Þjóðviljinn - 07.02.1975, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. febrúar 1975
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
0 G ÞJÓÐFRELSIS
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Vilborg Haröardóttir
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Svavar Gestsson Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur)
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Prentun: Blaðaprent h.f.
YONANDI VITKAST FRAMSÓKN
Nú að undanförnu hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn krafist þess að landbúnaðurinn
verði lagður niður. Miklu hagkvæmara sé
að kaupa landbúnaðarvörur erlendis frá.
Iðulega hefur ákvörðun um innflutning
allskonar iðnaðarvara verið tekin á ná-
kvæmlega sömu forsendum: Að fram-
leiðslan innanlands sé svo dýr og hentugra
sé að flytja vöruna erlendis frá. Þegar
siðan hefur komið i ljós að innlenda fram-
leiðslan — jafnvel með eins góða vöru —
hefur staðið sig illa gagnvart inn-
flutningnum hafa postular hins „frjálsa
framtaks” sagt að iðnaðurinn hafi gott af
þessu — hann eigi að spjara sig. Og
islenskir iðnrekendur hafa samþykkt
þessar kenningar, samþykkt aðild Islands
að EFTA á þessum sömu forsendum — en
hafa siðan jafnan reynt að skriða upp i
fangið á stórumömmu þegar allt um
þraut.
Nú nýlega var innflutningur gefinn
„frjáls” — eins og það er kallað — á
húsgögnum og fleiri vörutegundum. Með
„frjáls innflutningur” er i þessu sambandi
átt við hvað þeir sem hafa mikla pen-
inga. eða geta slegið út peninga i bönk-
unum geti pantað húsgögn til landsins.
Það var enda ekki lengi beðið eftir um--
sóknum um gjaldeyri fyrir húsgagna-
innflutningi, fjöldi heildsala sá nú að
nauðsynlegt var að gripa tækifærið og
fórna sér með þvi að flytja inn húsgögn.
Umsóknir hrannast upp. Nú segir
það sig sjálft að almenningur á
Islandi tekur ekki takmarkalaust
við húsgögnum i stofur sinar enda þótt
sumum kunni að hafa komið slikt til
hugar. Þess vegna er ljóst að innflutn-
ingur erlendra húsgagna kemur nið-
ur á innlendum innréttinga- og hús-
gagnaiðnaði. Þar með er hætta á að
islensk iðnfyrirtæki fari á hausinn — og þá
er kallað á stórumömmu, rikið, og beðið
um fjárhagsstuðning eða gengisfellingu,
eins og iðnrekendur eru að panta þessa
dagana. En samdráttur i húsgagnaiðnaði
— þótt ekki komi nú til gjaldþrota —
kemur niður á atvinnunni i landinu —
minna verður um vinnu, færri hafa lifi-
brauð af þessari starfsgrein og svo þannig
koll af kolli.
En þessi sérkennilega atvinnumála-
stefna nýju viðreisnarstjórnarinnar hefur
fleiri hliðar: Þó að innflytjendur séu allir
af vilja gerðir til að flytja inn húsgögn,
þó að þeir hafi islenska peninga til að
borga þau er ekki vist að það sé auðvelt að
skipta þeim i Seðlabankanum i gjaldeyri.
Þar er nefnilega enginn gjaldeyrir til —
nema einn og einn dollari og eitt og eitt
pund sem unnt hefur reynst að kria út á
allskonar skuggalegum lánamörkuðum
úti i heimi. Islenska þjóðin er nefnilega
farin að lifa á kritum og spurningin er um
daga eða vikur — hversu lengi þóknast
kaupmanninum á horni alþjóðagötu
fjármálanna að skrifa hjá okkur — hversu
lengi verða keypt skuldabréf eða veð i
Islandi i erlendum kauphöllum?
Það er sem betur fer komið svo að
málgagn gjaldeyrisráðherra veltir þvi
fyrir sér hvort það borgi sig að vera is-
lendingur um þessar mundir. Það er góðs
viti vegna þess að litið hefur borið á slik-
um vangaveltum áður — og athafnirnar
hafa bent iskyggilega mikið i þá áttina að
forustumenn framsóknar hafi jafnvel
komist að þeirri niðurstöðu að það borgi
sig alls ekki, þvert á móti sé eðlilegast að
láta þá fáu græða á fjöldanum, láta þá fáu
hafa gjaldeyri sem fæst með lántökum
niðri i hinum stóra heimi, láta þá fáu ráða
ferðinni i hvivetna. Þá yrði þess heldur
ekki langt að biða að framsókn léti undan
þeirri kröfu Sjálfstæðisflokksins að land-
búnaðarvörur yrðu fluttar inn, land-
búnaðurinn islenski lagður niður á einu
bretti i staðinn. En vonandi vitkast fram-
sókn. Lengi getur vont versnað — vonandi
ekki endalaust — S
Eldhúsdagur um
efnahagsmál
utan dagskrár
fiskiskipa og einnig væri of mikiö
að taka 20% af afiaverömæti
togara i rikisábyrgöasjóö til
tryggingar á greiðslu vaxta og af-
borgana; 12-15% væri nóg.
Á að eyða?
Þá vakti Lúðvik Jósepsson
athygli á þvi aö gjaldeyrisaf-
greiðslur eru nú ekki frjálsar i
reynd heldur væru ýmsar gjald-
eyrisbeiönir lagðar til hliöar og
þaö jafnvel til lengri tima, en
þarna þyrfti að ráöast á vandann.
A aö heimila hömlulausa gjald-
eýrissölu til bilakaupa? — en i
þaö fóru 3 miljarðar á sl. ári. A
að eyða jafnmiklu i ferðalög er-
lendis? —1.760 miljónir fóru i það
1974.
Frelsi?
Rikisstjórnin hefur ekki kært
sig um neinar umræöur um hinn
brýna aðsteðjandi efnahags-
vanda sem hún ber að miklu leyti
ábyrgð á sjálf, engar upplýsingar
veitt þingmönnum um stööuna né
látið neitt frá sér heyra um
væntanleg úrræöi — þvi var eðli-
legt aö stjórnarandstöðuflokkar
heföu forystu um umræöur utan
dagskrár um efnahagsmál i sam-
einuöu þingi I gær. Bæöi Alþýðu-
bandalagiö og Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna höföu
ákveðið að óska eftir slikum um-
ræðum.
Fyrstu ræðuna flutti Jón Bald-
vin Hannibaisson skólameistari,
varamaður Karvels Pálma-
sonar;var þetta frumræða Jóns á
þingi og stóð i fulla klukkustund.
Yfirheyrslur
Jón Baldvin flutti þingheimi
„álitsgerð og tillögur þingflokks
SFV um vinnubrögð alþingis og
annarra stjórnvalda við val úr-
ræða til lausnar efnahags-
vandanum” frá 3. þ.m., en hún
hafði verið send forsætisráðherra
þann sama dag. 1 sammþykkt
þingflokksins var mjög dökkleit
lýsing á ástandinu og vakin
athygli á aðgerðarleysi stjórnar-
innar. Mæltist þingflokkurinn til
að gerð væri rannsóknarnefnd úr
fjárveitingarnefnd alþingis
(eöa henni að viðbættum fjár-
hags- og viðskiptanefndum þing-
deilda), eða þingiö að öörum kosti
skipaði sérstaka rannsóknar-
nefnd, og tæki hún ráðherra til
yfirheyrslu, svo og sérfræðinga
og oddvita hagsmunahópa, og það
i áheyrn alþjóöar. Kæmist hún
þannig til botns i efnahags-
vandanum og gæti komið sér
niöur á úrræði.
Vond stjórn
1 málin sinu kom Jón Baldvin
viða við og staldraði alllengi við
feril vinstri stjórnar sem hann
taldi harla vitaverðan. Sú stjórn
hefði veriö heltekin happdrættis-
hugarfari og storkað þjóðfélags-
legum þyngdarlögmálum. A fyrri
hluta árs 1973 hefði átt að hefja
viðtækar samdráttaraðgerðir i
efnahagslifinu: auka sjóðasöfn-
un, beita lánsfjárhöftum, draga
úr umframkaupgetu, skyldu-
spara, hækka vexti o.s.frv.
Nú þyrfti aö gera neyðarráð-
stafanir: draga úr almennri
neyslu m.a. með skattahækkun á
hátekjuhópum, flytja fjármagn
frá neyslu til atvinnuveganna
með gengislækkun eða milli-
færslu, auka sparnað m.a. með
verðtryggingu fjárskuldbindinga
(það fæli I sér stórhækkaða raun-
vexti) og jafnframt tryggja kjör
hinna verst settu.
Sjálfsblekking
Lúövik Jósepssontók næstur til
máls og kvaðst nú frekar vilja
ræða alvarlega um efnahags-
málin en munnhöggvast við hinn
nýja spámann sem nú væri upp
risinn. Efnahagsvandinn væri
vissulega allmikill svo sem þeir
vissu sem fylgdust vel með
skrifum stjórnarmálgagna:
gjaldeyrisvarasjóður uppurinn,
gifurlegur taprekstur hjá útflutn-
ingsatvinnuvegum, einkum i
sjávarútvegi og ekki enn búiö að
ákveða fiskverð.
Auk þess eru allir kaupgjalds-
samningar lausir og verkföll geta
jafnvel skollið á
Núverandi rikisstjórn gerði til-
teknar efnahagsráðstafanir
þegar i upphafi ferils sins og taldi
sér vist trú um alveg fram að
jólaleyfi þingmanna að þær væru
nægilegar til að tryggja afkomu
útflutningsatvinnuveganna, ef
dæma á eftir afgreiðslu á málum i
desember, samanber ráðstafanir
i sjávarútvegi þá.En nú er annað
komið á daginn.
Fiskverð strax
Fiskveröið er ókomið. For-
maður Llú segir að fyrst þurfi al-
mennar efnahagsráðstafanir, svo
megi ákveða fiskverð. Forsætis-
ráðherra hefur lýst yfir opinber-
lega að fyrst þurfi að ákveða fisk-
verð svo megi huga að efnahags-
ráðstöfunum. Auðvitað þarf að
ákvarða fiskverð þegar I stað I
samráði við stjórnvöld og þá með
hliðsjón af væntanlegum að-
gerðum.
Lúövik kvaðst ekki geta lagt
dóm á það hvernig rekstraraf-
koma útflutningsatvinnuveganna
er nú, enda fékk hann fyrst i gær i
hendur gögn frá Þjóðhagsstofnun
um þau efni.
Afskriftir
Sagt væri að heildartap báta á
ári væri að núverandi skilyrði 2
miljarðar króna og togara 1 mrð.
Þessum tölum ber að taka með
fyrirvara þvi ekki væri getið um
grundvöllinn: aflamagn, verðlag,
afskriftir, vaxtagjöld. Þjóðhags-
stofnun reiknaði með 2,7
miljörðum i afskriftir og væri það
drjúgur hluti áætlaðs taps.
Vextir
Beinar vaxtagreiðslur útgerðar
væru rúmir 2 miljarðar og
Þingsjá
hækkuðu þær við siðustu vaxta-
hækkun um 500 miljónir. Lúövik
lagði áherslu á það að vextirnir
væru alltof háir, i mörgum til-
vikum 18-24%.
Jón Baldvin segði að vexti ætti
að hækka, hannsegði lækkaænda
hefði hann dæmin um hvað
vaxtabyrðarnar þýddu. Verslunin
skuldar nú um 9 miljarða og með
nýorðnum vaxtahækkunum voru
lagðar 3-400 miljónir króna i
verslunina. Og auðvitað fær hún
leyfi til þess að velta þessu af sér
út I verðlagið!
Þær 500 miljónir sem vaxta-
hækkunin lagði á sjávarútveginn
mun Kristján Ragnarsson auð-
vitað krefjast að reiknist inn i
fiskverðið.
Ráöstafanir
Lúövík drap siðan á nokkur
atriði sem hann taldi mikilsverð
við mat á vandanum:
• Vexti þarf að lækka
• Fiskverð þarf að hækka
• Verðjöfnunarsjóðinn á að nota,
en inni I honum stóðu 2,6
miljaðar um siðustu áramót.
• Það var rangt að hækka tillag
til stofnfjársjóðs fiskiskipa úr
10% 115% um siðustu áramót.
• Það var rangt að taka 4-5 1/2%
af útflutningsverðmæti og setja
I oliusjóð um áramótin, þvi
þetta jafngildir um 12% fisk-
verðs.
Þá sagði Lúðvik að of mikiö
væri nú tekið i vátryggingarsjóö
Sjálfsagt væri grundvallar
skoðanamunur um efnahagsmál
milli þingmanna, en sá ágrein-
ingur þyrfti að koma fram.
Sumir, einkanlega hagfræðingar
segja: færum allan kaupmáttin
niður og það er best með al-
mennri gengilækkun þvi það
þýðir frelsi! Þetta telja alþýðu-
bandalagsmenn ósanngjarna
leið.
Lúövlkfór nokkrum orðum um
tillögur SFV og taldi þær óeðli-
legar; hið eðlilega væri að rikis-
stjórnin kæmi með sinar eigin til-
lögur og siðan ætti að ræða þær.
Viðráðanlegt
En þaö væri fjarstæða hjá Jóni
Baldvin að halda þvi fram að allt
væri nú komið um koll I efnahags-
málum. Vandinn væri að visu
mikill en aðstaðan góð I ýmsum
greinum, einmitt vegna þess að
góðærið var notað til að byggja
upp atvinnutæki, kaupa fiskiskip
og endurbyggja frystihús. Þar
kom til að ekki var farin sam-
dráttarleið Jóns Baldvins. En það
var svo sem vitað áður að hann
var andstæðingur vinstri
stjórnarinnar.
Benedikt Gröndal lét I sér
heyra og lýsti sök á hendur rikis-
stjórnarinnar fyrir forystuleysi.
Geir Hallgrimsson forsætisráð-
herra fagnaði frumkvæði SFV um
samráð en vildi sjálfur ráða
fyrirkomulagi. Efnislega vildi
hann ekki ræða efnahagsmálin
utan dagskrár en lét þess getið að
fjárlög mundu verða endurskoðuð
Frainhald á bls. 13