Þjóðviljinn - 17.12.1975, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 17.12.1975, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. desember 1975. Kaflar úr ræðu Geirs Gunnarssonar við 2. umræðu fjárlaga í gær: Stjórnarstefnan bitnar alvarlega á alþýðu um allt land Geir Gunnarsson, full- trúi Alþýðubandalagsins í fjárveitinganefnd alþingis flutti ýtarlega ræðu við 2. umræðu f járlaga á alþingi i gær. Við birtum hér nokkra kafla úr ræðu Geirs. Vinnubrögðin eins- dæmi i sögu Alþingis 1 upphafi máls síns gagnrýndi Geir vinnubrögð við störf fjár- veitinganefndar. Hann taldi nauðsynlegt, að nefndin hæfi störf a.m.k. mánuði áður en alþingi kemur saman á haustin, og lyki sem mest á þeim tima viðtölum við forsvarsmenn einstakra rikis- stofnana og jafnvel sveitar- stjórna, svo að meiri timi gæfist til að vinna úr málum á sjálfum þingtimanum. Að þessu sinni hófust störf undirnefndar fjár- veitinganefndar hinsvegar ekki fyrr en viku áður en þing var sett, og timinn hefur verið illa notaður, lika eftir að þing hófst. Siðan sagði Geir Gunnarsson: Það að 2. umræða fer fram i dag kemur þvi ekki til af þvi, að störf nefndarinnar séu raunveru- lega komin á það stig, að 2. um- ræða geti með góðu móti farið fram nú, heldur blasir sú stað- reynd við, og fyrir henni verður að beygja sig, að dagurinn i dag er sá siðasti, sem kemur til greina, ef ljúka á afgreiðslu fyrir jól. Nefndin hefur hrakist upp að vegg og ekki um annað að gera en tina út þau erindi, sem meirihlut- inn vill afgreiða, og láta hin liggja litt, eða flest alls ekki skoðuð eða rædd. Er þó svo seint að verið, miðað við að þingi eigi að fresta 19. des., að einungis 2 starfsdagar verða fyrir nefndina milli 2. og 3. umræðu, og það er áreiðanlega algert einsdæmi i sögu Alþingis. ...Mest öllum tima nefndar- manna hefur verið varið til þess að hlýða á fulltrúa rikisstofnana, sveitarstjórna og hinna margvis- legustu samtaka og sá timi þó reynst til litils notaður, þvi að ljóst er, að meirihl. nefndáririnar hefur frá upphafi verið staðráð- inn i þvi, að hafa svo til öll þessi erindi að engu. En timinn hefur liðið og veigamestu málin verið litt eða ekki rædd, og verða að biða þessara tveggja starfsdaga, sem nefndin hefur milli 2. og 3. umræðu, þó samhliða öðrum þingstörfum. Mörg stórmál enn ekki verið rædd í nefndinni Ég nefni t.d. tekjuáætlun frum- varpsins, lánsfjáráætlun, þar með talin málefni Rafmagns- veitna rikisins, málefni Pósts og Sima, fjárfestingar i flugmálum, máiefni Lánasjóðs námsmanna, jöfnun námskostnaðar eftir bú- setu. Einnig má hér nefna hug- myndirnar um breytingu á verkaskiptingu rikis og sveitarfé- laga og málefni rikisspitalanna. Ekkert af þessu hefur enn verið rætt innan nefndarinnar. Frum- vörp, sem hefðu átt að fylgja fjár- lagafrumvarpinu, eru að koma fram nú allra siðustu daga þings- ins fyrir jól. — Þessi vinnubrögð eru óvirðing við Alþingi, og þeim til háðungar, sem að þeim standa. ...Ég hef verið 12 ár i fjárveit- inganefnd, en samt held ég að ég muni ekki eftir slikri timaþröng við afgreiðslu fjárlaga og nú, og annarri eins málamyndaaf- greiðslu... það var helst i fyrra, að lokaspretturinn væri eitthvað i likingu við þau vinnubrögð, sem eru viðhöfð núna, og þó held ég að keyri um þverbak að þessu sinni. Það er margt með eindæmum nú. Það hefur t.d. verið aflað þeirra erinda úr ráðuneytunum, sem þangað hafa borist timan- lega fyrir gerð fjárlaga, en ekki fengið inni i frumvarpinu. Þessi erindi hafa jafnan verið lesin og kynnt á fundum fjárveitinga- nefndar. Að þessu sinni var bunk- inn lagður fyrir nefndina fyrst nú þann 12. des., tveimur mánuðum eftir að þing kom saman, og þá greint i örfáum orðum frá þvi, hvað um væri beðið. 011 fyrirhöfn þessara aðila til að skýra sitt mál, og færa fyrir þvi rök er til einskis gagnvart fjárveitinganefnd. Þessi erindi koma ekki á borð fjárveitinganenfndar fyrr en timahrakið er orðið slikt, að eng- inn timi gefst til þess að lita á þessi mál, og kynna sér rökstuðn- ing með þeim. Með þessu er verið að óvirða bæði fjárveitinga- nefndarmenn og viðkomandi um- sóknaraðila. 4000 miljóna greiðslu- halli rikisins í ár ...Það liggur fyrir, að reikn- ingsleg skekkja um 1200 miljónir kr., sem er eitt dæmið um óvand- aðan undirbúning og afgreiðslu fjárlaga i fyrra, Olli þvi, að fjár- lög voru þá i reynd afgreidd með beinum reikningslegum halla, sem nam nær 1100 miljónum kr., og vegna ofáætlunar á tekjum og hreinnar verðbólguræktunar rik- isstjórnarinnar verður greiðslu- hallinn i lok þessa árs liklega orð- inn nær 4000 miljónir kr. í ljósi þessara staðreynda er hálfgerður holhljómur i hátiðlegri yfirlýsingu háttvirts meirihluta fjárveitinganefndar i nefndaráliti um þá fjárlagaafgreiðslu, en bar sagði: „Meirihluti fjárveitinga- nefndar vill hins vpgar taka skýrt fram, að hann telur með öllu ó- verjandi að afgreiða fjárlög með greiðsluhalla.” Geir Gunnarsson minnti siðan á, að i stefnuræðu, forsætisráð- herra i fyrra, það er i nóvember 1974, þá hafi ráðherrann talað um, að fjárlagaafgreiðslan þá ætti m.a. að stuðla að þvi, að rik- issjóður greiddi^á árinu 1975 um 250 miljónir kr. upp i yfirdráttar- skuld sina hjá Seðlabankanum, er þá nam 1000 milj. kr. Siðan sagði Geir Gunnarsson: Þegar þessi orð eru skoðuð nú i ljósi þeirrar reynslu, sem fyrir liggur i árslok, þ.e. greiðsluhalli rikissjóðs um 4000 miljónir kr., og skuldasöfnun meiri en nokkru sinni fyrr, þá getur spurningin ekki verið nema um það eitt, hvort þessi orð for- sætisráðherra voru á sinum tima mælt af algerum barnaskap og fullkomnu óraunsæi, eða i blekk- ingarskyni. Geir Gunnarsson Þingsjá Spilaborgin hrundi — fálmaö eftir bjarghring Það var ekki langt liðið á árið, þegar spilaborg fjárlagaaf- greiðslunnar i fyrra hrundi, og byrjað var að fálma eftir nýjum og nýjum úrræðum allt árið á enda, og kom þó allt fyrir ekki, þar sem fjármálaráðherra stend- ur ekki upp úr skuldasúpunni i árslok. Þegar horfst var i augu við það, að innflutningsmagn (t.d. um 70% varðandi bila!) og innanlands- neysla hafði verið stórlega of- reiknað var gripið til aðgerða i þvi skyni, að láta hverja einingu seldra vara skila meiru i rikis- sjóð. Gengið var fellt þann 15. febrúar, verð áfengis og tóbaks hækkað og innflutningsgjöld á bifreiðum hækkuð. — Enn hafði verið vanreiknað og heimild var géfin með sérstökum lögum til þess að skera niður útgjöld rikis- sjóðs. Þrátt fyrir hátiðleg loforð rikisstjórnarinnar, þar á meöal hæstvirts forsætisráðherra um að rekstrarútgjöld yrðu skorin niður i krónutölu ekki siður en fram- kvæmdaliðirnir, varð raunin sú, að nær eingöngu varð um að ræða niðurskurö brýnustu verklegra framkvæmda og framlaga til sjóða. — Lagt var á flugvallar- gjald og lántökuheimildir stór- hækkaðar. Enn var vanreiknað og i júni var áfengis- og tóbaksverð hækk- að að nýju, og nú um 30%, og hafði þá hækkað um 50—60% á 4 mánuðum. Ekki dugði þetta, enn var hæstv. fjármálaráðherra að sökkva i skuldafenið, og enn var fálmað eftir nýjum bjarghring. Þann 16. júli var umsamin tekju- skattslækkun, sem samið hafði verið um við verkalýðshreyfing- una, hirt aftur og meir en það, með álagningu sérstaks 12% vörugjalds, sem átti að færa rik- issjóði 1850 miljónr kr., það sem eftir lifði ársins og jafna alla reikninga, svo að rikissjóður stæði á sléttu um áramót. En enn hafði hæstv. fjármála- ráðherra brugðist bogalistin. Það vantaði mikið á, að þetta stæðist, og þrátt fyrir 2000 miljón kr. nið- urskurð, fyrst og fremst á fram- kvæmdaliðum, má reikna með mjög verulegum greiðsluhalla, eða jafnvel allt að 4 miljörðum kr. I f járlagafrumvarpinu fyrir ár- ið 1976, sem lagt var fram nú i október er á bls. 164 gert ráð fyrir að greiðsluhallinn á þvi ári muni nema 770 miljónum kr., en nú er hins vegar ljóst, þremur mánuð- um siðar, að hann verður um 5 sinnum meiri. Hafa ytri aðstæður þó fremur verið að batna á þessu timabili. — Með hliðsjón af þessu taldi Geir Gunnarsson ekki óeðlilega þá rikjandi skoðun almennings, að þeim, sem bera ábyrgð á fjár- málum rikisins nú, virðist með öllu fyrirmunað að grynna nokk- uð i þvi verkefni, sem þeim er ætlað að fjalla um. ólafur benti á sökudólg- inn — samráðherra sinn Geir vitnaði siðan til ræðu, sem Ólafur Jóhannessón, viðskipta- ráðherra flutti þann 1. okt. sl., þar sem ráðherrann viðurkenndi að hér væri ,,að verulegu leyti um að ræða innlendar orsakir” i sam- bandi við 48% verðbólgu á þessu ári. Og Geir hélt áfram og sagði: Og i þessari ræðu benti hæstv. viðskiptaráðherra á sökudólginn i verðbólgumálunum, þann aðil- anna, sem hann taldi fyrst og fremst bera ábyrgð á mestu óða- verðbólgu, sem þekkst hefur hér á landi á þeim tima, þegar verð- bólga minnkaði erlendis. — Hann benti á hæstv. fjármálaráðherra og sagði: „Þessi staða rikissjóðs hefur átt sinn þátt i verðþensl- unni. Rikisfjármálin og málefni fjárfestingarlánasjóðanna eru undirrót of mikillar þenslu og eyðslu.” ...Hin gegndarlausa útþensla rekstrarliðanna margþættar verðbólguaukandi ráðstafanir, svo sem gengislækkanir, vaxta- hækkanir, söluskattshækkanir, á- lagning vörugjalds, — afleiðing- arnar af öllu þessu eru nú að herða alvarlega að við gerð fjár laga, og takmarka svigrúm til fjárveitinga... Og nú á að þjarma útgjöldunum niður með stór- felldri minnkun þeirra fram- kvæmda i landinu, sem varða all- an almenning mestu, með niður- skurði á hafnarframkvæmdum, sjúkrahúsabyggingum, flug- vallargerð, skólabyggingum, iþróttamannvirkjum og með nið- urskurði á félagslegum réttind- um. Rekstrarliðir þenjast út — Kaupmenn fá 3 miljónir Rekstrarliðir halda hins vegar áfram að þenjast út. Þegar neitað var um fjárframlög til fram- kvæmdaliðar, sem ég hafði áhuga fyrir, — heilsugæslustöð i Gerða- hreppi, — þá bauðst ég til að benda á rekstrarlið, sem skera mætti niöur á móti, það er 3 mil- jónir kr. til hagræðingarstarf- semi fyrir kaupmannasamtökin, en það kom ekki til greina hjá meirihluta fjárveitinganefndar að hrófla við þessu. Ég veit ekki hvers konar hagræðingarstarf-' semi er hér um að ræða, sem rikið á að greiða fyrir kaupmenn, — ef til vill hagræðing framtala? ...Sparnaður i rikisútgjöldum skal nú nást með niðurskurði nauðsynlegra framkvæmda, og með skerðingu félagslegra rétt- inda eingöngu. Við afgreiðslu fjárlaga i fyrra voru útgjöld rikis- sjóðs hækkuð um 60,5%, eða um 45% meir en almenn verðlags- breyting hafði verið á undan- gengnu ári. Liðurinn önnur rekstrargjöld . hækkaði þó enn meir, eða um 86,2%. 1 fjárlaga- frumvarpinu nú er gert ráð fyrir fimmtungshækkun til viðbótar þessum stórfelldu hækkunum i fyrra, og gæti orðið nær fjórð- ungshækkun áður afgreiðslu frumvarpsins lýkur. Þannig áð ljóst er, að fjárlög verða tvöfalt hærri en fjárlög ársins 1974. Enn gildir sama stefna og i fyrra, rekstrarliðirnir hækka meir en heildarútgjöldin. Liður- inn önnur rekstrargjöld nú um 37% og vextir um 66%. Vaxtagreiðslur yfir 4 miljarða Vextirhafa þá hækkað um 2.400 miljónir kr. frá fjárlögum ársins 1974 og munu nema 4.080 miljón- um kr. á næsta ári, eða riflega 40% hærri upphæð en varið verð- ur á fjárlögum til allra grunn- skólabygginga, íþróttamann- virkja, bygginga sjúkrahúsa og beilsugæslustöðva, læknamið- stöðva og læknisbústaða, hafnar- framkvæmda og flugvallarbygg- inga i landinu. 40% hærri upphæð fer i vexti samkvæmt fjárlagafrumvarpinu en nemur rikisframlagi til allra þeirra framkvæmda, sem ég nefndi, samanlagt. Dæmigerð hægri úrræði Lokaorðin i ræðu Geirs Gunnarssonar við 2. umræðu fjárlaga i gær voru á þessa leið: Þegar svo er komið, að stefna rikisstjórnarinnar i efnahags- málum þrengir verulega að við gerð fjárlaga, þar sem rekstrar- liðirnir gleypa sifellt stærri hluta rikisútgjaldanna, þá gripa stjórn- arflokkarnir til dæmigerðra úr- ræða hægri flokka. Þeir skera niður framlög til nauðsynlegustu samfélagslegra framkvæmda. Þeir gripa til þess að skerða réttindi almennings hjá almannatryggingum. Þeir lækka niðurgreiðslur á brýnustu mat- vörum, en fyrirhuguð fjórðungs- hækkun á verði landbúnaðarfurða af þessum sökum bitnar sérstak- lega hart á lffeyrisþegum og barnafjölskyldum, og ýtir enn undir verðbólguþróunina i land- inu. Það hefur verið áberandi á und- anförnum mánuðum, hve harðar kröfur ihaldssamasta lið Sjálf- stæðisflokksins hefur gert til þess, að þáttur rikisins og sveitarfélaganna i framkvæmd- um og félagsmálum verði minnk- aður — en minnkun þessa þáttar þýðir i senn frjálsari hendur einkafjármagnsins að ráðstafa fjármunum i þjóðfélaginu i enn rikara mæli i gróðaskyni fyrir sig, og um leið þýðir minnkun þessa þáttar skerðingu félags- legra réttinda þeirra, sem minna mega sin i þjóðfélaginu. Þessi gróðaöfl fagna þeirri þró- un, sem á sér stað, bæði i fyrra og nú við fjárlagagerð rikisins. Sú þróun er i samræmi við þeirra stefnu og hagsmuni. Það er ljóst hverjir halda um taumana, þegar stefnan er ráðin. Og krafa þess- ara aðila er sú, að þessar ráðstaf- anir séu ekki timabundnar, og helgist þvi ekki sérstaklega af erfiðri stöðu rikissjóðs, vegna efnahagsstefnu rikisstjórnarinn- ar og óhagstæðra ytri skilyrða. Hér er sóst eftir varanlegri breyt- ingu á uppbyggingu og félagslegri skipan þjóðfélagsins. Framhald á 14. siðu K j arv alsstaðadeilan aldeilis óleyst „ Kjarvalsstaöadeilan er óleyst ennþá. Um það hvernig mál standa get ég ekkert sagt aö sinni vegna þess, aö ég hef skuldbundið mig til þess að gera það ekki meðan deilan er enn óleyst," sagði form. Fél. ísl. myndlistarmanna, Hjörleifur Sigurðsson. Dagbiaðið Visir skýrir frá þvj með striðsfréttaletri á baksiðu og forsiðu i gær, að Kjarvalsstaða- deildan sé leyst. Fréttin er harla merkileg fyrir þær sakir i fyrsta lagi að vera aldeilis ósönn og svo fyrir þær sakir að ragindin i henni stangast á. Úr striðsletri forsið- unnar má lesa, aö listamenn fái meirihluta i listaráði Kjarvals- staða, en i meginmáli fréttarinn- ar á baksiðu er frá þvi skýrt, að listamenn eigi að fá 3 af 7 fulltrú- um i listaráði! Er þvi siður en svo að Visir hafi batnað frá þvi sem verið hefur hvað sannleiksgildi frétta i honum áhrærir, eftir hreinsan- irnar, sem þar voru gerðar i haust. En hið rétta er sum sé, að Kjar- valsstaðadeilan er aldeilis óleyst ennþá. —úþ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.