Þjóðviljinn - 23.04.1975, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 23. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
UTYEGSB ANKINN:
EBE-ríki
þvertóku
fyrir að
styðja
Bandaríkin
i Indókína
■■■■■■■■■■■■•■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■*•■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■*•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Það er ekki ofsögum sagt af
þvi að viðast halli undan fæti
fyrir Bandarikjunum á alþjóða-
vettvangi um þessar mundir.
Síðasti leiðangur Kissingers til
Austurlanda nær varð snautleg
fýluferð, i Rómönsku-Ameriku
horfir þunglega fyrir banda-
riskri utanrikispólitik, i Suðaust-
ur-Asiu er eitt bandariskt lepp-
riki hrunið og annað á fallanda
fæti, og viðbúið að endalok
þeirra mála verði útþurrkun
bandariskra áhrifa úr Suðaust-
ur-Asiu allri. Og á Vesturlönd-
um fer sambúð Bandarikjanna
og annars öflugasta auðvalds-
veldisins, Efnahagsbandalags
Evrópu, versnandi.
Þar kemur ýmislegt til. Þegar
yfirstandandi sókn Þjóðfrelsis-
fylkingar Suður-Vietnams hófst,
Helmut Schmidt, rikiskanslari Vestur-Þýskalands — útflutnings-
bann Bandarikjanna á úrani hefur valdið stjórn hans miklum vand-
ræðum.
,.lier þú sjálfur
fjanda þinn
99
reyndu Bandarikin að fá ríki
EBE til að fordæma einhliða
það sem kanar kölluðu „hern-
aðaraðgerðir Norður-VIetnams
i Suður-Vietnam”. Þessu neit-
uðu EBE-rikin. Þau voru að
visu reiðubúin að lýsa þvi yfir
fyrir sitt leyti, að stjórnirnar i
Hanoi og Saigon hefðu báðar
rofið Parisarsamkomulagið frá
1973, en tóku fram að Saigon-
stjórnin gæti að miklu leyti
sjálfri sér um kennt, hvernig
komið væri, þvi að hún hefði
aldrei reynt að standa við sam-
komulagið. Frakkar lögðu til,
að EBE mælti með þvi að Thieu
segði af sér (eins og hann nú
hefur neyðst til að gera) til að
greiða fyrir samkomulagi við
Þjóðfrelsisfylkinguna, en það
þótti öðrum EBE-stjórnum of
langt gengið.
Könnun á afstöðu
EBE-rikja
Það er eftirtektarvert að
Bandarikin beindu tilmælum
þessum til Vestur-Evrópurikj-
anna sem aðildarrikja að EBE,
en ekki sem Natórikja. Kann
vera að Bandarikin liti svo á að
heimilisvandræði Nató séu þeg-
ar slik, að þar sé ekki á bætandi.
Frakkland er ekki i bandalaginu
nema að nafni til, Portúgal nýt-
ur ekki lengur trúnaðar Banda-
rikjanna vegna sóslaliskrar
þróunar þarlendis og afstaða
tyrkja og grikkja til bandalags-
ins er vafasöm, vægast sagt.
Sú ástæða kann að hafa legið
að baki þessum tilmælum
Bandarikjanna að þau hafi vilj-
að kanna afstöðu Vestur-
Evrópurikja gagnvart þeim
möguleika að Bandarikin hæfu
á ný virka þátttöku I Vietnam-
striðinu. Einnig kann vera að
Bandarikjastjórn hafi komið til
hugar að bera Indókinamálin
upp á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna og að hún hafi með til-
mælunum til EBE-rikjanna vilj-
að kanna, hverrar liðveislu
mætti af þeim vænta þar. En
EBE-rikin höfðu vit á þvi að láta
ekki draga sig út i Vietnam-ó-
færu Bandarikjanna, og svör
þeirra til ráðamanna i Washing-
ton voru mjög á sömu lund og
Hrafns rauða til Sigurðar
Orkneyjajarls i Brjánsbardaga:
Ber þú sjálfur fjanda þinn.
Breikkandi bil
Allt frá lokum siðari heims-
styrjaldar hafa Bandarikin leit-
ast við að hafa sem sterkust itök
i Vestur-Evrópu og tengja Vest-
ur-Evrópuriki sér og sinni póli-
tik sem traustustum böndum.
Sú stefna Bandarikjanna hefur
allt frá tið de Gaulles orðið fyrir
mörgum skellinum, og þetta
umrædda afsvar EBE er einn
slikur skellur i viðbót. Og fleira
verður um þessar mundir til að
breikka bilið milli Bandarikj-
anna og Vestur-Evrópu.
Þar á meðal er bannið, sem
Bandarikin hafa sett á útflutn-
ing á úrani til Vestur-Evrópu.
Þetta bann hefur komið sér-
staklega illa niður á Vestur-
Giscard d’Estaing Frakklands-
forseti: Thieu segi af sér!
Þýskalandi, sem fær orðið
drjúgan hluta sinnar orku frá
kjarnorkuverum, sem er alveg
komið upp á úraninnflutninginn
frá Bandarikjunum. Stjórnar-
nefnd EBE i Briissel hefur mót-
mælt banni Bandarikjanna á
úranútflutningnum. Bandarikin
bera þvi við að Vestur-Evrópu-
riki viðhafi ekki nógu strangar
reglur um eftirlit með úran-
birgðum, þannig að hægt sé um
hönd að stela þeim i Vestur-
Evrópu, en ekki þykir óliklegt
að Bandarikjunum sé ekki siður
i hug að knýja fram verulega
verðhækkun á þessari útflutn-
ingsvöru sinni.
Ostastríöið — mikiö í
húfi fyrir dani
t landbúnaðarmálum hafa
Bandarikin lika tekið óþyrmi-
lega afstöðu gagnvart EBE, en
einmitt landbúnaðarmálin eru
EBE-rikjum næsta viðkvæm
mál. f fyrra stöðvuðu Bandarik-
in þannig skyndilega útflutning
á sojabaunum til Vestur-
Evrópu, og hafði það i för með
sér allt að þvi neyðarástand i
landbúnaði rikja þar. Um þess-
ar mundir stendur yfir milli
Bandarikjanna og EBE svokall-
að ostastrið. Bandarikin krefj-
ast þess, að EBE hætti að greiða
uppbætur á ost, sem fluttur er út
á Bandarikjamarkað, og hóta
innflutningstollum á móti. 1
þessu ostastriði er sérstaklega
mikið i húfi fyrir dani, þvi að
þeir flytja út um 60% af þeim
osti, sem fer frá EBE til Banda-
rikjanna.
Hér eru aðeins tilfærð fá atriði
af mörgum, sem öll ber að sama
brunni.
Ljóst er, að hagsmunir Banda-
rikjanna og Vestur-Evrópu eru
á margan hátt svo gagnstæðir
og rekast svo viða á, aö óhugs-
andi er að þessir tveir aðilar
geti lengi i einu og til nokkurrar
frambúðar komið fram sem ó-
rofa heild.
dþ.
51,5% heildar-
útlána til
sjávarútvegs
t fréttatilkynningu frá Otvegs-
bankanum um afkomu bankans á
sl. ári segir svo m.a:
„Arsskýrsla Utvegsbanka Is-
lands fyrir árið 1974 er komin út.
Heildarinnlán bankans jukust á
árinu um 658 miljónir króna og
námu I árslok 4.645 miljónum
króna.
Heildarútlán bankans jukust á
árinu um 2.721 miljón króna og
námu i árslok 7.548 miljónum
króna, en þar af voru endurseld
útlán 1.666 miljónir króna, aðal-
lega vegna sjávarútvegs.
Skipting útlána bankans til
hinna ýmsu atvinnugreina var i
árslok þannig: sjávarútvegur
51.5%, verslun 14,9%, iðnaður
10,5% og aðrar greinar 23.1%.
Þannig hefur meira en helm-
ingur heildarútlána Útvegsbank-
ans gengið til sjávarútvegs. Það
verður að teljast óeðlilegt, að
fjármögnun helsta útflutningsat-
vinnuvegar þjóðarinnar skuli
hvila nær eingöngu á tveimur við-
skiptabönkum, Landsbanka og
Otvegsbanka.
Tekjuafgangur Otvegsbankans
árið 1974 nam 30 miljónum króna.
Af hagnaði ársins var ráðstafað
15miljónum króna til varasjóös, 6
miljónum króna til afskriftasjóös,
6 miljónum króna til húsbygg-
ingasjóðs og 3 miljónum króna til
eftirlaunasjóðs starfsmanna
Útvegsbankans. Þá greiddi bank-
inn rikissjóði á árinu 41 miljón
króna i skattaf gjaldeyrisverslun
og tæpar tvær miljónir króna
landsútsvar”.
Sviösmynd úr Inúk-manninum.
Inúk á
aðalsviði
í kvöld
Fyrir hálfum mánuði
var Inúk-maðurinn sýndur
á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins í fyrsta sinn. Var þá
troðfullt hús og geysileg
eftirspurn eftir annarri
sýningu. Þjóðleikhúsið
verður við þessum ítrek-
uðu áskorunum með því að
Inúk-maðurinn verður
sýndur á aðalsviði Þjóð-
leikhússins í kvöld kl. 20.
Þetta er síðasta og eina
sýningin á stóra sviðinu, en
eftir hálfan mánuð halda
leikararnir af stað til
Frakklands þar sem þeir
taka þátt í alþjóðlegri leik-
listarhátíð.
Sýningin á Inúk er stutt og er
verð aðgöngumiða lægra en ella.
Inúk hefur nú verið sýndur um
70sinnum viðsvegar um land og á
Norðurlöndum, hvarvetna við
frábærar undirtektir. Er nú ein-
stakt tækifæri fyrir þá sem hafa
misst af Inúk að sjá hann i kvöld.
Auglýsingasíminn er
17500 Tb
JOÐVIUINN