Þjóðviljinn - 01.07.1975, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 01.07.1975, Qupperneq 11
Þriðjudagur 1. júli 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Olympíudagur í Laugardalshöll Víking- ur tók lands- liðið! Olympiudagurinn skilaði af sér einu islandsmeti i lyfting- um og telpna- og meyjameti i hástökki kvenna. Þar með eru upptalin afrek dagsins i kcppnisgreinum nema ef vera skyldi sigur Vikings yfir úr- vali HSt i handknattleik karla. Dagskráin innanhúss hófst i Laugardalshöll klukkan 16.00 með blakkeppni milli íþrótta- félags stúdenta og úrvalsliði Bla ksa m bandsins. Sigruðu stúdentar i fyrstu og þriðju hrinu og úrvalið i annarri. t júdói kepptu siðan 10 ungir strákar i tveimur þyngdar- flokkum. Þeir eru allir á för- um til Þýskalands innan tiðar til að dveljast þar i æfinga- búðum á vegum Júdósam- bands tslands. t léttari þyngdarflokknum sigraði Ómar Sigurðsson UMFK og i þyngri flokknum varð Páll Pálsson UMFG sigurvegari. Þá fór fram skfðaganga i Laugardalshöll! Var gengið á hjólaskíðum, en það er fyrir- bæri sem skiðamcnn nota gjarnan á sumrin til að halda sér i æfingu. Gengu þarna þrir kappar, þeir Halldór Matt- hiasson, Guðmundur Sveins- son og Páll Guðbjartsson. Körfuknattleikskeppni átti að vera næst á dagskrá, en af henni gat ekki orðið þar eð úr- val Suðurnesja mætti ekki til leiks og var Sveini Björnssyni, formanni Olympiunefndar ekki kunnugt um ástæður fyrir þeirri breytni suðurnesja- manna, sem áttu að leika gegn unglingalandsliðinu. Keppni i lyftingum var lifleg og gaf af sér eitt islandsmet I millivigt. Var það Skúli öskarsson sem jafnhenti 145 kg- Fimleikafélagið Björk sýndi æfingar á gólfi, æfingar með músik, fimleikastökk á trampólin o.fl. Nútimafim- Framhald á 14. siðu. Haukarí sífelldum vandræðum Haukar úr llafnarfirði eiga i stöðugum crfiðleikum i 2. deildinni. Nú siðast urðu þeir að láta sér nægja jafntefli við Völsung frá Húsavik 2-2. Kærkomið stig kom þar til húsvikinga sem fögnuðu enda úrslitunum eins og sjálfir v- þjóðverjar hefðu verið að velli lagðir. Völsungur skoraði 1-0 á fyrstu minútu og á 30. min. skoraði Hreinn Elliðason 2-0. Itétt fyrir leikhié kom 2-1 með marki Steingrims Halfdánar- sonar. Strax I byrjun siðari hálfleiks jöfnuðu Haukar með inarki Björns Svavarssonar og urðu lokatölur 2-2. Munaði þó oft litlu að Haukar næðu forskoti, þeir sóttu látlaust i siðari hálfleik en tókst ekki að nýta tækifærin. Þannig átti Björn skot I samskeytin, Loft- ur skaut yfir af marklinu o.s.frv. Hreinn EUiðason, besti maður húsvikinga meiddist og var tekinn útaf og var það inikil blóðtaka fyrir Völsung. Strax á 10. mln. skoruðu KR-ingar mark upp úr hornspyrnu frá hægri. Bjarni Pálmason dómari dæmdi markið ólöglegt, trúlega vegna brots á markverði en á þessari mynd er ekki að sjá annað en að Bjarna hafi skjátlast. Ottó stekkur upp og truflar Ómar markvörð e.t.v. eitthvað, en Atli Þór horfir á. FH-ingurinn á myndinni virðist sá eini sem truflar Ómar eitthvað að ráði. Hafi Bjarni dæmt markið af vegna rangstöðu má einnig sjá á þessari mynd, ef þetta atvik er ekki stækkað út I allan myndflötinn að um rangstöðu var ekkiað ræða. (—mynd gsp.) FH vann KR í hörðum leik með einu marki gegn engu „Venjuleg slagsmál” sagði Ólafur Daniv. sem skoraði eina mark leiksins og var oft grátt leikinn af geðstirðum varnarmönnum KR-inga FH-ingartóku KR-inga á lipurðinni í leik liðanna í Kaplakrika sl. sunnudags- kvöld. Þrátt fyrir leiðin- lega grófan leik tókst reykvíkingum aldrei að brjóta unga og léttleikandi FH-ingana niður og þeir sigruðu með einu marki gegn engu. Markið skoraði ólafur Danivalsson í byrj- un siðari hálfleiks með þrumuskoti undan vindi frá vitateig. Það verður ekki annað sagt en að skapið hafi hlaupið með KR- ingana i gönur. Þeim gekk illa strax i fyrri hálfleik, léku þá und- an vindi, sköpuðu sér tækifæri en tókst ekki að nýta eitt einasta. Einu sinni fór knötturinn að visu i netið en markið var dæmt af. Mótlætið fór að þvi er virtist illa i vesturbæingana, ekki sist i varnarmennina og Magnús markvörð sem á köflum höfðu sig næstum að fiflum með óþarfa ruddaskap og smáhrindingum eöa spörkum. Ólafur Danivalsson dansaði i kringum þá léttur á fæti, dekkaði Magnús og lék á varnarmennina með þeim afleiðingum að hann varð oft fórnarlamb geðvonsk- unnar. Fyrir utan spörk Magnúsar i hæla hans og bak var ljótast að sjá kýlingar Ólafs Ólafssonar, oft algjörlega að á- stæðulausu og er vissulega timi til kominn að sá leikmaður og fleiri KR-ingar reyni að hafa betur stjórn á skapi sinu. Annars tók Ólafur þessu með jafnaðargeði og eftir leikinn sagði hann þetta litið annað en þessi venjulegu slagsmál. „Þeir voru jú að visu oft óþarflega grófir,” sagði Ólafur, „en það kom verst niður á þeim sjálfum. Skapið hljóp með þá i gönur og slikt er aldrei gæfulegt i fótbolta.” FH-ingar léku gegn vindi i fyrri Framhald á 14. siðu. Frjálsíþróttakeppni OL-dagsins Þórdís að nálgast íslandsmet Láru í hástökki Hún setti nýtt telpnamet og stökk 1.62m.---slæmt veður eyðilagði keppnina í hlaupunum Ilin 14 ára gamla og stórefni- lega frjálsiþróttastúlka, Þórdis Gisladóttir úr 1R nálgast óðum tslandstnet Láru Sveinsdóttur I hástökkinu og nú siðast á sunnu- daginn setti hún nýtt glæsilegt telpna-og meyjamet i hástökki, stökk 1,62 m. á frjálsiþrótta- keppni ÓL-dagsins. Veður til keppni var hið versta, rok og rigningjOg manni veröur spurn, hvaö gerir Þórdis i keppni viö bestu aöstæöur? Annars setti veöriö svip sinn á keppnina I frjálsum. Hlaupin eyöilögðust vegna þess og i há- stökkinu og kúluvarpinu voru keppendur blautir og kaldir meðan á keppninni stóö. Arangur I einstökum greinum varö sem hér segir. 1 1500 m. hlaupi sigraöi Gunnar Þ. SigurÖsson FH á 4:18,8 min. i 200 m. hlaupi kvenna sigraði Erna Guð- mundsdóttir KR á 26.0 sek. Asa Halldórsdóttir Arm. varð önnur á 26,7 sek. Og Asa Gunnlaugs- dóttir þriöja á 27,4 sek. 1 200 m. hlaupi karla sigraöi Bjarni Stefánsson á 21,6 sek. og Sigurður Sigurðsson varð annar á 22,0 sek. I 200 m. hlaupunum var alltof mikill meövindur á beinu brautinni. I kúluvarpi sigraöi Guðni Halldórsson, kastaöi 15.64 m. og i hástökki kvenna sigraði Þórdis eins og áöur sagði en i ööru sæti varö Björk Eiriksdóttir IR, stökk 150 m. og Lára Halldórs- dóttir stökk sömu hæö. Erna Guðmundsdóttir KR kemur i markiö sent sigurveg- ari I 200 tn hlaupi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.