Þjóðviljinn - 07.02.1975, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 07.02.1975, Blaðsíða 16
Velasco hershöfðingi. Uppreisn lögreglunnar er alvariegasti mótþró- inn, sem stjórn hans hefur verið sýndur frá valdatöku hennar 1968. Munnlegur málflutningur fyrir borgardómi: Um frávís- unarkröfuna PERU: Uppreisn lögreglunnar bœld niður DJOÐVIUINN Föstudagur 7. febrúar 1975 Rússar kaupa fyrir 4 milj- arða 1 gær voru undirritað- ir i Moskvu tveir nýir sölusamningar við Sovétrikin. Annar samningurinn lýtur að þvi að sovétmenn kaupa af okkur 22.200 smálestir af hraðfrystum fiskflök- um og 6000 smálestir af heilfrystum fiski. Þetta kaupa sovétmennirnir fyrir 2 miljarða og 900 miljónir. Þá var samið um kaup sovét- manna á 30.000 smálestum af fiskmiöli. beas. borskamjöli, loðnumjöli og spærlingsmjöli fyr- ir 1 miljarð og 50 miljónir. Samtals var þvi samið um sölu á islenskum fiskafurðum til Sovétrikjanna fyrir 3 miljarða 950 miljónir króna. Þetta eru stærstu sölusamningar, sem gerðir hafa veriö samtimis milli islendinga og sovétmanna og munu þetta vera um 13% af heildarfram- leiðslu þessara afurða, en á sl. ári keyptu sovétmenn 7,6% af þessari framleiðslu okkar.-úþ 1 dag kl. hálftiu hefst i borgardómi Reykjavik- ur munnlegur málflutn- ingur i VL-málunum. Að þessu sinni verður tekin fyrir krafa Inga R. Helgasonar, hrl. um að máli VL-12 gegn tJlfari Þormóðssyni blaða- manni verði visað frá. Kröfu sina byggir Ingi á ákvæðum laga um sam- aðild, en upphafsmenn VL voru 14 talsins, en stefnendur eru aðeins 12. Það kom í hlut Hrafns Braga- sonar, borgardómara, að fara með mál Úlfars hjá borgardómi. 1 réttinum i dag mun Ingi R. Helgason fyrst gera grein fyrir kröfu sinni, síðan svarar lög- maður stefnenda, Gunnar Guð- mundsson, og siöar gefst lög- mönnum stefndra og stefnenda kostur á að svara. Gert er ráð fyrir að málflutningi ljúki á há- degi. Vert er að taka fram að i dag verður aðeins fjallað um frávis- unarkröfuna-, sjálft meiöyrða- málið kemur fyrir ef borgardóm- ur fellst ekki á kröfuna. LIMA 6/2 — Um þrjátiu manns eru sagðir hafa látið lifið og fjöl- margir særðust i Lima, höfuðborg Perú, i gær og nótt i átökum ínilli hersins og lögreglunnar i höfuö- borginni. Hófust illindin með þvl að 1500 lögreglumenn, sem kröfð- ust launahækkunar og betri starfsskilyrða, tóku á vald sitt lögreglustöð nokkra og vlggirtu sig þar. Þegar lögreglumennirnir neituðu að gefast upp, tefldi hér- inn fram skriðdrekum, og eftir tuttugu minútna bardaga voru lögregluinenn sigraðir. En ekki var þeim bardaga fyrr lokið en óeirðir gusu upp viðsveg- ar i borginni, og er óljóst hvort þær voru skipulagðar eður ei. Höföu óeirðainenn miðhluta borgarinnar á sinu valdi um skeið, köstuöu grjóti og bensin- sprengjuin (sem benda til þess að óeirðirnar hafi verið undirbúnar) og kveiktu I mörgum byggingum, þar á meðal skrifstofum blaðsins Correo og húsi upplýsingaþjón- ustu stjórnarinnar. Verslanir voru rændar og ruplaðar. Herinn skaut fyrst viðvörunarskotum, en þegar óeirðaseggirnir sinntu þvi ekki, var byssunum beint að þeim. Segjast sjónarvottar hafa séð allmarga skotna með vélbyssum úr skriðdrekum. Mun þá um siðir hafa tekist að dreifa óeirðamönnunum. Stjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi I landinu og numið stjórnarskrána úr gildi i bráðina. Talsmenn lögreglunnar segja að uppreisn þeirra hafi náð til borg- anna Arequipa, Piura og Trujillo, en það hefur herinn ekki staðfest. Velvopnaðir varðflokkar og skriðdrekar eru nú á verði á götuin við helstu stjórnar- byggingar I Lima. Talsmenn lögreglumanna neituðu þvi að uppþot þeirra væri af pólitiskum ástæðum, en sú fullyrðing mun tekin með fyrir- vara. Vitað er að hægri öflin I landinu eru mjög heiftúöug út i hina umbótasinnuðu herforingja- stjórn undir forustu Velascos Alvarados hershöfðingja, sem rikt hefur slðan I október ■ 1968. Stjórn hans hefur að miklu leyti tekið jaröeignir og auðinagn landsins úr höndum innlends og erlends auðvalds, og i suinar tók hún eignarnámi helstu blöð landsins, sem hægrimenn höfðu eignarhald á. Stjórnin hefur haft I frammi einhverja tilburði til að bæta kjör alþýðu og i utanrikis- máluin hefur hún tekið upp náið og vinsamlegt samband viö Kúbu, en sambúö hennar við Bandarikin og Brasiliu mun að sama skapi fremur kuldaleg. Lon Nol — nú tæmir hann fangels- in I herinn. Henda hluta af innvolsi Þjóðviljinn fékk þær upp- lýsingar hjá BUR, að togarar hennar hirða lifur þegar hana er að fá,en ekki sióg. Þá hirða B(JR- togarar hrogn. ögurvfkurtogararnir ögri og Vigri hirða ekki lifur, og fengum við þær upplýsingar þar, að það borgaði sig ekki! Hins vegar er hirt gota um borð i þessum togurum á hrygningartima. Nú kynni einhver sá, sem við aðgerð hefur fengist um ævina, að sjá það I hendi sér, að ef einhver hluti innvols úr fiski er hirtur og skilinn frá öörum hlutum þess, sparar það engan tima, fé né fyrirhöfn að henda því sem eftir stendur, frekar en að það auki á kostnað útgerðar að láta hirða haö sem eftir stendur og láta vinna úr þvi verðmæti, en eins og komið hefur fram hér I blaðinu er hægt að vinna verðmætt kálfa- fóður úr sjálfsmeltu slógi. -úþ Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið í Borgarnesi Alþýðubandalagið i Borgarnesi og nágrenni heldur fund á laugardag- inn kl. 2 i Snorrabúð. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Hreppsmálin. 3. önnur mál. — Allir velkomnir. Stjórnin. Aiþýðubandalagið Akranesi og nágrenni Munið fasta félagsfundi þriðja mánudag hvers mánaðar I Rein klukkan 8:30. — Á kvennaári höldum við árshátið okkar á góu. Munið 8. mars i Rein, góugleöi Alþýðubandalagsins á Akranesi. Nánar auglýst siðar. — Félagsmálanefnd. Alþýðubandalagið i Kópavogi A næstu mánuðum efnir félagið i Kópavogi til rabbfunda um ýmis málefni hálfsmánaðarlega. Fundirnir verða á þriðjudagskvöldum kl. 20.30 i Þinghól og eru öllum opnir. Fyrsti fundurinn er næstkomandi þriðjudag 11. febrúar. Þá verður rætt um spurninguna: Er alvarleg kreppa I aðsigi? Málshefjandi er Hjalti Kristgeirsson, hagfræðingur. Starfshópur um skipulagsmál i Reykjavik hittist að Grettisgötu 3 mánudaginn 10. febrúar kl. 8,30. A fundinum verða Sigurjón Pétursson og Sigurður Harðarson. Allir velkomnir. Borgarmáiaráð. Birgðaflekum sökkt PHNOMPENH 6/2 — RauOir khmerar neyddu I gær skipalest, sem var á leið upp Mekong með birgðir til Phnompenh, til þess að snúa við inn fyrir landamæri Suður-Vietnams. Areiðanlegar heimildir herma að þremur flutningaprömmum að minnsta kosti hafi veriö sökkt. Var þetta stærsta skipalestin, sem reynt hefur verið að senda til höfuð- borgar Kambódiu frá þvi að rauðir khmerar tóku að þrengja að borginni um áramótin. Siðan þá hefur tekist að koma sáralitiu af birgðum tii borgarinnar vatna- leiðina. ADDIS ABABA 6/2 — Harðir bar- dagar geisuðu f dag suður og suð- vestur af Asmara og viröast hernaðarátök sjálfstæðissinna f Eritreu og eþfópska hersins fara sfharðnandi. Flóttamenn streyma til borgarinúar utan af landsbyggðinni, og seint f nótt komust þangað nokkrir skrið- drekar Eþfópfuhers, sem höfðu tafist á leið sinni þangað I tvo daga vegna viðnáms uppreisnar- manna, sem hafa siegið hring um borgina. Haldið er áfram að flytja út- lendinga frá Eritreu loftleiðis. I gær var flogið frá Asmara með um 600 breta, bandarfkjamenn, indverja og grikki, og auk þess fóru þaðan þrjár flugvélar með eritreskar konur og börn. Þá hafa Um helmingi þeirra skipa og báta, sem reynt hefur verið að sigla upp fljótið til Phnompenh siðan uin áramótin, hefur verið sökkt, annaðhvort á leiðinni upp eftir eða til baka til Suður-Viet- nams. Er þetta mjög alvarlegt mál fyrir stjórn Lon Nols, þvi að mestur hlutinn af skotfærum þeim, eldsneyti og matvælum, sem hún heldur sér við á, hefur borist henni upp Mekong. Lon Nol viröist nú kominn I mikið hrak með mannafla, sein best sést á þvi að nýlega leysti hann úr haldi um 400 afbrota- Italir I hyggju að koma upp loft- brú til að flytja frá Eritreu þær 3000 manneskjur af Itölsku þjóðerni, sem þar eru búsettar. Likur benda til þess að Eþiópiu- her hafi misst fjölda skriðdreka og annarra brynvarinna farar- tækja á veginum suður af As- mara, en þar höfðu sjálfstæöis- sinnar komið fyrir jarösprengj- um. Eþiópski flugherinn gerir sprengjuárásir á nyrstu hverfi Asmara, þar sem sjálfstæðissinn- ar hafa enn fótfestu, en þeir munu hafa verið sigraðir I borginni sjálfri um helgina. Litið er um matvæli í borginni og skelfingu lostnir flóttamenn utan úr sveit og borgarbúar leita hælis I kirkj- um og klaustrum. menn og tók þá i her sinn. Rauðir khmerar eru nú svo nærri höfuð- borginni að enginn hluti hennar er óhultur fyrir eldfalaugaskotuin þeirra. Þannig fórust og særöust allmörg börn I dag er eldflaug lenti á barnaskóla i miðborginni. BLAÐ- BURÐUR Þjóðviljann vantar blað- bera í eftirtalin hverfi: Kvisthagi Tómasarhagi Stigahlíð Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsl- una. ÞJÓÐVILJINN Sími 1 7500 Sendlar óskast fyrir hádegi. Þurfa að hafa reiðlijól ÞjÓÐ VILJINN Mikið tjón Eþíópíuhers

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.