Þjóðviljinn - 26.08.1975, Qupperneq 1
UOÐVIUINN
Þriðjudagur 26. ágúst 1975 — 40. árg. 191. tbl.
Farmannadeilan
t gær klukkan 14 hófst sátta-
fundur I deilu undirmanna á
farskipum og útgerðarmanna.
Síðasti fundur var haldinn á
fimmtudaginn en þá gerðist
ekkert frekar en á fyrri fundum.
Við náðum tali af Guölaugi
Þorvaldssyni sáttasemjara i
gærdag meðan fundurinn stóð
yfir. Sagði hann að ekkert
markvert hefði boriö til tiðinda
á fundinum og bjóst við að hann
stæði lengi.
Farmenn hafa boðað til verk-
falls og kemst það I framkvæmd
á miðnætti aðra nótt ef ekki
tekst að semja fyrir þann tima.
ÞH
Vöruskipta-
jöfnuðurinn:
15 miljarða kr.halli
Helmingi verri útkoma nú en
fyrstu sjö mánuðina i fyrra
Enn sígur á ógæfuhliðina
varðandi vöruskiptajöfnuð
Islands við útlönd. Fyrstu
sjö mánuði þessa árs var
vöruskipta jöfnuðurinn ó-
hagstæður um rúma 15
miljarða króna. A sama
tímabili í fyrra var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 8.5 miljarða
króna. Þannig hefur stað-
an fyrstu sjö mánuði árs-
ins versnað nær því um
helming miðað við sama
tima i fyrra, og þótti þá á-
standið mjög alvarlegt.
t júli var vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 1.5 miljarð króna
en i júli i fyrra um rúman
miljarð. Þessar nýju tölur benda
ekki til þess að efnahagsstefna
stjórnarinnar hafi heppnast og
skjóta skökku við yfirlýsingar
Ólafs Jóhannessonar, viðskipta-
ráðherra, um að bati sé i gjald-
eyrismálunum.
Iðnnemar mótmæla
komu NATO-flotans
í gær komu til Reykjavíkur sex
herskip á vegum NATÓ. Þau
höfðu áður haft viðkomu I Hval-
firði og tekið eldsneyti. Tvö skip-
anna, hollenska skipið Evertsen
og kanadiska skipið Iroquois
lögðust við bryggju I Sundahöfn,
en hin fjögur liggja við akkeri.
Þessari kurteis ish eimsókn
Nato-flotans lýkur á morgun en i
dag hefur yfirmaður flotans
boðað tii blaðamannafundar á
kanadiska skipinu.
Sambandstjórnarfundur Iön-
nemasambands Islands hefur
mótmælt komu herskipanna til
íslands og fer ályktunin hér á
eftir:
Til fjölmiðla:
Sambandsstjórnarfundur Iðn-
nemasambands tslands ályktar á
þessa leið.
Tvö herskip úr NATó-flotanum úti á Ytri-höfninni I gær vöktu athygli
smástrákanna.
Blaöamenn og framámenn iHafnarfirði viröa fyrir sér hitaveitustokk I
bænum I gær.
99% hafnfirðinga fá
hitaveitu á næstunni
Spara sér um
300 miljónir
Hitaveituframkvæmdir i Hafn-
arfirði, Garðahreppi og Kópavogi
hafa verið teknar föstum tökum i
sumar og hefur það trúlega ekki
farið framhjá mörgum sem ieiö
hafa átt um þessi svæði. Á blaða-
mannafundi I Itafnarfirði i gær
voru hitaveituframkvæmdirnar
kynntar og annað það sem helst
er á döfinni i Hafnarfirði um
þessar mundir.
Það kom fram að reikna má
með að hitaveitan komist til 99%
húsa i Hafnarfirði. Þau sem
liggja lengst frá og afskekktast
verða að sætta sig við að verða án
þægindanna, a.m.k. fyrst um
sinn.
Það er Hitaveita Reykjavikur
sem sér um allar framkvæmdir
og standa hafnfirðingar með öllu
réttlausir hvað snertir eignarrétt
eða yfirráð. Sögðust þeir þó vera
reykvikinga, þvi kjörin hefðu ver-
ið góð og samningar allir haldnir
af stakri prýði og jafnvel rúmlega
það. Framkvæmdireru töluvert á
undan áætlun og ibúar i Norðurbæ
og þar i kring eiga von á vatninu
inn til sin á hverri stundu.
Samningur um lagningu og
rekstur hitaveitu var gerður 1.
nóv. 1973 milli Hafnarfjarðarbæj-
ar og Reykjavikurborgar. Aform-
að var þá að lagning dreifikerfis
hæfist á árinu 1974 og þvi yrði lok-
ið i siðasta lagi 1977. Lagning
aðalæðarinnar hófst 1974 og er
henni nú lokið. Reiknað er með aö
allt að 70% hafnfirðinga fái hita-
veituna á þessu ári og eru bæjar-
búar að sögn hinir ánægðustu
með vinnuhraðann þótt bærinn sé
fyrir bragðið meira og minna
ánægðir með gerða samninga við
sundurgrafinn og göturnar i
Hafnarfirði e.t.v. verri en nokkru
sinni fyrr.
A fundinum i Hafnarfirði kom
fram að lauslega reiknað muni
bæjarbúar eyða um 400 milj. I
oliukostnað v/kyndingar árlega.
Sú upphæð á að minnka niður i 100
miljónir með tilkomu heita vatns-
ins. Kostnaður við lagninguna er
kominn upp i 700 miljónir i Hafn-
arfirði en samtals við lagningu i
Kópavogi og Garðahreppi lika er
kostnaður orðinn um 2 miljarðar.
—gsp
Sambandsstjórnarfundur INSt
mótmælir harðlega komu hinna
erlendu Nato herskipa hingað til
lands mánudaginn 25. ágúst.
Sambandsstjórn ályktar þvi I
anda 32. þings er var á þessa leiö.
„Þingiö fordæmir vigbúnaðar-
kapphlaup stórveldanna og lýsir
þeirri skoðun sinni að engin þjóð
eigi að þurfa að hafa erlendan her
I sinu landi og krefst þess að
erlendar herstöðvar hér á landi
verði lagðar niður tafarlaust og
Island hætti allri þátttöku i
hernaðarbandalögum.”
NÝJU DELHI 25/8 — Tugir þús-
unda manna misstu heimili sin i
Indlandi i dag eftir að Ganges-
fljót og aðrar ár i grennd við það
flæddu yfir bakka sina og inn i
borgina Patna. Mörg borgar-
hverfi i Patna, sem telur yfir mil-
jón ibúa, fóru svo að segja alveg i
kaf svo að einungis þökin stóðu
upp úr. Rafmagnsveita borgar-
innar var tekin úr sambandi óg
skólum og skrifstofum var lokað.
Lögbannið á
„Nýja Vísi”
tekið fyrir
Lögbannsbeiðni Reykjaprents
h.f. á nafnið Nýr Visir, sem Jónas
Kristjánsson hefur skráð i firma-
skrá, verður tekin fyrir hjá
bæjarfógetaembættinu á Sel-
tjarnarnesi I dag. Ekki er gert ráð
fyrir að skorið verði úr þvf fyrr en
eftir nokkra daga, hvort lög-
bannsbeiðnin verður tekin gild.
Vafi er talinn leika á þvi að
hægt sé að setja lögbann á nafn,
þar sem mörg dæmi eru um það
að lýsingaroröinu „Nýr” sé
skeytt framan við nöfn starfandi
fyrirtækja I sömu grein, þegar
nýtt fyrirtæki haslar sér völl. Má
þar nefna blöðin Þjóðmál og Ný
þjóðmál. Þetta hefur ekki þótt
brjóta i bága viö reglur.
iirundartanga-
<
malu):
Verkfall hefur verið boðað á
vinnusvæði væntanlegrar járn-
blendiverksmiðju á Grundar-
tanga I Hvalfirði. Verkfallið kem-
ur til framkvæmda á þriðjudag-
inn eftir viku, hafi samkomulag
ekki náðst áöur.
Þeir sem að verkfallsboöuninni
standa, eru Verkalýðsfélag Akra-
ness, Verkalýðsfélagið Hörður I
VERKFALL BOÐAÐ
Hvalfirði, Sveinafélag málmiðn-
aðarmanna á Akranesi, Lands-
samband vörubifreiðastjóra
vegna bflstjórafélagsins á Akra-
nesi, Trésmiðafélag Akraness og
Rafvirkjafélagið á Akranesi.
„Það kemur ekki til að þessi
vinnustaður veröi dreginn niður á
eitthvað sóða- eða frumbýlings-
stig”, sagði Einar Ogmundsson
formaður Landssambands vöru-
bifreiðastjóra, er Þjóðviijinn
ræddi við hann.
„Verktakinn sem hefur fram-
kvæmdir á Grundartanga með
höndum, hefur engan fund boðað
enn. Siöasti fundur með honum
var á föstudaginn i næstliðinni
viku og hann hefur verið meö
menn i vinnu á þessum vinnustað
i fimm vikur og vinnustaðurinn
var i byrjun og er enn alveg van-
búinn undir framkvæmdir”.
Fulltrúar verkalýðsfélaganna
voru á fundum meö stjórn Járn-
blendifélagsins á fimmtudaginn
og föstudaginn i siðustu viku, og
ræddu þá m.a. við islenska verk-
fræðinga, sem undirbjuggu þær
Framhald á bls. 10