Þjóðviljinn - 15.10.1975, Síða 25

Þjóðviljinn - 15.10.1975, Síða 25
Miðvikudagur 15. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 25 Aðdragandi útfærslu í 50 s j ómílur á alþingi Á árinu 197Q lagði Gils Guðmundson fulltrúi Alþýðu- bandalagsins i utanrikismála- nefnd fram tillögu um að nefndin tæki landhelgismálin til ræki- legrar athugunar. 1 framhaldi af þeirri tillögu skipaði þáverandi forsætisráðherra Bjarni Bene- diktsson sérstaka landhelgis- nefnd, sem var ákveðin á fundi i ríkisstjórninni 4. júni 1970. Lúð vik Jósepsson varð fulltrúi i nefndinni fyrir hönd Alþýðu- bandalagsins.3. febrúar 1971 lagði Alþýðubandalagið fram tillögu um rrálið i nfndinni, fyrst allra flokka. í tillögunni voru þessi megin- atriði: að gefin verði út reglugerð um stækkun landhelginnar þanriig að hún verði 50 sjómilur frá 1. desember 1971. að tilkynna öðrum þjóðum að alþingi islendinga hafi ákveðiö að islensk lögsaga nái 100 sjómilur út að þvi er varðar hverskonar ráðstafanir vegna mengunar sjávar. að tilkynna öðrum þjóðum þegar i stað þessa samþykkt islendinga. að undirbúa þátttöku islendinga i hafréttarráðstefnunni. Viku siðar komi fram tillögur frá öðrum flokkum. Engin flokk- anna hafði þó jafneindregið orðalag á tillögum sinum og Alþýðubandalagið. 1 tillögum stjórnarflokkanna var ekki gert ráð fyrir neinni bindandi ákvörðun: ihaldið talaði um að ,,afla viðurkenningar á rétti islendinga” en Alþ.flokkurinn um að færa út ,,svo fljótt sem auðið er að þjóðarrétti” 1 till. Framsóknarflokksins var lögö megináhersla á að segja upp samningunum frá 1961, en að fiskveiðilögsagan verði færð i 50 milur „sem allra fyrst.” Tillaga frjálslyndra var óljós. Eftir þetta voru tillögur flokk- ana samræmdar. Reyndust stjórnarflokkarnir sammála um að gera ekki neitt og biða eftir úrslitum hafréttarráðstefnunnar. Stjórnarandstaðan náði samstöðu um tillögu sem fól i sér öll megin atriðin úr tillögu Alþýðubanda- lagsins, auk þess sem krafist var uppsagnar samninganna frá 1961. 1 kosningunum 13. júni 1971 var meðal annars tekist á um land helgismálið. Þá sigraði afstaða stjórnarandstöðuflokkanna og á þeim grundvelli var landhelgin siðan færð út i 50 sjómilur 1 september 1972. Island er 16. landið sem eigriar sér 200 sjó- milna fiskveiðilögsögu ísland verður 16. landið í heiminum, sem færir fisk- veiðilögsögu sína út i 200 sjómílur. Perúmenn voru fyrstir til þess að færa út í 200 mílur og gerðu þeir það árið 1947. El Salvador færði fiskveiðimörkin út í 200 mílur árið 1950. 13 rika hafa 3 milna fiskveiði- lögsögu. eitt riki hefur 4 milna lögsögu, 5 riki hafa 6 milna lög- sögu, 1 riki 10 milna lögsögu og 62 riki 12 milna lögsögu og er það al- gengasta viðátta fiskveiðilög- . sögu. Eitt riki hefur 15 milna fisk- veiðilögsögu, 5 riki 30 milna lög- sögu, 7 riki hafa 50 milna fisk- veiðilandhelgi eftir útfærslu is- lendinga og eitt riki hefur 53 milna fiskveiðiiögsögu. Eitt riki hefur 70 milna fisk- veiðilögsögu, eitt riki 100 milna fiskveiðilögsögu, eitt 112 milna lögsögu, eitt riki 122 milna lög- sögu, eitt riki 130 milna lögsögu og eitt riki 150 milna lögsögu. Eftir daginn i dag verða 16 riki með 200 milna fiskveiðilögsögu. —úþ SIMRAD fiskileitartæki •> ______________________ SIMRAD TIL SJÓS ER SKIPSTJÓRANS LJÓS Hámákvæmur dýptarmælir með 8" þurrpappír, elektroniskum skala og Ijóstölum með 20 möguleikum til 1700 m. 38 eða 50 kilórið. Botnlína, svertilína eða venjuleg botnlinuritun. Við mælinn má tengja botnstækk- un MA og Fisksjá Cl. Góö viöhalds-og varahlutaþjónusta UMBOÐSMENN UM ALLT LAND AÐALUMBOÐ: FRIÐRIK A. JÓNSSON hf. Brædraborgarstíg i Sími 14135 - 14340 Við lýsum yf ir eindregnum stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði- lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október ogskorumáalla íslendinga aðstanda saman í þessu mesta lífshagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. ÞORBJÖRN HF. GRINDAVÍK Við lýsum yf ir eindregnum stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði- lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október ogskorumáalla íslendinga aðstanda saman í þessu mesta lífshagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF Aöalstræti 6, Reykjavík SIMRAD MA SIMRAD MA botnstækkun gefur ná- kvæmar upplýsingar um fisk viS botninn. Stækkar 5 eða 10 sinnum á sviðinu 6 eða 3 metra frá botni. Fisksjá með linuskiptum skermi. Svið frá 7,5 til 90 m, niður á 950 m dýpl. LJóstölur sem sýna dýpi á botn. Má tengja við : Simrad EK, EH, EQ,EX. Staða deildarstjóra afgreiðsludeildar laus Umsóknir stilaðar á heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist Tryggingastofnun rikisins fyrir 10. nóv- ember. Staðan er laus frá 1. janúar nk. Laun sam- kvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Forstjóri gefur nánari upplýsingar. 13. október 1975. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Við lýsum yf ir eindregnum stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði- lögsögunnar í 200 mílur í dag, 15. október og skorum á al la íslendinga að standa saman í þessu mesta lífshagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. ALÞÝÐUBANKINN Laugavegi 31, Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.