Þjóðviljinn - 15.10.1975, Side 32
Miðvikudagur 15. oktdber 1975.
Ganga
sjómenn
á land?
Þjóðviljinn leitaði i gær um-
sagnar óskars Vigfiissonar, for-
manns Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar á skeyti 119 skipshafna
isl. fiskiskipa til sjávarútvegs-
ráðherra um nauðsyn þess að
endurskoða nýákveðið fiskverð.
Óskar sagði:—Mann brestur
eiginlega orð til þess að lýsa þvi
hvað þetta hefur að segja. Þarna
standa saman að einu skeyti allar
áhafnir stórra og smárra fiski-
báta sem á sjó eru umhverfis allt
land. Þetta er timælalaus van-
traustsyfirlýsing á það hvernig
fiskverðsákvörðun er tekin.
— Manstu eftir jafn mikilli
samstöðu meðal sjómanna?
— Aldreisiðanforðumdaga, að
sildveiðiflotinn sigldi i höfn. Þetta
er þó mikið viðtækari samstaða,
þvi um er að ræða allan flotann, á
hvaöa veiðum sem hver einstakur
bátur er, bæði báta og togara. Ég
hef aldrei á minni sjómannstfð
vitaö aðra eins samstöðu. Það
hlaut lika að koma að þvi að
mönnum væri nóg boðið.
— Hvað er það i fiskverðsá-
kvörðuninni, sem veldur þessari
óánægju?
— Það er bæði lækkun verðs á
ákveönum fiskitegundum og
stærðarflokkunin, sem vægast
sagt er mjög illa að staðið. Við
getum hvorki borið okkur saman
við norðmenn né færeyinga hvað
varðar fiskverð og stærðarflokk-
un, sem er mun hagstæðara fyrir
fiskimenn þar en hér.
— Nú hafa verðlagsráðsmenn
látið hafa það eftir sér, að verð á
stærsta og besta fiski væri svona
lágt vegna þess, að hann væri lát-
inn halda uppi verði á lélegri
fiski.
— Ég mótmæli þessu harðlega.
Mér er nokkuð vel kunnugt um
verð á fiski td. i Færeyjum og i
hvaða pakkningar hinir ýmsu
verðflokkar fara. Ég hef margoft
mótmælt þessu við okkar fulltrúa
i verðlagsráði.
— Það er talað um viku frest.
Ef engin leiðrétting hefur verið
gerð eftir viku, hvað þá?
— Ég geri raö fyrir að þeir
muni þá sigla inn. Þá held ég að
allir menn gangi i land
Við talningu atkvæða I skoðanakönnun BSRB. — Mynd AK
85,5% BSRB vildu
verkfallsrétt
Eindreginn stuðningur við forystu bandalagsins
„Þessi úrslit eru
feykilegur stuðningur
við ákvörðun forystu
BSRB um að leggja á-
herslu á verkfallsréttar-
máiin. Ég vænti þess að
þau verði til þess að
rikisstjórnin leiti sam-
komulags við Bandalag
starfsmanna rikis og
bæja um löggjöf varð-
andi verkfallsrétt.
Þetta sagði Haraldur Stein-
þórsson, varaformaður BSRB, er
talningu i skoðanakönnun BSRB
um verkfallsréttinn lauk siðdegis
i gær.
Mikil þátttaka var á verkfalls-
réttarfundunum, sem urðu 55,
30% félagsmanna tóku þátt i at-
kvæðagreiðslunni á fundunum og
veröur það að teljast frábær þátt-
taka.
Alls greiddu 3248 atkvæði um
spuminguna: Vilt þú að aukin á-
hersla verði lögð á baráttuna fyr-
ir verkfallsrétti opinberra starfs-
manna?
Já sögðu 2776 eða 85.5%. Nei
sögðu 472 eða 14.5%
Samtals greiddu 3 112 atkvæði
um spurninguna: A að gripa til
aðgerða 1. nóvember næstkom-
andi ef samningar takast ekki i
staö þess að leggja málið fyrir
kjaradóm?
Já sögðu 2614 eða 84%. Nei
sögðu 498 eða 16%.
Niutiu og fimm atkvæðaseðlar
voru auðir eða ógildir á fundun-
um.
50%
skerðing
námslána
Allir fulltrúar námsmanna i
stjórn Lánasjóðs islenzkra
námsmanna lögðu niður störf i
sjóðstjórn i gær i mótmælaskyni
við aðgerðir og afstöðu stjórn-
valdagagnvartL.l.N., sem þeir
telja alófæran að gegna þvi
hlutverki er honum ber við
núverandi ástand.
,,Til að bæta gráu ofan á
svart,” segir i bókun er þeir
lögðu fram á fundi sjóðstjórnar i
gær, „hefur fjármálaráðherra
nú lagt fram fjárlagafrumvarp
á Alþingi, sem felur i sér fólsku
lega árás á kjör námsmanna.
Ef þetta frumvarp nær fram að
ganga þýðir það um það bil 50%
skerðingu, frá þvi sem verið
hefur undanfarin 2 ár, á
námsaðstoð til þeirra 3500
námsmanna og fjölskyldna
þeirra sem eiga lifsafkomu sina
að verulegu leyti undir L.Í.N.
meðan á námi þeirra stendur.”
Segja fulltrúarnir viðkomandi
ráðuneyti hafa haft fullkomnar
upplýsingar um fjárþörf sjóð-
sins og skuldbindingar fyrir-
liggjandi mánuðum saman en
ekki sé sjáanlegt að neitt hafi
verið aðhafzt til þess að leysa
þau vandamál.
Muni þeir ekki hefja störf i
sjóðstjórn fyrr en breyting hafi
orðið þar á. HP
Fimni bátar frá Þorlákshöfn
stunda nú spærlingsveiðar og hef-
ur þeim gengið sæmilega, afiað
alls 2500 tonn i haust.
Sem stendur stunda 4 bátar
netaveiði og er búist við að tveir
eða þrir I viðbót bætist við á næst-
unni. Afli netabátanna hefur ver-
ið all.góður fram að þessu.
Það sama verður hinsvegar
ekki sagt um afla þeirra fjögurra
báta sem róa með troll. Afli hjá
þeim hefur verið afar tregur til
þessa.
Heildarafli Þorlákshafnarbáta á
bolfiski frá áramótum er orðinn
16.142 tonn. Enn sem komið er
hefur engin sild verið söltuð i Þor-
lákshöfn. —Þorsteinn
Sjávarútvegsráðherra um fiskverðið nýja
Hœkkun en ekki lœkkun!
Póstur og Simi:
Fjármála-
óreiða á
tveimur
stöðum?
Eftirfarandi orðsending barst
Þjóðviljanum frá póst og síma-
málastjórninni i gær: Að gefnu
tilefni skal upplýst, að bókhald og
fjárreiður póst- og slmastöðv-
anna á Hvolsvelli og Reyðarfirði
hafa veriö sendar viðkomandi
sýslumönnum til rannsóknar.
I tilefni af þessu höfðum við
samband við Valtý Guðmundsson
sýslumann Suður-Múlasýslu og
spurðum hann um málið. Valtýr
sagði að yfirheyrslur hefðu staðið
yfir i tvo daga vegna þessa máls,
og heföu 4 menn verið yfirheyrð-
ir. A þessu stigi málsins vildi
hann ekkert segja til um hvort
einhver fjármálaóreiða væri hjá
póstiog sima á Reyðarfirði; rann-
sóknin færi fram samkvæmt ósk
póst og sfmamálastjórnarinnar.
Sagði sýslumaður að málið
væri mjög erfitt i rannsókn, þar
sem fara þyrfti yfir aragrúa
skjala og þaö eitt væri vist að
rannsókn þess myndi taka langan
tlma, þótt vel væri haldið áfram.
Við náðum ekki sambandi við
Bjöm Björnsson sýslumann á
Hvolsvelli f gær, en Þjóðviljinn
mun fylgjast með þessum málum
áfram. —S.dór
Þjóðviljinn spurði sjávarút-
vegsráðherra eftirþvi hvert hans
álit væri á skeyti 119 skipshafna,
svo og hvert hans álit væri á
starfsemi Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins.
Ráðherra sagði: —Ég gagnrýni
ekki verðlagsráð sem slikt. Það
sem ég hef gagnrýnt, er, aö þeir,
sem töldu sig i vetur ekki geta
borgað hærra verð fyrir fisk
meöan og þegar verðákvörðun
var tekin, gerðu það svo þegar til
kastanna kom.
Ég tel, að sú stefna, sem verö-
lagsráð hefur fylgt, að hækka
mest stærsta fiskinn og besta
fiskinn, það sé auðvitað sú eina
rétta stefna. Ef við ætlum að
halda við háu verði á smáfiski
erum við um leið að stuðla að
auknu smáfiskadrápi.
f sambandi við siðustu verð-
ákvörðun, er það ekki rétt hjá sjó-
mönnum, sem sent hafa þetta
skeyti, að hér sé um kauplækkun,
eða réttara sagt fiskverðslækkun
að ræða. Heldur er hér um fisk-
VQrðshækkun að ræða.
Það er eftirtektarvert, að við
áætlun á þorskaflanum einum,
sem lögð var til grundvallar
þegar verðákvörðun frá
áramótum var tekin, er 41,8%
yfirstærð eða 1. flokkur, 41.5
millistærð og 16.7 smáíiskur.
En af 151þúsund tonnum af
þorski.umreiknað i óslægðan fisk,
sem skipað er upp eftir siðustu
vertið, þá eru 20.200 tonn
óflokkuð. En samkvæmt þvi sem
greitt er þá er greitt 68,7% sem
fyrsti -flokkur af þessum 130
þúsund tonnum,27,8% millistærð,
en smáfiskur aöeins 3,5%.
Þetta sýnir að fiskkaupendur
hafa flokkað fiskinnn frjálslega
og þetta er betra en það, fyrir
sjómenn og útgerð, sem lagt var
til grundvallar við verðákvörðun.
Það er talið að fiskverðs-
breytingim nú kosti rikissjóð 40-
45 miljónir króna fram að ára-
mótum,en á ársgrundvelli er talið
liklegt að það mundi kosta I
auknum greiðslum um 2.100
miljónir vegna þess, að samsetn-
ing aflans er önnur á haustin en
aðra árstima.
Verðlag á fisktegundum er
mjög breytilegt. Pundið af
frystum ufsa, miðað við sif-verð,
er 63,50 krónur nú, en meðaltal af
þorski, blokk og flök, er 119,75
kr.
Þetta ætti að sýna mönnum að
ufsaverðið er ákaflega erfitt
i meðförum.
Ég vil alls ekki taka undir það,
að þeir menn, sem starfa i verð-
lagsráði eigi skilið að fá slika
umsögn, sem i skeytinu frá
flotanum er gefin.
—Það er talað um vikufrest til
breytinga á fiskverðinu. Hvað
viltu um það segja?
—Mitt álit er það alveg umbúða-
laust, að ég tel enga möguleika á
þvi, að rikissjóður, sem er ekkert
annað en sameign okkar sjálfra,
geti tekið á sig meiri útgjöld,
hvorki vegna fiskverðsbreytinga
eða annarra breytinga. Við
heyrum og sjáum að þjóðir i kring
um okkur eru að gera harðar ráð-
stafanir nú, oliukreppan er búin
að kosta okkur nokkra miljarða á
hverju ári, við höfum orðið að
sætta okkur við mjög hækkað
verð á innflutningi, en hins vegar
lækkun á velflestum útflutnings-
afurðum okkar.
Kvennaverkfallið:
Hagkaup hótar
málsókn
o
Brunabótafélagið og Búnaðar-
bankinn hóta uppsögnum
Forráöamenn nokk- Forráðamenn Hag-
urra stórra fyrirtækja kaups h.f. hafa hótað
hafa brugðist ókvæða þvi að hefja mál á
við kvennaverkfallinu. hendur þeim konum,
sem leggja niður vinnu
hjá fyrirtækinu 24. Á
þann hátt hyggjást þeir
ná aftur tapinu vegna
óþæginda sem af verk-
fallinu leiða. Eitt opin-
bert fyrirtæki og banki
hafa hinsvegar gengið
svo langt að hóta upp-
sögnum vegna verk-
fallsaðgerðanna. Þar
er um að ræða Bruna-
bótafélag íslands og
Búnaðarbankann.