Þjóðviljinn - 17.12.1975, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 17.12.1975, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 17. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 KK? Smámiðahapp drætti Rauða krossins Nú er að byrja um þessar mundir nýr flokkur i smámiða- happdrætti Rauða Krossins, 3. flokkur, ’75. 1240 glæsilegir vinningar: 350 ilmvatnssett i gjafapakkningu, 520 3ja punda sælgætisgjafa- pakkningar, 350 baðsett i gjafa- pakkningu, 200 dýrir vasa- kveikjarar, 10 fullkomnar hrærivélar, 10 ferðir til Kanari- eyja. Miðinn kostar ennþá aðeins 25 kr. og er innsiglaður, þannig að strax sést hvort vinningur hafi komið upp. Vegna eðlis miðanna og vinn- inganna eru þeir tilvaldir til að senda með jólakortum, eða til að hafa i jólapakkanum, og styðja góðan málstað um leið. Miðarnir eru seldir i verslun- um um land allt á vegum deilda Rauða krossins, og hagnaði ein- ungis varið til innanlandsstarf- semi. Finnlandsstyrkir Stjórn Menningarsjóðs ís- lands og Finnlands kom saman til fundar 1. desember sl. i Hels- ingfors til þess að ákveða fyrstu úthlutun styrkja úr sjóðnum. Umsóknarfrestur var til 30. september sl. og bárust alls 60 umsóknir, þar af 51 frá Finn- landi og 9 frá Islandi. Úthlutað var samtals 34.900 finnskum mörkum, og hlutu eftirtaldir umsækjendur styrki sem hér segir: Leikfélag Seltjarnarness 6.000 mörk vegna heimsóknar leik- flokks á vegum Bandalags á- hugaleikara i Finnlandi til Is- lands til að sýna leikritið „Stúlkan” eftir Walentin Chorell. Arni Bergmann, blaðamaður, 4.000 mörk til Finnlandsferðar til að safna efni i greinaflokk um finnsk menningarmál. Jón úr Vör, rithöfundur, 4.000 mörk til að kynna sér nútima- ljóðlist i Finnlandi og á Alands- eyjum. Haukur Ingibergsson, skóla- stjóri og Þórir P. Guðjónsson kennari, 2.000 mörk hvor vegna námsferðar til Finnlands. Irja-Leena Erikson, ritstjóri, 2.000 mörk til islenskunáms vegna þýðinga á islensku sjón- varpsefni. Maj-Lis Holmberg, fil.lic., 2.500 mörk til að þýða ljóð eftir Jón úr Vör. Stofnun i norræn- um málvisindum, Helsingfors, 5.000 mörk vegna námsferðar stúdenta til tslands sumarið 1976. Dansleikhúsið Raatikko 3.400 mörk til að vinna að dansleik- sýningu, er ber nafnið „Salka Valka”. Fiðluleikarinn Helena Lehtelá-Mennander 2.000 mörk til að fara tónleikaför til Is- lands. Solmu Mákela, sjónhverf- ingameistari, 2.000 mörk vegna sýningar á auglýsingaspjöldum fjölleikahúsa, hugsanlega i tengslum við listahátið i Reykjavik. Meiri slysavörn í umferðinni Niunda sambandsþing Bindindisfélags ökumanna sem haldið var i Reykjavik um siðustu mánaðamót gerði m.a. ályktanir, þar sem þeim tilmæl- um er beint til stjórnvalda að slysavarnir verði auknar i um- ferðinni, m.a. með þvi að endur- skoða reglur um gerð og búnað bifreiða og færa þær i það horf sem tiðkast t.d. i Sviþjóð og i Bandarikjunum. Jafnframt taldi þingið að hækka þyrfti vátryggingarupp- hæðir af bifreiðum og greiðslur til þeirra sem fyrir likamstjóni verða i umferðarslysum, og verðtryggja þær bætur. Gústaf Larsson Þóroddur Guðmundsson Gotlensk ljóð Þóroddur Guðmundsson íslenskaði Út er komið litið ljóðakver, Gotlensk ljóð, og eru þetta þýð- ingar Þórodds Guðmundssonar, frá Sandi á nokkrum kvæðum eftir Gustaf Larsson. Þóroddur skrifar stuttan inngang með ljóðakverinu, og segir þar að Gustaf Larsson sé höfuðskáld gotlenskunnar, 82 ára að aldri. Höfundur kvæðanna býr á fæð- ingarstað sinum á austurströnd Gotlands. 1 kverinu eru tiu ljóð þýdd úr gotlensku og niu ljóð þýdd úr sænsku. Prentsmiðjan Hólar hf. prent- aði. Frá nemendafélagi Menntaskólans á Laugarvatni Innrásin afhjúpar árásareðli NATO Mimir, nemendafélag Mennta- skóians að Laugarvatni, áiyktar: — Lýsum yfir stuðningi við út- færslu fiskveiðilögsögunnar. — Mótmælum innrás breskra heimsvaidasinna i islenska fisk- veiðilögsögu. — Skorum á ríkisstjórn Isiands að slita nú þegar stjórnmálasam- bandi við breta og Keflavíkur- herstöðinni verði lokað. — Innrás breska fiotans, sem er i NATO, afhjúpar glögglega árásareðli NATO, og það, að NATO virðir að vettugi rétt minni þjóða til þjóðlegs sjálfstæðis. — Lýsum yfir stuðningi við rétt strandrikja til að banna siglingar herskipa innan 200 milna og koma þar með i veg fyrir siglingar hernaðarbandalaganna. — Hörmum það frumhiaup rikisstjórnarinnar og alþingis að semja við v-þjóðverja um veiðar innan 200 milna i andstöðu við álit fiskifræðinga. — Skorum á ríkisstjórn og al- þingi að hefja nú þegar, i fram- haldi af útfærslu fiskveiöilögsög- unnar i 200 mllur, víðtækar frið- unaraðgerðir á Islenskum fiski- stofnum og efla tækjakost land- helgisgæslunnar. F.h. Mimis. Guðmann Þorvaldsson stallari. Og málfundafélag sósíalista Laugarvatni ályktar: Þar sem ekki náðist samstaða um ályktun um landhelgismálið innan Mímis, skólafélags Menntaskólans að Laugarvatni, sendir Málfundafélag Sósialista á Laugarvatni frá sér eftirfarandi ályktun: 1. Styðjum eindregið útfærslu fiskveiðilögsögunnar i 200 sjómil- ur. Jafnframt gerum við okkur grein fyrir, að isl. einokun- arauðvaldið á sér ekki annað markmið með útfærslunni en að auka arðránshlutfall sitt. Það er þvi ljóst að heyja verður harða baráttu gegn einokunar- auðvaldinu og gróðasókn þess fyrir verndun fiskistofnanna. 2. Skorum á ríkisstjórn Islands og Alþingi að slita þegar i stað stjórnmálasambandi við breta, vegna innrásar breskra heims- valdasinna i islenska fiskveiði- lögsögu. 3. Innrás breska flotans afhjúpar glögglega árásareðli NATO og það að NATO virðir að vettugi rétt minni þjóða til þjóðlegs sjálf- stæðis. Við skorum þvi á rikis- stjórnina og Alþingi að segja Island úr NATO og reka herinn úr landi tafarlaust. 4. Lýsum stuðningi við tillögu rikja þriðja heimsins á hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna til að ráða siglingum innan 200 milna frá ströndum sinum og koma þar með i veg fyrir sigling- ar flota hernaðarbandalaganna. Við kref jumst þess að rikisstjórn- in styðji riki þriðja heimsins i þessari tillögu sinni. 5. Fordæmum þá svikasamninga sem rikisstjórnin hefur gert við heimsvaldasinna Vestur- Þýskalands. 6. Skorum þvi á alla alþýðu ts- lands að taka saman höndum og berjast kröftuglega gegn rán- yrkju auðvaldsins og kúgun stór- þjóða i garð rikja þriöja heimsins og minniháttar heimsvaldarikja. Gegn rányrkju auðvaldsins! gegn heimsvaldastefnu! Fyrir hönd M.F.S.: Arnór Sighvatsson Gunnar A. Gunnarsson. Stjórn Happdrœttis Háskólans: Aðeins heilbrigð við- skipti við Alþýðubankann Stjórn Happdrættis Háskólans hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu vegna þess að i fjölniiðlum hefur verið látið að þvi iiggja að það eða forstjóri þess tengdist útlánaniálum Al- þýðubankans með vissum hætti: I umræðum fjölmiðla undan- farna daga um málefni Alþýðu- bankans h.f. hefur þvi itrekað verið haldið fram, að Happdrætti Háskóla tslands tengdist máli þessu og hefur þá stundum verið látið liggja að þvi, að Happdrættið væri meðal skuldu- nauta Alþýðubankans h.f. Stjórn Happdrættis Háskóla ts- lands þykir af þessum sökum rétt að taka fram eftirfarandi. 1. Happdrætti Háskóla íslands skuldar ekki neinni lánastofnun nú frekar en endranær. 2. Fé það, sem Happdrættið hefur undir höndum á hverjum tima, er að sjálfsögðu varðveitt i bankareikningum þar til það er greitt út i vinninga eða þvi ráð- stafað til framkvæmda Háskóla tslands. Meginhluti þessa fjár er nú geymdur i fjórum bönkum, þ.ám. Alþýðubankanum h.f. en mest fé er i Landsbankanum 3. Hinn 10 þ.m. ritaði stjórn Happdrættis Háskóla Islands bréf til bankaráðs Alþýðubankans h.f. og óskaði eftir upplýsingum um það, hvort og þá hvernig Happdrætti Háskóla tslands tengdist útlánastarfsemi bank- ans.I svari bankaráðsins 15. þ.m. kemur fram, að Happdrættið hafi Framhald á 14. siðu Viku- dvöl á Hótel Húsavík er meðal vinninga i Happdrœtti Þjóðviljans 1975 Hótel Húsavik er vandað nýtísku hótel sem er starfrækt allt árið. Þaðan er m jög gott að stunda skíða- iþróttir á vetrum, og á sumrin er stutt að fara þaðan til að skoða f jöl- breytta náttúrufegurð i Þingeyja- sýslum. HAPPDRÆTTI ÞJÓÐ VILJANS GRETTISGÖTU 3 Opið alla daga fró kl. 9 til 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.