Þjóðviljinn - 26.08.1975, Qupperneq 9
Þriðjudagur 26. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINfJ — SIÐA 9
<
Ekkert gengur að fá
úrslitin í 3. deild
til að ganga upp
Það gengur svo sannarlega
erfiðlega að fá úrslitakcppnina i
3. deild til að ganga upp. Keppnin
hófst s.l. föstudag i tveimur riðl-
um og að leikjunum sl. sunnu-
dagskvöld I loknum áttu skv.
áætluninni að standa uppi tvö lið,
eitt i hvorum riðli, sem lckju um
1. sætið í 3. deild.
Ekki tókst þó betur til en svo, að
i A-riðli urðu þrjú lið jöfn að stig-
um og verða þvi að heyja inn-
byrðis aukakeppni um 1. sætið i
riðlinum. Slikt getur tekið sinn
tima, liðin eru sitt úr hverri átt-
inni og þurfa þvi að heimsækja
hvert annað við fyrsta tækifæri.
Úrslit i leikjunum urðu þessi:
A-riðill:
Stjarnan — Fylkir 0-0
Einherji —KA 0-4
Fylkir — KA 1-1
Stjarnan — Einherji 3-1
KA — Stjarnan 1-1
Einherji — Fylkir 0-6
B-riðili:
Þór — ÍBt
Þróttur N — IBI
Þróttur N — Þór
3-2
0-1
0-2
Að þessum leikjum loknum er
staðan i riðlunum þannig að i A-
riðli eru efst og jöfn lið Fylkis,
Stjörnunnar og KA með 4 stig én
Einherji hefur ekkert.
I B-riðli sigraði Þór frá Akur-
eyri og fékk 4 stig, IBl fékk 2 stig
og Þróttur N ekkert. Stjarnan,
Fylkir og Þór þurfa þvi að leika
saman til þess að fá úr þvi skorið
hverjir eiga að mæta Þór i úr-
slitaleik.
Að sögn Helga Danielssonar,
formanns mótanefndar KSI,
verður reynt að koma aukaleikj-
unum á hið allra fyrsta og þá
helst öllum i þessari viku.
—gsp
Enn bjargaði Árni
stigum fyrir Fram
og þrátt fyrir mörg Víkingsfæri sigraði Fram 1-0
Enn ætla keflvík-
ingar í hópferð á
evrópuleik sinn
Keflvikingar efna til hópferðar á leik sinn við Dundee I Skotlandi
sem fram fer 30.september nk. Keflvikingar hafa haft þennan hátt-
inn á undanfarin ár I sambandi við ieiki sina i evrópukeppnum og
hefur jafnan verið mikil þátttaka. Haldið veður til Glasgow þann 29.
sept. og er farið út á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu.
1 Glasgow veröur dvalist 12 daga og þá m .a. horft á, ef fólk óskar,
leik IBK og Dundee. Að honum loknum verður farið til London (þ.e.
miðvikudaginn 1. okt.) og dvaliö þar til mánudags 6. október. Þar er
hægt að sjá marga góða leiki á þessum tíma, m.a. leiki i deilda-
keppninni á laugardeginum.
Kostnaður er 37 þúsund krónur og eru þá ferðir, flugvallarskattur,
gisting og morgunverður innifalið. Einnig getur fólk tekiö þá kostn-
aðarliði á eigin spýtur en þarf þá aö greiða fyrir flugfarið Keflavik,
Glasgow, London, Keflavik, tuttúguþúsund krónur.
Þeir sem áhuga hafa á ferðinni geta snúið sér til skrifstofu IBK
simi 3370 frá 4—7 e.h. Hafsteins Guðmundssonar eða Sunnu i Rvik.
(gsp)
Árni Stefánsson markvörður bjargaði stigi eða
stigum fyrir Fram i fyrrakvöld þegar Vikingur varð
að sætta sig við 0-1 tap þrátt fyrir ivið þyngri sókn
og fleiri tækifæri. Árni sýndi öryggi allan timann,
hentist un vitateiginn og hirti alla þá bolta sem að
marki komu.
Fyrir bragðið gekk Fram með sigur af hólmi og
getur enn einu sinni þákkað Árna fyrir góða hlut-
deild. Áhrif þessa leiks á kærumálið umtalaða gegn
ÍA gætu hugsanlega orðið þau að Framarar láti til
skarar skriða og leggi fram kæru. Ljóst er að ÍBV
ætlar ekki að kæra, FH ekki heldur fyrir bikarleik-
inn sem þeir töpuðu gegn í A og er þvi Fram eina lið-
ið sem til greina kemur úr þessu. Möguleikar á
íslandsmeistaratitli eru fyrir hendi ef kæran vinnst
en aðspurðir sögðust Framarar þó ekki enn hafa
tekið ákvörðun i málinu.
Liðin skiptust i fyrri hálfleik á
um að sækja milli þess sem þau
sprikluðu i sameiningu á miðjum
velli. Stefán Halldórsson braut
þó i gegnum landsliðsvörnina
strax á þriðju min. og var kominn
i dauðafæri þegar Arni hirti bolt-
ann.
Á 33. min. kom eina mark leiks-
ins. Há sending barst inn i vita-
teig Vikings frá Simoni Kristins-
syni. Diðrik markvörður greip
boltann en missti hann beint I höf-
uð Marteins Geirssonar sem
skallaöi i netið. Fyrsta mark
leiksins var þar með staðreynd og
enn einu sinni dugði mark til sig-
urs á þessu sumri.
Marteinn átti þó gullið tækifæri
til að bæta við sinu öðru marki.
Það var á siðustu sekúndum fyrri
hálfleiks að hann fékk laglega
sendingu frá Pétri Ormslev, sem
hafði skrúfað sig inn eftir enda-
mörkunum, og Marteinn skaut
framhjá úr dauðafæri á mark-
teig.
Siðari hálfleikinn byrjuðu Vik-
ingar af miklu kappi og áttu oft
góð tækifæri að jafna. Þannig má
nefna t.d. 5,min. Stefán Halldórs-
son átti skot að marki sem stefndi
rétt framhjá markstönginni fjær.
Öskar Tójnasson renndi sér á
fullri ferð á boltann sem rúllaði
svo að segja við marklinúna, en
var aðeins of seinn. Gunnar örn
tók aukaspyrnu frá miðjum
vallarhelmingi Fram á 23. min.
Boltinn þaut i gegnum varnar-
vegg og stefndi i bláhorniö niðri
við jörð en Arni varði glæsilega.
Þannig gekk á ýmsu i slöari
hálfleik og vissulega átti Fram
einnig sin tækifæri þótt ekki væru
þau eins hættuleg. Litið reyndi á
Diðrik i markinu, boltarnir flugu
framhjá markstöngunum hans á
meðan Arni þurfti aö verja flest
það sem kom að sinu marki.
Dómari var Valur Benedikts-
son og voru menn ekki á eitt sáttir
með dómgæslu hans eins og svo
oft vill verða.
—gsp.
Sigurmarkið kom af
53ja metra færi!!!
og skagamenn töpuðu tveimur dýrmætum stigum. —
Framarar standa þeim jafnfætis
Skagamenn misstu forystuna i
1. deild úr höndum sér i gærkvöldi
E ngla ndsmeista ra r
rassskelltir af
Q.P.R.
og Manch. Utd. heldur áfram
meö stórsigra.
Manch. Utd. byrjar svo
sannarlega af krafti i 1.
deildinni eftir ársdvöl í
þeirri númer 2. Liöiö er í
efsta sæti með 9 mörk
skoruð i þremur leikjum og
sigraði núna síðast með
fimm mörkum gegn einu.
Englandsmeistarar Derby töp-
uðu hins vegarstórt, 1-5, og hafa
aðeins 1 stig eftir þrjár umferðir.
Margt óvænt hefur þvi skeð i
fyrstu leikjum þessa keppnis-
timabils og alla vega er ljóst að
liðin koma ekki til meö að raða
Nú er farið að kæra í
yngri flokkunum líka
Úrslitin i 2. flokki eru nú lok's
langt komin. I A-riðli léku um
helgina ÍBV og KR og lauk leikn-
um með sigri IBV 2-0. Vest-
mannaeyingarnir sigruðu þar
með i A-riðli og eiga að mæta
Haukum úr Hafnarfirði i úrslita-
leik en Haukar sigruðu i B-riðli.
Óvist er þó hvenær sá leikur fer
fram þvi Grótta mun hafa kært
Haukana einhverra hluta vegna.
Kærur spretta alls staðar upp um
þessar mundir og nú er þessi ó-
skapnaður farinn að færast niður
i yngri flokkana lika.
1 4. flokki hafa úrslit i riðlum
fengist á hreint. Breiðablik sigr-
aði i öðrum og KA frá Akureyri i
hinum. Ekki er óliklegt að sá úr-
slitaleikur fari fram um næstu
helgi en um þessar mundir dvelj-
ast Breiðabliksmenn i Skotlandi
við leiki og störf.
—gsp
sér á svipaðan hátt og i fyrra, —
á.m.k. ekki i fyrstu umferðunum.
Úrslit á laugardag urðu þessi:
1. deild:
Arsenal—Stoke 0:1
Birmingham—Everton 0:1
Coventry— Manc.City 2:0
Derby—QPR 1:5
Leeds—Ipswich 1:0
Liverpool—Tottenham 3:2
Manc.Utd,—Sheff.Utd. 5:1
Middlesbro—Wolves 1:0
Newcastle—Leicester 3:0
Norwich-—Aston Villa 5:3
West Ham—Burnley 3:2
2. deild:
Blackburn R,—Oldham 4:1
Blackpool—Orient 1:0
Bolton—Fulham 2:2
Bristol R.—York City 2:1
Chelsea—Carlisle 3:1
Hull—Bristol City 3:1
Botts County—Southampton 0:0
Oxford—-Sunderland 1:1
Plymouth Arg.—Charlton 1:0
Portsmouth—Notth.For. 1:1
WBA—Luton 1:0
er þeir töpuðu nokkuð óvænt með
cngu marki gegn einu viðureign
sinni gegn Valsmönnum. Eina
inark leiksins kom á 22. min. fyrri
hálfleiks. Vilhjálmur Kjartans-
son tók aukaspyrnu á eigin vall-
arhelmingi (53ja metra færi) og
boltinn rataði alla leiðina i mark
ÍA. Hann datt niður i mikið
drullusvað inni i markteignum og
llörður Helgason misreiknaði
skotið þannig að boltinn skoppaði
yfir hann i netið. Sannarlega
klaufalegt mark en það dugði
Valsmönnum til sigurs og um leið
er staðan I 1. deild allt i einu gal-
opin, Fram og ÍA hafa bæði 17 stig
þegar ein umferð er eftir af mót-
inu. Allt útlit er þvi fyrir aukaleik
um efsta sætið, þ.e.a.s. ef liðin
koma jafnt úr siðustu umferð og
ekkert verður af kærumálum.
Annars lékuSkagam. með Hörð
I markinu þrátt fyrir raddir um
að hann sé ólöglegur. Þeir virðast
þvi ekki eiga von á kærum og er
allt útlit fyrir að mesti vindurinn
sé úr þvi máli öllu saman.
Leikurinn i gærkvöldi var leik-
inn við afar erfiðar aðstæður.
Laugardalsvöllurinn var eins og
illa á sig kominn kálgarður, allt I
drullu eftir rigninguna undan-
farið.
Miklar skúrir gerði meöan á
leiknum stóð og hjálpaðist þannig
allt við að gera leikmönnum erfitt
fyrir. En þeir stóðu sig þó eins og
hetjur, leikurinn var furðugóður,
mörg tækifæri og mikið fjör allan
timann.
A 40. min. skeið umdeilt atvik
þar sem dómarinn hafði mikil á-
hrif á gang og úrslit leiksins. Jón
Alfreðss. fékk sendingu inn að
endamörkum vinstra megin og
gaf inn i markteig. Þar voru þrir
valsmenn til varnar gegn
Matthiasi sem engu að siður hafði
vinninginn og kom boltanum allt
að einum metra inn fyrir mark-
linu. Matthias fagnaði, stúkugest-
ir fögnuðu og blaðamenn byrjuðu
að skrifa. öllum á óvart sá Þor-
varður Björnsson dómari þó ekk
ert, linuvörðurinn ekki heldui og
leiknum var haldið áfram eins og
ekkert hefði i skorist.
1 seinni hálfleik reyndi Akranes
árangurslaust að jafna. Haraldur
Sturlaugsson átti skot i þverslá
beint úr aukaspyrnu og Hörður
Jóhannesson komst einn inn fyrir
i dauðafæri en lét Sigurð Haralds
son verja hjá sér. Á ýmsu gekk i
vftateig Vals en inn fór boltinn
ekki enda stóð Sigurður sig með
prýði.
Valur átti einnig sin tækifæri þó
þau væru e.t.v. ekki eins hættu-
leg. I heild sinni var leikurinn
jafn og 1-0 sigur annars liðsins þvi
langt frá þvi að vera hróplegt
ranglæti. Leiðinlegt var hins veg-
ar að hann skyldi koma vegna
mistaka dómara og ekki hefði
heldur sakað þótt eina mark
leiksins hefði veriö aðeins verð-
meira en raun bar vitni.
Hjá Valsmönnum bar mest á
þeim Vilhjálmi Kjartanssyni og
Sigurði i markinu ásamt Herði
Hilmarssyni. t liði 1A sáust lands-
liðsmennirnir litið nema Jón
Alfreðsson sem kom mjög vel frá
þessum leik ásamt Jóhannesi
Guðjónssyni i vörninni.
Að leiknum
1. deild þessi
Akranes
Fram
Valur
IBV
KR
Vikingur
Keflavik
FH
loknum er staðan
13 7 3
13 8 1
13 5 4
13 2 5
13 2 4
13 5
13 4 5
13 4 5
28:14 17
18:14 17
17:15 14
11:21 9
12:18 8
15:12 13
13:12 13
11:19 13