Þjóðviljinn - 17.12.1975, Page 5
Miövikudagur 17. desember 1975. ÞJóDVILJINN — SIÐA 5
Hægri öflin
taka völdin
Reyndust vel undirbúin
þegar tœkifœrið gafst
A þeim þremur vikum sem
liðnar eru frá „valdaránstil-
raun” vinstrisinnaðra hersveita
i Lissabon hafa miklar breyt-
ingar oröið i portúgölsku þjóð-
lifi. Vonir verkalýðs og annarra
róttæklinga um snögg umskipti i
sósialiska átt hafa slokknaö og
ekkert lát virðist vera á þróun-
inni til hægri.
Aður en fallhlifarhermenn
létu til skarar skriða, rikti að
þvi er virtist valdajafnvægi
milli vinstri- og hægriaflanna.
Hægrimenn biðu eftir herhvöt
vinstrimanna og öfugt. Enginn
vildi verða fyrstur til að gripa til
vopna þvi sá sem það gerði átti
mikla mótspyrnu visa. Ef
marka má frásagnir vestrænna
fjölmiðla sprungu vinstriöflin á
limminu og blésu i herlúðra. En
er það svo vist að sú mynd sem
þeir draga upp sé rétt? Um það
efast margir.
Skipulagning
hófst i sumar
Meðal þeirra efagjörnu eru
fréttamenn bandariska viku-
ritsins Newsweek. Þeir vilja
halda þvi fram að valdaránstil-
raunin hafi ekki einasta verið
hægriöflunum kærkomin átylla
til að hefja gagnsókn gegn þeirri
öldu verkfalla og óhlýðni innan
hersins sem reis hæst með verk-
fallsboðun Ázevedos forsætis-
ráðherra. Hún hafi beinlinis
veriö skipulögð fyrirfram af
hægriöflunum. (I Newsweek
eins og öðrum vestrænum fjöl-
miðlum heita hægriöflin
„moderates” eða „hinir hóf-
sömu”.)
Að sögn blaðsins höfðu hinir
niu hægfara herforingjar i bylt-
ingarráðinu undir forystu Melo
Antunes utanrikisráðherra
skipulagt dulbúið valdarán frá
þvi i sumar en verulegur
skriöur komst á undirbúninginn
hálfum öðrum mánuði áður en
fallhlifarhermenn hófu að-
gerðir. Þá byrjaði Antonio
Ramalho Eanes höfuðsmaður
að kalla saman fulltrúa heirra
herdeilda sem treysta mátti til
þess að samræma aðgerðir
þessara deilda þannig að ef til
átaka kæmi væri hægt að flytja
þær til Lissabon með engum
fyrirvara.
Þegar svo tækifærið gafst
kom i ljós að hægriöflin voru við
öllu búin. Þegar hinir léttvopn-
uðu fallhlífarhermenn fóru á
stjá tóku heilar deildir orrustu-
og flutningaflugvéla sig á loft i
norðurhluta landsins og fluttu til
Lissabon á stuttum tima tuttugu
skriðdreka og um þúsund þraut-
þjálfaða hermenn undir stjórn
Jaime Neves liðþjálfa- sem öðl-
ast hafði frægð fyrir grimmd i
nýlendustriðinu. Þegar nóttina
fyrir 25. nóvember höfðu stjórn-
arhollir hermenn komið sér
fyrir á hernaðarlega mikilvæg-
um stöðvum i höfuðborginni,
einkum i nágrenni herlögregl-
unnar sem þótti vel róttæk.
Þessum sveitum reyndist auð-
velt að þagga niður i uppreisn-
armönnum og afvopna þá.
Annað bandariskt vikurit,
Time, tekur hins vegar gagn-
rýnislaust undir fullyrðingar
hægrimanna i portúgalska
hernum um að uppreisn fallhlif-
arhermannanna hafi verið liður
i viðtækri áætlun vinstriaflanna
um að taka völdin i sinar hend-
ur. Hafi Kommúnistaflokkurinn
og róttækir herforingjar eins og
„Rauði aðmirállinn” Rosa
Coutino og Carvalho verið með i
ráðum. Þeir hafi hins vegar
dregið saman seglin á siðustu
stundu þegar allt stefndi i óefni.
Við þessa kenningu er ýmis-
legt að athuga. I fyrsta lagi er
það þátttaka kommúnista.
Fram að 25. nóvember rikti
klofningur milli hópanna yst til
vinstri og kommúnista, einkum
um þátttöku þeirra siðarnefndu
i stjórninni. Hvorugur aðilinn
hefði lagt út i uppreisn án þátt-
töku hins.
Annað atriði er að uppreisn
fallhlifarhermanna hlaut engan
stuðning annarra róttækra her-
sveita. Eftir að þeir tóku sjón-
varps- og útvarpsstöðvarnar
hvöttu þeir verkamenn til að
gripa til vopna og leiða bylting-
una til sigurs. Fjöldi verka-
manna tók þessari áskorun og
skundaði til herbúða þar sem
þeir þóttust vissir um að fá vopn
og ráðleggingar. En hlið her-
búðanna voru lokuð og engin
vopn fáanleg. Ekki bólaði held-
ur á þeim 30 þúsund rifflum sem
sagt var að róttækir hermenn
hefðu dreift til alþýðu manna.
Siðast en ekki sist ber að
benda á að atburðirnir virðast
hafa komið vinstriöflunum al-
gerlega i opna skjöldu. Þegar
uppreisnin hófst sneru verka-
mannaráðin sér fyrst til verka-
lýðsfélaganna og spurðu hvað til
bragðs ætti að taka. Þar fengu
þau engin svör. Þá leituðu þau
til stjórnmálasamtakanna á
vinstri vængnum en þar fengust
heldur engin svör.
Ofsóknir hafnar
Þessi samtök virtust heldur
engin svör eiga eftir að upp-
reisnin hafði verið bæld niður og
hinar viðtæku hreinsanir og of-
sóknir á vinstrimönnum hófust.
Dagana fyrir 25. nóvember voru
vinstriöflin fær um að virkja
tugi og jafnvel hundruð þúsunda
verkamanna og menntamanna i
verkföllum og mótmælaaðgerð-
um, en þegar svara þurfti fyrir
sig, virtist engin leið að draga
neinn út á göturnar.
En hvort sem atburðirnir
gerðust að undirlagi hægriafl-
anna eða ekki stóðu þau uppi
með pálmann i höndunum eftir
að kyrrð komst á. Viðbrögðin
voru lika mjög i anda hægriafl-
anna að þvi undanskildu að
blóðbað varð ekkert. Costa
Gomes lýsti yfir neyðarástandi
strax eftir að uppreisnin hófst. í
krafti þess var útgöngubann
sett á, dagblöðin stöðvuð, þagg-
að niður i útvarpsstöðvum og
handtökur hafnar.
Eftir að uppreisnin hafði verið
Hæld niður hófst svo öflug sókn
hægriaflanna. Allir róttækir
herforingjar voru reknir úr
valdastöðum i hinum ýmsu
stofnunum hersins. Yfir 100 her-
foringjar og óbreyttir hermenn
voru handteknir og fluttir i ör-
uggt fangelsi i Oporto. Aðrir
fara huldu höfði og enn aðrir
hafa flúið land. Róttækum emb-
ættismönnum hefur verið vikið
úr stöðum sinum, ráðuneytin
hreinsuö. Forystumenn sam-
Jaime Neves höfuðsmaður;
reyndist hægriöflunum jafn-
traustur á strætum Lissabon
sem i frumskógum Afríku.
taka á vinstri vængnum sæta of-
sóknum og útlendum róttækl-
ingum sem fjölmennt höfðu til
landsins undanfarna mánuði
er visað úr landi.
Siðast en ekki sist hafa þau
dagblöð sem eru i rikiseigu ver-
ið stöðvuð. Mörg þeirra, t.d. 0
Seculo og Diario de Noticias,
voru i eigu banka þar til þeir
voru þjóðnýttir i mars sl. Þá
tóku starfsmenn þeirra þau
mörg hver á sitt vald og héldu
útgáfunni áfram en með nokkuð
róttækara yfirbragði. Nú blasir
atvinnuleysið við stórum hluta
starfsmanna blaðanna, þeir
verða reknir vegna róttækra
skoðana sinna. í stað þeirra
verða ráðnir nýir menn sem
yfirvöld treysta til að túlka
skoðanir sinar. Sömu sögu er að
segja um útvarps- og sjónvarps-
stöðvar i Lissabon sem flestar
lutu stjórn starfsmannaráða.
Þær voru allar þjóðnýttar utan
ein: Radio Renascensa sem ka-
þólska kirkjan endurheimti
(hún getur þó ekki hafið útsend-
ingar i bráð þvi stöðin var
sprengd i loft upp til að hamla
gegn „öfgaáróðri róttækra”
starfsmanna eins og kunnugt er
af fréttum). Þrátt fyrir þetta
hafa vestrænir fjölmiðlar sem
voru að tútna út af ást á tjáning-
arfrelsinu meðan Republica-
málið var á dagskrá þagað
þunnu hljóði og ekki hefur frést
af neinum undirskriftasöfnun-
um til varnar frelsinu. Það er
greinilegt að það á ekki að ná til
allra...
Hvað verður um
kommúnista?
Nú eru ráðandi öfl i Portúgal
staðráðin i að „þróa bylting-
una” eftir leiðum hins borgara-
lega lýðræðis. En eitt er það
sem menn eru ekki sammála
um: hvað á að gera við Komm-
únistaflokkinn? Sósialistar vilja
að þeir verði áfram i stjórn, það
sést á ummælum Melo
Antunesar þegar hann sagði að
kommúnistar ættu enn hlut-
verki að gegna i stjórnmálalifi
'.andsins. Sósialistar vita sem er
að kommúnistar eiga það mikil
itök i verkalýðsstéttinni að ekki
yrði stætt á að svipta þá öllum
völdum.
Lýðdemókratar virðast vera
að klofna i afstöðu sinni til
kommúnista. A þingi flokksins
fyrir skömmu gekk fjórðungur
fulltrúa af fundi eftir að hægri-
armurinn undir stjórn for-
mannsins Sa Carneiros hafði
hafði fengið samþykkta ályktun
um að vikja bæri kommúnistum
úr rikisstj. Hægriöflin i
flokknum geta reitt sig á stuðn-
ing miðdemókrata og annarra
afla enn lengra til hægri. Um
það vitnar eftirfarandi tilvitnun
i Antonio Vasco de Melo for-
mann samtaka iðnrekenda: —
Kommúnistar eru enn við völd
stærstu verkalýðssamtökunum
og þeir sitja enn i stjórninni.
Meðan þetta ástand rikir eiga
engar fjárfestingar sér stað
Portúgal. —ÞH
/
Munió aó viÖ höfum
afar fjölbreytt
úrval jólagjafa.-
Instamatic myndavélar, 3 gerðir
Vasamyndavéiar, 5 gerðir
Margar gerðir hinna heimskunnu myndavéla
frá Yashica og Mamiya
Kodak Ektasound kvikmyndatökuvélar
sem taka upp hljóð samtímis myndatökunni
Kvikmyndasýningarvélar og skoðarar
Sýningarvélar fyrir skyggnur
Stórar myndavélatöskur
Sýningartjöld, 3 gerðir
Þrífætur
Leifturljósatæki, margar gerðir
Litskyggnaskoðarar
Smásjár, 4 gerðir, tilvaldar fyrir unglingana
Sjónaukar, 5 gerðir
Mynda-albúm, afar mikið úrval
Og ekki má gleyma hinum vönduðu
DÖNSKU MYNDARÖMMUM frá Jyden,
þeir eru nú til f meira úrvali en nokkru sinni fyrr.
Munið svo að kaupa KODAK-FILMUNA
og leifturkubbaria tímanlega.
Eftir jólin komið þér auðvitað til okkar meö filmuna og við
afgreiðum hinar glæsilegu litmyndir yðar á 3 dögum.
ávallt feti framar
HANS PETERSENN
BANKASTRÆTI
S 20313
GLÆSIBÆ
S 82590
y
Vinstrimenn! Sósialistar! Kommúnistar!
Horfist í augu við
Horfizt í augu við
STAÐREYNDIR
GEGN LYÐRÆÐI það æðra þvi/ggra stalmða.” FYRIR STJÖRNRÆÐI
Siðara desemberblað komið
á alla blaðsölustaði
SÆNGURFATAVERZLUNIN
VERIÐ
NJÁLSGATA 86 — SÍMI 20-978
Sérverzlun sem veitir
margs konar þjónustu
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Kristín Ingunn Runólfsdóttir
frá Björk á Akranesi
verður jarðsungin föstudaginn 19. þ.m. frá Fossvogs-
kirkju.
Börn, tengdabörn og barnabörn