Þjóðviljinn - 07.02.1975, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 07.02.1975, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. febrúar 1975 Að nefna snöru— flæmska skrautinálverkið á veggnum, þar sem ávextir breiddu úr sér eins og holdmiklir rúbenskir englar umhverfis bikar af dumbrauði vini. bað var sið- asta gjöf önnu Mariu Rosenhööks til heimilisins. Erkendorf hafði ekki sagt neitt enn. Járnvörusalinn var að biða eftir þvi að hann gerði það. Erkendorf var fölur og kyngdi ákaft. — Kringlóttu sorptunnurnar, byrjaði hann. — Haltu áfram, sagði frú Erkendorf uppörvandi. Nú sagði frú Viktorsson ekki neitt. Það var augljóst að kringl- óttu sorptunnurnar gengu borgarstjóranum nærri hjarta. — Ég get ekki fallist á þær, sagði hann i örvæntingu. — Ég get ekki sainþykkt breytinguna i hreinsunaraðferðum. Ég var andvigur þessu strax á fundunum með heilbrigðisnefndinni. — Þaö er alveg satt, sagði frú Erkendorf og leit i kringum sig. — Enginn getur mótmælt þvi. — Og þess vegna, hélt Erken- dorf áfram með hugrekki örviln- unarinnar, — mun ég leggjast gegn breytingunni hjá lénsstjórn- inni. — Þú ætlar með öðrum orðum að fella tillöguna? sagði járn- vörusalinn rólega. — Þú hlýtur að sjá að það er tilgangslaust að kaupa bilinn, ef lénsstjórnin fellst ekki á breytinguna. Er það til- gangurinn? Borgarstjórinn minnti á mús sem köttur er að leika sér að. — Það er hættulegt að egna mig, sagði hann meö hvellri og gjalíandi rödd. — Sofðu á þessu, sagði Viktors- son. — Þú sérð þig kannski um hönd. öllum var ljóst að með þessu hafði fleygur verið rekinn inn I raðir meirihlutahópsins. öttinn hafði krafist fyrsta fórnarlambs- ins. Borgarstjórinn hafði hvikað og veikt með þvi flokk járnvöru- salans. Spennan var óþægileg, en frú Viktorsson rauf þögnina og sneri sér mjúklega að prestinum. — Hvað segir þú, Isak? sagði hún. — Eigum viö að tæma glösin okkar. Seinna kemur stund reikn- ingsskilanna. — „Enginn veit þann dag eöa þá stund”, svaraði presturinn. — Þetta stendur i hámessutexta morgundagsins. — En sniðugt. Er það satt? Desi sneri sér að lækninum og spurði stundarhátt: — Er einhver sérstakur sunnu- dagur á morgun? — Það er vist eitthvað — humm — eftir Trinitatis. Ég man ekki röðina. Presturinn sagði aðvarandi: — Dómssunnudagur. Enginn veit daginn og stundina 1. Dómssunnudagur kunngerði hjartnæman boöskap sinn um það sem kæmi fyrir óréttláta karla og fávisar meyjar: hinir fyrrnefndu drukknuðu eins og kettir i synda- flóði fordæmingarinnar og hinar siöarnefndu voru útilokaðar frá brúðkaupinu sem hugur þeirra stóð til. Gestirnir við hámessuna voru mjög hrifnir af þessu, sér i lagi presturinn. Mánudagur kom, dimmur og þungbúinn og um leið koin háfætti rannsóknarlögregluþjónninn, út- sendari landfógeta. Abrokabúar litu á hann með vaxandi kviða. Siödegis fengu kaffigestir á Plaza þau uggvænlegu tiöindi að Varm- in kirkjugarðsvörður hefði verið kallaður til yfirheyrslu á lög- reglustöðina. Það leið langur tiini áður en hann kom þaöan aftur. Uin kvöldið var Varmin að finna á Borgarhótelinu, en þeir sem reyndu að pumpa hann, fengu ekki annað en skæting i stað svars. Þriðjudagur rann upp, nistings- kaldur, og nýjar sögusagnir fengu byrundir vængi. En aðalumræðu- efni dagsins var bæjarstjórnar- fundurinn sem halda átti um kvöldið og þar skyldi ákveðið hvort sorphreinsunarbill yrði keyptur eður ei. Eftirvæntingin var mikil. Urslitin voru engan veginn vis. Bæjarfulltrúar skiptust I tvo næstum jafna hópa hvað örugg atkvæði snerti. En milli hópanna tveggja var ótryggt svæði, einskis manns land, byggt þöglum þegn- um sem ekkert létu uppi um skoð- anir sinar, eða kjaftaskúmum sein höfðu alltof margvislegar skoðanir til að hægt væri að býggja á þeim. Siðastliðnar vikur hafði Viktorsson haft hægt um sig og látið Skröderströin lækni um að hafa áhrif á almenningsálitið i sorphreinsunarinálinu. Þar sem málið tengdist heilbrigðisnefnd- inni, var mjög svo viðeigandi að bera fyrir sig lækni. En samt vissu allir að Viktorsson stóð á bak við þetta og að forustuhlut- verk hans var i veði, stóð nú höll- um fæti vegna grunsemdanna. A hinn bóginn var litið á Varm- in með ugg og tortryggni eftir lög- regluyfirheyrsluna. Það var næsta furðulegt, að hann skyldi ekki með einu orði róa áhangend- ur sina og skýra þeim frá þvi sem gerst hafði. Afstaða borgarstjóra olli báð- um flokkum áhyggjum. Sumir þóttust vita aö hann hefði sagt sig úr lögum við Viktorsson, aðrir fullyrtu að hann hefði lent i heiftarlegu orðaskaki við Varm- in. Sjálfur lét hann ekkert uppi. Enginn vissi hver afstaða hans yrði þegar til úrslita drægi, og á- stæða var til að ætla að hann vissi það ekki sjálfur heldur. Varmin kom timanlega til fundarins. Fulltrúarnir sem komnir voru á undan honum, söfnuðust þegar kringum hann eins og mý aö mykjuskán. Uppúr suðinu mátti heyra þrumuraust Varmins. •— Grunaður um að hafa haft af- skipti af Bottiner? Já, það getið þið bölvað ykkur upp á að ég hef haft. Það var ég sem sá um að koma honuin i gröfina. Meira suö og siðan ögrandi hlátur Varmins. — Já, það er atvinna min. At- vinna prestsins er að koina ykkur upp i himnariki. Það er áreiðan- lega mun erfiðara. Hann dró sig út úr hópnum og settist i forsetastólinn fyrir frain- an myndina af stórveldisdögum Abroka, með augun logandi af glettni og alls kyns skepnuskap. Nokkrum minútum áður en. fundur skyldi hefjast, kom Erkendorf. Borgarstjórinn var ekki i hópi kjörinna fulltrúa en hann sat i sinu eigin horni og hafði tillögurétt. — Hann sem er búinn að svikja, sagði einn fulltrúinn og hnussaöi fyrirlitlega. — Ekkitrúi ég þvi, sagði annar. — Hann þorið það ekki þegar til kastanna kemur. — Það er ekki að vita, sagði hinn þriðji ihugandi. — Er hann ekki eins og rottan sem flýr af sökkvandi skipi? útvarp Föstudagur 7. febrúar 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Elin Guðjónsdóttir les ævintýrið „Þumallinu” eftir H.C. Andersen i þýðingu Steingrims Thorsteinsson- ar; fyrri hluti. Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða. Spjali- aö við bændur kl. 10.05. Hin gömiu kynni kl. 10.25: Sverrir Kjartansson sér um þátt meö frásögnum og tón- list frá liðnum árum. Morguntónleikar kl. 11.00: Per-Olof Gilliblad og Fil- harmóniusveitin I Stokk- hólmi leika öbókonsert eftir Johan Helmich Roman/ Nicanor Zabaleta leikur Sónötu fyrir hörpu i B-dúr eftir Giovanni Battista Viotti/ Ferdinand Klinda leikur á orgel Fantasiu og fúgu um stef eftir Franz Liszt. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Himinn og jörö” eftir Carlo Coccioli* Séra Jón Bjarman les þýðingu sina (6). 15.00 Miðdegistónleikar: Ung- versk tónlist.André Gertler og Diane Andersen leika Sónötu fyrir fiðlu og pianó eftir Béla Bartók. Kodály- kórinn syngur lög eftir Zoltán Kodály; Iiona Andor stj. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Otvarpssaga barnanna: „Strákarnir, sem struku” eftir Böðvar frá Hnlfsdal. Vaidimar Lárusson les (6). 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Þingsjá. Umsjón: Kári Jónasson. 20.00 Tónleikar Sinfóniuhljóm- svcitar isiands I Háskóla- biói kvöldið áöur. Hljóm- sveitarstjóri: Jean-Pierre Jacquillat frá Frakklandi Einlcikari: Jean-Pierre Rampal flautuleikari frá Frakklandi a. Flautu- konsert i G-dúr eftir Wolf- gang Amadeus Mozart. b. Sinfónía nr. 5 i B-dúr eftir Franz Schubert. c. Flautu- konsert eftir Jacques Ibert. d. „Galdraneminn” eftir Paul Dukas. — Jón Múli Arnason kynnir tónleikana. 21.30 Ctvarpssagan: „Bland- að i svartan dauðann” eftir Steinar Sigurjónss. Karl Guðmundsson leikari les sögulok (9). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (11). 22.25 Frá sjónarhóli neytenda Asmundur Stefánsson hag- fræðingur talar um verð- lagsmál. 22.40 Afangar. Tónlistarþáttur I umsjá Ásmundar Jónsson- ar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. # sfónvarp FÖSTUDAGUR 7. febrúar 1975 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.35 Lifandi veröld. Fræðslu- myndaflokkur frá BBC um samhengið i riki náttúrunn- ar. 3. þáttur. Lffiö á fjöllun- um.Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. 21.05 Kastljós. Fréttaskýr- ingaþáttur. Umsjónarmað- ur Svala Thorlacius. 21.55 Villidýrin. Breskur sakamálamyndaflokkur. 6. þáttur og sögulok. Haka- krossinn. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 22.45 Dagskrárlok. #ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ KAUPMAÐUR IFENEYJUM I kvöld kl. 20. KARDEMOMMUBÆRINN laugardag kl. 15. Uppselt sunnudag kl. 15. HVAÐ VARSTU AÐ GERA 1 NÓTT? laugardag kl. 20 HVERNIG ER HEILSAN? 4. sýning sunnudag kl. 20. Miðasala 13,15—20 Siini 1-1200. Slmi 22140 í dagsins önn Heimildarkvikmynd um is- lenska þjóðhætti. Sýnd á vegum þjóðhátiðarnefndar. Hækkað verð. Frumsýning kl. 9. Ævintýramennirnir (The Adventureres) Æsispennandi, viðburðarik mynd eftir samnefndri skáld- sögu Harolds Robbins Leikstjóri: Leweis Gilbert islenskur texti Aðalhlutverk: Bekim Fehiniu Charles Aznavour, Chandice Bergen Sýnd kl. 5. Allra siðasta sinn. STJÖRNUBÍÓ Sfmi 18936 ISLENZKUR TEXTI. Verðlaunakvikmyndin: The Last Picture Show Afar skemmtileg heimsfræg og frábærlega vel leikin ný amerisk Oscar-verðlauna- kvikmynd. Leikstjóri: Peter Bogdanovich. Aðalhlutverk: Timothy Beit- oms, JeffBirdes, Cybil Shep- hard. Sýnd kl. 8 og 10,10. Allra siðasta sinn Bönnuð börnum innan 14 ára. Gregor bræöurnir ISLENSKUR TEXTI. Hörkuspennandi amerisk- itölsk litkvikmynd I Cinema- Scope uin æðisgenginn eltingaleik við gullræningja. Sýnd kl.4 Bönnuð innan 14 ára. Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270 sm VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN Aðrar ttarðir. wnlðaðnr oftir baiðm. GLUGGAS MIÐJAN íltmU, 12 • SW 38220 MARGAR HENDUR . VINNA §SAMVINNUBANKINN DAUÐADANS i kvöld. Uppselt FLÓ A SKINNI laugardag. Uppselt. FLÓ A SKINNI sunnudag kl. 15. 238. sýning. SELURINN HEFUR MANNSAUGU sunnudag kl. 20,30. ISLENDINGASPJÖLL þriðjudag kl.' 20,30. DAUÐADANS miðvikudag kl. 20,30. Aðgöngumiðasalan I Iðnó er opin frá kl. 14. Simi 1-66-20. KÓPAV0GSBÍÓ Slmi 41985 Átveislan mikla SfNSATIONEN FRA CANHES det store œde- gilde (lagrand* bou((e) HARCELL0 MASTROIANNI U60 TOQNAZZI • MICNEL PICCOLI PHIUPPE NOIRET -ANDREA FERREOL saftig memu / ruj6 Hin umdeilda kvikmynd, að- eins sýnd i nokkra daga. Sýnd kl. 10. Stranglega bönnuð innan 16 ára. í ræningja höndum ____________MICHAELCAINE inXIDNAPFELT. _______ —TREV0R H0WARD JACK HAWKINS D0NAID PlfASENCn Spennandi litkvikmynd gerð eftir sögu Robert L. Stevenson. Islenskur texti. Sýnd kl. 8 Bönnuð börnum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.