Þjóðviljinn - 15.10.1975, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 15.10.1975, Qupperneq 1
200 MÍLUR Fiskveiöilögsagan viö island varð 200 milur frá grunnlínum um miðnætti í nótt. Þar með stækkar landhelgi Islands úr 216 þúsund ferkilómetrum í 758 þúsund ferkilómetra. island er fyrsta Evrópu- landið sem tekur sér 200 milna landhelgi. Geir Hallgrímsson for- sætisráðherra flutti ávarp í útvarp í gærkvöld í tilefni þessa áfanga i landhelgis- málínu. I ræðunni gerði hann grein fyrir sjónar- miðum ríkisstjórnarinnar og sagði að lokum: /,Við islendingar skiljum hve mikið er í húfi að vel takist til um 200 mílna út- færslu/ og þvi þurfum við í sjálfu sér ekki hvatningar við að fylgja þessari út- færslu f iskveiðilögsög- unnar í 200 mílur fram til sigurs. Við munum sem einstak- lingar og þjóð halda fullkomnu jafnvægi, beita yfirvegaðri skynsemi og dómgreind á hverju sem gengur og við hverja sem er að eiga. Lífsbjörg okkar er í veði og málstaður okkar svo sterkur að sigur mun vinnast með fullum yfirráðum Islands yfir fiskimiðunum." Stækkun landhelginnar I 200 mnur verftur ekki baráttulaus. Varftskipin eru ekki báin miklum vopnum, en klippurnar sem hér sjást á mynd GSP, hafa reynst notadrjúgar, þótt ekki séu þær veigamiklar. A 3. siftu blaftsins I dag er vifttal vift skipherrann á minnsta og elsta varftskipinu. Áhafnir 119 skipa mótmœla fiskverði Hætta eftir viku Áhafnir 119 fiskiskipa allt í kring um land sendu sjávarútvegsráð- herra svohljóðandi skeyti í gærmorgun vegna verðlagsákvörð- unar á fiski: „Við undirritaðar skipshafnir 119 skipa lýsum undrun okkar á nýauglýstu fiskverði og mótmælum harðlega þeirri kjaraskerðingu, sem þar kemur fram til viðbótar undangengnum kjaraskerðingum vegna óhagstæðrar stærða- flokkunar á fiski og ört ef engin breyting verður á minnkandi aflamagni, mest vegna þess að fiskimenn fá ekki raun- verulegt verð til skipta. Okkur er ekki unnt að skilja, hvers vegna fiskimenn, einir allra stétta, þurfi að lækka í launum, þegar laun ann- arra stétta hækka, svo sem fram kemur í ný- lega hækkuðu verði landbúnaðarafurða og á ýmissi þjónustu. Einnig lýsum við van- trausti á fulltrúa sjó- manna, útgerðarmanna og oddamann, sem sæti eiga i Verðlagsráði sjávarútvegsins. Krefj- umst við lagfæringar á fiskverði okkur til hags- bóta og teljum hæfileg- an frest eina viku svo róðrar ekki falli niður og öll forsenda hlutaskipta sé ekki algjörlega brost- in." —úþ 27 skipstjórar vilja enga útlendinga i landhelginni Sjá siðu 5. Yfirgnœfandi meirihluti BSRB vill verkfallsrétt Talningu atkvæða úr skoðanakönnun á verk- fallsréttarf undum BSRB lauk síðdegis í gær. Um 30% félags- manna i BSRB greiddu atkvæði á f undunum og 84 til 85,5% þeirra lýstu sig fylgjandi aukinni á- herslu á verkfallsrétt og fúsa til aðgerða 1. növember. SJÁ BAKSÍÐU Þjóðviljinn 32 síður Fram til sigurs! Forustu- grein — siða 4 Viðtal við Lúðvík Jósepsson — siða 9 Viðtal við Ingvar Hallgrimsson — siða 10 Viðtal við Gils Guðmunds- son — siða 11 Fleiri viðtöl um landhelgis- málið — síða 12,13,15,19 Viðtal við sjávarútvegsráð- herra — siða 27 og 32. Segir sig úr stjórn Lista- safns íslands — sjá grein eftir Kjartan Guðjónsson — siða 24. Helstu atburðir „þorska- striðsins” 1972—1973 — siður 20 og 21. Viðtöl og myndir úr Grinda- vik i tilefni útfærslunnar — siður 16,17 og 18 FiskveMÍimorK tomkv. reglugerd W*t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.