Þjóðviljinn - 07.02.1975, Side 6

Þjóðviljinn - 07.02.1975, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. febrúar 1975 Hagmál heimsins Á laugardaginn var birtist hér i blaðinu þáttur uin efnahags- vanda auðvaldsrikjanna ásaint nokkrum myndritum til skýr- ingará stöðu þeirra. Þá var birt grein úr franska blaðinu Le Monde þar sem efnahagssér- fræðingar þess héldu þvi fram að kreppa væri skollin yfir. Ekki eru öll borgaraleg blöð sammála þessu, þvi fer fjarri. í dag verður vitnað til tveggja vikurita sem njóta mikils álits austan hafs og vestan og viðrað- ar gagnstæðar skoöanir. Um er að ræða bandariska tiinaritið US News and World Report og franska ritið L’Express. US News and World Reporter talið eitt ábyrgðarfyllsta frétta- ritiheimi, nátengt helstu valda- miðstöðvum efnahagsiifsins i Bandarikjunum. Það hefur oft verið talið standa nærri þvi að vera málpipa bandarikja- stjórnar sjálfrar. Sú grein sem hér er endursagt úr, birtist um miðjan nóvember á liðnu ári, en ekki er ástæða til að ætla að nein stórtiðindi hafi gerst I efnahags- þróuninni siðan. í heftinu er grein eftir Owen L. Scott sem var aðalritstjóri US NWR i rúin 30 ár og telur hann fjarri öllu lagi að telja nú- verandi örðugleika i efnahags- máluin sambærilega við krepp- una sem lamaði efnahagsstarf- semina I Bandarikjunum á fjórða áratugnum og linnti ekki „fyrr en heimsstyrjöldin braust út 1939 og Bandarlkin hófu vig- búnað”, eins og hann segir af svo mikilli hreinskilni. Hann minnir á að atvinnuleysi komst upp 113 miljónir eða 25% vinnu- aflsins. Franska timaritið L’Express stendur nálægt miðju franskra stjórmnála og nýtur fjarska mikillar útbreiðslu. Aðalstjórn- andi þess er stjórnmálamaður- inn J.J. Servan-Schreiber, kunnur miðflokkamaður sem studdi Giscard 1 siðustu forseta- kosningum þótt upp úr siitnaði með þeim siðar. Athyglisverð eru ályktunar- orð franska 't'Imaritsins (grein- in birtist I janúarbyrjun og er i heild um horfurnar 1975) þegar búið er að gera grein fyrir bjart- sýnisspánni um Frakkland: „Hitt er svo annað mál að kreppuhættan er mun meiri i ýmsum öðrum löndum, sérstak- lega Bandarikjunum, Bretlandi og ítaliu”. hj- 1929-kreppan ber aftur að dyrum bandariska auðvaldsins. Teikning eftir kúbanska listamanninn Nuez. Kreppan situr með fasismann I fanginu fyrir utan iðjuver kapitalismans. Mitt i kreppunni komst Hitier til valda og hann vann bug á henni með þvf að fara aö undirbúa strið. Og i Bandarikjunum er viðurkennt aðheimsstyrjöldin var drýgri við að ráða niðurlögum kreppunnar en New Deal-stefna Roosevelts. Ber kannske að lita á það sem kreppuráðstafanir þegar þeir Ford og Kissinger hóta nú aröbum styrjöld? US News and World Report: Engin merki um allsherj ar kreppu Þau einkenni sem helst valda almenningi i Bandarikjunum ótta og kviða eru þessi: ■ Erfiðleikar I sölu nýrra bil- gerða. ■ ibúöabyggingar eru enn i iægð. ■ Atvinnuleysi er mikið og fer vaxandi. ■ „Visitaia viðskiptalifsins” sem stjórnvöid reikna mánað- arlega hefur verið fallandi og féll meira I september en á nokkrum einum mánuði i 23 ár. ■ tskyggilega hefur að undan- förnudregiðúr pöntunum á var- anlegum vörum, bæði til neyslu og fjárfestingar. Þetta er það sem að almenn- ingi snýr og hefur vissulega vakiö upp vofunar frá 1929 I vit- und margra. Og hagfræðingar eru hinir svartsýnustu, bæði þeir sem starfa i þjónustu hins opinbera og hinir sem eru úti I viðskiptalifinu. Alan Greenspan aðalráðunautur Fords forseta i efnahagsmálum varar við „ósk- hyggju um það að neysiuvöru- verðlag eða atvinnuleysi fari á næstunni I það horf sem viðun- andi mætti telja”. Walter Heller fyrrum for- maöur ráðgjafarnefndar um efnahagsmál telur að „menn verði að vera við þvi búnir að erfiöleikarnir I viðskiptalifinu vindi upp á sig og úr verði versti efnahagsvandi siðan styrjöld- inni lauk”. Endurtekning á 1929? Nokkrir hagfræðingar sem einkum virða fyrir sér vanda- málin sem spretta af oliuvið- skiptunum við Austurlönd nær og spennu I fjármála- og banka- kerfi heimsins velta þvi nú fyrir sér I alvöru hvort land okkar Bandarikin séekki á leiðinni inn i svipaða kreppu og skall á með veröbréfahruninu haustið 1929. Hagdeild timaritsins hefur farið vandlegan ofan i saumana á þessu máli og niðurstaðan er I sem skemmstu máli sú að yfir- standandi samdráttur I atvinnu- iifinu kunni að visu að vera meiriháttar áfall fyrir þjóðar- búskapinn en ekki sé nein ástæða til að spá óförum á borð við hrunið mikla 1929 og þá langvinnu kreppu sem sigldi i kjölfar þess. Þetta fullyrðum við á grund- velli athugunar á efnahags- ástandinu nú borið saman við þá þróun sem leiddi til kreppunnar miklu fyrir hálfum fimmta tug ára. Okkur finnst eftirfarandi at- riði athyglisverðust i þvi sam- bandi. Þetta er likt Skuldir: Fólk stofnar til mik- illa neysluskulda (afborgunar- lán). Arið 1929 námu neysluskuldir einstaklinga 88% af tekjum að frádregnum sköttum. Slikar neysluskuldir nema nú 75% tekna að sköttum greiddum og hafa vaxið úr 50% árið 1950. íbúðabyggingar. Mikill sam- dráttur eða um 46% var i Ibúða- byggingum frá 1925 til 1929. Slðan I október 1972 hefur ibúðum sem hafin er smiði á fækkað úr 2,5 miljónum i 1,1 miljón. Vextir. Þeir stóðu árið 1929 I þvi hæsta sem nokkru sinni hafði verið eða i 6%, tvöfalt hærri en um 1925. Nú eru vextir I hámarki eða um 11%, voru I 5% fyrir aðeins þrem árum. Bilaframleiðsla.Or henni dró mjög á árinu 1929 eða úr 577 þúsund I april i 319 þúsund I október eða um 45%. A fyrstu 9 mánuðum ársins 1974 minnkaði bilaframleiðsla um 25% miðað við sama tima árið áður. Þetta er ólíkt Verðbréfamarkaður. Mikil spákaupmennska hafði hækkað verð hiutabréfa um 482% á 8 árum. Dow Jones-bréfin seldust á verði sem svaraði til 19- földunar arðs. Margir hleyptu sér I skuldir til að kaupa hluta- bréf enda var hægt að fá þau að 9 tiundu hlutum til láns. Nú verður að greiða hlutabréf að helmingi I reiðufé og spákaup- nennska er litil. Lán verðbréfa- sala námu I heild 90% af verðgildi allra hlutabréfa 1929 en núna eru slik lán minna en 1% af hlutabréfverðmætinu. Dow Jones-hlutabréfavlsitaian hefur lækkað um 40% siðan i janúar 1974 en þá stóð hún mjög hátt. Mörg úrvalsbréf seljast nú á aðeins 7-földu arðsgildi. Veðskuldir.Veðbréf voru 1929 yfirleitt aðeins gefin út til fárra ára. Nú tekur það yfirleitt 20-30 ár að borga niður veðskuldir, greitt er mánaðarlega svipað og um leigu sé að ræða. Eignatrygging. Árið 1929 var ekki um að ræða mikla vernd gegn tjóni. Nú er viðtæk vernd af hálfu rikisins. Banka- reikningar og spariinnlán eru tryggð gegn tapi. Veðskuldir eru sérstaklega vátryggðar á vegum alrikisins. Bændum er hjálpað með uppskerutrygging- um og verðuppbótum. Almannatryggingar. Arið 1929 var öryggisleysi verkamanna, atvinnuleysingja og aldraðra svotilalgert. Nú eru komnar til sögunnar atvinnu- leysistryggingar, lágmarkslaun til handa flestum verkamönn- um, llfeyristryggingar sem taka til miijóna manna. Þar fyrir utan er félagsleg aðstoð við aldraða, ekkjur og munaðar- leysingja. Rikisafskipti af efnahags- lifsmálum voru litil 1929, útgjöld alrikisins námu aðeins 3% af allri eyðslu I hagkerfinu. Nú er þetta hlutfall komið upp I 20%. Þar að auki styður rikið mjög við ýmsan atvinnurekstur. Bjartsýni hjá L’Express í París Það verður engin alls- herjar kreppa í Frakk- landi heldur aðeins nokk- ur samdráttur og erfið- leikar sem honum tengj- ast, auk verðbólgu. Þrjár ástæður eru fyrir því að kreppan mun ekki berja að dyrum hjá okkur:, Birgðasala A 4. ársfjórðungi 1974 gekk mjög á birgðir I landinu en þær höfðu safnast fyrir á sjö fyrstu mánuðunum einkum. A þeim tima hafði orðiö mikil frain- leiösluaukning og langt umfram sölu. Vegna lánsfjárskorts i iön- aði og I viðskiptalifinu að öðru leyti dró mjög úr neyslu á öllum stigum efnahagslifsins en þegar Félagslegt skipulag Félagslegir þættir eru orönir svo sterkir i efnahagslifinu að nokkur kreppueinkenni verða fljótlega yfirunnin i sjálfu sér. Hér skiptir höfuðmáli að verka- menn njóta viðtækra atvinnu- leysistrygginga. Það hefur þvi ekki veruleg áhrif til að draga úr heildareftirspurn þótt at- vinnuleysi aukist nokkuð i svip þvi að maður sem sagt er upp vinnu „af efnahagsástæðum” hefur meiri tekjur úr trygging- unum en hinn sem heldur vinnu með 20% skertum vinnutima (32 vikustundir i stað 40). Rikisstjórnin hefur fjölinörg ráö i hendi sér — ráðstafanir i peninga- og skattamálum, möguleika á beinni aðstoð við illa staddar atvinnugreinar o.fl. — til að vinna gegn kreppuein- kennum og ekki er ástæða til að ætla annað en hún hafi þrek til aö nota þau.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.