Þjóðviljinn - 07.02.1975, Page 11
Föstudagur 7. febrúar 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Geir Hallsteinsson í samtali við Þjóðviljann:
„Það þarf að
gjörbreyta
landsliðinu”
„5 af þessum 13 mönnum hefði ég aldrei valið
— landsliðsæfingarnar eru algjörlega út í hött”
//Það er alveg greini-
legt að það þarf að gjör-
breyta öllu fyrirkomulagi
í sambandi við val og
þjálfun landsliðsins,"
sagði Geir Hallsteinsson í
samtali við Þjóðviljann í
gær. „óánægja meðal
landsliðsmanna hefur
verið mikil og má sem
dæmi nefna að á æfing-
unum um jólin var æf-
ingasókn að meðaltali um
20% og er hæpið að slíkt
yrði látið viðgangast hjá
nokkurri annarri hand-
knattleiksþjóð/ sem ætlar
sér að ná einhverjum
árangri. islendingar hafa
misst andlitið eftir þetta
Norðurlandamót og nú er
rétti tíminn til að byrja að
nýju/ — við höfum allt að
vinna. I apríl eigum við
hvorki meira né minna en
6 landsleiki/ 2 við tékka, 2
við júgóslava og 2 við
dani. Fyrir þann tima
þarf allt að vera komið í
fullan gang að nýju. Okk-
ur vantar góðan erlendan
þjálfara eins og skot og
með honum þurfum við
að hrista ærlega upp í ís-
lenska handknattleiks-
landsliðinu."
„Það er ekki hægt að komast
hjá þvi að áfellast Birgi Björns-
son verulega,” sagði Geir.
„Hann hefur verið algjör ein-
valdur liðsins i vetur, veriö einn
um að velja það, þjálfa það og
stjórna þvi i leikjunum. Birgir
fór skakkt i hlutina, að visu er
hann ekki einn um það, — mis-
tök hafa verið gerð mörg ár i
röö.
Ég hefði a.m.k. aldrei valið
fimm af þessum 13 lands-
liðsmönnum. Þeir eiga þar
ekkert erindi. Reglan við val
liðs er að nota 4-5 útispilara, 2-3
sérhæfða hornainenn og siðan 3
linuinenn á miðjuna. t okkar
landsliði eru svo margar skytt-
ur, að jieir Ólafur Jónsson,
Einar Magnússon, Ólafur
Einarsson og Viöar Simonarson
voru allir meira og minna inni á
linu i leikjunum á NM. Allir
hljóta að sjá hve fáránlega er
staðið að vali liðsins. Þá var
miðjumaðurinn Pálmi Pálina-
son haföur i hornunum alla leik-
ina og nýttist hann auðvitað alls
ekki þar. Það var ekkert hugsað
um að velja menn eftir stöðum
þeirra með sinuin félagsliðum.”
Þjálfurum félagsliða er
aldrei treyst
— Er undirbúningur okkar
fyrir NM slæinur?
— Ekki endilega fyrir Norður-
landamótið sérstaklega. Það
hefur verið farið skakkt i lands-
liðsæfingarnar i mörg ár. Þaö er
alveg sama hvað við leik-
mennirnir höfuin oft bent á það,
sem okkur finnst rangt, ekkert
tillit virðist tekið til þess. Á
landsliðsæfinguin er allt byggt
upp á þreki og aftur þreki.
Þjálfuruin islenskra félagsliða
er ekki treyst til þess að sjá um
likamlegt ástand okkar og þurf-
um viö þvi að vera I botnlausum
þrekæfingum hjá landsliðinu.
Þetta er alröng aðferð við þjálf-
un úrvalsliðs.
Það á að leggja alla áherslu á
að æfa leikkerfi, — samæfa
leikmenn margra félagsliöa.
Óánægjan I vetur hefur verið
svo mikil að i kringum jólin var
t.d. ekki nema um 20% mæting á
landsliðsæfingarnar, enda voru
þær litið frábrugðnar félags-
æfingunum.
Vitleysa að nota leikmenn
erlendis frá.
' — Var rangt að senda eftir
Axel?
— Já alveg tvimælalaust. Ég
hef oft verið i þeirri erfiðu að-
stöðu sein hann var I þarna og
er uúinn að sjá það nú, að það er
mikil vitleysa að taka menn
beint inn I landslið, sem ekki
hafa á nokkrurn hátt komið
nálægt undirbúningi þess. Þótt
ekki hafi veriö mikiö lagt upp úr
samæfingu landsliðsins er þó
alltaf ákaflega erfitt að koma
allt i einu inni leik þess,og Axeli,
Jóni Hjaltalin og mér hefur öll-
um gengið illa I flestum lands-
leikjum okkar á meðan við lék-
um með erlendum félagsliöum.
Þar að auki má segja að það
sé hrein frekja aö draga menn
inn i lið, sem þeir hafa ekkert
æft með. Það er rangt gagnvart
þeim, sem hafa æft hér heima,
en verða siðan að sitja eftir
vegna leikmanna sem koma er-
lendis frá.
Við þurfum erlendan
þjálfara
— Hvað er til ráða?
— Það er alveg augljóst mál,
að ef við ætlum að vinna okkur
upp að nýju er ekki nema um
það eitt að ræða að veita auknu
fé til handboltans og ráða er-
lendan þjálfara, sem er
reiðubúinn til róttækra breyt-
Geir Hallstcinsson — opinskár um aöfinnslur og breytingartil-
lögur.
inga. Við eigum 6 landsleiki i
vor og enn er timi til að byggja
upp fyrir þann tiina. tslending-
ar hafa beðið mikið afhroð á NM
og misst andlitiö verulega. Við
þurfum að brjóta allt niður og
byrja frá grunni.
Birgir þjálfari hefur sjálfur
sagt mér að hann hafi aðeins
verið ráöinn til bráöabirgða.
Okkur hefur lengi verið lofað er-
lenduin þjálfara en enn hefur
ekkert skeð. Það er svo sannar-
lega ekki seinna vænna að fara
að taka til hendinni.
Öðruvisi aðfarir úti
— Er farið öðruvisi að i
útlöndum?
— Já, þar er þjálfurum
félagsliðanna yfirleitt treyst
betur og þeir jafnvel hafðir
verulega með i ráöum. Þeim er
treyst til aö sjá uin þrekþjálfun
og annað þess háttar, og lands-
liðsæfingarnar byggjast upp á
æfingum leikkerfa, bæði töflu-
æfinguin, sem eru mjög mikill
þáttur og eins æfingum úti á
velli. Þrekæfingar landsliðs
mega i mesta lagi standa i 2
mánuöi við upphaf keppnis-
timabils.
— Er þá við Birgi einan að
sakast?
— Nei, langt i frá. Við leik-
mennirnir eigum lika okkar sök
á þvi hvernig til hefur tekist. Við
höfum ekki látið landsliðið
ganga nægilega fyrir. Æfinga-
sókn hefur verið léleg og þótt
óánægja komi upp má að sjálf-
sögðu ekki gefa allt upp á
bátinn og hætta að mæta. Það
er erfitt fyrir Birgi að æfa
saman menn sem ekki nenna að
mæta á æfingarnar sem skyldi.
Verð með í næsta leik
— Að lokum.Geir: Ertu búinn
að ná þér eftir meiðslin?
— Auðvitað er ég ekki búinn
að ná mér fullkomlega, en ég
verð með i næsta leik FH. Þótt
meiöslin nái sér ef til vill fljótt,
er maður alltaf hræddur og hik-
andi fyrstu leikina eftir svona
áfall. Ég hef reynt að haida mér
við likamlega og verð kominn á
fulla ferð innan tiðar — GSP.
LEIKNIR sló KR út
Fyrstu leikirnir i bikarkeppni kvöld og geröist þaö mark-
HSl fóru fram sl. miðvikudags- verðast að eina liðið úr 3. deild,
Það haföi ekkert að segja fyrir KR-inga að setja Ingólf óskarss. inn á
siðustu minútur leiksins gegn Leikni. Leiknir sigraði af öryggi og kom
það svo sannarlega á óvart. Hér sést Hafliði Pétursson fara framhjá
Ingólfi og skora úr horninu — rnynd: Einar
Leiknir úr Breiðholti, sló
KR-inga út úr keppninni með
glæsibrag.
Sá leikur fór fram i Laugar-
dalshöllinni og að honum loknum
lék 1R við Fylki og sigraöi með
miklum yfirburðum. I Garöa-
hreppi léku Breiðabliksmenn við
Stjörnuna og sigruðu 17-16 eftir
geysispennandi lokaminútur.
Staðan i léikhléi I leik Leiknis
og KR var 11-9 fyrir Leikni.
Markvörður þeirra hafði varið af
snilld og ekkert gefiö okkar bestu
1. deildarmarkvörðum eftir. í
siöari hálfleik léku KR-ingar
nokkuð fast, ætluðu sér greinilega
að vinna þennan leik og undir
lokið snaraði Ingólfur óskarsson
þjálfari KR sér út æfinga-
gallanum og tók sjálfur þátt I
baráttunni viðhið létt leikandi lið
Leiknis. Allt kom þó fyrir ekki —
Leiknir lék af öryggi og hélt
fengnu forskoti.
Sundmót Ægis
á næstunni
o
Sundmót Ægis verður haldiö i
Sundlaug Laugardals þann 16.
febrúar og Sundhöll Reykjavikur
þann 19. febrúar.
Keppt verður i eftirtöldum
greinum.
Sunnudaginn 16. feb. kl. 15.
1. 1500 m skriös, kvenna. Bikar-
sund
8. lOOm skriðs. telpna f. ’61 og s.
Bikarsund
9. 100 m skriðs. karla
10. 100 m bringus. kv.
11. 200 m baks. karla
12. 200 m fjórs. kv.
13. 4x100 fjórs. karla
14. 4x100 m fjórs. kv.
2.1500 m skriðs. karla,Bikarsund.
Miðvikudagnn 19. feb. kl. 20.15
3. 400 m fjórs. karla
4. 100 m flugs. kv.
5. 200 m bringus karla
6. 50 m skriðs. sveina f’ 63 og s.
7. 50 m bringsu. telpna f. ’63 og s.
Þátttökutilkynningum skal
skilaö á þar til gerðum
skráningarkortum i siðasta lagi
þriðjudaginn 11. febrúar i Sund-
höll Reykjavikur, eöa til Sigurðar
A. ólafssonar, Brilnaveg 3, ásamt
kr. 50 fyrir hverja skráningu.
Undanrásir verða þriðjudaginn
18. febrúar kl. 20.