Þjóðviljinn - 15.10.1975, Síða 11
Miðvikudagur 15. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 11
Gils Guðmundsson9 alþingismaður:
Ekki ástæða til að bjóða
samninga um veiðar innan
fiskveiðilögsögunnar
Engin ástæða er til þess að semja viö útlendinga um veiöar innan landhelginnar. — Myndin er af
islensku varðskipi og bresku herskipi tekin i siðasta þorskastriði.
-Gils Guðmundsson,
alþingismaður, hefur setifi
sem f ulltrúi íslands á þeim
áföngum haf réttarráð-
stefnunnar, sem haldnir
hafa verið. Fyrsti
hluti hennar átti sér stað i
Caracas i Venúsúelu i
fyrrasumar, en annar hluti
hennar var haldinn síðast-
iiðið vor í Genf í Sviss.
Þriðji hluti hafréttarráð-
stefnunnar verður svc
haldinn í New York í mars
til maí að vori.
í tilefni útfærslu fisk-
veiðimarkanna hér við
land í 200 mílur hafði blað-
ið tal af Gils, og spurði
hann fyrst að þvi á hvern
hátt mál yrðu lögð fyrir
þriðja hluta ráðstefnunnar
að vori.
— Það er orðið töluvert ljósara
en áður hvernig hægt er að stánda
að málum, sagði Gils. A þessum
tveimur áföngum, sem haldnir
hafa verið, hafa komið fram mjög
margar og býsna sundurleitar til-
lögur. Þó var það ljóst þegar á
leið, að hugmyndin um 200 milna
auðlindalögsögu átti langmestu
fylgi að fagna, og hefur verið jöfn
og nokkuð hröð þróun i þá átt á
undanförnum árum.
Að þvi var siðan unnið, ekki sist
af hópi strandrikja þar sem ís-
land var eitt þátttökurikja, að
undirbúa einn texta eða eitt frum-
varp á grundvelli þessa hugtaks,
og siðan yrðu þá þær þjóðir, sem
vildu koma fram breytingum á
þeim texta að flytja þær i breyt-
ingatillöguformi.
Mikilsverðasti árangur Genfar-
fundarins i vor var sá, að undir
lok hans tókst að koma saman
sliku frumvarpi sem allir eru að
visu ekki ánægðir með i öllum
greinum, en er þó i megindráttum
i samræmi við skoðanir mikils
meirihluta þátttökurikja.
f næsta áfanga verður þvi tekið
til við þessi frumvarpsdrög þar
sem frá var horfið. Nú þegar eru
miklar likur til þess, að meira en
tveir þriðju hlutar þátttökurikja
sé fylgjandi þessu frumvarpi i
aðaldráttum. Þó er enn tekist á
um nokkur mikilsháttar atriði.
— Attu von á þvi, að fram komi
margar breytingatillögur?
— Það liggur ekki ljóst fyrir
ennþá, hve mikið verður flutt af
breytingatillögum, en þær verða
sjálfsagt ýmsar og kunna sumar
að snerta auðlindalögsöguna.
Trúlegt er að hugmyndin um al-
þjóðlegan gerðardóm skjóti upp
kollinum, sömuleiðis hugmyndin
um sögulegan rétt, en hvorugt
þessara atriðia er inni i frum-
varpinu eins og það liggur fyrir.
— Heldurðu að slikar breyt-
ingatillögur næðu samþykki?
— Ég tel að visu að sú hætta sé
ekki mikil, en þó veit maður
aldrei hvað kann að gerast i
samningaþófi á siðustu stundu.
En væntanlega verða strandrikin
þarna vel á verði.
— Hefur mikið borið á þvi, að
þjóðir hafi skipt um skoðun á
hafréttarmálum frá þvi fyrst var
fraið að ræða þau mál á þessum
ráðstefnum, og þá i þá veru, að
þau séu nú samþykk 200 milna
auðlindalögsögu, sem þau þá ekki
voru áður?
— Það virtist svo, einkum á
fundinum i Genf, að sumar þjóðir
hefðu algjörlega breytt um stefnu
eða voru að búa sig undir að gera
það. Mjög mikið munar að sjálf-
sögðu um það, að bæði Bandarik-
in og Sovétrikin aðhyllast nú 200
milna auðlindalögsöguhugtakið.
Fulltrúi breta lýsti þvi yfir, að
bretar væru ekki fjarri þvi að
styðja þessa lausn mála.
— Hvað með v-þjóðverja?
— V-Þýskaland og fleiri Efna-
hagsbandalagsriki hafa á hinn
bóginn neitað að fallast á að auð-
lindalögsöguhugmyndina nema
þá svo útvatnaða með undanþág-
um og öðrum afslætti að litið eða
ekkert yrði eftir af gagnlegum
hlutum fyrir strandriki i frum-
varpinu.
— Hvert verður svo framhald-
ið?
— Ég er þeirrar skoðunar að
hafréttarráðstefnan komist að
niöurstöðu áður en lýkur og þá i
samræmi við þær meginhug-
myndir, sem nú eru uppi i áður-
nefndu frumvarpi.
Hins vegar er nær óhugsandi að
það verði i næsta áfanga og er spá
min sú, að slikt gerist ekki fyrr en
1977 eða jafnvel siðar. Enn eru
ýmis allstór göt á frumvarps-
drögunum, og sjálfsagt verður
nokkuð löng togstreita um sum á-
kvæði þeirra.
Það tefur fyrir, að niðurstaða
fáist, að á það er lögð mjög rik á-
hersla að ná sem viðtækastri
samstöðu. Það er naumast talið
fullnægjandi að tveir þriðju hlut-
ar af þjóðum heims, eða riflega
það, nái samstöðu, ef allt að
þriðjungur rikja neitar að hlita
þeim lögum, sem sett kynnu að
verða.
Giis Guömundsson, alþingis-
maður.
— Hvað heldur þú um aðstöðu
okkar að koma útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar út i 200 milur nú?
— Vegna hinnar hagstæðu þró-
unar i hafréttarmálum undanfar-
in þrjú ár, þar sem allt virðist
stefna að alþjóðalögum um 200
milna auðlindalögsögu sem
grundvöll, fæ ég ekki betur séð en
staða okkar til þess að færa út i
200 milur nú sé miklu sterkari á
alþjóðavettvangi en staða okkar
var 1972, þegar við færðum fisk-
veiðilandhelgina út i 50 milur.
Með tilliti til þessa, virðist sist
af öllu ástæða til að elta uppi
breta, vestur-þjóðverja eða aðra
til að bjóða þeim samninga um
veiðar i islenskri fiskveiðilög-
sögu. —úþ
WICHHANN
□ IE5EL
4 uf
ÚTGERÐARMENN — SKIPSTJÓRAR
Skuttogaraöldin er gengin i garð.
Margir framsýnir islenzkir útgerðar- og
skipstjórnarmenn hafa valið Wichmann
AX vélarnar i nýju skuttogarana. AX
vélarnar i nýju skuttogarana. AX vélin
er þungbyggð, hæggeng L 375 sn/min
tvigengis yentlalaus vél. — AX vélin er
framleidd i stærðunum að 2,250 hö. (með
skiptiskrúfu og forþjöppu).
Sanikvæmt opiuberum upplýsingum um
verkefni norskra skipasm iðastöðva,
segir að i árslok 1972 hafi 17 skuttogarar
verið i smiöum i Noregi.
Þar af voru hvorki meira né minna en
14 með Wichmann aðalvél.
n. LdlT
Wichmann er einnig i fararbroddi hér á
landi.
Nú eru rúmlega 32.000 Wichmann hest-
öfl i gangi i islenzka fiskiskipaflotanum.
Um næstu áramót verða þau orðin rúm-
lega 40,000. Þetta sýnir hið mikla traust
sem framsýnir útgerðar- og skip-
stjórnarmenn bera til Wichmann vél-
anna.
Hestorkutala og lengd á AX vélum:
4 AX 1000 hestöfl lengd 3.6 metrar
6 AX 1500 — — 5.0 —
7AX 1750 — — 5.5 —
9 AX 2250 — — 6.5 —
Áratuga löng reynsla Wichmann
bátavélanna hér á landi hefur sann-
að ótvírætt að þær eru gangöruggar,
sparneytnar og ódýrar í viðhaldi.
Wichmann verksmiðjurnar fram-
leiða skrúfuhring (dyse) sem hefur
verið sett á mörg íslenzk fiskiskip
og hefur hann reynst mjög vel. —
Dráttarafl hefur aukizt og titringur
minnkað til mikilla muna.
Fyrsti skuttogari sem smíðaður er á íslandi, fyrir
Þormóð Ramma á Siglufirði, er búinn WICHMANN diesel-vél
Leitið nánari upplýsinga hjá aðal umboðinu.
EINAR FARESTVEIT & CO HF., Bergstaöastræti 10, sími 21565