Þjóðviljinn - 26.08.1975, Qupperneq 10
10 ÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 26. ágúst 1975
Alþýðubandalagið:
Alþýðubandalagið Vestfjörðum
Aöalfundur k jördæ m isrá ös
Alþýöubandalagsins i
Vestf jarðakjördæmi verður
haldinn i félagsheimilinu Suður-
eyri Súgandafirði dagana 6. og 7.
september n.k.
Fundurinn hefst laugardaginn
6. september kl. 2 eftir hádegi.
Ragnar Arnalds,’ formaður
Alþýðubandalagsins, og Kjartan
Ólafsson, ritstjóri Þjóðviljans,
koma á fundinn. Dagskrá nánar
auglýst siðar.
Stjórn Kjördæmisráös Alþýöu-
Ragnar Kjartan bandalagsins á Vestjöröum.
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Kjördæmisþing Alþýðubandalagsins I Norðurlandskjördæmi eystra
verður haldið i Hafralækjarskóla i Aðaldal þann 30. og 31. ágústn.k.
Þingið hefst laugardaginn 30. águst kl. 2 siödegis, Alþýðubandalags-
félö^in eru hvött til að tilkynna þátttöku sina til skrifstofu
Alþyðubandalagsins á Akureyri — simi 21875 eða til Helga Guðmunds-
sonar, Akureyri. simi 22509.
Atvinna ■ Atvinna
----------------------------------N
Viðgerðarmaður
Viljum ráða vanan dekkjavið-
gerðarmann.
Hafið samband við Hilmar Bjartmarz,
Höfðatúni 8, simi 16740.
Starfsmannahald
^ SAMtíAND ISLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
F ramtí ðarstarf
Ritari óskast til starfa hjá Rannsóknaráði
rikisins, Laugavegi 13, málakunnátta,
sérstaklega enska, nauðsynleg. Æfing i
vélritun eftir segulbandi æskileg.
Nánani upplýsingar i sima 21320.
Rannsóknaráð rikisins.
Kópavogsbúar
Óskum að ráða karlmenn til verksmiðju-
starfa nú þegar. Enn fremur næturvörð.
Upplýsingar hjá verkstjóra ekki i sima.
Málning h.f.
Kársnesbraut 32
Kópavogi.
Kaupfélag sunnanlands leitar eftir ein-
staklingi eða hjónum sem gætu haft á
hendi umsjón og stjórn á litlu gistihúsi á-
samt matsölu og hefðu reynslu i slikum
rekstri, sérstaklega matreiðslu.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra i sima
28200.
Starfsmannahald
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Finna þarf
Framhald af bls. 7.
hún haft? Ekki er unnt að semja
eða framkvæma neina stefnuskrá
nema fyrir hendi sé rikisstjórn,
sem sé fær um að framkvæma þá
stefnuskrá, sem herjahreyfingin
ákveður, og hafi nauðsynlegt vald
til að henni sé hlýtt.
A hverjum degi og hverri stund
sem liður fjölgar merkjunum um
þjóðfélagsólgu, sem breiðist
hættulega út. Sú hætta er fyrir
höndum að alda ofbeldis, sem
enginn ræður við, flæði yfir
landið.
Skilyrði fyrir viðtækan stuðning
við fasisma eru smám saman að
myndast. Það er hlægilegt að
segja, eins og vissir stjórnmála-
hópar og vissir fjölmiðlar gera,
að þetta sé „undirferli aftur-
haldsins”. Óánægja, áhyggjur og
angist almennings eru raunveru-
leg fyrirbæri og öllum augljós.
Rætur þeirra eru öll þau mistök i
stjórnarstefnu, sem gerð hafa
verið siðustu mánuði, og ekki sist
röng stefna herjahreyfingarinn-
ar.
Það er nauðsynlegt að vinna
aftur traust portúgala. Nauðsyn-
legt er aö stöðva allar hvatningar
til haturs og ofbeldis. Það verður
að byggja upp þjóðfélag sem
grundvallast á umburðarlyndi og
friði, en ekki á nýjum aðferðum
kúgunar og arðráns. Núverandi
stjórn getur ekki framkvæmt
þetta, þó svo henni sé breytt að
einhverju leyti. Til þess skortir
hana traust almennings og hæfi-
leika til að stjórna.
Concorde
Framhald af bls. 7.
þvi flogið margsinnis yfir Austur-
lönd nær þar sem arabar og isra-
elar bita i skjaldarrendur.
Eina þjóðin á þessum slóðum
sem notar Phantom þotur er Isra-
el og þvi hefur Concorde valdið
flugeftirlitsmönnum i Arabarikj-
unum nokkrum taugatitringi. Til
dæmis sendu irakar eitt sinn
þotur sinar á vettvang til að
kanna hvort israelar væru nú enn
einu sinni komnir á krieik en
mættu þá illfyglinu Concorde á
meinlausu tilraunaflugi. —ÞH
18. km
Framhald af bls. 3.
auka þekkingu almennings á
llkamanum og stuðla þannig að
fyrirbyggjandi heilsuvernd.
Gefur safnið út fjölda bæklinga
árlega, lætur gera kvikmyndir,
útvarpsþætti og fleira til þess að
fræða almenning. Mikil áhersla
er lögð á skipulegt heilbrigðis-
eftirlit á vinnustöðum og á
iþróttaiðkun almennings i fyrir-
byggjandi heilsuvernd.
Þess má geta að langt er siðan
hér hefur verið hliðstæö heil-
brigðissýning, en sýningar af
þessu tagi ættu að vera stöðugt til
sýnis fyrir almenning, byggðar á
innlendum upplýsingum. Þannig
mætti án efa stuðla að auknu heil-
brigði almennings. —þs
Verkfall
Framhald af bls. 1.
framkvæmdir sem nú standa á
Grundartanga.
„Það kom fram hjá verkfræð-
ingunum að þeir lögðu áherslu á
að aðbúnaður verkamanna yrði I
byrjun að vera I góðu lagi”, sagði
Einar ögmundsson, „eftir þvi
hefur bara ekki verið farið, Járn-
blendifélagið hefur ætlað að láta
reyna á verkalýðshreyfinguna af
mætti. Nú er þeim hinsvegar
ljóst, að þetta er full alvara. Þessi
vinnustaður á ekki að vera lakari,
ekki á lægra stigi en tiðkast hefur
við aðrar stórframkvæmdir hér á
landi”.
Skúli Þórðarson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness tjáði
Þjóðviljanum að viðræðunefnd
verkalýðsfélaganna væri tilbúin
til samninga við verktakann, Jón
V. Jónsson úr Hafnarfirði hvenær
sem væri.
„Fundurinn með stjórn Járn-
blendifélagsins i siðustu viku var
ekki samningsfundur. Við rædd-
um aðeins aðbúnaðarmál al-
mennt. Þegar samið hefur verið
um þau aðbúnaðarmál sem nú
blasa við, kemur að þvi að gera
annan samning um aðbúnað á
Grundartanga i þeim fram-
kvæmdum sem framundan eru”.
Á fundunum i siðustu viku, voru
forstjóri Járnblendifélagsins, Ás-
geir Magnússon, Gunnar Sigurðs-
son stjórnarformaður félagsins
og nokkrir bandarikjamenn' sem
lika eru i stjórn Union Carbide á
Islandi.
—GG
Stjórn Iðju
Framhald af bls. 2.
komi til mála að gera samninga
við erlend riki um fiskveiðiheim-
ildir innan 200 milnanna eða veita
timabundnar undanþágur þar að
lútandi. Telur stjórnin, að hag-
nýting landhelginnar sé mál þjóð-
arinnar allrar, og lifshagsmunir
hennar séu i voða, takist ekki að
verja landhelgina fyrir ágengni
erlendra aðila.
Stjórnin litur ennfremur svo á,
að allar aðgerðir i landhelgismál-
inu eigi að vera undir yfirstjórn
utanrikismálanefndar og alþing-
is.”
Nýir sýslu-
menní Kefla-
vík og í
Strandasýslu
Jóni Eysteinssyni, héraðs-
dómara, hefur verið veitt
embætti sýslumanns i Gull-
bringusýslu og bæjarfógeta i
Keflaviic og Grindavik frá 1.
október n.k. Tólf umsækjendur
voru um starfið.
Rúnar Guðjónsson lög-
fræðingur á Hvolsvelli var eini
umsækjandinn um sýslumanns-
embættið i Strandasýslu.
Andrés Valdimarsson sem
verið hefur sýslumaður Stranda-
sýslu undanfarin sjö ár, hefur,
verið skipaður sýslumaður i Snæ-
fellsnessýslu og tekur við nýja
embættinu um mánaðamótin,
þannig að Rúnar Guðjónsson
verður væntanlega skipaður i
embætti i Strandasýslu i dag eða
á morgun.
Norrænir lögmenn þinga
Á þriðjudaginn, daginn áöur en
lögfræðingaþingið mikla hófst,
var haldinn sameiginlegur
stjórnarfundur lögmannafélag-
anna á Norðurlöndum. Voru
þangað mættir formenn, varafor-
menn, framkvæmdastjórar og
nokkrir einstakir stjórnarmenn
allra félaganna.
Formenn félaganna fluttu
skýrslur um starfsemi þeirra
undanfarin 2 ár en að þvi loknu
voru flutt 4 erindi um efnið: Sér-
staða lögmanna meðal lögfræði-
menntaðra. -.
Frummælendur voru sviinn Gott-
hard Calissendorff og islending-
arnir Ragnar Aðalsteinsson,
Skúli Pálsson og Guðjón Stein-
grimsson.
Miklar umræður urðu um þétta
mál og kom ma. fram i þeim að
vart verður við þá tilhneigingu
hjá lögfræðingum sem gegna öðr-
um störfum en málflutningsstörf-
um að gripa til málflutnings i hjá-
verkum til að drýgja tekjurnar.
Voru til nefndir stjórnarráðs-
starfsmenn, lögfræðingar at-
vinnufyrirtækja og jafnvel
dómarar. Hafa lögmannasam-
tökin barist eindregið gegn þessu
þar sem þau telja þetta skerða
hagsmuni lögmanna og al-
mennings. Er viða svo komið að
slikt athæfi er bannað með lögum.
Akveðið var að næsti fundur
yrði i Finnlandi að tveimur árum
liðnum.
Lögtaksúrskurður
V atnsleysustrandarhreppur
Samkvæmt beiðni sveitarstjóra Vatns-
leysustrandarhrepps úrskurðast hér með
að lögtök geta farið fram vegna gjaldfall-
inna en ógreiddra útsvara, aðstöðugjalda
og fasteignagjalda álagðra i Vatnsleysu-
strandarhreppi árið 1975 allt ásamt drátt-
arvöxtum og kostnaði.
Lögtök geta farið fram að liðnum 8 dögum
frá birtingu úrskurðar þessa, ef ekki
verða gerð skil fyrir þann tima.
Keflavik, 18. ágúst 1975.
Sýslumaður Gullbringusýslu.
Jón Eysteinsson settur.
LOKAÐ
Vegna jarðarfarar ólafs Þórðarsonar
framkvæmdastjóra, verður skrifstofan
lokuð þriðjudaginn 26. ágúst.
Jöklar h.f.
Lokað
Vegna jarðarfarar ólafs Þórðarsonar
framkvæmdastjóra, verða skrifstofur
vorar lokaðar frá kl. 12.00 á hádegi þriðju-
daginn 26. ágúst.
Tryggingamiðstöðin h.f.
Liftryggingamiðstöðin h.f.