Þjóðviljinn - 07.03.1975, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 07.03.1975, Blaðsíða 3
Föstudagur 7. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Hörð mót- mæli iðn- verkafólks Miðstjórnarfundur Landssam- bands Iönverkafólks haldinn 2. mars 1975 mótmælir harðlega þeirri gifurlegu kjaraskerðingu, sem átt hefur sér stað frá gerð siðustu kjarasamninga, fyrst með bindingu visitölunnar og þeim taumlausu verðhækkunum sem dunið hafa yfir, einkum nú siö- ustu mánuðina, Nú er svo komið að kjararýrun frá þvi að siðustu samningar voru gerðir er orðin um 30%, áður en áhrif siðustu gengisfellingarinnar eru komin út i verðlagið og vitað er um stór- felldar hækkanir aðrar, sem eru rétt ókomnar. Það er þvi augljóst að kjör iðn- verkafólks, sem áður voru naumt skorin, eru iíú orðin með öllu óviðunandi. Þar við bætist svo að atvinnuöryggi hefir minnkað og þegar er farið að gæta nokkurs samdráttar i atvinnu iðnverka- fólks. Umræður um kjaramál við at- vinnurekendur og rikisstjórn hafa nú staðið yfir i hart nær tvo mán- uði án minnsta árangurs. Ekkert tilboð er enn komið fram frá at- vinnurekendum og framlag rikis- stjórnarinnar til lausnar deilunni er ekki á nokkurn hátt liklegt til að endar nái saman. Tilraunir verkalýðshreyfingar- innar til að leysa þessa deilu á friðsamlegan hátt hafa þvi engan árangur borið, en með hverjum degi sem liður versna kjör hins vinnandi fólks, svo að nú er hún knúin til að beita mætti sam- takanna til lausnar deilunni. Frá ráðstefnu Fóstrufélagsins og rauðsokka. Sameiginleg ráðstefna Fóstrufélags íslands og Rauðsokkahreyfingarinnar: Dagheimili og skólar verði á svipuðum grunni Fóstrufélag Islands og Rauð- sokkahreyfingin héldu sameigin- lega ráðstefnu 23. febrúar s.l. þar sem i erindum og vinnuhópum var fjallað um dagvistun barna og forskólafræðslu. Skipuleggj- endur ráðstefnunnar hafa óskað eftir að koma eftirfarandi megin- atriðum, sem rædd voru á ráð- stefnunni, á framfæri: „Við teljum að dvöl barna á vel reknum dagvistunarheimilum undir handleiðslu sérmenntaðs fólks örvi börnin vitsmunalega og þroski þau félagslega. Kostir heimilanna nýtast þó ekki að fullu nema þar dveljist börn jafnt frá öllum þjóðfélagshópum. Hér á landi skortir töluvert á að þessu skilyrði sé fullnægt, þvi viðast komast þar að einungis börn for- eldra sem brýna þörf hafa fyrir „Konan sem hvarf99 Brotabrot úr bókmenntum síðasta áratugs flutt á kvennadeginum í Norræna húsinu Fréttatilkynning frá M.F.Í. K. 1 tilefni af alþjóðlega Kvenna- deginum 8. mars 1975 efnir Menn- ingar- og friðarsamtök islenskra kvenna til fundar laugardaginn 8. mars kl. 15 (kl. 3 eh) i Norræna húsinu. Gestur á fundinum verður full- trúi Alþjóðasambands lýðræðis- sinnaðra kvenna Mercedes Alvarez, og flytur hún ávarp A.L.K. Varaformaður M.F.l.K. Þórunn Magnúsdóttir flytur einn- ig ávarp á fundinum. Briet Héðinsdóttir og sam- starfsmenn hennar hafa tekið saman fjölbreytta dagskrá. Fyrsta atriði er: „Konan sem hvarf” — brota- brot úr bókmenntum siðasta ára- tugs, tekið saman af námskonum i Heimspekideild Háskóla íslands, þeim Dagnýju Kristjáns- dóttur, Gerði Steinþórsdóttur, Turid Joansen, og Þuriði Baxter. Lesarar verða: Auður Guðmundsdóttir, Asdis Skúladóttir, Brynja Benediktsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir, Helga Stephensen, Steinunn Jóhannesdóttir. Margrét Jóhannsdóttir syngur tvö lög við texta eftir Böðvar Guðmundsson, undirleik annast Sigriður Sveinsdóttir. Siðari hluti dagskrárinnar hefst með ávarpi Vilborgar Sigurðar- dóttur. Helga Hjörvar flytur ljóð eftir Ninu Björk Árnadóttur Steinunn Sigurðardóttir flytur ljóð eftir sjálfa sig. Vilborg Dag- bjartsdóttir, Brynja Benedikts- dóttir og Asdis Skúladóttir flytja ljóð eftir Vilborgu og fleiri. Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigriður Sveinsdóttir flytja lög við texta eftir Böðvar Guðmunds- son. Kynnir verður Sólveig Hauksdóttir. Náttkemba eftir Asgeröi Búadóttur. Eitt verkanna á sýningunni I Norræna húsinu. Sólrisuhátíð Dagana 10.-16. mars verður haldin á tsafirði sólrisuhátið. Hátiðin er haldin á vegum lista- félags menntaskólans á Isafirði. A dagskrá hátiðarinnar er fjöl- breytt efni, að mestu tengt bók- menntum og listum. Má i þvi sambandi nefna grafiksýningu, skáldavöku, tónlistarkvöld og Halldórs Ruth Ingi- kynningu á verkum ... Laxness. Einnig munu Magnússon og Jónas mundarson skemmta, brúðuleikhús sýna og sýndar verða tvær úrvalskvikmyndir. Fyrirhugað er að félagið standi fyrir menningardagskrám siðar i mánuðinum einnig. Stefnt er að þvi, segir i frétt frá Listafélagi Menntaskólans á tsafirði, að sólrisuhátiðin verði árlegur viðburður i isfirsku bæjarlifi. Hún á að vera fram- lag menntaskólanema til menningarlifs i bænum. Hin fyrri sólrisuhátið hlaut mjög góðar undirtektir og vænta aðstandendur hátiðarinnar þess að svo verði einnig nú. aö koma börnum sinum til dvalar á dagvistunarheimili. Þróun undanfarinna ára sýnir ljóst að konur leita i vaxandi mæli til starfa utan heimilisins. Þær leita nú nærri til jafns við karl- menn eftir framhaldsmenntun og þær hljóta þvl að leita einnig i vaxandi mæli til almennra starfa. Við teljum það skyldu samfélags- ins að búa svo I haginn að konur geti neytt hæfileika sinna og krafta til slikra starfa án þess að það þurfi að bitna á börnunum. Þvi er brýn nauðsyn á að dagvist- unarheimili verði reist til að mæta þessari þörf, heimili þar sem þess er gætt að börnunum sé búin hin bestu þroskaskilyrði. Ráðstefnan skoraði þvi á rikis- valdið og stjórnendur sveitarfé- laga að hraða sem mest uppbygg- ingu dagvistunarheimila i land- inu. Með lögum um þátttöku rikisins I byggingu og rekstri dagvistun- arheimila, dagheimila, leikskóla og skóladagheimila, sem sam- þykkt voru á Alþingi i april 1973, hefur fengist full viðurkenning á hlutverki dagvistunarheimila og grundvöllur verið lagður að örari uppbyggingu og betri rekstri dag- vistarheimilanna i islensku þjóð- félagi. Skipuleg kennsla barna fyrir skólaskyldu er nú hafin hér á landi. Þörf er að treysta sam- vinnu milli dagvistarheimila og skóla og milli foreldra og starfs- fólks þessara uppeldisstofnana. Það er álit okkar að rekstur dagvistarheimila og skóla þurfi að vera á svipuðum grunni, og að tryggt sé fastákveðið hlutfallslegt framlag frá rikinu og að dagvist- argjöldum sé stillt mjög i hóf, þannig að þeirri jafnréttiskröfu sé fullnægt að allir foreldrar geti átt þess kost að láta börn sin njóta vistar á barnaheimili sé þess ósk- að.” Þorskurinn vœnn — segja suðurnesjamenn, en tíðin rysjótt „Það hefur aflast sæmilega þessa siðustu daga. Reyndar var slæmt veður í fyrradag, enginn bátur á sjó, en áður en það veöur var, böfðu þeir fengiö svona frá fimm og upp i tuttugu tonn neta- bátarnir. Mér virðist þetta vera vænsti þorskur”, sagði heim- ildarmaður okkar við landshöfn- ina i Njarðvikunum. Um 30 bátar eru á netum og leggja upp i Njarðvikurhöfn, „og þeim á eftir að fjölga nokkuð, þegar þeir koma af loðnunni”. I Sandgerði voru menn ekki al- veg eins hressir yfir vertiðinni og i Njarðvikum, „hér er heldur dauft, bara rok og læti. Núna leggja um 20 bátar upp hér, en þeir vera sjálfsagt um 30 þegar loðnubátarnir skila sér á eðlileg- ar veiðar. Það hefur verið lélegt á linunni og netunum, en þeir trollbátar sem hér hafa lagt upp hafa gert það gott. Þeir hafa verið með trollið út um allan sjó, allt suður af Reykjanesi vestur undir Jökul, vestur á Hala, þeir hafa lika veriö að fá hann I Vikurálnum. Berg- þór, 140 tonna bátur sem gerður er út héðan, hefur gert það gott, hefur fengið um 380 tonn af góð- um fiski — mest þorski, af þess- um afla hans eru aöeins um 20 tonn ufsi”. t Hafnarfirði er öðruvisi tekið til orða, þar landa togarar meira en bátar, aðeins tveir netabátar landa núna i Hafnarfirði, og hefur verið tregt hjá þeim — og svo gleypir Lýsi og mjöl ósköpin öll af loðnu til bræðslu þessa dagana. „Þeir hafa fengið átta til tólf tonn a netunum undanfarið”, sagði heimildamaður okkar, „og verða væntanlega fleiri á netum en þessir tveir þegar loðnan fer að tregast”. Júni var að landa hér 250 tonnum sem hann fékk i Vikurálnum fyrir festan. Skafti frá Hofsósi er her inni núna með 50 tonn, Jón Vidalin kemur á morgun — það er nægur fiskur i vinnslu hjá Bæjarútgerðinni og lika nokkuð keyrt hingað t.d. frá Þorlákshöfn”. —GG Skákkeppni verkalýðsfélaganna: Sveit Dags- brúnar vann A þriöjudag var haldin hrað- skákkeppni verkalýðsfélaganna og tóku 16 sveitir þátt i mótinu, þar af fjórar sveitir frá Dags- brún. Sigurvegari varð c sveit Dags- brúnar með 46 vinninga, næst varö A sveit Dagsbrúnar með 42,5v. þriðja varð sveit Múrara- félags Reykjavikur með 35,5 v. og fjórða sveit HtP með 35 vinninga. Að mótinu loknu voru afhent verölaun i Skákkeppni verkalýðs- félaganna og hlaut A sveit Dags- brúnar fagran farandsbikar gef- inn af ASI og fallega verð- launapeninga frá TR ásamt skrautrituðu skjali.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.