Þjóðviljinn - 23.02.1975, Síða 5

Þjóðviljinn - 23.02.1975, Síða 5
Sunnudagur 23. febrúar 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Kosningaslagur í Portúgal Nú f yrir skömmu var því slegið föstu, að þingkosn- ingar þær sem Portúgölum var lofað, þegar herinn steypti f asistastjórn Caetanos í fyrra, skuli fara fram þann 25. apríl. Nokkur átök höfðu orðið um dagsetninguna — hluti liðsforingjanna í MFA, hinni pólitísku hreyfingu hersins, vildu skjóta þeim nokkuð á frest enn og nutu þeir meðal annars stuðn- ings hins vel skipulagða kommúnistaf lokks lands- ins. Ekki leið á löngu þar til sex flokkar höfðu tryggt sér undir- skriftir þeirra 5000 meðmælenda sem flokkur þarf til að geta boðið fram. Stjórnmálaforingjar tóku þegar að velta fyrir sér samfylk- ingarmöguleikum, en margir hafa einnig uppi áform um að stofna til nýrra flokka. Flesta flokka er að finna á vinstri armi stjórnmála og þar eru einnig þeir flokkar sem öflug- astir virðast. En eins og að líkum lætur skortir mikið á það, að milli þeirra riki eining um það, hvernig fara skuli að þvi að gera Portúgal Spinola: leikstjóri hjá Krstilegum deniókrötum að sósialisku samfélagi. Fyrir skömmu lauk deilu um lög sem kváðu á um stofnun eins verka- lýðssambands með ótviræðum sigri kommúnistaflokksins, sem barðist fyrir einingarsamtökum, enda getur flokkurinn hæglega visað til þess, að sá klofningur verklýðshreyfingarinnar i tvö eða þrjú sambönd sem algengur hef- ur verið i rómönskum löndum, hafi ekki hvað sist orðið til þess að halda verulegum hluta verka- fólks utan allra samtaka. En sósialistar og aðrir keppinautar kommúnista hafa mjög óttast þessa löggjöf, af þeirri einföldu ástæðu, að kommúnistar hafa nú þegar forskot fram yfir þá meðal verkafólks og munu ráða lang- samlega mestu i einingarsamtök- um. Hin harða afstaða sem vinstriflokkarnir hafa tekið til þessa máls hefur meðal annars orðið til þess að ekki eru mögu- leikar á að smiða breiða alþýðu- fylkingu fyrir kosningarnar. Kommúnistar. Kommúnistaflokkurinn er vel i stakk búinn til átaka en hann nýt- ur agaðrar forystu Alvaro Cunhals og á marga hauka i horni i MFA, hershreyfingunni Hann á sér einnig aðra hæfa foringja eins og Octavio Pato og Sergio Vilarigues sem báðir hafa setið árum saman i fangelsum Salaxarstjórnanarinnar. Flokk- urinn getur búist við verulegu fylgi i borgum. en hann reynir og mikið til þess að ná fótfestu i sveitum. 1 tveim héruðum Suður- Portúgals hafa kommúnistar haft forystu um að flýta fyrir skipt- ingu jarðnæðis, sem afar brýn er eins og nærri má geta. Sósíalista ,,zúlúar" Annar flokkur sem verið hefur mjög virkur i viðleitni til að tryggja verkalýðsflokkum meiri hluta i kosningum er Movimento da Ezquerda Socialista (MES) sem myndaður var eftir valda- töku hersins i fyrra. Helsti foringi hans var málafærslumaðurinn Jorge Sampaio, en i flokknum eru bæði menntamenn og verka- menn. En Sampaio var sjálfum vikið úr sessi á þingi flokksins um ný- árið sakir þess að hann þótti of deigur. Foringjar MES, sem and- stæðingarnir kalla stundum „zúlúa” leggja ekki dul á það að flokkurinn munu styðja við bakið á Alvaro Cunhal og kommúnist- um i kosningunum. Ein aðalkenn- ing flokksins lýtur að nauðsyn þess að kjósa þing „verkamanna og bænda” i staðinn fyrir „flokkapólitikusa”. Það var MES sem skipulagði verkfall sem i fyrra lamaði portúgalska flugfé- lagið TAP i mánaðartima — eitt af markmiðunum var að reyna að stöðva þann fjárflótta sem auð- menn Portúgals stunda eftir getu og hefur valdið landinu miklum vandræðum. Annar sterkur hópur á hinum marglita vinstri armi er Movimento Democratico Populai (MDP/CDE), sem talinn er njóta 'mikils stuðnings meðal yngri liðs- foringja. Flokkur þessi leggur mikla áherslu á að hann sé fyrst og fremst „hreyfing” og er talinn eiga möguleika á að sækja all- mikið af atkvæðum til landbún- aðarhéraðanna, þar sem viða rikir gróið vantraust á flokkapólitik. -Siðustu daga hefur það komið i ljós, að þessir þrir, kommúnistar, MES og MDP ætla að hafa með sér einhverskonar kosninga-' bandalag, sem hefur það að markmiði að ná sem bestri stöðu gagnvart hinum varfærnu leið- togum sósialdemókrata. Soares og grannar hans. Helsti keppinautur Cunhals vinstra megin i portúgalskri pólitik er Mario Soares utanrikis- ráðherra, sá stjórnmálamaður sem best er þekktur erlendis vegna samninganna sem hann hefur staðið að við frelsishreyf- ingar ný-efnd*nna. Sósialista- flokki hans, PS, er spáð miklu fýlgi- En flokkurinn hefur orðið fyrir nokkrum skakkaföllum. í desem- ber sagði hópur manna skilið við Ps og myndaði Sósialfska alþýði. hreyfingu, FSP. Þessi hópur dregur ekki dul á að hann hefur ekki mikinn áhuga á kosningun- um i april, og fær i staðinn þá einkunn frá fyrri flokksfélögum að þar fari „rómantiskir heims- endaspámenn” sem hann er. FSP stendur að ýmsu leyti nokk- uð nærri MDP sem áður var nefndur. ,, Fólkdemókratar". Nær miðju kemur svo Partido Popular Democratico, PPD, sem er einskonar frjálslyndur miðju- flokkur, sem telur sér samt i hag að hafa uppi vissar vinstritil- hneigingar i ætt við sósialdemó- kratisma. Foringi flokksins, Fransisco Sa Carneiro, er ásamt með Mario Soares sá stjórnmála- maður sem hefur mest hamast gegn þvi sem þeir kalla viðleitni kommúnista til að koma á „verkamannaalræði” i Portúgal. Þeir hafa einnig gagnrýnt til- hneigingar hjá MFA, hinni pólitisku hreyfingu hersins, til að halda i þau völd sem liðsforingj- arnir nú hafa. PPD gæti hugsan- lega haft einskonar samstarf við sósialistaflokk Soares i kosning- unum. Flokkurinn er reyndar fullur af mönnum úr ólikustu átt- um, en er sagður kunna þá list vel að spila sem best úr þeim spilum sem hann hefur á hendi og fela þá TÁGAHÚSGÖGN Höfum til sölu skemmtileg tágahiisgögn. Yerðið á stólnum er kr. 5.370.00, borðið kostar kr. 8.960.00 og kollurinn kr. 1.800.00. Seljum ennfremur innkaupakörfur á kr. 1.390.00 og kr. 975.00 og brauðbakka á kr. 650.00. LIVERPOOL Laugavegi 18a lýði var undir hinni fasisku stjórn). Þá mun það að sjálfsögðu koma flokknum að miklu haldi, að kaþólska kirkjan er honum mjög hliðholl — ekki sist i sveit- um. Það er einmitt hið pólitiska ástand i sveitum sem er helsti vandi vinstri flokkanna — þvi þar geta gósseigendur og embættis- menn frá fyrri tið haft mikil áhrif á litt uppiýsta og litt læsa alþýðu. Osorio var um skeið upplýs- ingamálaráðherra i bráðabirgða- stjórn þeirri sem herforingjarnir komu á laggirnar i fyrra. Hann var einn af helstu stuðn- ingsmönnum Antonio de Spinola hershöfðingja, sem átti mikinn þátt i að undirbúa jarðveg fyrir valdatöku hersins i fyrra, en hraktist úr forsetaembætti i sept- ember vegna andstöðu við vinstriþróun i landinu. Spinola er enn allmikil en um margt óþekkt stærð i portúgölskum stjórnmál- um, en það er haft fyrir satt að hann sé nú einskonar leikstjóri á bak við tjöldin hjá Kristilegum demókrötum. Og allir hinir. Þvi má heldur ekki gleyma, að fyrir utan þá hálfa tylft vel skipu- lagðra flokka sem nú takast á, er til mikill sægur af smáum hópum langt til vinstri. Þar er um ýmis tilbrigði við maóisma eða anarkisma að ræða og liðsmenn koma einkum úr hópi stúdenta. Þessir hópar láta mjög að sér kveða i kosningabaráttunni — meðal annars eru vigorð þeirra og litrik plaköt einkar áberandi á húsveggjum i Lissabon. En það er ekki liklegt að það muni mikið um kjörfylgi þeirra i þeim kosn- ingum sem portúgalir ganga nú til i fyrsta sinn i háa herrans tið. (ÁB tók saman) Mario Soares og Alvaro Cunhal: sambúðin milli verklýðsflokkanna hcfur stórversnað staðreynd, að hér er um mjög útbreitt að hann hallist að misjafna sauði að ræða. einskonar nýfasisma. Hægrif lokkar. Nú þegar er óhætt að fullyrða, að tveir af þrem flokkum á hægri væng hafi litla möguleika á fylgi. Þetta á i fyrsta lagi við um hinn litla flokk konungssinna, PPM, en foringi hans, Rolao Preto, var hér áður fyrr þekktur svartstakkur, þeas fasisti. Partido do Centro Democratico Social, CDS.hafði i ýmsum skoð- anakönnunum hlotið allmikið fylgi, en nú mun talið að verulega hafi dregið úr möguleikum þess flokks. Það var þessi flokkur sem fyrir þrem vikum hélt sögulegt þing i Oporto, sem ýmsir herskáir hópar lengst til vinstri gerðu sitt besta til að reyna að hleypa upp. Fortið margra áhrifamanna þess flokks er m jög menguð af fasiskri fortið; það álit á honum er mjög Kristilegir A hinn bóginn hefur stjarna Kristilegra demókrata, PDC, sem Sanches Osorios major stýr- ir, hækkað verulega að undan- förnu. Um skeið gat svo virst sem þessi flokkur væri i upplausn, en nú búast margir við þvi, að hann safni flestum atkvæðum borgara- legra kjósenda, sem eiga ekki margra annarra kosta völ i Portúgal i dag. Kristilegir demókratar munu að þvi er talið er græða mjög á þvi, að CDS sem áður var nefnd- ur, mun verða fyrir þá einskonar eldingarvari sem dregur til sin ásakanir um að PDC sé sumpart felubúningur fyrir hina gömlu Accao-Nacional (hina borgara- legu einingarfylkingu sem við

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.