Þjóðviljinn - 26.08.1975, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 26. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Bændur berjast við að þurrka hey þótt þurrkurinn bregðist sumarlangt
Meiri næring
,bað voru um 7% af heildar-
heyfengnum sem fór i vothey”,
sagði Gisli Kristjánsson, ,,og
yfirleitt er -hlutur votheysins
ekki nema svona 7-10%.”
En fer votheysverkun ekki i
vöxt?
„Nei, hún fer ekki i vöxt. Eitt
sem veidur þvi er geymslu-
leysið. Bændur eiga yfirleitt
ekki nægilega miklar og nægi-
lega góðar geymslur fyrir vot-
hey. Og þar sem þannig háttar
til, reyna menn að þurrka eins
og þeir geta. Þessa dagana er
súgþurrkun beitt til hins
ýtrasta.”.
Þegar óþurrkasumur ganga
yfir reyna bændur þá ekki að
búa eitthvað i haginn, auka vot-
heysverkun i framtiðinni?
„Nei, það gera þeir ekki —
það er eins og ég sagði margt
sem veldur, oft gömul mistaka
reynsla og svo þarf viða að
byggja dýrar geymslur”.
—GG
Aðeins 7% i vothey
1 fyrra sumar, þegar þurrkar
voru góðir viðast hvar á
landinu, verkuðu menn afar litið
af votheyi.
...en kýrnar fá meiri næringu úr góðu votheyi.
Sumum bændum til leiðinda,
ræða menn nú enn á ný hvernig
á þvi stendur, að fæstir bændur
eru við þvi búnir að þurrka vot-
hey, þegar óþurrka sumur
ganga yfir.
Margir virðast hafa vantrú á
votheyinu, en þó eru þeir tii sem
hafa árum saman verkað það i
stórum stíl, t.d. á Ströndum.
„Strandamenn eru langt á
undan öðrum bændum hér a
landi I verkun votheys”, sagði
Gisli Kristjánsson hjá Búnaðar-
félaginu i viðtali við Þjóð-
viljann.
,,0g ég tel að bændur ættu
yfirleittað vera betur undir það
búnir að verka vothey. Það
liggur i landi vantrú á votheyi
og sú vantrú á sér sinar for-
sendur. Aðallega stafar sú
vantrú af mistaka reynslu.
Allt fóður, sem ekki er rétt
meðhöndlað er hættulegt.
Skemmt fóður er hættulegt. Það
hefur lengi verið vitað, að ef
gefið er saman vothey og
þurrhey, sem skemmst hefur,
t.d. komist of mikið loft að
heyinu, þá er meiri hætta á
sjúkdómum.
Ef vel og rétt er með votheyið
farið, þá er meiri næring i þvi en
þurrheyinu”
segir Gísli
Kristjánsson hjá
Búnaðarfélaginu
Aðeins 7%
heildar
heyfengsins
verkað i vothey
í votheyi
Sýning austur-þýsha heilb rigðissafnsin s:
Brúðkaup árs-
ins á plakati
A forsíðu sunnudagsblaös Þjóöviljans um slöustu áramót birtist
teikning eftir Arna Ingólfsson, nemenda I Myndlista- og handföa-
skólannm. Myndin hét Brúökaup ársins ’74og trónuöu þar forystumenn
framsó inar og ihalds meö sælusvip framan viö altariö. Plakat hefur nú
veriögertaf þessari teikningu Arna. Þaö fæst nú á þremur stööum i
Reykjavik gegn vægu veröi. Plakatiö kostar aöeins 500 krónur. Þeir
sem hug hafa á að ná sér I eintak geta keypt þaö i Bókabúö Máls og
menningar, á afgreiöslu Þjóöviljans Skólavöröustig 19 og aö Grettis-
götu 3. skrifstofu Alþýöubandalagsins.
18 km. kopar-
vír í æðakerfi
Glerkonunnar
Halldór Laxness velur úr
verkum sínum fyrir skóla
Fyrir nokkrum árum hóf Rikis-
útgáfa námsbóka útgáfu nýs
bókaflokks, sem ber heitið Bók-
menntaúrval skólanna. Mark-
miðið er fyrst og fremst að greiða
fyrir aukinni kynningu bók-
mennta og glæða áhuga á þeim,
sérstaklega i skólunum.
Þriðja bókin i þessum flokki er
nú komin út. Nefnist hún Syrpa,
úr verkum Iialidórs Laxness. 1
henni eru valdir kaflar sem Hall-
dór Laxness hefur valið úr
verkum sinum til þessarar út-
gáfu, hinir elstu úr Vefaranum
mikla, en hinn yngsti úr Innan-
sveitarkroniku.
Bókina prýða teikningar eftir
Harald Guðbergsson. Höfundur
ritar inngangsorð að efni bókar-
innar, en að auki hefur hann
samið orðskýringar aftan við
hvern leskafla.
Fremst i bókinni fer ritgerð um
höfundinn eftir Matthias
Johannessen ritstjóra. Þess má
geta, að siðasti kafli bókarinnar,
Sagan af brauðinu dýra, er prent-
aður hér i fyrsta skipti i islenskri
útgáfu eftir texta þeim, sem
gefinn var út i Sankt Gallen i
Sviss árið 1972', en siðan birtist
hann breyttur i Innansveitar-
kroniku.
Syrpa úr verkum Halldórs Lax-
ness er 222 bls. að stærð. ölafur
Pálmason sá um útgáfuna. Set-
berg prentaði.
1 ráði er að gefa ut á hljóm-
bandi lestur höfundar á völdum
köflum úr bókinni.
1 bókaflokknum Bókmennta-
úrval skólanna hefur áður
komið út Leikur að stráum eftir
Gunnar Gunnarsson (1970) og
Kristrun i Hamravik eftir Guð-
mund G. Hagalin (1972).
Sýning austur-þýska heil-
brigðissafnsins hefur vakiö mikla
athygli á alþjóðlegu vörusýning-
unni i Laugardal, en um helgina
heimsóttu um 14 þúsund manns
Laugardalshöllina og langflestir
skoðuðu heilbrigðissýninguna.
Blaðamönnum var sýnd þessi
sýning og það var dr. Schmieder
^em sagði frá heilbrigðissafninu,
sem stofnsett var árið 1911 og er
nú mjög þýöingarmikill hlekkur I
fyrirbyggjandi heilsuvernd i
þýska Alþýðulýðveldinui
Sýningin hefur ferðast viða, en
hún kemur hingað frá Frakk-
landi. Sýnd eru m.a. fjöldamörg
likön, en safnið framleiðir likön
sem seld eru til 60-70 landa. Einna
mesta athygli hefur glerkonan
vakið, en slik likön hafa verið seld
viða um heim bæði af konu og
manni og einnig af hesti og kú.
Glerkonan er að mestu úr plasti,
en beinagrind hennar er úr áli og i
æðakerfið eru notaðir 18 kfló-
metrar af plasthúðuðum kopar-
vir.
Dr. Schmieder sagði að safnið
ogsýningarsem þessi væru mjög
þýðingarmiklar i baráttunni fyrir
auknu heilbrigði, — til þess að
Framhald á bls. 10
VALTÝR HÆTTIR
Forseti lslands hefur hinn 22.
þ.m. samkvæmt tillögu dóms-
málaráðherra, veitt Valtý Guð-
mundssyni sýslumanni i Suður-
Múlasýslu og bæjarfógeta á Eski-
firði lausn frá embætti að eigin
ósk frá 1. janúar 1976 að telja.
Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið, 25. ágúst 1975.