Þjóðviljinn - 17.12.1975, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 17.12.1975, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 17. desember 1975. OPIÐ BRÉF til Jennu ogHreiðars frá nemendum í íslenskum samtímabókmenntum við Menntaskólann á ísafirði Við undirrituð, nemend- ur í íslenskum samtíma- bókmenntum við Mennta- skólann á (safirði, skorum hér með á höfunda bókar- innar Adda trúlofast, að sjá sóma sinn í því að taka hana af markaðnum nú þegar. Viðhorf okkar er rökstutt í meðfylgjandi greinar- gerð og bendum við sér- staklega á kaflann um uppeldisgi Idi. Virðingarf yllst. Kristinn Einarsson Guðný ísleífsdóttir Dóróthea Jóhannsdóttir Eiríkur Böðvarsson Páll Sveinbjörnsson Valgerður G. Jónsdóttir Elfa Ármannsdóttir Helga María Jónsdóttir Margrét Gunnarsdóttir Katrin Jónsdóttir Greinargerð: ADPA TRÚLOFAST eftir Jennu og Hreiöar (valdir kaflar úr ritgeröum nem- enda). Umhverfi sögunnar Sagan er af Oddu. Hún á heima I kauptúni, sem samanstendur af heimili hennar og sjúkrahúsinu. Hún er i menntaskóla i Reykja- vik, en Reykjavik samanstendur af miðbænum og flugvellinum. (H) Það umhverfi og samfélag sem Adda lifir i er slétt, fellt og fallegt eins og sagan er reyndar öll. Litiö þorp þar sem aldrei gerist neitt allir eru góðir og vingjarnlegir, engir svartir saúðir.. Höfundar vilja gera Reykjavik að sama fyrirmyndarsamfélaginu og heilaspunakauptúnið er, en geta það ekki nema að fara sem minnst út fyrir herbergi Oddu. (D) Umhverfið, það samfélag sem Adda lifir og hrærist i, er mjög ó- fullkomð, reyndar óraunverulegt á flestan hátt. (Ei) Adda lifir i samfélagi þar sem allir eru góðir og reynir hún að vera eins og umhverfið vill hafa hana. (M) Hjónaband foreldra Oddu er fullkomið, á það fellur hvorki blettur né hrukka, frekar en ann- að i bókinni. (G) Hér er tiplað á þvi tæpasta, það er að segja samfélagsmynd full- komleikans. (P) Umhverfi sögunnar er á allan hátt mjög þokukennt. Persónur láta sig umhverfið engu skipta. Þær semja sig að umhverfinu, en reyna engin áhrif að hafa á það. (Kr) Adda kemur ekki umhverfinu við, það hefur engin áhrif á hana, frekar en að hún væri blind og heyrnarlaus. (P) Þarna er sjónarmið, sem ég tel vera mjög vafasamt. Barn, sem fær það inn i höfuðið á sér, að um- hverfiö sé þvi óviðkomandi, er að minum dómi illa á vegi statt. (Kr) Samfélagið er aukaatriði i sög- unni (H) Umhverfis- og náttúrulýsingar eru þvi sem næst engar. (G) Þaö er eitthvað drepið á lands- lagslýsingu, þegar Páll fer dag nokkurn að rúnta með kvenna- búrið sitt. Veðri og tima er lýst nákvæmlega, það virðist vera á- lika mikilvægt og atburðirnir sjálfir. (E) Persónusköpun Persónusköpun er vægast sagt meingölluð. Aðalpersónurnar llða um eins og I þoku og við kynn- umst þeim litið sem ekkert. Aðal persónurnar eru tvær, þ.e. Adda og Páll. Adda er 17 ára gömul, góð, falleg, eljusöm, hlédræg, skilningsrlk, tillitssöm o.s.frv. (Kr.) Hún klæöist alltaf látlausum fötum og stráir gæsku sinni út um allt eins og hrísgrjónum. (E) Adda berst aldrei fyrir neinu, og hún hefur engan sjálfstæðan persónuleika. Hún er vanaföst og þjáist af feimni. (M) Páll er „fyrirmyndar drauma- prinsinn”, sem kemur þeysandi inn á sjónarsviðið á hvitum hesti og reddar öllu... Hviti, hreini og fallegi læknasloppurinn er aðals- merki hans. (E) Páll er hávaxinn, snyrtilegur, augun djúp, mild og blá. Traust- ur, vanafastur, rólegur og kurt- eis. Páll er imynd hins fullkomna manns sins tima. (P) Minna mátti það ekki vera. Bara að ég heföi ekki nema eitt af þessu öllu til að bera, þá væri ég ánægður. (Ei) (Adda og Páll) eru með eins dæmum liflausar persónur, það dettur hvorki af þeim né drýpur alla bókina út I gegn. (G) Samband öddu og Páls er einnig slétt og hrukkulaust eins og þau. Hvergi er minnst á ást i sambandi við þau... Lesandinn fær litla eða enga samúð eða til- finningu fyrir þeim. Þau birtast eins og sálarlaus hylki eða útstill- « ingarbrúður nánast gallalaus og hafin vfir umhverfið. (K) Höfundar treysta börnum ekki til að lesa sögu, þar sem fyrir koma pesónur með flókna per- sónugerð. (Kr) Aukapersónur þær, sem fram koma i bókinni,eru svona til upp- fyllingar. Sumar til að auka spennu bókarinnar, hinar til að leyfa öddu og Páli að njóta sin i „góðverka- og björgunarstarf- semi”. (G) Lamaðir og fatlaðir eru notaðir til að undirstrika umhyggju og hlýju öddu i garð náungans. Sig- rún og Bragi eru notuð til saman- burðar við aðalpersónurnar. (Kr) Gunnar, bróðir öddu, er eina raunhæfa persónan. Hann er svo- litill prakkari, opinn og heil- brigður. (V) Persónurnar eru algerir furðurgripir þrátt fyrir tiðarand- ann.(G) Oröfæri og stíll. Sagan skiptist i fimm kafla, sem allir miða að þvi, að undir- búa lesandann undir endinn... Bygging sögunnar er mjög ein- föld. Hún skiptisti: 1. Inngang, 2 . Miðkafla, 3. endir. Efniviðnum er siðan klesst utan á þessa bygg- ingu. (Kr) Ris sögunnar er þegar skeytið um dauða móður Páls kemur... Efnið I bókinni er útþynnt, þetta er eins og færibandsframleiðsla. Þema bókarinnar er sakleysi. Það er ekki neinn húmor sem gætir, nema þegar Gunnar kaupir mjólkurostinn og lætur öddu borga... (E) Bókin er laus við alla spennu, lesandinn veit allan timann að þau (Adda og Páll) ná hamingju- samlega saman i endann. (D) Sagan er huglæg i gegnum hug Öddu. Höfundur stendur fyrir ut- an en veit allt. (V) Söguþráðurinn liggur eins og bein lina út i gegnum söguna og er eins einfaldur eins og frekast get- ur verið. (P) Still sögunnar er einfaldur, orðaval er liflaust og máliö er þvingað Persónurnar tala ekki saman eins og venjulegt fólk sem þekkir hvert annað. (H) Aldrei er minnst á orðið ást, þó að um eins konar ástarsögu sé að ræða. Adda og Páll virðast vera afskaplega þvinguð og virðuleg i samskiptum sinum af ástföngnu fólki að vera. (D) Ekkert virðist vera lagt upp úr þvi að auka oröaforða lesend- anna, enda hlutirnir alltaf nefndir sömu oröum þrátt fyrir að is- lenskan bjóði upp á fjöldann allan af einföldum góðum orðum. (G) Að minu áliti ættu höfundar bókarinnar að lesa einhverja bók, sem skrifuð er á kjarnyrtri og góðri islensku, I von um að þau gætu aukið orðaforða sinn (3) Uppeldisgildi Bókin Adda trúlofaster i stuttu máli sagt glansmynd af lifinu og liklega skrifuð i þeim tilgangi að búa til allsherjarformúlu fyrir ungar stúlkur til að lifa eftir. (K) Þessa bók má kalla kepnslubók i fyrirmyndar hjónabandsað- draganda. Hér er verið að sýna og kenna ungum stúlkum hvernig þær eiga að haga sér i vali maka og hvernig þær eigi að undirbúa sig sem best undir komandi hjónaband. Þær eiga að sitja i föðurhúsum og læra matseld og hannyrðir til hins ýtrasta. (P) Adda fer i menntaskóla en ætl- ar sér ekkert að nota þá menntun, nema til að halda uppi gáfulegum samræðum við háskólamenntaða vini Páls, þ.e. ef Páll getur eign- ast vini; fullkomleiki hans er þvi- likur. (G) í allri bókinni gefur Páll ekki öddu svo mikið sem einn koss, ekki einu sinni þegar hann dró henni baug á fingur, sem væntan- lega hefur verið gæfuhringur. (Ei) Siðan kemur eins og þruma úr heiðskiru lofti: trúlofunin. Manni dettur nú einna helst i hug maður sem kaupir sér skó en mátar þá ekki... öllu má nú ofbjóöa. Stúlka sem fengi inn i sig svona „grill- ur” yrði fyrir miklum vonbrigð- um, bæði með hana veröld og þá ekki siður mannskepnuna. (G) Sú stúlka, sem læsi þessa bók og reyndi að taka hana sér til fyrirmyndar, myndi hljóta and- legt og likamlegt skipbrot fáum dögum eftir giftingu. (P) Uppeldisgildi sögunnar er ekk- ert... Sagan gefur algjörlega ranga mynd af lifinu. (H) Svona bækur eru einungis til- valdar til þess að ýta undir mis- rétti kynjanna, fordómum á kyn- lifi, læknasnobbi svo eitthvað sé nefnt. (D) Þessi bók er grátlega léleg og ó- raunhæf og fær ekki staðist hvorki þátið, nútið né framtið. (G) Mér finnst það vera mikill á- byrgðarhlutur að gefa út barna- og unglingabækur og ætti að rit- skoða þær rækilega áður en þær eru gefnar út. Ég er alveg hneyksluð á fullorðnu fólki að láta svona frá sér. (V) Ef ungar stúlkur sem lesa bók- ina tækju þetta allt trúanlegt og I- mynduðu sér aö svona gengi þetta fyrir sig, er hætt við að þær myndu biða ægilegt skipbrot seinna á lifsleiðinni. Til að koma i veg fyrir slikt held ég að best væri að fjarlægja bókina af markaðin- um. (E) Þessi bók flytur saklausum stúlkubörnum falskan boðskap og er þar af leiðandi mannskemm- andi, eins og þjóöfélagiö er byggt upp I dag. (P; Skemmd matvæli eru fjarlægð af markaðinum, er þvi ekki rök- rétt að þessi bók fari sömu leið, þvi að hún er mannskemmandi. (Kr) Framhald af 9. siðu. orð hafi verið viðhöfð ... og að þau hafi leitt til þess að Dulles hafi lit ið svo á að óskað væri eftir morði (af hálfu forsetans). I viðræðun- um hafði verið talað að „koma Lumumba fyrir” og þar hafði komið fram „ákaflega sterk til- finning fyrir nauðsyn á beinum aðgerðum”. Ennfremur hefðu engar þær aögerðir verið úti- lokaðar, sem gætu haft það i för með sér að Bandaríkin „losnuðu við” Lumumba. Þegar tilraunirnar voru gerðar til að myrða C'astro, lögðu stjórn- ir þeirra Eisenhowers og Kennedys yfirmáta mikla áherslu á það að grafa undan áliti stjórn- ar Castros og steypa henni af stóli. Skömmu eftir að Castro komst til valda, gaf Allen Dulles fyrirskipun um að „það yrði ræki- lega athugað” hvort ekki mætti „þurrka Castro út”i...Bissell segir svo frá: „Móðursjúkir út af Castro" „Allt þetta timabil var stjórnin óskaplega viðkvæm vegna þess ósigurs, sem stjórnin taldi að Bandarikin hefðu beðið þegar innrásinni i Svinaflóa var hrundið, og vildi neyta allra bragða til að losna við Castro.” Annar CIA-maður segir að ein- hverptima haustið 1961 hafi Bissell verið ... húöskammaður i ráðu- neytisherbergi Hvita hússins. Þeir sem skömmuðu hann voru bæöi forsetinn (Kennedy) og dómsmálaráðherrann (Robert Kennedy). Þcir sögðu við hann, að hann sagði, að hann sæti bara á rassgatinu og gerði ekkert til þess að losna við Castro og stjórn hans.” Landsdale hershöfðingi upp- lýsti stofnanirnar, sem hlut áttu að Operation MONGOOSE (dul- nefni á einni aðgerðinni gegn Castro) um að þær væru i „striðs ástandi og við höfum fullt umboð til aðgerða samkvæmt þvi.” McNamara, þáverandi varnar- málaráðherra, staóiesti að „við vorum beinlinis móöursjúkir út af Castro á tima Svinaflóainnrásar- innar og upp úr þvi.” Margar þeirra áætlana, sem voru ræddar og oft samþykktar fólu i sér ofbeldisaðgerðir gagn- vart Kúbu. Sú aðgerð sem leiddi af sér Svinaflóainnrásina, var meiriháttar árás, að vissu marki á vegum hersins, og hún hafði verið samþykkt af æðstu stjórnarembættismönnum, þar á meðal tveimur forsetum (Eisen- hower og Kennedy). Eftir það hvatti Kennedy dómsmálaráð- herra Sérhópinn (Special Group) ofsalega og sagði að „lausn Kúbuvandamálsins hefði algeran forgang i dag,” og að „hvorki skyldu til þess sparaðir pening- ar, timi, tiiraunir eða mannafli.” Dómsm álaráöherrann sýndi persónuiegan áhuga á að afla manna til þessara aðgerða og skapa möguleika á Kúbu sjálfri, mælti stundum með einstökum kúbönum við CIA sem hugsanleg- um liðsmönnum og hitti sjáifur bæði I Washington og Florida kúbanska útlaga, scm voru virkir í ieynistriðinu gegn stjórn Castros. Rætt um aö eitra fyrir kúbanska verkamenn Operation MONGOOSE fól meðal annars i sér að reyndur yrði áróður og skemmdarverk til að spana kúbönsku þjóðina til uppreisnar gegn Castro. Meðal þeirra aðgerða, sem æöstu stjórn- málamenn tóku til athugunar, var að gera verkamenn á sykurekrum Kúbu óvirka um uppskerutimann með þvi að nota gegn þeim eiturefni, sprengja upp brýr og iðjuver, fremja skcmmdarverk á vörum, ætluð- um Kúbu, i öðrum löndum, jafn- vcl rikjum sem voru I bandalagi við Bandarikin og gera árásir á iðjuver, námur og hafnir.... Snemma árs 1961 var McGeorge Bundy (einn æðstu manna i stjórnum Kennedys og Johnsons) upplýstur um áætlun CIA þess efnis að skapa mögul. til morða (á kúbönskum leiðtog- um). Bundy gaföi ckkcrt við þetta að athuga,og meira aö segja getur verið að hann hafi látið velþóknun i ljós, og benda ummæli Bissells til þess.... Bissell er sagður hafa sagt við Harvey (einn samstarfs- manna sinna): „Hvita húsið hefur tvisvar hvatt mig til að skapa slíka möguleika (á morðum)...” Skjöl benda til þess, að i mai 1962 hafi Kennedy dómsmálaráð- herra verið sagt að CIA hafi reynt að myrða Castro fyrir Svinaflóa- innrásina. Að þvi er CIA-menn, staddir á fundinum, sögðu, lét dómsmálaráðherrann i ljós óánægju með það að honum hefði ekki verið sagt frá þessu fremur en hitt að hann lýsti vanþóknun sinni á morðáætluninni sem slikri. Engin sönnun er fyrir þvi að dómsmálaráðherrann hafi bannað CIA að ciga hlut að morð- samsærum í framtiðinni.... Ein þeirra áætlana, sem varnarmálaráðuneyið lét Lands- dale hershöfðingja i té viðvikj- andi MONGOOSE var dulnefnd „Operation Bounty”. Þar var lagt til að dreifimiðum yrði hent niður á Kúbu, þar sem lofaö væri verðlaunum fyrir að myrða æðstu menn landsins. Lansdale visaði að vlsu áætlun þessari á bug, en hún bendir engu að siður tii þess að i fleiri stofnunum en CIA hafi verið menn, sem litu svo á, að launmorð væru afsakanleg til- tæki...

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.