Þjóðviljinn - 19.10.1975, Qupperneq 9
Sunnudagur 19. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Það er ægilega langt siðan unga
vegriddara á tslandi hætti að
dreyma um stælta gæðinga, hesta
sem fleyttu þeim yfir móa og
mýrar og gerðu ofurmenni úr
veslingum þeirra — bill er i stað
hests núna, en riddaranum bak
við stýrið gengur það sama til og
þeim i hnakknum: að upphefjast
á einhvern hátt,. i stað hetju i
brynju með hjálm og höggsverð,
er kominn unglingur i leðurjakka
með sigarettu og bensingjöfin er
vopn hans.
Við sjáum þá geysast á marg-
falt ólöglegum hraða eftir mal-
bikinu, farartækin eru af ýmsu
tagi, en hestöflin mörg og ef tekst
að róa taugakerfi unglinganna
um stund, fá þá til að tala svolitið
um sjálfa sig, þá veita þeir verð-
mætar upplýsingar um felgu-
stærð, hjólbarðavidd, spyrnu-
kraft, blöndungsop og fjöðrunar-
búnað hinna ýmsu bila og hvernig
þessi einstaklingur bilaflotans
eða hinn er álitinn bregðast við
veltu, aftanákeyrslu, hliðarskelli
eða einhverju þvi öðru sem fyrir
bifreiðir getur komið.
Sumir unglingar hafa á eim
hvern hátt, t.d. með vinnu, komið
höndum yfir fjársjóði sem þeir
breyta i bila og aka svo hreyknir
hjá. En mjög margir eignast ekki
bila, ekki heldur mótorhjól og
standa vonsviknir við vegkantinn
þegar keppnin stendur — en fá
áður en langt liður önnur áhuga-
mál.
Manndómsmerkiö
En biladella gripur ekki aðeins
börnin. Fullorðið fólk ver líka
tekjum sinum og tima i að eltast
við bila, tala um bila, dreyma um
bila — og aka i bilum.
Það er svolitið gaman að fylgj-
ast með fordildinni kringum bila
fullorðna fólksins. Unglingarnir
skreyta sina bila, reyna að mála á
þá þann glæsibrag sem kannski
er ekki upphaflega fyrir hendi.
Fullorðna fólkiö kaupir sér glæsi-
braginn eða settleikann eða ,,ele-
gansinn”.
Það er greinilegt, að i heimi
hinna fuílorðnu er bill mann-
dómsmerki. Það er vitanlega
verkefni fyrir sálfræðinga að
fjalla ýtarlega um manndóms-
merkið, en það er af ýmsum á-
stæðum sem menn leggja mikið
upp úr bil.
Auðugur maður, t.d. læknir eða
lagarefur, heildsali eða bygg-
ingameistari berst sennilega ekki
tiltakanlega á. Hann byggir sér
reyndar kastala utan um eigin
kropp, gerir sér voldugt hús, fær
sé mikla loðkápu og svo verulega
dýran bil, t.d. benz, range rover,
kádiljálk osfrv. Þegar þessi mað-
ur ekur um göturnar, þá sjá hinir
borgararnir að þar fer maður
sem slægur er i: Hann hefur há
laun.
Svo er það blekkingameistar-
inn. Sá fýr er að mörgu leyti
skemmtilegur. Hann hefur bara
venjuleg laun, kannski varla það,
en er hagsýnn. Kannski þarf hann
ekki að halda uppi heimili, slepp-
ur við að kaupa sér hús, og i stað-
inn ekur hann i Arnarnes-dreka
eða Laugarás-kagga. Þessi
dellufýr er afarforvitnilegur fyr-
ir sálfræðinga og hver man ekki
IIEOP IM 1 l.rl*
__ _
eftir kenningunni um stutta lók-
inn.
Að græða á bílum
Múgamaðurinn á Arnarnes-
drekanum þarf hinsvegar ekki að
vera komplexeraðri en læknirinn
á range rovernum eða skátinum.
En hann elur með sér óraunsæja
drauma um að hann komist i
þeirra félagsskap. Hitt er svo eins
iiklegt að manndómsmerki
læknisins sé bill en ekki limur
frjór.
Meðal töffara á tslandi ganga
stundum sögur um ævintýralega
keppni einhverra manna i bilavið-
skiptum. Það eru sagðar endal.
sögur af einhverjum slánum
sem hafa kept bil fyrir sama og
ekkert, lagfært hann svolitið,
kannski bónað, og siðan selt fyrir
þrefalda þá upphæð sem þeir
keyptu á.Það er sagt að fornald-
arnáungar eins og einhver Batti
rauði og Kristinn Finnbogason
hafi orði rikir á þessu. Og hver
vill ekki reyna? t ótrúlega mörg-
um bilskúrum eru ungir menn nú
að bóna bila eða sjóða i ryðgöt,
pússa og mála yfir skellur.
Kannski setja þeir teppi á gólfin
og jafnvel gamla loftnetsstöng á
brettið og sú nöturlega skitu-
beygla sem ýtt var inn i skúrinn
er orðin að ásjálegu tæki — og hún
selst!
Allt er keypt
í svo litlum bæ sem Reykjavik
er, virðist vera ótrúlegur fjöídi af
mixurum — mönnum sem lag-
færa bilskrjóða og selja siðan, eða
mönnum sem endalaust reyna að
halda lifi og hestöflum i gamalli
blikkbelju.
Mixaraherinn er vitanlega til-
kominn af þvi, að nýir bilar eru
geirslega dýrir, (geirslega er at-
viksorð, myndað af nafninu Geir
Hallgrimsson, einum auðugasta
bilainnflytjanda hér á landi) það
fæst hér varla brúklegur bill und-
ir 1.2 miljónum vegna hinna
hrikalegu tolla sem lagðir eru á
bifreiöar.
Mixararnir hafa ýms spjót úti
til að ná sér i „hráefni” gamla
skrjóða til að lagfæra. T.d. er
upplagt að fara á uppboð.
Fyrir hálfum mánuði eða svo,
var haldið uppboð á bilum á veg-
um einhvers opinbers aðila,
kannski borgarfógeta. Uppboðið
fór annars vegar fram við Vöku-
portið i Artúnshöfða en hinsvegar
vestur i Ánanaustum.
Af auglýsingunni i dagblöðun-
um var ekki annað að sjá en það
sem fógeti væri að selja, væru
nothæfir bilar, sumir nýir, eig-
endur þeirra hefðu að likindum
farið á hausinn og borgin nú að
gera sér mat úr þrotabúinu.
En það var ekkert af þvi taginu,
sem auganu mætti i þvi óyndis-
lega umhverfi i Artúnshöfðanum.
A þessum stað, sem eitt sinn var
fegursti staðurinn i landi Reykja-
vikur, er nú bara drasl. Og það
sem fógeti var að bjóða upp, voru
einhverjir fyrrverandi bilar sem
voru komnir nær þvi að breytast i
fornaldarófreskjur, en að fáfróð-
um manni um bila, dytti i hug að
þeir ættu eftir að bruna eftir
Miklubraut.
Sægur mixara safnaðist um bil-
flök sem voru að byrja að hverfa
ofani jörðina.
Uppboðshaldarinn hafði fyrir
sig ungan skrifstofumann sem
gerði sig embættismannslegan i
fasi, og hafði hamar i hönd sér,
litinn hamar sem hann hefur
sennilega fengið að láni úr
mekkanói sonar sins.
Og menn buðu i svartan
chevrolet, eitthvert fyrrverandi
salatfat frá löggunni og kaupand-
inn fékk það á sex þúsund krónur.
Litill fiat sem greinilega hafði dá-
ið voveiflega fór á 6.500 krónur
og blaðskrifari þessi leit hissa
upp á kaupandann. Að visu eru
6.500 krónur ekki há fjárhæð — en
þó svona 10% af mánaðarlaunum
barnakennara.
Sérðu ekki hvað sætin i honum
er góð, sagði mixarinn sem nú
átti gamlan fiat, og fyrirlitningin
i rödd hans leyndi sér ekki.
I Ananaustum voru uppboðsbil-
ar aðeins borubrattari, stóðu t.d.
allir á fjórum dekkjum og sæg
mixara dreif þar að og sumir
voru jafnvel með vonarglampa i
augum þar sem þeir studdu hönd
á svona tvitugan volkswagen,
rauðan og allryðgaðan og sumir
beindu jafnvel augum að hérum-
bil gangfærum fiat sem ljóslega
bar af I þessum flokki. Sá bill var
lika seldur á 20 þúsund og þótti
gjafverð.
óbilfróður maður á borð við
blaðamanninn hefði sjálfsagt gef-
ið þeim manni 20 þúsund sem
vildi taka hræið af höndum hans,
en svona er misjafn smekkur
manna og útsjónarsemi. Kannski
hafa þeir byrjað svona, Batti
rauði og félagar. Kannski endar
fiatkaupandinn i Arnarnesvillu og
glens
Útfararstjóri einn i Cavan var
mjög gramur yfir þvi, að keppi-
nautur hans hafði fengið að ann-
ast útför þekkts manns þar i borg.
Þegar jarðarförin fór fram hjá
sagði hann við vin sinn:
— Ef að maöurinn i likkistunni
væri á lifi, þá væri það ég sem
fengi jarðarförina hans.
Ein handan járntjaldsins:
Arið 1960. Maó sendi skeyti i
örvæntingu sinni til Krúsjoffs:
,,Við sveltum! Sendið korn!”
Krúsi svaraði: „Eigum ekkert
umframkorn. Reyrið mittisólarn-
ar fastar.”
Hann fékk snarlega svar:
„Sendið tvö hundruð milljón
mittisólar — hvað sem það nú
er!”
Foreldrarnir voru af frjáls-
lvndu sortinni og voru að fara i
samkvæmi, þegar elsti sonur
þeirra sneri sér að pabba sinum
og sagði:
á Laugarás-kagga og hreykir sér
hátt.
Bílasölur
I stærri bæjúm á Islandi,
Reykjavik, Akureyri, Hafnarfirði
og kannski viðar, eru bilasölur
margar. Sumir biladellumenn
skipta stöðugt um bila, bilakaup-
in eru þeim nauðsynlegur liður i
útrás dellunnar.
Það eru vitanlega þessir dellu-
menn sem halda bilasölufyrir-
tækjunum uppi. En vegna þess að
hér á landi hefur aldrei tiðkast aö
menn gengu á kaffihúsum eða
krám og ræddu þar áhugamál sin,
þá hittast biladellumenn mjög oft
á hinum fjölmörgu bilasölum i
bæjunum. 1 Reykjavik eru svo
margar bilasölur, að það er dags-
verk fyrir áhugasaman að fara á
milli þeirra allra, hitta menn og
bila, gera lausleg tilboð og velta
vöngum.
Talsverður fjöldi manna hefur
það að tómstundagamni i- iðju-
leysi, að hanga á bilasölum. Kall-
ast á kersknisyrðum eða brönd-
urum við sölumenn, skoða þá bila
sem komið er með til að selja,
gera jafnvel tilboð, en kaupa yfir-
leitt aldrei neitt, vegna þess að
fjárhagurinn er ekki á Arnarnes-
mælikvarða.
Það er eins misjafnt og menn-
irnir eru fjáðir, hvernig þeir
kaupa bila. Rikssbubbar kaupa
kannski bil árlega af umboðs -
sölu og greiða út i hönd. Aðrir'
safna fé af þrautseigju og kaupa
sér nýjan bil á fimm eða tiu ára
fresti. Og sennilega eru þeir
næsta fjölmennir, sem þannig
fara að. En allir þurfa að losna
við gamlan bil, þegar þeir fá sér
nýjan. Ýmiss gangur er á þvi,
hvernig menn greiða notaða bila
sem fást á bilasölum.
Algengt mun vera að 60-80%
kaupverðsins séu greidd út, en af-
ganginn fá menn lánaðan mis-
jafnlega lengi, kannski i heilt ár,
en sjaldan lengur.
Peningalitill maður, sem remb-
ist við að kaupa bil á 600 þúsund
eða svo (góður bill mun vart mik-
ið ódýrari) nær kannski að aura
saman tvö til þrjú hundruð þús-
undum. Það sem á vantar i út-
borgun, eitt til þrjú hundruð þús-
und, reyna menn að fá að láni og
samþykkja þannig gjarnan vixla
fyrir 50 eða 70% af bilverðinu. Af-
ganginn greiða þeir siðar, og
njóta við það aðstoðar verðbólg-
unnar.
Endalaus draumur
Frá blautu barnsbeini skriða
tuttugustualdarbörnin með hönd-
ina kreppta um bil sinn. þau reka
tunguna út i munnvikið og puðra
og urra, likja eftir vélarhljóði.
lenda i margvislegum ævintýrum
með bila sina og ævintýraheimur
ungu bilstjóranna er eins og raun-
veruleiki þeirra eldri. Þegar bila-
draumur unglingsins verður
raunverul, heldur hann áfram að
spinna ævintýrasögu sina, horfir
á bil sinn daginn langan og vill
betri bil, stærri bil, öflugri bil....
en til hvers?
—GG
— Heyrðu pabbi, ef þetta er ein
af þessum konuskiptaveislum
sem þið eruð að fara i, reyndu þá
að finna þér einhverja sem getur
lika eldað mat.
— Loksins! Eftir langa mæðu
tókst mér loks að fá Ellu til að
segja já!
— Til hamingju, gamli vin!
Hvenær verður svo brúðkaupiö?
— Hvaða brúðkaup?
Gamli Mac frá Aberdeen var
kominn heim eftir tveggja vikna
ferðalag til Lundúna. Við grind-
verkið að lóð nágrannans sagöi
hann frá ferðinni:
— Ég fer sko ekki til þessarar
borgar aftur! Hugsaðu þér bara!
Ég bjó á gistiheimili i Earls Court
og það leið ekki sú nótt allan tim-
ann, að ekki væri barið á dyrnar
hjá mér um tvöleytið og sægur
fólks stæði fyrir utan og hellti yfir
mig fúkvrðum!
— Og kvartaðirðu ekki!
— Það er ekki til neins að reyna
að ræða við svona fólk! Ég hélt
bara áfram aðspila á sekkjarpip-
una mina og lét sem ekkert
væri...