Þjóðviljinn - 07.03.1975, Síða 1
Föstudagur 7. mars 1975 — 40. árg. 55. tbl.
GÆTU KLÆTT
ALLA ÞJOÐINA
— ef lokað yrði fyrir fatainnflutning
Vorkaupstefnan íslensk-
ur fatnaður var opnuð í
gær að Hótel Loftleiðum/
og verður hún opin fram á
sunnudag. Kaupstefnan er
eins og venjulega einungis
ætluð innkaupast jórum
fyrirtækja og eða
verslunarstjórum.
betta er i 14. sinn sem slik
kaupstefna er haldin, og sýna 17
framleiöendur vöru sýna á henni
að þessu sinni.
A fundi framleiðenda með
blaðamönnum kom fram að yfir-
leitt hafa þeir enga teiknara á
sinum snærum til þess að gera til-
lögur um útlit framleiðslunnar.
Allmörg framleiðslufyrirtæki
selja vöru sina á erlendum
markaði og selur hver fyrir sig
þvi framleiðendurnir hafa engin
sölusamtök.
Fataframleiðendur sögðu að
ekki væri farið að gæta samdrátt-
ar hjá þeim, en hinu væri ekki að
neita, að erfiðara væri nú en áður
að selja kaupmönnum vöru, og
kaupgleði væri ekki eins mikii og
verið hefði undanfarin ár.
Framhald á bls. 11
„Ætlum að
ná ísleifi út”
— segir skipstjórinn,
sem fór i gœr aftur um borð
ásamt björgunarmönnum
1 Reykjavik einni eru um 1200
verslunarfyrirtæki. Nú eru 70-
80 til sölu.
78 verslanir
í Reykjavik
á söluskrá!
Á fundi með fata-
framleiðendum í gær,
kom fram að 78
verslanir í Reykjavík
einni væru til sölu!
Ljóst er að framboðið
er mun meira en eftir-
spurnin, og mun ganga
treglega að selja.
-úþ
</Við ætluðum að ná
bátnum á flot", sagði
Gunnar Jónsson
skipstjóri á isleifi VE-63,
er Þjóðviljinn náði af
honum tali síðdegis í gær.
,,Ég, hinir yfirmennirnir af
bátnum og svo björgunar-
sveitarmennirnir förum núna
niður að strandstaðnum og
reynum að ná bátnum út.
Veðrið er næstum eins slæmt
og i gær, en rokið stendur af
landi, þannig að þetta ætti að
vera gerlegt.
Við förum allir yfirmennirnir,
hásetarnir verða eftir á bæjun-
um hér i öræfasveitinni, það er
ekkert hægt að komast héðan
fyrir veðrinu.”
Þeir á Isleifi hafa átt heldur
hrakningasama daga núna.
Þeir voru um borð i strönduðum
bátnum aðfaranótt miðviku-
dagsins, siðan urðu þeir að
biða hátt i sjö tima i gúmmi-
bátnum, björgunarsveitarmenn
náðu ekki á strandstað fyrr en
klukkan 18.30 i fyrradag, og þá
höfðu þeir fest alla bila sina
i sandi, en einn björgunar-
sveitarmaður fór með sjó-
mönnunum i skýli Slysavarna -
félagsins á Ingólfshöfða. Þar
var nægur matur og mennirnir
gátu hvilt sig eftir erfiða göngu i
tólf vindstigum og gljúpum
sandi.
Skipverjar komu svo úr skýl-
inu i Ingólfshöfða um miðnættið,
aðfaranótt fimmtudagsins, og
var þeim þá dreift á bæina i
öræfasveitinni, þar sem eru nú i
góðu yfirlæti.
ísleifur VE-63 er 250 lesta
stálskip, smiðað i Noregi 1967,
og standa vonir til að það sé ekki
verr farið en svo, að hægt verði
að sigla þvi af strandstað.
begar óhappið varð, var
tsleifur að koma frá þvi að
landa loðnu á Seyðisfirði og var
á leið á miðin.
—GG
Verð-
hœkkanir
á lífs-
nauðsynjum
12 tíl
40%
Verðlagsstjóri hefur til-
kynnt enn nýjar verðhækk-
anir. Að þessu sinni er um
að ræða f rá 12 og upp í 40%
hækkanir. Um er að ræða
þessar vörutegundir:
Kílóið af smjörlíki
kostarnú298 kr., hækkunin
24%.
Rúgbrauðið hækkar í 93
kr. stykkið.
Franskbrauð og heil-
hveitibrauð hækka í 72 kr.
stykkið eða um 18%
Vínarbrauðið hækkar úr
15 í 21 kr. stykkið eða um
40%.
Þá hækkar soðningin.
Ýsa og þorskur með haus
hækka i 76 kr. kílóið, haus-
aður kostar f iskurinn 95 kr.
kíhið og flökin kosta 170
kr kílóið. Hækkunin er
13%.
Yinstri
menn
sigruðu
Kosningar til Stúdentaráös Há-
skóla islands fóru fram i gær, og
urðu úrslitin þau, að A-listi Vöku-
manna hlaut 671 atkvæði og 6
menn kjörna, en B-listi vinstri
manna hlaut 848 atkvæði og 7
mcnn kjörna.
Efstu menn á lista vinstri
manna voru þau Gestur Guð-
mundsson og Steinunn Hafstað,
en i Háskólaráð var kosinn
Þorsteinn Magnúson af lista
vinstri manna.
Þessi úrslit þýða óbreytta stöðu
i Stúdentaráði, 16 fulltrúa vinstri-
manna gegn 12 Vökumönnum.
Kjörsókn i kosningunum var
61%, og er það minni sókn en i
fyrra.
stefna
Sambandsstjórn Sambands byggingarmanna:
Ríkisstjórnin virðist
beint að atvinnuleysi
Fundur fullskipaðrar
Sambandsstjórnar Sam-
bands byggingamanna,
haldinn i Reykjavík, 5.
mars 1975, samþykkir:
Meö framkvæmd núverandi
stjórnarstefnu, sem birtist i end-
urteknum gengislækkunum og
dagvaxandi verðbólgu, hefur rik-
isstjórninni tekist að ræna allt
launafólk stórum hluta af kjörum
slnum, á þann hátt að flytja ó-
talda miljarða króna frá verka-
lýðsstéttinni til atvinnurekenda
og hvers kyns milliliða.
Með slðustu ráðstöfunum I fjár-
málum, stöðvun á útlánaaukn-
ingu viðskiptabankanna og auk-
inni innlánabindingu I Seðlabank-
anum er stefnt beint að atvinnu-
leysi, sérstaklega I þjónustu-
greinum, húsgagnagerð og bygg-
ingariönaði, þar sem atvinnu-
leysis gætir nú i fyrsta sinn i fjög-
ur ár.
Þessari geigvænlegu stefnu rik-
isstjórnarinnar og afleiðingum
hennar, stórfelldri kjaraskerð-
ingu og atvinnuleysi samfara
vaxandi stéttaskiptinu, mótmælir
fundurinn harðlega. Neikvæö af-
staða atvinnurekenda mánuðum
saman til samningagerða við
verkalýðsfélögin sýnir, svo ekki
veröur um villst, að rikisstjórnin
og atvinnurekendur vinna nú
saman gegn hagsmunum verka-
lýösins. Fundurinn styður álykt-
un kjaramálaráðstefnu Alþýðu-
sambands Islands, sem lýsir sök
á hendur þessum aðilum, for-
dæmir ábyrgðarleysi þeirra og
andstöðu gegn réttmætum kröf-
um verkalýðsins. Þessi afstaða
atvinnurekenda og ríkisvalds
knýr verkalýðsfélögin óhjá-
kvæmilega til verkfallsboðunar
og átaka til varnar brýnustu
hagsmunum verkafólks.
Fundurinn hvetur eindregið öll
aðildarsamtök Sambands bygg-
ingamanna að verða við áskorun
ráðstefnu Alþýðusambands ís-
lands um að afla nú þegar heim-
ilda til verkfallsboðunar og vera
viöbúin að beita þeim heimildum,
ef nauðsyn krefur.
AF ERLENDUM VETTVANGI:
KÓLNANDISAMBAND
BANDARÍKJANNA OG KÍNA?
6