Þjóðviljinn - 23.02.1975, Side 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. febrtiar 1975
„Brunarústirnar” — leikrit Strindbergs veröur sýnt á sunnudagskvöld-
ið.
Sjónvarp næstu viku
Vaka aftur á flot
Meðal sjónvarpsefnis næstu
viku sem athygli vekur, er ieikrit
Augusts Strindbergs, „Bruna-
rústirnar”.
Sem mörg önnur leikrits þessa
höfuðleikskálds svia, byggir
verkið mjög á tilfinningum
manneskjunnar — leikurinn ger-
ist seint á 19. öld I Stokkhólmi —
maður kemur heim eftir langa
dvöl i Vesturheimi og finnur
æskuheimili sitt i rústum.
„Brunarústirnar” eru á dag-
skrá á sunnudagskvöldið, en fyrr
það sama kvöld hefur Trausti
ólafsson, blaðamaður tekið á
móti gestum.
Gestir Trausta verða að þessu
sinni leikkonurnar Aróra
Halldórsdóttir, Emilia Jónasdótt-
ir og Nina Sveinsdóttir — væntan-
lega hafa ieikkonurnar hegðað
sér vel hjá Trausta og ekki sagt
neitt dónalegt, ella hefði þáttur-
inn ekki náð að komast á dagskrá.
Fyrsta myndin úr breska
myndaflokknum „Helen, nútima-
kona” verður sýnd á þriðjudag-
inn. Þar segir frá giftri konu, þri-
tugri að aldri, sem gengið hefur
undir manni og heimili, m.a.
fórnað menntunarferli þess
vegna. Og i tilefni af sýningu
• þessa myndaflokks, er rétt aö
A þriöjudagskvöldið er svo
sýndúr þriöji þátturinn úr sögu
jassins, sem danska sjónvarpið
lét gera. Jassmenn hljóta að vera
bærilega ánægöir með þaö sem
sjónvarpið hefur fyrir þá gert i
vetur. Þessir dönsku þættir eru'
afbragðsgóðir.
Svo kemur miðvikudagur með
enn einn umræðuþátt um lands-
byggðina. Nú er þaö Reykjanes-
kjördæmi sem málsvararnir
fjalla um, og Magnús Bjarnfreðs-
son stjórnar umræöum.
Miðvikudagsmyndin er „Veiði-
gleði” eða The Macomber Affair,
bandarisk biómynd, sem orðin er
28 ára, gerð eftir sögu Ernest
Hemingway.
Vaka, dagskrá um bókmenntirk
og listir hefur aftur ratað inn i
dagskrána og nú er kominn nýr
stjórnandi, Aðalsteinn Ingólfsson.
Væntanlega hafa nýru hans og
hjartalag verið gaumgæfilega
könnuö áður en honum var falin
umsjón Vökunnar. Fyrsti þáttur
Aöalsteins var samansettur á
Akureyri.
Laugardagsmyndin mun vera
mörgum kunn. Hún nefnist á Is-
lensku „Hinn brákaöi reyr”, The
Raging Moon á ensku og var sýnd
i Háskólabíó fyrir nokkrum ár-
Trausti Ólafsson og gestir hans I sjónvarpssal, Nina, Emilla og Aróra.
benda á aðra breska sjónvarps-
mynd, sem sýnd verður á mánu-
dagskvöldið. Þar segir frá sam-
tökum kvenna I Bretlandi, sem
starfa aö þvi að hjálpa konum
sem vilja eða þurfa að segja skilið
við heimili sin. Þessi mynd heitir
„Hljóöir kveinstafir” og verður
sýnd klukkan 22 á mánudags-
kvöldið.
um. Þessi mynd er gerð eftir
samnefndri skáldsögu Peter
Marshall, Bryan Forbes er leik-
stjóri og aðalhlutverkið er i hönd-
um Malcolms McDowell, en sá er
leikari af yngri kynslóð, gat sér
m.a. gott orð fyrir leik sinn I A
Clockwork Orange sem lika hefur
verið sýnd hér á landi.
—GG
Leiklistarfélag Menntaskólans við Hamrahlið
GISL Eftir Brendan Behan
leikstjóri Stefán Baldursson
fjórða sýning sunnudagskvöld kl. 20.30
Miöasala I anddyri skólans frá kl. 14.00
Miöapantanir I sima 82698 frá 16.30—18.30.
Verð aðgöngumiða 300.00 kr.
um helgina
/unnudagur
18.00 Stundin okkar. 1 Stund-
inni að þessu sinni er mynd
um Onnu litlu og Langlegg,
frænda hennar. Söngfugl-
arnir syngja og tvær nýjar
persónur koma til sögunnar.
Þær heita Mússa og Hrossi.
Þá sjáum við spurninga-
þátt, og á eftir honum fer
annar þáttur leikritsins um
Karl Blómkvist, leynilög-
reglumeistara. Umsjónar-
menn Sigriður Margrét
Guðmundsdóttir og Her-
mann Ragnar Stefánsson.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.30 Það eru komnir gestir.
Trausti Ólafsson tekur á
móti leikkonunum Aróru
Halldórsdóttur, Emiliu
Jónasdóttur og Nínu Sveins-
dóttur og spjallar við þær
um leikferil þeirra.
21.00 Brunarústirnar. Leikrit
eftir sænska skáldið August
Strindberg. Leikstjóri Hák-
an Ersgárd. Aðalhlutverk
Erland Josephson, Jan Erik
Lindquist, Ulla Blomstrand
og Arthur Fischer. Þýöandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Leikurinn gerist I Stokk-
hólmi seint á 19. öld. Mið-
aldra maður, sem áratug-
um saman hefur búið i vest-
urheimi, kemur heim og
fréttir þá, að æskuheimili
hans hafi brunniö til ösku
nóttina áður. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
22.25 Aö kvöldi dags.Sr. Guð-
jón Guðjónsson, æskulýðs-
fulltrúi þjóökirkjunnar,
flytur hugvekju.
22.35 Dagskrárlok.
mánudogur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Onedin skipaféiagið.
Bresk framhaldsmynd. 21.
þáttur. Skipbrotsmaöurinn.
Þýðandi óskar Ingimars-
son. Efni 20. þáttar: Gulu-
sóttin breiðist út I Liverpool.
Albert Frazer vill leysa frá
skjóðunni og játa sekt sina,
en James er á öndverðri
skoðun. A skipinu, sem
Baines stjórnar, kemur
veikin líka upp, og þvi er
snúiö til hafnar, þar sem
það er sett I sóttkvi. Frazer
eldri og Daniel Fogerty eru
settir til að rannsaka upptök
farsóttarinnar og sannleik-
urinn verður ekki falinn til
lengdar. Skömmu siðar
liggja leiðirJames og Anne
saman að nýju, og þau sætt-
ast að fullu.
21.25 Jþróttir. M.a. fréttir frá
iþróttaviðburðum helgar-
innar. Umsjónarmaöur
Ómar Ragnarsson.
22.00 Hljóðir kveinstafir.
Bresk heimildamynd um
kvennasamtök þár i landi og
heimili, sem þau hafa komið
á fót til hjálpar konum, er af
einhverjum ástæöum vilja
eða þurfa að segja skilið við
fjölskyldu sina. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
23.00 Dagskrárlok.
um helgina
/uhíiucIqqui
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Orgelverk
eftir Dietrich Buxtehude og
Domenico Zipoli. Jirl Ropek
leikur. b. Concerto grosso i
a-moll op. 6 nr. 4 eftir Georg
Friedrich HSndel. Boyd
Neel strengjasveitin leikur.
c. Kvartett i Es-dúr fyrir
klarinettu og strengjahljóð-
færi eftir Johann Nepomuk
Hummel. The Music Party
leikur. d. „Kinderszenen”
op. 15, „Arabeska” op. 18 og
þættir úr „Waldszenen” og
„Bunte Blatter” eftir
Robert Schumann. Wilhelm
Kempff leikur á pianó.
11.00 Messa.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Hugsun og veruleiki, —
brot úr hugmyndasögu. Dr.
Páll Skúlason lektor flytur
annað hádegiserindi sitt:
Frelsi og fullvissa.
14.00 Dagskrárstjóri I eina
klukkustund. Svavar Gests
hljómlistarmaöur ræður
dagskránni.
15.00 Miðdegistónleikar:
Barokktónlist frá flæmsku
tónlistarhátfðinni s.I. haust.
Flytjendur: Breski baritón-
söngvarinn John Shirley-
Quirk, Paul De Winter
flautuleikari, Maurice Van
Gysel óbóleikari og
Belgiska kammersveitin.
Stjórnendur: Georges
Octors og Georges Mees. a.
„Ich habe genug”, kantata
nr. 82 eftir Bach. b. Konsert
I H-dúr op. 7 nr. 3 fyrir óbó
oghlómsveitireftir Tomaso
Albinioni. c. Konsert i C-dúr
fyrir flautu og hljómsveit
eftir Vivaldi. d. Branden-
borgarkonsert nr. 6 I B-dúr
eftir Bach.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Bein lina. Eggert
Steinsen verkfræðingur,
formaður FIB, og Sveinn
Oddgeirsson framkvæmda-
stjóri félagsins svara
spurningum hlustenda um
starf FIB og rekstur bif-
reiöa á lslandi. Umsjónar-
menn: Arni Gunnarsson og
Vilhelm G. Kristinsson.
17.00 Létt lög.Arne Domnerus
og Rune Gustafsson leika á
saxófón og gitar.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„1 fööur staö” eftir Kerstin
Thorvall Falk.Olga Guðrún
Amadóttir les þýðingu sina
(7).
18.00 Stundarkorn meö rúss-
neska sellóieikaranum
Mstislav Rostropovitsj. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?” Jónas
Jónasson stjórnar
spurningaþætti um lönd og
lýöi. Dómari: Ólafur Hans-
son prófessor. Þátttakend-
ur: Pétur Gaukur
Kristjánsson og Guöjón
Skarphéðinsson.
15.45 Lög úr „Vetrarferðinni”
eftir Franz Schubert. Guð-
mundur Jónsson syngur;
Fritz Weisshappel leikur á
pianó. Þórður Kristleifsson
Islenskaði ljóðin.
20.35 Ferðir séra Egils Þór-
hallssonar á Grænlandi.
Séra Kolbeinn Þorleifsson
flytur annað erindi sitt.
21.00 Trló I H-dúr op. 8 eftir
Johannes Brahms. Julius
Katchen leikur á pianó.
Josef Suk á fiölu og Janos
St.arker á selló.
21.35 Spurt og svaraðJSrlingur
Sigurðarson leitar svara við
spurningum hlustenda.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Heiöar Astvaldsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
mónucl<i9ui
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunieikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pianóleikari
(a.v.d.v.) Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. lands-
málabl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Séra
Arni Pálsson flytur
(a.v.d.v.) Morgunstund
barnanna kl. 9.15: Arnhild-
ur Jónsdóttir lýkur lestri
sögunnar „Lisu i Undra-
landi” eftir Lewis Carroll i
þýðingu Halldórs G. Ólafs-
sonar (13). Tilkynningar kl.
9.30. Létt lög milli liöa.
Búnaðarþáttur kl. 10.25:
Gunnar ólafsson tilrauna-
stjóri talar um islenska
töðu. tslenskt málkl. 10.40:
Endurtekinn þáttur Asg. Bl.
MagnUssonar. Morguntón-
leikar kl. 11.00: Arthur
Grumiaux og Lamoureux
hljómsveitin leika
„Havanaise” op. 83 eftir
Saint-Sa^ns/Zara Doluka-
nova syngur Sjö lög i þjóö-
lagastil eftir de Falla/
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Frá setningu búnaðar-
þings sama morgun.
14.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Himinn og jörð” eftir
Varlo Coccioli. Séra Jón
Bjarman les þýðingu sina
(13).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónlistartimi barnanna.
Ólafur Þórðarson sér um
timann.
17.30 Aö tafli. Ingvar As-
mundsson menntaskóla-
kennari flytur skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttauaki. Til-
kynningar.
19.35 Mælt mál. Bjarni
Einarsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Guðjón B. Baldvinsson full-
trúi talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.25 Blöðin okkar. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson.
20.35 He ilbrigðismá1:
Heimilislækningar, III.
Guðmundur Sigurðsson,
héraðslæknir á Egilsstöðum
talar um heilsugæslu.
20.50 Til umhugsunar. Sveinn
H. Skúlason stjórnar þætti
um áfengismál.
21.10 Pianókonsert op. 2 eftir
Arnold Schönberg. Alfred
Brendel og Sinfóniuhljóm-
sveit útvarpsins i MCtnchen
leika; Rafael Kubelik
stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Klaka-
höllin” eftir Tarjei Vesaas.
Hannes Pétursson þýddi.
Kristin Anna Þórarinsdóttir
leikkona les (7).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (25). Lesari:
Sverrir Kristjánsson.
22.25 Byggöamál.Fréttamenn
útvarpsins sjá um þáttinn.
22.55 H1 jómplötusafniö. i
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.50 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.