Þjóðviljinn - 26.08.1975, Blaðsíða 12
— Við erum búin að fara á
sklðum um Spitsbergen, og
Austur-Grænland, en aldrei
komist i kynni við eins erfiðan
stað og VatnajökuII reyndist
okkur. Þangað ættu allir heim-
skautafarar að fara til að æfa
sig fyrir pólarferðir. Aldrei
sama veður nema nokkrar
klukkustundir i einu, þoka
rigning og snjóstormar. Allt á
einum og sama deginum. Og svo
gengur maður allt i einu fram á
hverasvæði á miðjum
jökiunum. Stórfurðulegt.
Það var Stefan Matalewski
kennari við Sjómannaskólann i
Stettin sem var að lýsa áhrifum
ferðar yfir Vatnajökul. Hann og
þrir félagar hans, tveir
nemendur skólans og sam-
kennari hans komu fyrir stuttu
niður af jöklinum eftir að hafa
eytt þar þrem vikum við rann-
sóknir.
Fjórmenningarnir eru
meðlimir Heimskautaklúbbs
sem starfar innan skólans, en
meðlimir hans eru um tuttugu
talsins. Formaður klúbbsins er
einnig með i förinni, tvitug
stúlka að nafni Iwona Bielinska,
Við höfum
víða farið
en
Jöklafararnir pólsku fara yfir leiðina sem farin var. Frá vinstri: Iwona Bielinska siglingafræöinemandi
og formaður heimskautaklúbbsins, Bogdan Kaminski, Stefan Matalewski og Leszek Czernecki. (Mynd:
Haukur Már)
Yatnajökull var
langerriðastur
en hún er að læra siglingafræði i
skólanum. Skólabróðir hennar
og leiðangursfélagi er Bogdan
Kaminski og fjórði félaginn er
svo Leszek Czernecki en hann er
kennari i rafmagnsfræðum við
skólann.
Fjórmenningarnir komu til
landsins 14. júli sl. og lögðu af
stað til Jökulheima 24. sama
mánaðar. Frá Jökulheimum
gengu þau svo að Kerlingum og
þarkomu þau upp matarbirgða-
stöð.
— Þessi ferð yfir Vatnajökul
var ekki sist erfið fyrir þær
sakir að það var útilokað að
nota sleða eins og við höfum
gert i öðrum ferðum okkar.
Snjórinn var of gljúpur. Snjó-
þotur voru hagkvæmastar en
segja pólskir
jöklafarar
sem eyddu
þrem vikum
uppi á jöklinum
þær eru þvi marki brenndar að
vera yfirleitt litlar og taka þvi
litið. Þess vegna urðum við að
hafa birgðastöð við Kerlingar
og fara þangað öðru hverju til
að sækja meiri mat. Þannig
fórum við til dæmis frá Kerling-
um til Grimsvatna þaðan til
baka að ná i mat, siðan aftur að
Grimsvötnum, að Kerlingum,
siðan Kverkfjallaleið tií
Hvannalinda. Þetta tók okkur
nákvæmlega þrjár vikur.
Ferðalangarnir voru litið
hrifnir af veðurfarinu á Islandi,
eins óg þeir kynntust þvi. Til
dæmis ætluðu siglingafræði-
nemarnir tveir að nota tæki-
færið og æfa sig i meðferð sex-
tants á jöklinum, taka sólar-
hæðina.Þa var hins vegar með
öllu útilokað þar sem sólin sást
ekki nema einn dag.
— Þennan eina dag
geystumst við áfram á skið-
unum um tuttugu kilómetra án
þess að finna til þreytu. En
þegar veðrið var sambland af
rigningu, þoku og snjóstormi
vorum við heila sex daga að
klöngrast frá Kerlingum að
Grimsvötnum. En þetta
veðurfar gerir það lika að
verkum að Vatnajökull er
ákjósanlegur æfingastaður fyrir
heimskautafara. Þvi munum
við skýra rækilega frá þegar
heim kemur.
— Við biðjum þig að koma á
framfæri þakklæti til Jökla-
rannsóknarfélagsins fyrir afnot
af skálum þess á jöklinum, og
eins til Sigurðar Waage, sem
gaf okkur ýmsar góðar ráðlegg-
ingar. Sama má raunar sega
um Sigurð Þórarinsson. En
mest af öllu þökkum við þó
Haraldi Árnasyni sýsluskrifara
i Búðardal, en hann bauð okkur
far i Hvannalindir og ók okkur
og hafurtaskinu sem við höfðum
meðferðis alla leið til Egils-
staða.
Næsta ár förum við á skiðum
yfir Grænlandsjökul og þá
vonumst við fastlega til að
leiðangursskipið komi við i
Reykjavik i leiðinni. Hér eru
margir staðir sem okkur hefði
langað til að skoða, ef timi hefði
verð til.
—hm
Austurlönd nœr:
Talsvcrt miðar í áttina
Þriðjudagur 26. ágúst 1975
Kjarnorku•
tilraunum
mótmœlt
TÓKIO 25/8 — Borgarstjórar
þeirra tveggja borga, sem urðu
fyrir kjarnorkuárás i heimstyrj-
öldinni siðari, Hiroshima og
Nagasaki, sendu sovéska sendi-
herranum i Tóklo mótmæli i dag
vegna neðanjarðarkjarnorkutil-
rauna sovétmanna á Novaja
Semlja. Takeo Araki, borgar-
stjóri Hiroshima, sagði i skeyti
sinu að hann harmaði þessar til-
raunir og hvatti sovétmenn til að
leggja niður allan kjarnorkuvig-
búnað.
Rætt um
framtíð
Ródesíu
LIVINGSTONE, Sambíu, 25/8 —
Leiðtogar hvitu minnihluta-
stjörnarinnar I Ródesiu, Sambiu,
Suður-Afriku og svartra þjóð-
ernissinna i Ródesiu ræddust við i
kvöid og fram á nótt í járnbraut-
arvagni á brú yfir Viktoriufossa,
cn þareru landamæri Ródesiu og
Sambiu.
Á fundinum var Kenneth
Kaunda, forseti Sambiu, og var
nærvera hans þar talin benda til
þess að mikilvægum áfanga hefði
verið náð i viðræðunum um fram-
tlð Ródesiu. Áður hafði verið til-
kynnt að umræðunum yrði frest-
að og : myndi Kaunda leggja af
stað heimleiðis. En klukkan hálf
niu i kvöld héldu umræðurnar
stöðugt áfram.
Þátttakendur i þessari ráð-
stefnu eru auk Kenneth Kaunda,
forseta Sambiu, Ian Smith for-
sætisráðherra Ródesiu, John
Vorster, forsætisráðherra Suður-
Afriku og leiðtogar þjóðernis-
sinna Ródesiu. Eitt helsta vanda-
mál ráðstefnunnar hefur verið að
ákveða hvar næstu fundir verða
haldnir: Ian Smith vill að umræð-
urnar haldi áfram i Ródesiu,en
leiðtogar þjóðernissinna óttast
handtöku ef þeir fari inn fyrir
landamærin. Abel Muzorewa
biskup, einm af leiðtogum þjóð-
ernissinna, sagði að nauðsynlegt
væri að umræður færu fram á
stöðum sem allir geta komið sér
saman um, enda væru sllkar um-
ræður síðasta tækifærið til að
komast hjá blóðsúthellingum I
Ródesiu.
KMIIÐ
ffrá Brasiliu
TEL AVIV 25/8 — Henry
Kissinger, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, flaug i dag til Tel
Aviv frá Alexandriu til að ræða
i :ija skipti við ráðamenn ísra-
els um bráðabirgðasamkomulag
um deilur israelsmanna og
egypta. Um leið og hann steig út
úr flugvélinni lagði hann af stað
til Jerúsalem i þyrlu. En vegna
mótmælaaðgerðanna I Jerúsalem
i siðustu viku hefur nú verið
ákveðið að skýra ekki frá þvi
hvar viðræðurnar fara fram.
Aður en Kissinger lagði af stað
frá Alexandriu sagði hann að
N-lrland:
Leynifélög
BELFAST 25/8 — Nokkrar
„leynihreyfingar” mótmælenda I
Norður-Irlandi standa nú I samn-
ingum sem miða að þvi að sam-
eina allar þessar leynihreyfingar
i einn stóran „leyniher”, sem
nota mætti gegn kaþólskum norð-
ur-írum eða breska setuliðinu.
Þeir heimildarmenn, sem born-
ir eru fyrir þessari sögu, gátu
ekki skýrt frá því hvað umræðun-
um hefði miðað áfram. Þeir
sögðu að meðal þeirra hreyfinga,
viðræðurnar snerust nú um skýrt
afmörkuð atriði, og svo gæti farið
að bráðabirgðasamningurinn
yrði tilbúinn um næstu helgi.
Hann sagði að talsvert hefði
miðað i áttina i dag. Að vlsu væru
viðræðurnar ekki komnar svo
langt að farið væri að tala um
orðalag samningsins um stöðu
egypta og israela i Sinai-skaga,
en farið væri að ræða um einstök
atriði.
Anwar Sadat, forseti Egypta-
lands, sagði i dag á blaðamanna-
fundi að egyptar myndu leggja
sameinast
sem tekið hefðu þátt i umræðun-
um væri „lið rauðu handarionar”
og „mótmælendaherinn” sem
segist hafa framið meira en 70
morð. Margar aðrar hreyfingar,
sem taka þáttí umræðunum, hafa
einnig lýst á sig ábyrgð vegna
morða að undanförnu.
Að undanförnu hafa kaþólskir
menn i IRA gætt þess vopnahlés
sem þeir lýstu yfir snemma I ár,
en mótmælendur vilja að enski
herinn rjúfi vopnahléð og leggi til
atlögu gegn IRA.
samningsuppkast fyrir alia
araba, ef eitthvert samkomulag
næðist. Hann sagði að engu yrði
haldið leyndu.
Samkvæmt bandarlskum heim-
ildarmönnum hafa israelsmenn
samþykkt að leyía egyptum að
hernema að nýju hluta af þeim
svæðum Sinai-skaga sem Isra-
elsmenn hafa nú á valdi sínu.
Blaðberar í vetur
Um næstu mánaðamót, ágúst/september,
verða laus nokkur blaðburðarhverfi hjá Þjóð-
viljanum. Það tekur hálfan til einn klukkutima að
bera út i hvert hverfi, svo að þessi vinna hentar
td. skólafólki ágætlega.
Þessi hverfi eru laus eða verða laus um
mánaðamótin:
Breiðholt — Hólahverfi
Nökkvavogur
Drápuhlið
Seltjarnarnes, vesturhlúti.
Laugavegur, neðri hluti
Hverfisgata, neðri hluti.
Kvisthagi
Vinsamlega hafið samband við afgreiðslu
Þjóðviljans sem fyrst, simi 17500.
Þórsgata
Þingholtin
Háaleitisbraut
(oddatölur)
Skipasund
Safamýri
> /