Þjóðviljinn - 26.08.1975, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2fi. ágúst 1975
Frá barna- og
gagnfræðaskólum
Reykjavíkur
Skólarnir taka til starfa i byrjun septem-
bermánaðar sem hér segir:
Mánudaginn 1. sept. skulu foreldrar eða
forráðamenn nemenda i forskóla og 1.-6.
bekk barnaskóla, sem flytjast milli skóla
og ekki hefur áður verið tilkynnt um, láta
vita um flutninginn bæði i þeim skóla sem
nemandinn flyst úr og þeim skóla sem
hann kemur til með að sækja.
Kennarafundir verða i barnaskólunum
mánudaginn 1. sept kl. 14.
Barnaskólarnir taka til starfa fimmtu-
daginn 4. sept. en nánar verður auglýst
siðar hvenær hver aldursflokkur nemenda
skal koma i skólana þann dag.
Nemendur gagnfræðastigsins, eða aðrir i
þeirra stað, staðfesti umsóknir, hver i sin-
um skóla, mánudaginn 1. sept. kl. 14-17.
Kennarafundir i gagnfræðaskólum verða
boðaðir af skólastjóra hvers skóla.
Kennsla i gagnfræðaskólum hefst að lok-
inniskólasetningu8. sept. er verður nánar
auglýst siðar.
Skólabyrjun i Breiðholti II
(Skóga- og Seljahverfi)
Börn sem sækja eiga ölduselsskóla (for-
skólabörn og 1.-6. bekkur barnaskóla, þ.e.
6-12 ára börn) verða innrituð i Fellaskól-
anum þriðjudaginn 2. sept. kl. 10-12 og
14-17. Nauðsynlegt er að þá sé sótt um
skólavist fyrir öll börn á þessum aldri sem
sækja eiga ölduselsskóla. Auglýst verður
siðar hvenær skólinn tekur til starfa.
Nemendur úr Breiðholti II á gagnfræða-
stigi staðfesti umsóknir sinar um skóla-
vist, hver i þeim skóla sem sótt hefur verið
um, mánudaginn 1. sept.
Fræðslustjóri.
Iðnrekendur þinga
Félög iðnrekenda á Norður-
löndum halda þessa dagana ráð-
stefnu að Hótel Loftleiðum. Slikar
ráðstefnur eru haldnar árlega og
sitja þær formenn og fram-
kvæmdastjórar, ásamt stjórnar-
mönnum og starfsmönnum iðn-
rekendafélaganna.
Fjöldi þátttakenda i ár er 30 og
þar af 10 islenskir. A fundunum
eru rædd sameiginleg málefni og
sjónarmiðsameinuð eftir þvi sem ,
við á.
Ráðstefnan hófst með dvarpi
Gunnars Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra, um iðnað á Islandi og
samstarfsmöguleika á þvi sviði
milli Norðurlandanna, en siðan
var gerð grein fyrir stöðu iðnað-
arins i hverju landi fyrir sig.
Onnur helstu málefni, sem
rædd voru á ráðstefnunni, voru
samskipti iðnrekendafélaganna
við vinnuveitendasamtök við-
komandi landa og hlutverk iðn-
rekendafélaganna i mótun iðnað-
arstefnu i heimalandinu.
Ráðstefnur þessar eru árlega
og haldnar til skiptis á Norður-
löndunum. Verður næsta ráð-
stefna haldin i Sviþjóð 1976.
Sjóman n afé l ag
R eykj avikur:
Enga
samninga
innan
50 mílna
Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavikur haldinn þann 24.
ágúst 1975 i Lindarbæ fagnar á-
lyktun Alþingis að ákveða 200
milna efnahagslögsögu varðandi
fiskveiðar við fsland.
Fundurinn bendir á nauðsyn
þess að jafnframt verði gengið
frá skiptingu veiðisvæða fyrir is-
lensk veiðiskip.
Til grundvallar við útfærsluna
verði sett sem meginskilyrði að
islendingar sjálfir ráði og ákveði
skiptingu aflamagns á svæðinu
umhverfis Island, með það einnig
i huga að stórlega verði dregið úr
ásókn veiðiskipa á uppeldisstöðv-
ar smáfisks.
Aðalfundur telur eðlilegt að orð-
ið verði við óskum viðskiptaþjóða
um viðræður vegna útfærslunnar,
en mótmælir harðlega öllum
samningaviðræðum fyrr en lönd-
unarbanni og öllum öðrum við-
skiptaþvingunum er aflétt.
Þá verði sú stefna tekin að eng-
ar veiðiheimildir verði veittar
innan 50 sjómilna fyrir erlend
fiskiskip.
Ef til samningaviðræðna kem-
ur, skorar aðalfundurinn á vænt-
anlega samninganefnd rikis-
stjórnar og Alþingi að gæta sér-
staklega hagsmuna þeirra fiski-
manna sem að mestu eiga af-
komu sina undir veiðum við S og
S.v-land.
Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavikur mótmælir harðlega
ákvörðun verðlagsnefndar um
verð á sild. Telur fundurinn að
þessi ákvörðun sé óbein milli-
færsla frá einni veiðigrein til ann-
arar, og nóg sé að gert á þvi sviði
þegar.
Stjórn Iðju, félags
verksmiðjufólks á
Akureyri
Hreinar
200 milur
Á stjórnarfundi i Iðju félagi
verksmiðjufólks, sem haldinn var
20. ágúst 1975. var eftirfarandi á-
lyktun gerð:
„Stjórn Iðju félags verksmiðju-
fólks á Akureyri ályktar, að ekki
Framhald á bls. 10
Formenn Félaga iðnrekenda á Norðurlöndum. Taliðfrá vinstri: Martti
Hovi, Finnlandi, Onar Ornheim, Noregi, Aake Palm, Sviþjóð, Davið
Scheving Thorstcinsson, islandi og H. Bruniche-Olsen, Danmörku.
Starfsmann
vantar að vöruafgreiðslu vorri i haust sem
flokkstjóra. Nánari upplýsingar i skrif-
stofunni. Umsóknir sendist fyrir 6. sept.
Skipaútgerð rikisins.
smvtsm
AÐ FRJÁLSU DAGBLAÐI
hefur göngu sína i byrjun september.
Gerist áskrifendur nú
Stuöliö aö frjálsri blaóamennsku,
óháóri allri flokkapólitík.
Gerist áskrifendur nú
Tryggió yóur skemmtilegt fréttablaó
í bréfaluguna daglega.
Gerist áskrifendur nú
í fyrstu tölublöóunum veróur
áskrifendagetraun. Verólaun: feró til
Hawaii fyrir 2 meó viókomu
í New York og Disneylandi.
Verómœti kr. 300 þús.
Gerist áskrifendur nú
Strax í dag.
Áskriftarsími 8 33 22
MÉMV&m
AB FRJÁLSU DASBLABI
Útboð
Tiíboð óskast i að steypa sökkla og botn-
plötu undir um 440 ferm. barnaskólahús i
Bessastaðahreppi á Álftanesi, og einnig i
byggingu rotþróar við skólann. útboðs-
gögn verða afhent i verkfræðistofu vorri
gegn 3 þúsund króna skilatryggingu og
verða tilboðin opnuð á sama stað þriðju-
daginn 9. september kl. 9 f.h.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf
ÁRMÚLI4 REYKJAVlK SlMI 84499