Þjóðviljinn - 29.04.1975, Page 16

Þjóðviljinn - 29.04.1975, Page 16
MOOVIUINN Þriðjudagur 29. apríl 1975. Órói í stjórnarliðinu Að sögn fréttamanna bar langmest á kosningaáróðri kommúnista á götum úti I Portúgal. Hér sést ein af götuskreytingum flokksins en myndin er fengin úr Newsweek. Verkalýðsflokkar i Portúgal: MEÐ HREINAN MEIRIHLUTA LISSABON 28/4 Soares, leiðtogi Sósíalistaflokksins sem var aðalsigurvegari kosninganna sem fram fóru í Portúgal á föstudag, lýsti því yf ir i dag, að hann mundi ekki nota kosninga- sigurinn til að knýja fram breytingar á stjórninni, sem er að mestu skipuð herforingjum. Ekki myndi hann heldur reyna að fá hina pólitisku hreyfingu hersins, MFA, til að afsala sér þeim völdum sem hún hafði tekið sér i mars og fengið helstu flokka landsins til að samþykkja. Fulltrúar hersins og Cunhal, formaður Kommúnistaflokksins, telja einnig, að kosningarnar muni ekki breyta miklu i bráð um stjórnarstefnu i landinu. Flokkur Soares fékk um 38% atkvæða en kommúnistar um 13 og systurflokkur þeirra, MDP, rúmlega 4%. Ýmsir smáflokkar lengst til vinstri fengu samtals um 4% atkvæða en komu ekki mönnum á þing. Annar stærsti flokkurinn er PPD, miðstéttaflokkur talinn með stefnuskrá sem minnir á hægri sósialdemókrata. Fékk hann rúmlega 26% atkvæða. Eini eiginlegi borgaraflokkurinn sem nokkuð kveður að, Miðdemókrat- ar, fengu 7,6% atkvæða. Kosningaþátttaka var mjög mikil eða tæplega 92% og um 7% kjósenda skiluðu auðu. úrslitin eru ýmist túlkuð sem sigur fyrir sósialdemókratisma og þingræði eða fyrir vinstri öflin i landinu. Sjá nánar á bls. 5 Að loknum útifuridi Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna i. mai Kjartan Rúnar Opinn f undur á Hótel Borg Alþýðubandalagið i Reykjavik heldur fund á Hótel Borg 1. mai að lokhum útifundi Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna. Ræðumenn verða: Kjartan ólafsson, ritstjóri, og Rúnar Bachmann, rafvirki. Fundurinn er almennur og öllum opinn. Dagskrá nánar auglýst siðar. Stjórn Alþýðubandalagsins Reykjavik Járnblendiverk- smiSjan samþykkt Þingfundur i hádegi á laugardag vegna komu forstjóra Union Carbide!! Sá óvenjulegi atburöur gerðist á laugardaginn' var, aö þá stóðu f undir sem hæst á alþingi um hádegis- verðarleytið milli klukkan tólf og eitt. Pað er mjög sjaldgæft að f undir séu haldnir á alþingi á laugardögum yfirleitt og einsdæmi um árabil, að þingfundur standi yfir í hádeginu á laugardegi, en nú hófst f undur klukkan 10 árdegis og lauk ekki fyrr en klukkan tæplega hálf tvö. A þessum sérstæða fundi var frumvarp rikisstjórnarinnar um járnblendiverksmiðju að Grund- artanga við Hvalfjörð samþykkt sem lög frá alþingi með 19 at- kvæðum stjórnarliðsins og Al- þýðuflokksins gegn 8 atkvæðum Alþýðubandalagsmanna og Sam- taka frjálslyndra, þrir stjórnar- þingmenn sátu hjá og tiu þing- menn voru fjarstaddir. Nánar segir frá afgreiðslu málsins á siðu 12. Allar breytingartillögur voru felldar, en 6 þingmenn stjórnar- flokkanna i neðri deild viku meira eða minna frá stefnu rikisstjórn- arinnar og greiddu atkvæði með einstökum breytingartillögum Alþýðubandalagsmanna eða sátu hjá. Þessir þingmenn voru Ragn- hildur Helgadóttir, sem telur að verksmiðjan stuðli að rikis- kapitalisma og vill að hún sé að öllu leyti erlend eign, Sverrír Hermannsson, sem kvaðst and- vigur einstefnu i staðarvali stór- iðjufyrirtækja (suð-vesturland) og, að „viðsemjandi vor hefði matað krókinn” i samningunum við Gunnar Thoroddsen, Sigur- laug Bjarnadóttir, sem kvaðst vera ákaflega langt frá þvi að vera ákafur talsmaður erlendrar stóriðju á íslandi og helst kjósa að við gætum visað þeim kaleik frá okkur (greiddi þó atkvæði með frumvarpinu), Ingvar Gislason, sem taldi að málið hefði alls ekki verið nægilega kannað og ekki fengið þá þinglegu meðferð sem nauðsyn bar til, og loks ólafur G. Einarsson, sem ekki gerði grein fyrir afstöðu sinni en sat hjá ásamt fleirum við atkvæða- greiðslu um breytingartillögu Magnúsar Kjartanssonar um að fulltrúar islenska rikisins i stjórn verksmiðjunnar skyldu kjörnir af alþingi, en ekki skipaðir af ráð- herra eða kjörnir á aðalfundi. Talsmenn Alþýðubandalagsins við lokaumræðu málsins voru þeir Magnús Kjartansson og Jónas Arnason.Þeir vöktu m.a. á þvi athygli, að ástæðan til þess, að rikisstjórnin kaus að halda uppi þingfundum á svo óvenju- legum tima, i hádeginu á laugar- degi, væri sú að Gunnar Thorodd- sen, iðnaðarráðherra.hefði stefnt þremur forstjórum auðhringsins Union Carbide til Reykjavikur á mánudeginum (það er i gær) til að undirrita samninginn um verksmiðjuby gginguna. Við birtum kafla úr ræðu Magnúsar Kjartanssonar i opnu Þjóðviljans i dag og á morgun verður greint frá ræöu Jónasar Árnasonar. íslenska járn- blendifélagið stofnað í skyndil A laugardaginn samþykkti al- þingi lögin um járnblendi- verksmiðju i Hvalfirði og i gær var boðað til stofnfundar hluta- félags um rekstur hennar i iðnaðarráðuneytinu. Var þar undirritaður aðalsamningur milli rikisins og Union Carbide, en stofnendur hlutafélagsins eru sömu aðilar. Undir samningana rituðu Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra og J. Clayton Stephenson, forseti Evrópu- deildar Union Carbide. Eignar- hlutdeild rikisins i hluta- félaginu, sem ber nafnið ts- lenska járnblendifélagið h.f., er55 af hundraði hlutafjár, sem er alls 3.614,4 miljónir króna. Stjórn félagsins skipa: Gunn- ar Sigurðsson, verkfr., form. Eggert G. Þorsteinsson alþm. Guðm. Guðmundsson, fram- kvst. og Jósef H. Þorgeirsson, framkvæmdastjóri. Varamenn eru Páll Flygenring, yfir- verkfr., Helgi G. Þórðarson, verkfr., Bjarni Guðmundsson, kennari og Hörður Pálsson, bæjarfulltrúi. Af hálfu Union Carbide eiga sæti i stjórninni G.R. Barrow, C. Eide og E.B. Pilcher. Vietnam: Stóri-Minh tekinn við Saigon 28/4 reuter — t dag sór Duong Van Minh, öðru nafni Stóri-Minh, embættiseið sem for- seti Saigonstjórnarinnar. A sama tima gcrðu flugvélar af banda- riskri gerð árás á Than So Nhut flugvöll i nágrenni Saigon. Ekki er vitað hverjir flugu vél- unum en þeim tókst að sprengja upp vopnabúr á fiugveliinum og valda þar miklum usla. Sumir telja að við stjórnvölinn hafi setið liðhlaupar úr Saigonhernum en aðrir eru þeirrar skoðunar að vél- arnar séu úr hópi þeirra sem Saigonherinn skildi eftir i Da Nang á dögunum og hafi flug- menn úr Þjóðfrelsishernum eöa frá Norður-Vietnam. Heita má að Saigon sé nú i al- gerri herkvi. Fyrir sunnan borg- ina hefur þjóðvegi 4 verið lokað en hann liggur til hrisgrjónarækt- arsvæðanna i Mekongóshólmun- um, helsta matarbúrs borgarinn- ar. Hafnarborg Saigon, Vung Tau, hefur verið umkringd og þjóðfrelsisöflin eru i einungis 15 km fjarlægð frá borginni. Loks hefur veginum til Bien Hoa, þar sem stærstu bækistöðvar flughers Saigonstjórnarinnar voru til skamms tima, verið lokað og i morgun var barist um brú eina á þeim vegi en hún er i aðeins 5 km fjarlægð frá miðborg Saigon. Stóri-Minh hefur hvatt til þess að vopnahlé verði þegar gert en ekki er vist að honum gangi nokk- uð betur en fyrirrennurum sinum að semja við þjóðfrelsisöflin. Bráðabirgðabyltingarstjórnin hefur tekið honum fremur kulda- lega og i dag sagði fulltrúi hennar að stjórnin i Saigon yrði að lýsa þvi ótvirætt yfir að hún stefndi að friði og sameiningu landsins áður en til viðræðna kæmi. Sendiherra Stóri Minh, hinn nýskipaði forseti Saigonstjórnarinnar. Tekst hon- um að semja um vopnahlé? Norður-Vietnam gekk i dag á fund utanrikisráðherra frakka og eftir þann fund tók hann mjög i sama streng og fulltrúi BBS. Hann kvað ihlutun Bandarikj- anna vera helsta tálmann fyrir friðarumleitunum sem og tilvist hernaðarvélar Saigonstjórnar- innar. Meðan Saigonstjórnin léti þetta tvennt viðgangast þyrfti vietnömsk þjóð enn að þola kvalir og harðræði. Hann vildi hins- vegar ekki svara þvi hvort kom- ast mætti hjá bardögum um Saigon.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.