Þjóðviljinn - 01.07.1975, Page 7
Þriðjudagur 1. júli 1975. ÞJOÐVII..IIVN — SIÐA 7
Upplausn í liði íhaldsins í Kópavogi:
Forseti bæjarstjórnar segir
sig úr bæjarstjórn Kópavogs
Á fundi í bæjarstjórn
Kópavogs á föstudag baðst
Sigurður Helgason fráfar-
andi forseti bæjarstjórnar
lausnar frá störfum sem
bæjarfulltrúi í Kópavogs-
kaupstað.
Við kosningu embættis-
manna var Jóhann H.
Jónsson (F) kosinn forseti
bæjarstjórnar/ en Ólafur
Jónsson (Ab) og Axel Jóns-
son (S) kosnir varaforset-
ar.
Það hefur ekki farið leynt að
undanförnu, að verulegur ágrein-
ingur hefur verið innan Sjálf-
stæðisflokksins i Kópavogi. Ný-
liðar i starfi flokksins að bæjar-
málum hafa verið að brjótast til
valda i flokknum og ýta þeim
eldri og reyndari til hliðar.
Þessi ágreiningur hefur nú leitt
til þess, að Sigurður Helgason
lögfræðingur sem var forseti
Nýtt vinstri-
sinnað
bókaforlag
Sl. áramót var stofnað á Akur-
eyri bókaforlag sem hefur að
markmiði útgáfu sósialiskra
fræða, alþýðubókmennta og ann-
ars róttæks efnis. Það er ekki háð
neinum samtökum, en stofnendur
þess eru nokkrir einstaklingar.
verkamenn og námsfólk. Nafn
þess er OKTÓBER forlagið, póst-
hólf 541, Akureyri.
Þegar hafa komið út þrjú rit:
Baráttuleið Alþýðunnar, sem
fjallar um pólitiska stefnu og
þjóðfélagssýn Einingarsamtaka
kommúnista. Alyktanir og sam-
þykktir stofnþings EIK og svo
ályktanir og samþykktir fyrsta
sameiginlega þings norrænna
marx-leninista frá janúar 1975.
Alls eru sjö bækur á útgáfulista
OKTÓBER.
Prent- og útgáfukostnaði er
haldið i lágmarki. Bækur forlags-
ins fást i Mál og Menningu
Reykjavik og auk þess á ýmsum
stöðum úti á landi. Einnig er hægt
að panta bækur á forlagsverði
með þvi að skrifa þangað.
Njósnamál
í Banda-
ríkjununi
WASHINGTON - Tveir
menn, fæddir i Libanon, voru i
dag handteknir i Bandarikjunum,
ákærðir fyrir njósnir i þágu
Sovétrikjanna. Heldur banda-
riska innanrikisleyniþjónustan
(FBI) þvi fram að mennirnir hafi
ljósmyndað leyniskjöl, þar sem
fjallað var um veikleika Nató, og
komið ljósmyndunum i hendur
starfsmanna við sovésku sendi-
nefndina hjá Sameinuðu þjóðun-
um. Telur FBI að ljósmyndirnar
af leyniskjölunum séu nú tryggi-
lega i höndum sovétmanna.
Talsmaður FBI lét hafa eftir
sér um þetta að hér væri um að
ræða meiriháttar njósnamál.
Þetta er fyrsta njósnamálið af
slikum, sem kemur upp i Banda-
rikjunum um tveggja ára skeið.
F'yrir tveimur árum var undirfor-
ingi nokkur úr flughernum
staðinn að þvi að reyna að koma
leyndarskjölum i eigu flughersins
i hendur sovétmanna.
Aróðursherferð
fyrir bílbeltum
-/....MIKLU BETRfl f\V
KASTAST ÚT EF
VEITTHVAÐ SKEÐUR
Á vegum Umferöarráðs
hef ur veriö ráðist í prentun
50 þúsund eintaka af bækl-
ingi um bilbeltanotkun og
mikilvægi þess, að akandi
farþegar geri sér grein
fyrir gildi bílbeltanna.
Verður bæklingurinn send-
ur út í sumar.
Umferð um þjóðvegi landsins
er aldrei meiri en i júli og ágúst.
Tæplega 300 manns slösuðust i
umferðarslysum á þessum tima i
fyrra og fimm létu lifið.
Dreifing fræðsluritsins hefst 5.
júli og lýkur 30. ágúst. Mun lög-
reglan annast dreifinguna. 1 rit-
inu er innifalinn happdrættismiði
og eru 25 vinningar, hver að verð-
mæti 10.000 krónur. Vinningarnir
Ein af myndunum I fræðsluritinu.
eru gefnir af bifreiðatryggingafé-
lögunum. Til hvatningar á notkun
bilbelta hefur verið prentað stórt
veggspjald, sem hengt verður
upp viða á bensinstöðvum og öðr-
úm áningarstöðum ferðamanna.
Ber spjaldið yfirskriftina ,,Bil-
belti getur bjargað”.
í útvarpi verður einnig fjallað
mikið um umferðarmál þessa tvo
mánuði. Þátturinn „1 umferð-
inni” verður á laugardögum.
Kári Jónasson fréttamaður sér
um þátt á hverjum föstudegi kl.
18.00 og verður hann siðan endur-
tekinn á laugardagsmorgnum. Þá
mun ,,Jónas og fjölskylda” einnig
láta heyra til sin öðru hvoru og þá
einkum um helgar.
Fræðslurit fyrir erlenda öku-
menn verður gefið út og þvi dreift
á bilaleigur og til ökumanna sem
koma með bifreiðar sinar til
landsins.
—gsp
Sigurður Helgason stýrir fundi i
bæjarstjórn Kópavogs.
bæjarstjórnar siðasta ár, sagði af
sér störfum sem bæjarfulltrúi
flokksins á fundi bæjarstjórnar sl.
föstudag.
A siðasta ári stofnuðu nokkrir
heittrúaðir hugsjónamenn innan
Sjálfstæðisflokksins hlutafélag,
sem þeir nefndu Þorra h.f. og
hafði það sérkennilega hlutverk,
samkvæmt stofnsamningi félags-
ins, að „annast kaup og rekstur
fasteigna, almenn lánaviðskipti,
blaðaútgáfu svo og annan rekstur
er styður að framgangi Sjálf-
stæðisflokksins og stefnuskrár
hans”.
Starf sitt að þvi að efla Sjálf-
stæðisflokkinn hófu þessir hug-
sjónamenn með vel undirbúnu
áhlaupi á safnaðarfundi i Digra-
nesprestakalli þar sem þeir ætl-
uðu i samráði við sóknarprestinn,
aö taka öll völd i sinar hendur.
Ekki varð þó árangurinn annar I
það sinn en sá að fella meðhjálp-
ara safnaðarins.vinsælan mann
og vel látinn, úr safnaðarnefnd.
Eftir þetta fyrsta afrek sitt
höfðu þeir þorramenn hægt um
sig um tima, enda sættu vinnu-
brögð þeirra mikilli gagnrýni inn-
an flokksins. Nú hafa þessir
framgjörnu baráttumenn brotist
til valda i samtökum flokksins og
ákváðu á fundi i siöustu viku að
setja sinn fulltrúa i bæjarráð en
buðu Sigurði Helgasyni að vera
annar varaforseti bæjarstjórnar.
Þegar þorraklikunni varð ljóst að
nú höfðu þeir gengið of langt, var
of seint að bjóða sættir og Sigurð-
ur stóð við ákvörðun sina að segja
af sér störfum.
Axel Jónsson hefur til þessa
flotið á þvi að taka aldrei afstöðu i
deilumálum innan flokksins, en
nú mun honum vera orðið ljóst að
hann er áhrifalaus i sinu flokksfé-
lagi, enda e.t.v. næsta fórnar-
lamb þorramanna.
Nokkur uggur mun vera i þeim
þorramönnum eftir þennan sigur
innan flokksins, en þó sagði einn
þeirra fagnandi eftir bæjarstjórn-
arfundinn að nú yrði létt að
þurrka út áhrif bæjarfógetans
innan flokksins i Kópavogi.
Sigurður Helgason hefur átt
sæti i bæjarstjórn Kópavogs i 13
ár og áunnið sér traust allra sem
með honum hafa unnið. Voru
bæjarfulltrúar meirihlutans held-
ur vandræðalegir þegar Sigurður
sagði af sér en bæjarfulltrúar
minnihlutans þökkuðu honum
drengilegt samstarf.
Bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins völdu sér það hlutskipti
eftir siðustu kosningar að vinna
með Sjálfstæðisflokknum og sitja
nú uppi með kliku braskara, sem
er allsráðandi i samstarfinu.