liggja
fyrir.
A siðast liðnu hausti vann
„Hákur” hér við dælingu úr
höfninni, og lauk þar með þeim
áfanga i hafnarbótum, sem átti
að ljúka 1972.
Siðustu daga hefur verið
góður afli á linu, þetta 7-8 tonn i
róðri. Skuttogarinn hefur
landað einu sinni, það sem af er
þessu ári, 125 tonnum þann 12.
janúar. Afli togarans á siðasta
ári var 3045 tonn, heildarverð til
skiptakr. 77.804.000,-og háseta-
hlutur án orlofs kr. 1.815,427,-
Ólafur Matthfasson og Knútur ólafsson f hlutverkum sfnum í
Kona I morgunslopp.
Frumuppfœrsla Leikfélags
Shagafjarðar á Ted Willis:
Frumsýning verður í
Miðgarði á morgun
Leikfélag Skagafjarðar hefur undanfarnar fimm vikur æft
sjónleikinn Kona i morgunslopp eftir breska lávarðinn Ted
Willis, sem kunnur er fyrir stuðning við islendinga i Iandhelgis-
baráttunni. Frumsýning verður á sunnudag i Miðgarði og er
þetta frumuppfærsla leikritsins hér á landi. Leikstjóri er ung
leikkona, Þóra Lovlsa Friðleifsdóttir, leikendur eru átta. Loftur
Guðmundsson þýddi leikritið.
Atvinnuleysi
hiá málurum
okkar félaei sem atvinnulevsii
Við erum mjög uggandi,
segir Magnús Stephensen
Það eru 15-20 málarar/
sem ganga atvinnulausir i
Reykjavík nú, sagði
Magnús Stephensen, for-
maður Málarafélags
Reykjavíkur, þegar Þjóð-
viljinn innti hann eftir at-
vinnuástandinu hjá
Málurunum.
dráttar gætir. A siðasta ári var
afkoman yfirleitt enn góð hjá
málurum, og atvinna mikil. Nú
þegar framkvæmdir dragast
saman og atvinnan minnkar
verulega má vænta mikilla erfið-
leika hjá mörgum við að standa
undir sköttunum af góðum
tekjum siðasta árs.
Það eru menn á öllum aldri i
okkar félagi sem atvinnuleysið
bitnar á, sagði Magnús Stephen-
sen, og við erum ákaflega
uggandi, um, að nú sæki óðum I
sama farið og 1968 og 1969, þegar
atvinnuleysið varð mjög veru-
legt. Þá fóru þó nokkrir okkar
félagsmanna i atvinnu á öðrum
Norðurlöndum, en þeir munu nú
allir komnir heim.
Menn verða þvi að láta sér nægja
atvinnuleysisbæturnar til að
framfleyta sér og sinum, en þær
eru nú krónur 1414, — á dag, fyrir
hjón og kr 115 — fyrir hvert barn
á framfæri. Þó er aldrei greitt
með fleiri börnum en þremur.
Freon frysti-
tækið komið
Magnús sagði, að það væru að
jafnaði milli 110 og 120 félags-
menn Málarafélagsins vinnandi,
þegar atvinnuástandið væri með
eðlilegum hætti, og má þvi segja
að um 15% vinnufærra félags-
manna gangi nú atvinnulausir, en
ekki hafa allir þeirra látið
skrá sig atvinnulausa enn.
Astandið hefur verið svipað
undanfarna 2-3 mánuði, eða frá
nóvemberlokuin, og eins og nú
horfir er ekki útlit fyrir að at-
vinnuástandið batni fyrr en þá
með vorinu. Meistararnir hafa
sem stendur engin verkefni fyrir
þá, sem atvinnulausir ganga.
Magnús kvaðst fremur eiga von á
þvi, að ástandið i atvinnumálum
málara ætti enn eftir að versna á
þessuin vetri, nema sérstakar
aðgerðir komi til.
Brýna nauðsyn taldi Magnús
Stephensen bera til þess, að opin-
berir aðilar leituðust við að haga
verkefnum á sinum vegum með
þeim hætti, að þaii féllu i meira
mæli en verið hefur á vetrar-
tlmann, þann árstima, sein at-
vinnuástandið er jafnan verst hjá
málarastéttinni, þegar sam-
Eins og fram kom I viötali viö
dr. Björn Dagbjartsson, forstööu-
mann Rannsóknastofnunar fisk-
iönaöarins og birt var hér i
blaöinu fyrir skömmu veitti
þróunarsjóöur Sameinuöu
þjóöanna Hannsóknastofnuninni
styrk til rannsókna á sviöi fisk-
iönaöar. Var styrkurinn notaöur
til þess aö senda tvo islendinga til
framhaldsnáms I matvæiafræöi,
en hluti styrksins til þess aö fá
freonfrystitæki hingaö til lands-
ins. Tæki þessi eru nú komin til
iandsins.
Frysting i fljótandi freon er
einkum notuð við sérfrystingu
dýrra og viðkvæmra matvæla,
svo sem ýmissa berja og ávaxta,
en einnig sjávarafurða t.d. rækju,
humarhala og hörpudisksvöðva.
Tækjuhuin hefur verið komið
fyrir I húsakynnum Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins, Skúla-
götu 4,og sænskur sérfræðingur á
þessu sviði, hr. Tor G. Aurell,
mun dveljast hér i 3 mán. og
kynna þessa frystitækni fyrir
aðiluin hraðfrystiiðnaöarins og
áhugamönnum. Einnig mun hann
standa að tilraunum með freon-
frystingu islenskra sjávarafurða
ásamt sérfræðingum Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins og
samanburði á freonfrystingu og
hinum heföbundnu frystiað-
ferðum sem notaðar eru hér-
lendis. Ennfremur er fyrirhugað
að flytja tækið til fiskiðnaðarbæja
úti á landi og sýna freonfrystingu
þar. Aformað er aö Aurell flytji
fyrirlestra um frystitækni fyrir
stúdenta i Verkfræðideild Há-
skóla tslands. —úþ
Af hverju skrökvar Gæslan?
Spyrja austfirskir togaraskipstjórar
Rétteinu sinni hefur það
borið við að forráðamenn
Landhelgisgæslunnar eru
staðnir að rangfærslu. Og
rétt einu sinni enn eru það
íslenskir sjómenn sem
reka ofan í gæslumennina.
Austfirskir skipstjórar sendu i
fyrradag frá sér svohljóðandi
skeyti vegna rangra frétta frá
Landhelgisgæslunni:
„Undanfarna tvo daga höfum
við sent Landhelgisgæslunni
skeyti með upplýsingum um
veiðar þýskra togara um 25
sjómílur innan fiskveiðimark-
anna suðaustur frá Hvalbak.
Einu viðbrögð Landhelgisgæsl-
unnar við þessum upplýsingum
eru þau, aö I dag eru fjöliniðlum
látnar i té þær upplýsingar, að
enginn v-þýskur togari sé á
veiðum innan fiskveiðimarkanna.
A sama tima og þessi frétt er les-
in i útvarp er vestur þýski togar-
inn Othmars chen BX-733 að toga
meö okkur um 25 milur innan
fiskveiðimarkanna i góðu veðri
og ágætu skyggni.
I saintökum, bæði við höfuð-
stöðvar Gæslunnar i Reykjavik
og einstaka skipherra, hefur að
þeirra hálfu veriö látinn I ljós
áhugi á að fá upplýsingar um
ferðir og veiðar þýskra land-
helgisbrjóta innan fiskveiðimark-
anna.
Nú spyrjum við:
Af hverju eru visvitandi
ósannar fréttir látnar berast til
fjölmiðla, og er talning Land-
helgisgæslunnar á erlendum
veiðiskipum aðeins blekking? Er
Gæslunni ekki lengur hagur I þvl
að fá upplýsingar um landhelgis-
br ot erlendra togara frá okkur?
Þar sem málið varðar alþjóö
væri okkur akkur i þvi, að fá svör
við þessum spurningum á opin-
berum vettvangi.”
Undir þetta rita skipstjórarnir
á Bjarti, Hólmatindi, Hólmanesi,
Ljósafeili og Karlsefni.
Svör sjóliðsforingjans
Ekki stóð á svari Péturs
Sigurðssonar, forstjóra Land-
helgisgæslunnar. útvarp og
sjónvarp höfðu eftir honum i gær,
að fréttin um að engir v-þýskir
togarar væru innan landhelgis-
markanna hefði verið á misskiln-
ingi byggð!
Þá kvað sjóliösforinginn varð-
skipin hafa verið mjög upptekinn
við það siðustu daga að aðstoða
loönuflotann, skera nætur úr
skrúfum skipanna td..
Nú er það að visu ekki ætlunin
að draga úr gildi þeirrar að-
stoðar, sem veitt er loðnuflot-
anum með þvi að losa nætur úr
skrúfum bátanna, en hitt er þó
vist, aðtil þess dyggðu minni skip
og verkefnasnauöari en þau fáu
varöskip, sem eru i islenskri eigu.
-úþ.