Þjóðviljinn - 19.10.1975, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 19.10.1975, Qupperneq 11
,Sunnudagur 19. októbcr 1975. ÞJÓÐVILAINN — S ' \ 11 konfektkassamálarar. Hjá þessum hættum sneiðir Frida léttilega. Hún er dýpri og merki- legri persóna en flestirhinna, hún sækir myndefni sitt i reynslu og tilfinningalif sem er feikilega persónulegt, Og kannski mætti gera þá samlikingu, að hún opni sér æð þegar margir súrrealist- anna eru að kreista blóðdropa undan nögl. Frida sækir mynd- efni sitt i þau lög vitundarinnar sem flestum eru bannsvæði, hún gengur innum dyr sém alla jafna eru harðlæstar. Og það eru þvi likaast, að hún rekist ekki á neina hindrun á þeim óravegi sem hún flytur myndtáknin um. Það er merki snilligáfu henar. Sjálft myndmál Fridu er fljótt á litið einfalt. Það er raunsætt, og þjóðlegt að þvi leyti að það sækir til innlendrar hefðar og náttúru: myndbyggingin er hrin og augljós. Temun eru hinsvegar margslúngin. Dagbækur Fridu er kapituli útaf fyrir sig. Þar er að finna athyglisverðar heimildir um bak- svið hennar, andlega liðan og list- rænar viðmiðanir. Og bækurnar eru fullar upp með myndlist. Blýants- og vatnslitaskissurnar eru sumar hverjar mögnuð myndlist, og standa næst stlrrealismanum af verkum Fridu. Innanum i bókunum eru tilraunir Fridu til að skrifa ljóð. Beitir hún þar sjálfvirkri skrift eins og mjög var i tisku, raðar saman orðum sem standa ekki I rökréttu samhengi, en mynda þegar á heildina er litið merkingarlegar samfellur. Af dagbókunum má greinilega ráða að gildismat og skap Fridu leyfðu ekkert vil. Þó er það greinilegt að oft hefur gripið hana örvænting sem henni veitist erfitt að sigrast á. Á einum stað er mynd af manneskju i upplausn. Á myndinni stendur skrifað: ,,Yo soy la desintegración”. Ég er upplausnin. Og margur maðurinn hefði áreiðanlega lagt upp laupann i sporum Fridu Kahlo um það bil sem.hún festir þessa mynd og þessi orð á blað. Þá hafði nýlega verið tekinn af henni fóturinn. Hún minnist varla orði á aðgerðina, en i dagbókina teiknar hún mynd af fæti sem grænir sprotar teygja sig uppúr. Og á grænan borða, sem ennþá hángir i svefnherbergi hennar, hefur hún málað þessi orð: ,,Tré vonarinar, vertu staðfast”. Frida skrifar á einum stað: „Skoðaður úr fjarlægð, er harm- leikurinn einhver fáránlegasti fylgifiskur mannkynsins”. Frida leitaðist alla tið við að lita á eigin harmleik úr fjarlægð, hún leitaðist við að varpa honum á léreftið og skoða hann þar hlutlægt. Myndir- hennar eru vottur um að einungis með þvi móti að kannast við ótta sinn geta menn tekist á við hann og yfirstigið á félagslegum grundvelli. Stuðst við ritgerð Teresu Del Conde um Fridu Kahlo SÖGUR AF ÍRUM Enn spyrjum við Sean McCann hvað hann hafi í pokahominu um landa sina, ira. Fyrst koma nokk- ur ummæli sem höfð eru eftir framámanni einum sem Boyle Roche hét, sir að nafnbót. Hann sat á þingi. x Hr. forseti, hvernig gæti ég ver- ið á tveim stöðum i einu nema ég væri fugl? x Helmingurinn af þeim lygum sem andstæðingarnir segja um okkur eru ekki sannar. x Ég hefði átt að svara bréfi yðar fyrir hálfum mánuði, en ég fékk það ekki fyrr en i morgun. x Ógæfan er aldrei ein á ferð og versta ógæfa dregur venjulega á eftir sér enn verri. x Meðan ég rita þetta held ég á sverði i annarri hendi og skamm- byssu I hinni. x Út Ur þjáningakaleik Irlands' hefur flóð öldum saman og hann er ekki fullur enn. x Meðfram hinum ótroðnu braut- um framtiðarinnar sé ég spor eft- ir óséða hönd. x Sir Boyle gekk með fótarmein og þurfti að láta sniða sér sér- staka skó. Hann húðskammaði skósmið sinn með svofelldum orðum: —- Þú ert ljóti andskotans tré- hausinn, gerir þveröfugt við það sem þér er sagt. Ég sagði þér að láta annan skóinn vera stærri en hinn, en þess i sað hefur þú látið annan vera minni en hinn. BASAR----------------- í dag kl. þrjú er basar í félagsheimili Bústaðakirkju Handunnir munir, barnaföt, lopavörur og ýmis fatnaður á góðu verði Lukkupokar fyrir börn Komið tímanlega Foreldrasamtök barna með sérþarfir (Áður Foreldrafélag fjölfatlaðra barna) Pappírsfjöll og lög- Pappfrsfjallið vex undir Gösta Skoglund, sem stjórnaði tilraunasöfnum á notuðum pappír i Stokkhólmi. gjöf Það er ágætt að sam- þykkja góð lög/ en það er ekki alltaf jafn auðvelt að fylgja þeim eftir. Þann fyrsta júlí áttu að ganga í gildi lög sem kveða svo á, aðbæjar- og borgarstjórnir í Svíþjóð eigi að safna not- úðum papír og dagblöðum frá heimilum og skrifstof- um og setja þau í endur- vinnslu. Lög þessi eru að sjálfsögðu tengd umræðu um umhverfisvernd og andúð á þeirri sóun og mis- notkun á skógum sem kemur fram i pappírs- bruðli. En samkvæmt laganna bókstaf — sem bæjarstjórnir létu ekki alltaf svo litið að lesa — áttu að- eins þau bæjarfélög að vera skyldug til að sinna sinum papp- irsskyldum, sem höfðu tæknilega möguleika á þvi. Fram til þessa dags er það að- eins bærinn Harnösand i Norður- Sviþjóð, sem hefur tekist að lifa i anda laganna bókstafs. Tilraun var gerð i þá veru að safna pappir frá 47.000 heimilum i úthverfum Stokkhólms — sem hvert um sig hendir um tveim kg. af pappir á dag — og nam árangurinn 110 tonnum á einummánuði. Mark- aðsverð fyrir notaðan pappir er aðeins fimm aurar sænskir (1 kr. 80 Isl.) og þvi sitja margar bæjar- stjórnir bara á sinum pappirs- fjöllum og velta þvi fyrir sér hvort það taki þvi að skipuleggja flutning á pappirnum til endur- notkunarverksmiðja. Og á meðan setið er, læsir taugastrekkingur sig um slökkviliðsstöðvarnar sem óttast að eldur kunni að komast i birgðirnar. (Sweden now) VIÐ HOFUM MEIRA EN 70 i1" ---- f FRAMLEIÐSLLI VELA FYRIR HÖRKU ÁLAG OG LANGA NOTKUN Fjöldi framsýnna útgerðar- og skipstjórnarmanna hafa valið Wichmann vélar í skip sín á undanförnum árum. Það er ekki tilviljun að skip með Wichmann vélar eru ár eftir ár í röðum topp skipa. Eftirtaldir skuttogarar eru búnir nýju AX vélunum: mt. Bessi Súðavík Gerð 7AX 1750 hö mt. Björgvin Dalvík , — — mt. Framnes Þingeyri — — mt. Guðbjartur ísafirði — — mt. Gullver Seyðisfirði 5AX 1375 hö mt. Krossvík Akranesi 6AX 1500 hö mt. Stálvík Siglufirði 7AX 1750 hö mt. Skapti Sauðárkróki 6AX 1500 hö mt. Runólfur Grundarfirði 7AX 1750 hö Nýsmíði f. Dalvík/Slippstöðin 7AX 2100 hö Ennfremur cru eftirtalin nótaskip búin AX vélum: mb. Gullberg. Vestmannaeyjum gerð 5AX , 1250 hö mb. Huginn — — — mb. Árni Sigurður Akranesi — — mb. Skarðsvík Hellissandi — — Ennfremur eru um 40 skip búin öðrum gerðum Wichmann véla. Við reynum að leggja okkur fram hvað varðar alla þjónustu. 160 síðna leiðbeiningabók á íslenzku fylgir AX vélunum. Við höfum sérþjálfaðan vélstjóra sem áv.allt er til reiðu. — Varahlutalager Wichmann hér á landi losar 30 milljónir króna. Útgerðarmenn, traust vél er styrk stoð undir gengi útgerðarinnar. Leitið upplýsinga, athugið hvað Wichmann getur gert fyrir yður. Við getum afgreitt vélar í stœrðunum 875—2700 hestöfl með stuttum fyr- irvara, mjög hagkvœmt verð. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti 10A • Símar 21565-16995 • Telex 2119

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.