Þjóðviljinn - 26.08.1975, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 26. ágúst 1975
Markasúpa
hjá selfyss-
ingum og
Ármanni
Það urðu hvorki meira né
minna en átta mörk sem gerð
voru i leik Ármanns og Selfoss
á Melavelli um helgina. Þau
skiptu sér bróðurlega milli lið-
anna og lauk leiknum með
jafntefli 4-4 eftir að Selfoss
hafði haft þriggja marka for-
ystu er 7 min. voru til leiks-
loka.
Sumarliði Guðbjartsson
skoraði 3 mörk i leiknum og
náði þar með Hinriki Þór-
hallssyni úr Breiðabliki i
markafjölda. Fjórða mark
selfyssinga skoraði Jakob
Gunnarsson, en fyrir Ármann
skoruðu. þeir Arnlaugur
Helgason, ögmundur
Kristinsson markvörður (viti)
og Kristinn Petersen jafnaði á
siðustu minútu leiksins.
Ármenningar tóku þvi við
sér á elleftu stundu og unnu
upp forskotið á ævintýralega
stuttum tima. Mikii harka var
i leiknum, Valur Benediktsson
dómari réði litið við leikmenn,
og leystist leikurinn að sögn
upp i mikinn barning áður en
dómari gaf merki um leikslok.
—gsp
Völsungur
vann 2-1
Tveir Haukar urðu að yfir-
gefa völlinn i miðjum leik við
Völsung á heimavelli um helg-
ina. Annar fékk spark i kvið-
inn og hinn, Hörður Sigmars-
son, fór úr liði á fingri. Harka
var töluverð eins og gengur og
geristá Húsavik og lauk leikn-
um með sigri heimamanna, 2-
1.
í Ieikhléi var staðan 1-1 eftir
mörk þeirra Magnúsar Torfa-
sonar fyrir Völsung og Guð-
jóns Sveinssonar fyrir Hauka.
Sigurmark heimamanna skor-
aði Hreinn Elliðason undir lok
leiksins.
Þrátt fyrir hörkuna var leik-
urinn að sögn nokkuð góður og
sigur Völsungs verðskuldaður.
Einn fékk að sjá gula spjaldið
— Hreinn Elliðason.
Þaö var mikill darraöardans I vitateigi IBV undir iok leiksins. Einar Gunnarsson braut gróflega á Ársæli sem hér sést illa haldinn á meöan
Friðfinnur bókstafiega snýr Einar niður. Báöir fengu þeir félagar sem þarna faömast rauöa spjaldið fyrir þátttöku I þessum átökum. (Mynd: GSP)
Rauða spjaldið tvisvar
upp á sömu mínútunni!
og Einar og Friðfinnur fá báðir keppnisbann
eftir jafnteflisleik IBK og vestmannaeyinga
Grétar Noröf'|örö brást
hárrétt viö á siðustu
mínútu leiks ÍBV og ÍBK
sem fram fór i Keflavik sl.
laugardag. Hann skellti
rauða spjaldinu tvisvar á
loft á sömu mínútunni, og
þeir Einar Gunnarsson og
Friðfinnur uröu báðir að
yfirgefa völlinn. Með
slagsmálunum sem þarna
áttu sér stað lauk tiltölu-
lega prúðmannlegum leik,
sem allt eins hefði getað
endað með sigri ÍBV sem
átti ótal tækifæri í fyrri
hálfleik sem ekki nýttust.
Keflvikingar voru hins
vegar öllu aðgangsharðari
siðari hálfleik, en Ársæll
sig eins
markinu
KR-ingar stóðu sig
þrátt fyrir forföll
Þrjá lykilmenn vantaði, en KR náði stigi af FH
KR-ingar mættu væng-
brotnir í leik sinn gegn
FH um heigina. Atli Þór
Héðinsson og Jóhann
Torfason meiddir og
Haukur Ottesen i leik-
banni. Það var því vart
hægt að búast við miklu af
þessu botnliöi en annað var
uppi á teningnum. KR var
meira með boltann allan
leikinn, náði öðru stiginu
og gerði á margan hátt
betri hluti en við var að
búast.
Þó voru hafnfirðingarnir
öllu ákveðnari uppi við
mark andstæðingsins.
Magnús hafði nóg að gera í
markinu og skilaði sínu
hlutverki af mikilli prýði.
Vesturbæingar léku undan
vindi fyrri hálfleik og réöu þá lög-
um og lofum á miðjunni. Tæki-
færin létu þó biða eftir sér og það
var ekki fyrr en undir lok hálf-
leiksins að eitthvað fór að gerast.
A 38. min. komst Guðmundur Jó-
hannesson inn fyrir i hættulegt
færi en Ómar rétt náði að hirða
boltann af tám hans. Á siðustu
minútunni átti Björn Pétursson,
besti maður KR-inga, þrumuskot
sem flaug rétt fram hjá. Á sömu
min. sendi Björn laglega
sendingu á Hálfdán örlygsson
sem stóð i dauðafæri fyrir opnu
marki en skaut yfir frá markteig.
Mörkin komu þvi ekki fyrr en
eftir hlé. Janusi Guðlaugssyni
urðu á mikii mistök á 13. min.
Hann hugðist senda boltann aftur
til Ómars markvarðar en ekki
tókst betur til en svo að Hálfdán
fékk boltann og lék inn að mark-
inu. Skot hans framhjá Ómari var
varið á marklinu af varnarmanni
og þaðan hrökk boltinn til Bald-
vins Eliassonar, sem nýkominn
var inná sem varamaður, og af-
greiddi hann boltann i mark FH.
En forystan varð ekki langvinn.
FH jafnaði metin á sömu minútu
með marki Leifs Helgasonar sem
hafði brotist i gegn upp vinstri
kantinn og skoraði án þess að
Magnús kæmi vörnum við.
Áfram héldu FH-ingarað skapa
sér tækifæri þrátt fyrir miðjuvöld
KR. Helgi Ragnarsson átti góðan
skallabolta upp úr hornspyrnu
sem Magnúsi tókst að slá i þver-
slána og skömmu siðar varði
Magnús laglega þrumuskot frá
Leifi Helgasyni.
Hjá KR-ingum var Björn
Pétursson eins og áður sagði
einna bestur. Stefán Orn Sigurðs-
son kom einnig ágætlega út úr
þessum Ieik. Gula spjaldið fékk
Hálfdán örlygsson.
Ólafur Danivalsson stóð að
venju fyrir sinu hjá FH og einnig
vakti Gunnar Bjarnason athygli i
vörninni. Leikurinn var þokka-
lega leikinn, en bar þó merki
þeirrar spennu, sem KR leikur
undir um þessar mundir. —gsp
l
markvörður stóð
og hetja og hélt
hreinu. Lauk leiknum þvi
með 0—0 jafntefli.
Eftir brottreksturinn á siðustu
min. léku keflvikingar aðeins 9
gegn 10 vestmannaeyingum, þvi
skömmu áður hafði Ástráður
þurft að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla. Tildrög þess að tveir
voru reknir út af voru þau að Ein-
ar Gunnarsson elti stungubolta
inn fyrir varnarmenn IBV. Ársæll
kom út á móti og hirti boltann af
tám Einars sem einhverra hluta
vegna sparkaði gróflega i Arsæl
liggjandi. Friðfinnur brást hinn
versti við og sneri Einar niður og
fékk rauða spjaldið fyrir vikið.
En áfram héldu stimpingarnar og
lauk þeim með þvi að Einar fékk
einnig rauða spjaldið — fyrir að
sparka i hælana á einum vest-
mannaeyingnum.
Að öðru leyti var litið um það að
Grétar þyrfti að berjast við
stundarskapbræði leikmanna.
Leikurinn gekk átakalitið fyrir
sig og verða eyjamenn að teljast
öllu betri aðilinn þegar á heildina
er litið. Lið þeirra var óþekkjan-
legt frá fyrri leikjum, boltinn
gekk á milli manna og sæmilegur
broddur var i sókninni á köflum.
Tómas Pálsson sendi boltann i
net IBK strax á 12. min. en var
dæmdur rangstæður. Tólf min.
fyrir leikslok skoraði Jón Ólafur
ágætt mark en var einnig
dæmdur rangstæður og verður
þvi vart sagt að dómarinn hafi
gert upp á milli liða i þessum leik
þvi hann skipti einnig lita-
spjöldunum bróðurlega á milli
þeirra..
Vitaspyrnulykt var af atviki
einu sem skeði á 18. min. fyrri
hálfleiks. IBV sótti þá stift og
eftir atgang i vitateigi IBK datt
Einar Gunnarsson og fékk bolt-
ann beint i höndina. Viti heimtuðu
sumir en aðrir mótmæltu. Ekki
leið þó á löngu þar til mótmæl-
endurnir heimtuðu viti hinum
megin en hinir mótmæltu og var
þá vitaspyrnumálum einnig skipt
af hlutleysi á milli liðanna.
Leikurinn var að mörgu leyti
betri en gengur og gerist með
þessi lið i sumar. Boltinn gekk á
milli manna, sóknirnar voru
beittar og tækifærin mörg á báða
bóga. Áhorfendur fengu þvi
nokkuð fyrir sinn snúð og eyja-
menn' fögnuðu úrslitunum þvi enn
hafa þeir eins stigs forskot á KR.
—gsp
Víkingur 0 vann
fyrsta sigurinn
Vikingur frá Ólafsvik vann sinn
fyrsta sigur i sumar er Reynir frá
Árskógsströnd sótti þá heim.
Leikurinn fór fram i ágætis veðri
og var að sögn heimamanna fjör-
ugur og skemmtilegur. Vikingur
lék þarna sinn besta leik i sumar
og uppskar tvö stig, sem duga þó
ekki til þess að hanga átakalaust i
2. deild.
í leikhléi var staðan 1-1 en loka-
tölur leiksins urðu 3-2 sigur Vik-
ings. Mörk þeirra skoruðu þeir
Hilmar Gunnarsson, ólafur
Rögnvaldsson og Atli Alexand-
ersson, sem skoraði úr vita-
spyrnu.