Þjóðviljinn - 15.10.1975, Qupperneq 10
10 siDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 15. október 1975.
verndunarstjórnarmiða hér á
landi og erlendis.
,,bað sem mér finnst ánægju-
legast i þessum málum niina”,
sagði Ingvar, ,,er, að sú ofveiöi
fiskistofna sem ég skrifaði um i
blöð og ræddi um i útvarpi á
árunum 1971 og 1972 þegar út-
fræslan i 50 milur var á döfinni, er
nú orðin opinberlega viðurkennd
staöreynd, Augu manna hafa
opnast fyrir þvi að of hart er sótt
að nytjafiskunum, hér við land,
einkum þorski. Á þessum árum
sem ég nefndi, voru undirtektir
við slik sannindi litil, en nú er
þetta komið á daginn.
Ég benti þá á, að næst á eftir út-
færslu i 50 milur, yrðum við að
snúa okkur að skynsamlegri
nýtingu okkar á þessum verð-
mætum. Þvi miður hefur það ekki
orðið-- ekki ennþá. Það var ekki
gerð gangskör að þvi að koma á
fót skynsamlegri nýtingu og siðan
hefur hallað mjög á ógæfuhlið.
Ég álit að skynsamieg nýting
þessara verðmæta okkar sé
grundvallaratriði i landhelgis-
málinu. Ef allt fer i sama horf og
áður undir okkar eigin stjórn, til
hvers er þá barist?”
llefurðu trú á að þegar og ef við
fáum fljótlega yfirráð yfir 200
milna landhelgi, þá verði hún nýtt
af viti?
,,Ég veit það ekki. Með tilliti til
þeirrar ofveiði sem hér er, þá
Ingvar Hallgrímsson
fiskifrœðingur:
1928 1938 1948 1958 1968 1971
Við alþjóðlegt prófborð
„utfærsla landhelginnar
i 200 mílur hefur mest
áhrif á fisk eins og loðnu
þorsk og karfa/' sagði
Ingvar Hallgrímsson fiski-
fræðingur í samtali við
Þjóðviljann fyrir skömmu.
Við ræddum viö Ingvar um
stöðuna i landhelgismálinu,
ástand fiskstofna, viðgang fisk-
veltur framtiðin alveg á þvi, að
sókn útlendinganna létti. Að mínu
viti er það algjörlega útilokað að
halda til langframa úti jafn-
stórum fiskiflota og islendingar
eiga nú, nema þvi aðeins að
heildarsókn minnki. Og sóknin
verður a.m.k. að minnka að þvi
marki sem nemur sókn út-
lendinganna hingað.
Astandið er i grófum dráttum
þannig, að á sama tima og helstu
nytjafiskar við tsland eru i lakara
ástandi heldur en nokkru sinni, þá
er aflageta skipastólsins i
hámarki. Og þannig ástand
kemur ekki heim og saman nema
við getum aflétt þeirrri ásókn
erlendra þjóða sem er á okkar
miðum i dag.”
Hvað er friðun?
„Það verður fyrst og fremst að
friða ungfiskinn” sagði Ingvar
Hallgrimsson, og við spurðum
hvort hann teldi liklegt af efna-
hagspólitiskum ástæðum, að unnt
yrði að friða hann nógu fljótt og
nógu mikið,
„Friðun er fórn. Fórn sem við
gjöldum i dag, en vinnst upp
seinna. Og með friðun á ég ekki
við þá fölsku vernd sem oft er
iðkuð, samanber ástandið i
Barentshafi, sem við heyrum um
þessa dagana. Þar er fiski-
mönnum leyfilegt að veiða til-
tekið magn af þorski. Þegar þvi
er náð er veiðum samt haldið
áfram, þorski hent dauðum i
sjónn en aðrar tegundir hirtar.
Ég er þvi miður svartsýnn
— það kemur áð þvi að við vökn-
um illilega upp við vondan
draum.
Veiðihæfni togara hefur liklega
aukist um 40% siðan 1960. Og þvi
er það ihugunarefni að afli i
Norðuratlantshafi hefur ekki
aukist að marki siðan 1960. Við
veiðum hraðar heldur en fiskur-
inn timgast.
Okkar eigin
umgengni um miðiti
1972 var skýrt frá þvi i blöðum
að næstu 10 árin á undan, hefðu
770 landhelgisbrjótar verið teknir
hér við land. Af þessum fjölda
voru 700 brot framin af islenskum
skipum. Þetta sýnir m.a., að við
verðum að taka i lurginn á
sjálfum okkur áður en langt um
liður.
Eftir að við fáum þessar 200
milur, verður nefnilega ekki við
neina að sakast um ástand
fiskistofnanna, nema bara
okkur sjálfa. Hér þarf nýtt við-
horf til lifrænna verðmæta, það
þarf hugarfarsbreytingu.
islendingar verða settir við
alþjóðlegt prófborð. Stöndum við
okkur eða ekki? Aður fyrr gátum
við skammað útlendinga, en ef
útfærlsan tekst vel, en nýting
miðanna illa, þá getum við ekki
kennt vondum útlendingum um.”'
IJæmi um vonda
stjórn
Við báðuni Ingvar að nefna
okkur dæmi um vonda stjórn á
nýtingu fiskimiða við lsland - og
einnig góða stjórn.
,,Já, dæmi um vonda stjórn
gæti verið otvöxtur fiskiskipa-
stólsins með tilliti til fiskmagns
jiess sem veiða má.
Dæmi um skynsamlega stjórn
var t.d. friðun sildarinnar hér um
árið og svo takmörkuð veiði á
henni að loknu friðunartimabili.
Einnig mætti nefna þá stjórn sem
við höfum á humar og rækju-
veiðum að hluta til. Ég vil lika
nefna hvalveiðarnar. Þeim er vel
stjórnað. Versta dæmi um stjórn-
leysi er svo það, að við veiðum
alltof mikið af ungfiski, og hann
er veiddur áður en hann verður
kynþroska. Það háttalag hefur þá
afleiðingu að færri og færri dýr
komast á kynþroskaaldur, og
kostnaðarlega séð verður það lika
mjög bagalegt, þvi að það er
munur á, hvort við fáum t.d. 100
fiska i tonni eða 200 fiska.”
Hefurðu ekki trú á að viðhorfin
séu að breytast?
„Þau eru að breytast. Viðhorf
almennings eru að breytast. Og
það er lika eðlilegt. Aflakóngarn-
ir okkar, þessir makalausu menn
sem moka upp fiskinum, beinlinis
elta hann uppi eins og þeir viti
jafnan hvar hann syndir
nákvæmlega inn i trollið, þeir
verða vitanlega varir við það
þegar aflinn minnkar og fiskurinn
smækkar, og hafa oft bent á
ofveiðina.
Og hin stjórnskipaða Land-
helgisnefnd sýnist mér lita
raunsætt á málið. Hún vinnur nú
að undirbúningi löggjafar um
fiskveiðar islendinga. Þar má
engin hreppapólitik ráða.”
FARYMANN
TRILLUVÉLAR
9—11 hestafla
20—24 hestafla
26—32 hestafla.
FYRIR VINNUVÉLAR
6 ha. við 3000 sn.
8 ha. við 3000 sn.
11 ha. við 3000 sn.
18 ha. við 2500 sn.
25 ha. við 2500 sn.
■L 'I
SöyffflgiMgjiuiir
•iMsxrti^^csiírö <§t (g@
Vesturgötu 16,
simi 13280.
Við lýsum yf ir eindregnum
stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði-
lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október
og skorum á alla íslendinga að standa
saman í þessu mesta lífshagsmunamáli
íslensku þjóðarinnar.
Við lýsum yf ir eindregnum
stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði-
lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október
ogskorumáalla íslendinga aðstanda
saman í þessu mesta lífshagsmunamáli
íslensku þjóðarinnar.
DRÁTTARBRAUTIN HF.
NESKAUPSTAÐ