Þjóðviljinn - 07.02.1975, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. febrúar 1975
Concorde eykur
tíðni húðkrabba
Washington 5/2 reuter — Banda-
riskur prófessor hefur sett fram
þá fullyrOingu aO umhverfisskaO-
ar af völdum hljóOfrárra farþega-
véia geti aukiO mjög tfOni húO-
krabba. Þessi fuliyrOing stangast
á viO yfirlýsingu bandariska sam-
göngumálaráOuneytisins sem
segir aO þær valdi engum skaOa.
Samkvæmt tölum sem banda-
riska umhverfisverndarráöiö
hefur birt er því spáö aö 375 Con-
cordeþotur veröi komnar i
umferö áriö 1990. I skýrslu sam-
göngumálaráöuneytisins segir aö
125 sllkar þotur sem flygju 4.4
klukkutfma á dag myndu eyöa
ózonlaginu I andrúinslofti jaröar
um 1.5%.
Ózonlag betta hefur baö gildi
fyrir llfiö á jörðinni aö þaö bægir
frá útfjólubíáum geislum sólar.
Ef þetta lag eyðist I þeim mæli
sem aö framan er getiö mun þaö
valda 1% aukningu á tlðni
húökrabba segir dr. Harold John-
ston. 1% aukning þýðir að þeim
sem fá húökrabba myndi fjölga
uin 5 þúsund á ári.
BÚTASALA —
BÚTASALA
Litlir og stórir bútar —
allir ódýrir.
0. L.
■*- ^ — 1 —
Laugavegi 71. Sími 20141
IPÚTBOÐ
Tilboö óskast I sölu á eftirfarandi efni, fyrir Rafmagns-
veitu Reykjavlkur.
1. Jaröstrengir, ýmsar gerOir og stæröir. — Opnunardagur
tilboöa 6. mars n.k.
2. Tengiskápar. — Opnunardagur tilboöa 5. mars n.k.
3. Lágspennuvör. — Opnunardagur tiiboöa 4. mars n.k.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Ffíkirkjuvegi 3 — Sími 2S800
zA
0
INNRETTINGAR
Tilboð óskast I smíöi innréttinga á 1. 2. og 3. hæö Nýbygg-
ar Fæöingadeildar Landsspftala islands. Útboösgagna
skal vitja á skrifstofu vora gegn skilatryggingu kr. 5.000.-
Tilboö verða opnuö á sama staö 25. febrúar 1975, kl. 11:00
f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGABTÚNI 7 SIWI 26844
Námsvist
í Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöid munu væntanlega veita einum Islend-
ingi skólavist og styrk til háskólanáms I Sovétrlkjunum
háskólaáriö 1975-76. Umsóknum skal komiö til mennta-
máiaráöuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 24.,
febrúar n.k., og fyigi staöfest afrit prófskfrteina ásamt
meömælum. Umsóknareyöublöö fást I ráöuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö,
3. febrúar 1975.
Atvinna ■ Atvinna
Skrifstofustarf
Vanan vélritara vantar nú þegar á bæjar-
skrifstofuna i Kópavogi. Hálfs dags vinna
kemur til greina. Upplýsingar veitir
undirritaður.
Bæjarritarinn i Kópavogi.
Minning
mmmmmmmmmi^mmmmmmmmm
Filippus Amundason
Fœddur 2.8. 1877 -
Enn einn af brautryöjendum Is-
lenskrar verkalýöshreyfingar er
fallinn i valinn.Filippus Amunda-
son járnsiniður lést I Borgar-
spltalanuin aöfaranótt 31. janúar
sl. 97 ára aö aldri. Þar lauk langri
æfi dugmikils erfiöisvinnumanns
og drengilegs og kjarkmikils for-
ystuinanns og félaga stéttar-
bræðra sinna.
Filippus Ámundason var fædd-
ur 2. ágúst 1877, að Bjólu I Ása-
hreppi I Rangárvallasýslu. For-
eldrar hans voru Amundi Filipp-
usson bóndi þar og kona hans
Ragnheiður Eyjólfsdóttir frá
Herdisarvik.
Sneinina mun Filippus hafa
orðið að hefja erfiöisvinnu eins og
titt var á þeim tímum, er hann
ólst upp á. Um aldamótin flyst
Filippus til Reykjavlkur 23 ára að
aldri. Vann hann þar öll almenn
verkamannastörf, er til féllu,
m.a. var hann nokkur ár starfs-
maður hjá Thomsens-verslun,
sem þá var helsta verslun i
Reykjavik. Eftir lát Filippusar
mun enginn vera á llfi er unniö
hefur hjá þeirri verslun.
Ariö 1908 giftist Filippus Ing-
veldi Jóhannsdóttur, og liföu þau i
góðu hjónabandi I 50 ár eða þar til
Ingveldur lést I janúar 1959. Síð-
ustu æfiárin var Ingveldur mikill
sjúklingur en Filippus hætti þá
störfum, 78ára aö aldri, og hjúkr-
aði konu sinni f jögur siöustu æfiár
hennar.
Filippus og Ingveldur eignuöust
sjö börn, fjóra syni, Karl, Jóhann,
Indriða og Hauk, og þrjár dætur,
Valgerði, Þuríöi og Þórdisi.
Þuriöur og Þórdis eru nú einar
á lifi af börnum Filippusar, þann-
ig að hann hefur mátt fylgja fiinm
börnum sinum til moldar.
Um 1913 fluttust Filippus og
Ingveldur til Vestmannaeyja og
bjuggu þar I tvö ár. I Vestmanna-
eyjum hóf Filippus járniönaöar-
störf. Siðan er hann kom aftur til
Reykjavikur hélt hann áfram
járniðnaðarstörfum hjá kunnum
hagleiksmanni, ólafi Jónssyni.
Þar lauk Filippus náini. Hann var
mjög fjölhæfur járniðnaðarinaö-
ur, eirsmiður, vélsmiöur og járn-
smiöur (eldsmiöur). Filippus
vann hjá mörgum járniönaöar-
fyrirtækjum hér I Reykjavik, svo
sem Hamri h.f., Vélsmiðju
Kristjáns Gislasonar, Vélsmiöj-
unni Keili og fleirum, alls uin 45
ár, þar til hann hætti störfuin 78
ára gamall. Filippus var lengi
prófnefndarmaður viö sveinspróf
i járniönaöariöngreinum.
Um og upp úr aldamótum, eöa
þegar Filippus Amundason flyst
til Reykjavlkur er reykvlsk al-
þýða aö vakna til stéttabarátt-
unnar. Jafnaðarstefna og félags-
hyggja veröa aö hugsjónum og
baráttumálum verkafólks.
Filippus Amundason gerist þá
strax ákafur og einlægur verka-
lýössinni og skipar sér I raöir rót-
tækustu jafnaðarmanna og hlýtur
heiöurstitilinn „kommúnisti”.
Hann er náinn félagi ólafs
Friörikssonar, Henriks Ottósson-
ar og fTpiri forystumanna komm-
únista þeirra tima. Atti sæti i
Dagsbrúnarstjórn meö Héöni
Valdimarssyni og I „rauöu
stjórn” Dagsbrúnar meö Arsæli
Sigurössyni trésmiö og Guöjóni
Benediktssyni múrara.
A þeim árum eöa um 1919 kynn-
ist Filippus Einari Bjarnasyni i
Landssmiöjunni og þeir ásamt
fleiri járniönaðarmönnum taka
aö ræöa um stofnun stéttarfélags
járniönaðarmanna, og 11. aprll
1920 er Filippus Amundason einn
af 17 stofnenduin Félags járniön-
aöarmanna og hefur veriö félags-
maður þess alla tiö siöan.
Strax I upphafi varö Filippus
einn af forystumönnuin Félags
járniðnaöarmanna og einn þeirra
sem bar félagsstarfið uppi fyrstu
og erfiðustu árin.
Formaður félagsins var Filipp-
us I sex ár 1922—1927 og sat I
stjórn I sjö ár 1928—1932 og 1936
og 1937. Var hann þá ýmist vara-
formaður, ritari, eöa hann gegndi
öörum stjórnarstörfum innan fé-
Dáinn 31.1. 1975
lagsins. ógerlegt mun vera aö
telja upp öll þau störf sem Filipp-
us hefur innt af hendi I þágu Fé-
lags járniðnaöarmanna.
Einkenni Filippusar i störfum
voru starfsgleöi og baráttuþrek,
ásamt heiðarleik og hjálpsemi.
Markmið Filippusar var bætt
kjör og fegurra mannllf verka-
fólki til handa. Þetta var honum
ávallt efst I huga og hann fylgdist
vel meö öllu sem geröist I verka-
lýðs- og stjórnmálum, þar til á
síöasta aldursári hans að skyn-
færi hans sljóvguöust mjög.
Filippus Amundason varö
aldrei efnaður maöur, sem kallað
er, frekar mun hann og heimili
hans hafa fórnaö ýmsu vegna
hans félagslegu starfa.
Félagsmenn Félags járniön-
aöarmanna mátu mikils starf
Filippusar I þágu félagsins og á
tuttugu ára afmæli þess var hann
kjörinn heiöursfélagi. Allir sein
orðiö hafa forystumenn Félags
járniönaöarmanna hafa kynnst
Filippusi Amundasyni vel og orö-
iö kunningjar hans og vinir og
notið hvatninga hans og góöra
óska.
Filippusi Amundasyni mun
hafa fundist starf hans að stofnun
félagsins og fyrir þaö, ekki
til einskis unniö og fagnaði
hann þvi einlæglega þegar sæmi-
legur áfangi náöist.
1 orlofshúsum félagsins dvaldi
Filippus nokkrum sinnum og undi
sér þar vel, m.a. hélt hann þar
uppá 95 ára afmæli sitt 2. ágúst
1972 meö ættingjum og vinum.
Eftirlifandi dætur Filippusar,
Þurlöur og Þórdis, hafa annast
föður sinn meö sérstakri uin-
hyggju slöustu æfiár hans. Félag
járniönaöarmanna vottar þeim
nú viö fráfall hans, samúö og
þakklæti.
Félagar Félags járniönaöar-
manna heita þvl nú, þegar Filipp-
us Ámundason er allur, aö vera
trúir markmiðum hans, sem rót-
tæks verkalýðssinna.
Guöjón Jónsson, járnsmiöur.
Þaö var svo oft gott aö koma
vestur I Brautarholtiö, fá sér kaffi
I gamla húsinu meö gömlu mynd-
unum á veggjunum og bókunum á
hillunum, heyra tifiö I stóru
klukkunni og rabba viö þig um
daginn og veginn (þvl það var svo
sannarlega hægt þótt þú værir 97
ára). Hlusta á gömlu sögurnar
um hetjurnar og hvernig „kall-
arnir” fóru illa meö verkalýöinn
og um prestana sem ýttu viö þér,
— jafnvel þótt þú segöir sömu
sögurnar Iþrlgang eöa I fjórgang,
jafnvel þaö var hægt aö liöa svona
gömlum kalli eins og þér, því þvl-
llkur var frásagnarandinn og
duldu neistarnir af klmninni. Og
alltaf sastu I svarta stólnum þln-
um I horninu, á hverju sem gekk,
þú varst oröinn svo gamall og
haröur aö ekkert beit á þig.
Ég gleymi ekkiþegar viö fórum I
bfltúrinn I sumar til aö skoöa
Reykjavlkina, hvaö þú varöst
barnslega hissa á allri breyting-
unni og ánægöur yfir því hvaö all-
ir hlytu að hafa það miklu betra
núna en I gamla daga þegar þú
varst aö þræla og þaö glansaöi á
gamla slitna hattinn þinn sem var
svo undarlega óllkur umhverfinu.
Já þú varst svo sannarlega einn
af þessum köllum sem vöktu hlýj-
ar tilfinningar og breiöa væntum-
þykju.
En öll ljós dofna og þú veiktist
og varst sendur burt á stóra spi-
talann. Og nú var allt I einu ekki
eins gott kaffið I Brautarholtinu
og tifiö I klukkunni virtist til-
gangslaustog tómlegt, og þaö var
llka þá aö það fannst aö þaö
varst þú sem gafst húsinu lit, llf
og anda. Og þó þú lægir á stóra
spítalanum þar sem þú gafst eng-
an lit, llf né anda þá varstu hress
mitt I veikindunum og mundir svo
margt. Oft minntistu á litlu bræð-
uma, þann sem var svo óheppinn
aö fá ekki aö kynnast kallinum
honum langa sínum öröuvlsi en I
sögum og hinn sem þér þótti svo
vænt um en var fluttur burt og gat
ekki kvatt þig.
Og loks slokknaöi ljós þitt al-
veg. Þín æfi var liöin, en þln
minning mun alltaf lifa svo lengi
sem llf er I Brautarholtsbúum og
niöjum þeirra.
Fyrirgeföu fátæklegu oröin
mln, vertu svo sæll gamli kall, og
ég þakka þér fyrir aö hafa leyft
mér aö þekkja þig, viröa þig og
þykja vænt um þig.
■ Dlsa.
Þökk sé starfsfólki á 7A Borg-
arspltalanum fyrir góöa umönn-
un.
Tveir
Kristjánar
1 Þjóöviljanum sl. þriöjudag,
birtist grein eftir Kristján
Pétursson, Skriönafelli á Baröa-
strönd, Með greininni birtist
mynd af alnafna Kristjáns, sem
búsettur er i Reykjavik. Biður
Þjóöviljinn þá alnafna vel-
viröingar á þessum mistökum.
STYRKIR TIL NÁMS-
DYALAR Á ÍTALÍU
Itölsk stjórnvöld bjóöa fram nokkra styrki handa Is-
lendingum til námsdvalar á ttailu á háskólaárinu 1975-76.
Styrkirnir eru m.a. ætlaöir tii náms I Italskri tungu, en
itöiskunámskeiö fyrir útlendinga eru árlega haldin viö
ýmsa háskóla á ttalíu. Kem;»í mismunandi löng námsdvöl
til greina til styrkveitingar, en nota þarf styrkina á tlma-
bilinu 1. nóvember 1975 — 31. október 1976. Styrkfjárhæöin
nemur 110 þúsund llrum á mánuði.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála-
ráöuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavlk, fyrir 15. mars
n.k. t umsókn skal m.a. greina fyrirhugaöa námsstofnun
og áætlaöa lengd námsdvalar. — Umsóknareyöublöö fást I
ráöuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö,
4. febrúar 1975.