Þjóðviljinn - 15.10.1975, Síða 15
Miðvikudagur 15. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Björn Guðmundsson formaður Útvegsbœndafélags Vestmannaeyja:
veiðiheimildir
50 mílnanna
Engar
innan
Björn Guömundsson,
formaður útvegsbænda-
félags Vestmannaeyja
var spurður, hvort hann
teldi að hann og aðrir út-
vegsmenn teldu líklegt til
árangurs að semja við
breta um áframhaldandi
veiðar innan 50
milnanna.
„Nei, það finnst ,mér ekki.'/ið
eigum alls ekki að semja við
breta um veiðiheimildir innan
50 milnanna. ,
1 júli i sumar gerðii Otvegs-
bændafélagið i Vestmannaeyj-
um reyndar samþykkt um að
það ætti ekki að semja við þá
um neinar veiðiheimildir innan
200 milnanna. Og við vonum i
lengstu lög að stjórnvöld leggist
ekki svo lágt, að semja við þá
um veiðiheimildir innan 50
milnanna.
Þessar tollaivilnanir Efna-
hagsbandalagsrikjanna eru
bara smápeningar miðað við
þau verðmæti sem við látum þá
kannski hafa i staðinn.’’
— Ertu nokkuð hræddur um að
það verði erfitt að verja 200
milurnar?
„Það má vera, að það verði
erfitt, en ég held að við verðum
að gera það samt, verja land
helgina i lengstu lög.
Mér finnst það fyrst og siðast
algjörlega frágangssök að leyfa
nokkra veiði innan við 50
milurnar.
Útlendingarnir verða bara að
fá að átta sig á að sá timi er
liðinn að þeir geti verið hér uppi
i kálgörðum hjá okkur. Við eig-
um aöeins þrjár náttúru-
auðlindir islendingar, fiskinn,
fallvötnin og jarðhitann og við
verðum að standa vörð um
þessar auðlyndir!
Kynnum við málstað okkar
nægilega erlendis?
„Ég held, að við ættum að
fórna svolitlum fjármunum i að
kynna okkar röksemdir.’ -GG.
Kaupið bílmerki
Landverndar
kVerjum
gggróöurl
verndumt
jandígfc)
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensínafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavörðustíg 25
Pipulagnir
Nýlagnir, breytingar
hita veitutengingar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir 7 á
kvöldin).
Jón Páll Halldórsson,
framkvœmdastjóri, Isafirði:
„20 mílna
landhelgi
yið Vestfirði”
Þjóðvi I j inn ha f ði
samband við Jón Pál
Halldórsson fram-
kvæmdastjóra Norður-
tangans á Isafirði, og
spurði hvað honum væri
efst í huga nú þegar út-
færsla landhelginnar í 200
mílur er að koma til
framkvæmda.
Kannski rekur menn minni til,
að vestfirskir sjómenn mót-
mæltu harðlega samningunum
við breta 1973, þegar breskum
togurum var gefið leyfi til að
veiða upp að 20 milum undan
Vestfjörðum i 10 mánuði ársins.
„Fólk virðist halda að bretar
veiði hér aðeins i einhverjum
litlum hólfum,’ sagði Jón Páll
„en þvi er miður ekki svo farið.
Þeir eru alls staðar á okkar
miðum.’
Og Jón Páll heldur áfram:
„Vestfirðingar fagna allir
sem einn þeirri ákvörðun að
færa landhelgina út i 200 milur
Um þá ákvörðun eru áreiðan-
lega ekki skiptar skoðanir.
Það var öllum vestfirðingum
mikið fagnaðarefni, þegar land-
helgin var færð út i 50 milur
haustið 1972 en það olli þeim
lika sárum vonbrigðum, þegar
ári siðar var ákveðið að heimila
breskum togurum veiðar upp að
20 sjómilum út af Vestf jörðum i
10 mánuði ársins.
A þessu svæði, milli 20 og 50
milnanna, eru einmitt öll bestu
fiskimiðin, hvort sem um linu
eða togveiðar er aö ræða.
Á þessu svæði hafa breskir
togarar mátt stunda veiðar
GEYMSLU
HÓLF
/Z
GtYMSLUHOLF I
ÞRVMUM STÆRDUM
N/ ÞJONUSTA VIO
VIDSKIPTAVINl I
NVBYGGINGUNNI
RANKASTÆTI 7
^ SijmYinnubankinn
allan ársins hring, nema þá tvo
mánuði, september og október,
sem aflavonin er minnst, en þá
þurfa þeir að sigla út fyrir 50
milur. 1 framkvæmd var þvi
nánast um útfærslu i 20 milur að
ræða en ekki 50 milur.
Allir sem eitthvað þekktu til
gerðu sér grein fyrir þvi, að
þetta myndi þýða meiri
soknarþunga á fiskimiðin út af
Vestfjörðum, heldur en þau mið
þyldu Sú hefur lika orðið raunin
á, og nú er það almennt viður-
kennt, að þorskstofninn hér við
land sé ofveiddur. Það á ekki
sist við um Vestfjarðamið, en
hér er uppistaðan i aflanum
einmitt þorskur.
Vestfirðingar hljóta þvi ai
leggja á það höfuðáherslu að
þegar þessu timabili lýkur nú i
haust, verði alls ekki um fram-
lengingu á þvi að ræða.
Til þess eru vitin að varast
þau, og ég treysti þvi að mis-
tökin frá 1973 verði ekki endur-
tekin með nýjum veiðiheimild-
um fyrir erlend skip innan 50
milanna. Það gæti tekið mörg ár
að vinna upp það tjón, sem af
þvi gæti hlotist.
Ef stjórnvöld telja sig geta
náð samkomulagi við Efna-
hagsbandalagsrikin með
samningum um takmarkaðar
veiðiheimildir utan 50
milnanna, tel ég að slikir
samningar geti komið til greina
i stuttan tima.’
En þú vonast til að útfærslan i
200 milur geti fært okkur 50
milna landhelgi?
„Það er einmitt mergurinn
málsins.’ -GG.
Við lýsum yf ir eindregnum
stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði-
lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október
og skorum á alla íslendinga að standa
saman í þessu mesta líf shagsmunamáli
íslensku þjóðarinnar.
FARMANNA- OG
FISKIMANNASAMBAND ÍSLANDS
Við lýsum yf ir eindregnum
stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði-
lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október
og skorum á alla íslendinga aðstanda
saman í þessu mesta lífshagsmunamáli
íslensku þjóðarinnar.
$ KASSAGERÐ
REYKJAVÍKUR
Kleppsvegi 33, Reykjavík.
Sími 3 83 83
Við lýsum yf ir eindregnum
stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði-
lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október
og skorum á alla íslendinga að standa
saman í þessu mesta lífshagsmunamáli
íslensku þjóðarinnar.
OLÍUSAMLAG.ÚTGERÐARMANNA
NESKAUPSTAÐ