Þjóðviljinn - 15.10.1975, Blaðsíða 5
26 togaraskipstjórar:
Miðvikudagur 15. október 1975. ÞJÓDVILJINN — StÐA 5
Allir íslendingar ætlast til
að útlendingar verði útilokaðir
frá veiðum innan 200 niíliia
Til rikisstjórnar Islands
26 togaraskipst jórar
hafa sent forsætisráðherra
íslands svofellt bréf. Nöfn
skipstjóranna eru undirrit-
uð.
Til rikisstjórnar Islands, herra
f o r s æ t i s r á ð h e r r a Geirs
Hallgrimssonar.
Við undirritaðir skipstjórar
fögnum útfærslu fiskveiðiland-
helginnar i 200 sjómilur. En jafn-
framt mótmælum við öllum nauð-
Kvennadómstóll um
afbrot gegn konum
Stofnaður hefur vcrið starfs-
hópur sem fjallar um þau máL
sem fulltrúar frá tslandi munu
kynna við stofnun alþjóðlega
kvennadómstólsins. Dómstóllinn
mun væntanlega hafa aðsetur i
Brussel og hefja starfsemi sina i
byrjun desember næstkomandi.
Þar vcrður fjallað um yfirgang og
afbrot gegn konum i hinum ýmsu
löndum.
Málunum verður skipt niður i
fimm málaflokka.
Siðastliðna páska var i Paris
haldin ráðstefna, þar sem saman
komu 50 konur frá 20 löndum
(Frakkland, Þýskaland, Sviss,
Austurriki, ttalia, Spánn, Portú-
gal, Danmörk, Sviþjóð, Noreg-
ur, Puerto Rico, Saudi Arabia,
Stóra-Bretland, trland, Holland,
Belgia, Bandarikin, Mexico,
Kanada og Bolivia (Suður-
Amerika)).
Tilgangur ráðstefnu þessarar
var annars vegar að miðla upp-
lýsingum um ýmis konar afbrot
og yfirgang gagnvart konum i
hinum ýmsu löndum, hinsvegar
skipulagning alþjóðlegs kvenna-
dómstóls þar sem afbrotamál
þessi munu verða kynnt, tekin til
umræðu og afstaða mörkuð.
Þátttakendur ráðstefnunnar
sögðu frá algengustu réttarskerð-
ingu kvenna i heimalöndum
þeirra sjálfra. Fram kom að
margar þjóðir áttu við sams kon-
ar vandamál að striða. Samþykkt
var að skipta afbrotunum i 5
málaflokka:
1. Likamlegt ofbeldi og kynferð-
isafbrot <sifjaspell, nauðgun,
skækjulifnaður).
2. Valdbeiting viðvikjandi barn-
eignum (glæpamennska við
fóstureyðingar, vönun gegn
vilja, ógreiður aðgangur að
getnaðarvörnum eða alls eng-
inn).
3. Yfirgangur innan fjölskyld-
unnar (undirokun, ólaunuð
heimilisstörf, mismunun i
meðferð fjölskyldu-, trygg-
inga- og skattalaga).
4. Fjárhagsleg þvingun (undir-
launun, skortur á atvinnu-
möguleikum, litil vörn gegn
uppsögnum):
5. Stjórnmálaleg, trúarbragðaleg
og/ eða hugmyndafræðileg
undirokun (stjórnmálalegt ó-
frelsi, skortur á frelsi til að
stofna félagasamtök o.s.frv.).
Dómstóllinn er hugsaður sem
hvatning til að ná jafnrétti kynj-
anna hvar sem er i heiminum.
Hópurinn sem fjallar um þetta
mál, vill ná til kvenna sem sjálfar
hafa orðið fyrir andlegu og likam-
legu ofbeldi i eða utan hjónabands
(vigðri/ óvigðri sambúð), nauðg-
anir, mismunun i vinnu eða
menntun, smánarleg meðferð i
réttarsalnum eða af lögreglu o.fl.
Hópurinn er bundinn þagnar-
skyldu og nöfn verða ekki birt
nema með leyfi sendanda.
Kvennadómstóll
tengill Katrín Diðriksen,
Bárugötu 7,
Reykjavik.
ungarsamningum innan hennar.
Fiskaflinn við landið fer hrað-
minnkandi miðað við sókn frá ári
til árs, það sýna aflaskýrslur. Til-
koma 50 nýrra skuttogara til við-
bótar þeim sem fyrir voru hefur
aðeins getað bjargað þvi, að
heildarafli okkar hefur ekki farið
hraðminnkandi undanfarin ár, en
þessi nýju skip hafa sótt sinn afla
á svæði sem útlendingum voru
látin eftir vegna fækkunar á tog-
araflota okkar á áratugnum milli
1960 og 70. Astæðan fyrir fækkun
islensku togaranna var meðal
annars sú, að um 1960 fóru þjóðir
sem sóttu á tslandsmið að rikis-
styrkja togaraútgerð sina. Við
það versnaði samkeppnisaðstaða
islenskra skipa til muna. Það, á-
samt háum innflutningstollum
hefur valdið þvi, að samkeppnis-
aðstaða okkar hefur verið meira
en 40% verri heldur en þeirra eig-
in skipa á erlendum mörkuðum,
ásamt meiri og minni löndunar-
hindrunum þar, vegna þeirra eig-
in skipa, sem hafa gengið fyrir i
höfnum þeirra. Þorsk, ýsu, ufsa
og karfamagn hefur stórum
minnkað á miðunum undanfarin
ár, og er nærri uppurið á stórum
svæðum við landið. Af þessu ætti
að vera ljóst, að áframhaldandi
undanþágur til handa erlendum
þjóðum stefna þjóðarhagsmunum
og þvi að hægt sé að byggja tsland
og halda hér uppi menningarlifi, i
beinan voða. Enda sýnir það
hvert stefnir, að eytt hefur verið
hér 10—15% meiru en aflað und-
anfarin 2 ár. Viö álitum að allir
islendingar munti ætlast til að öll-
um erlendum skipum verði bönn-
uð veiði innan 200 milna fiskveiði-
markanna og fiskstofnarnir rækt-
aðir upp. En til þess þarf ein-
beitni stjórnvalda sem töluvert
hefur skort á til þessa. Það er nú
fullsannað, að erlendar þjóðir
eiga engan rétt til veiða á ts-
landsmiðum. Meirihluti þjóða á
Hafréttarráðstefnunn,i er nú
fylgjandi þvi, að fiskveiðiland-
helgi verði 200 sjómilur. Tima-
bundin viðskiptavandamál ein-
stakra aðila mega ekki ráða ferð-
inni þegar um lifshagsmuni is-
lenskrar þjóðar er að ræða. Við
heitum á islenska rikisstjórn að
standa fast á okkar málstað i
þe'ssu lifshagsmunamáli okkar.
og beita allri þeirri hörku með^
landhelgisgæslu og öðrum þeim
ráðum sem við höfum tiltæk til að
gera útlendingum ómögulegt að
stunda veiðar við landið. Við heit-
um á alla islendinga að standa
fast saman um þjóðarhag.
Auðunn Auðunss., Karlsefni,
Hans Sigurjónss., Vigri,
Sigurður Jóhannss., Harðbak
Þráinn Kristinss., Narfa,
Sverrir Valdimarss., Kaldbak
Sigurjón Stefánss, Ingólfi Arnars.
Sigurjón Jóhannss., Ólafi Sekk,
Kristján Kögnvaldss., Dagnýju
Gunnar Hjálmarss., Suðurnesi
Stefán Aspar, Sólbak.
ólafur Aðalbjörnss., Rauðanúp,
Steingrimur Aðalsleinss..
Sigluvik,
Sævar Brynjólfss., Hrönn,
llagnar Fransson, Dagsjörnunni,
Friðgeir Eyjólfss, llarðbak 2.
Jóhann Sigurgeirss Skafta,
Aki Stefánsson, Sléttbak,
Ólafur Ólafsson, Trausta,
Július Skúlason. Mai,
Halldór Hallgrimsson, Svalbak,
Sverrir Erlendss., Þormóði Goða,
Guðmundur Jónss., Júni,
Guðmundur Sveinss., Krossvik,
Pétur Jóhannss., Aðalvik,
Eðvald Eyjólfss., Jón Vidalin.
Guðmundur Arnas., Drangey.
Jóhann Þórðarson, Framtiðinni.
ANDLITSTEIKNINGAR
eftir
Jóhannes
Kjarval
Nokkrar
eftirprentanir ti
sölu hjá okkur.