Þjóðviljinn - 17.12.1975, Page 7
Miðvikudagur 17. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — StDA 7
ÁRNI BERGMANN
SKRIFAR
DÖDuí
Jurtin undan Vatnajökli
Þorgeir Þorgeirsson: Það er
eitthvað sem enginn veit.
Endurminningar Lineyjar
Jóhannesdóttur frá Laxa-
mýri. Iðunn 175.
Fátt er algengara i bókagerð
hérlendis en að rifjaðar séu upp
bernskuminningar. Fátt er eðli-
legra: þetta er timaskeið sem
mönnum er kært, þeir muna bet-
ur en önnur timabil — auk þess
vita allir, að lengi býr að fyrstu
gerð En slik bókagerð er nokkurt
hættuspil. Efnið er þakklátt og
sýnist auðveldara en það er. Það
er mjög oft að árangurinn sætir
svosem ekki neinum tiðindum.
Stundum ræður vanhugsunar-
aðferðin. Duttlungar minnisins
ráða ferðum, urvinnsla i lág-
marki. Aðra aðferð má kenna við
gjörnýtingu — það er reynt að búa
til heildstæða mynd, þjóðfræða-
legt sjónarmið er haft til viðmið-
unar. Og enn eru þeir sem stunda
einhverskonar impressjón-
isma, stikla á stóru (í lýsingu á
tima þar sem stórt og smátt hafa
sifelld hausavixl). Upplýsingar
eru kannski af skornum skammti,
hugblærinn ræður verkinu.
Bókin sem Þorgeir Þorgeirsson
hefur unnið með Lineyju Jó-
hannesdóttur er af þeirri gerð
sem nú siðast var nefnd.
Liney segir frá jörðinni Laxa-
mýri, frá ætt sinni og foreldrum,
vinnufólki. Móðir hennar deyr,
flutt er að Saltvik sem er miklu
lakari jörð. Hvers vegna? Það er
ekki farið nánar út i þá sálma.
Þetta er ekki þjóðháttalýsing,
ekki samfélagslýsing, meira að
segja ættarsagan er af skornum
skammti. Frásögnin er dul. Til
dæmis er vikið að frændkonu Lin-
eyjar, Grimu Sigurjónsson, dótt-
ur Jóhanns skálds.Og sagt að
Ingeborg Sigurjónsson hafi fengið
að ráða þvi, að Grima var ekki
viðurkennd dóttir Jóhanns. En
þetta eru hálfkveðnar visur.
Kannski þurfa menn að leita i
aðrar bækur til að geta i eyður um
þessi atriði og annað sem varðar
Laxamýrarfólk, ef þeim finnst
það komi sér við.
Það er eitthvað sem eng-
inn veit, segir bókin. Það er lika
sitt af hverju sem ekki kemur
öðrum við, en það er ekki vist að
allir lesendur sætti sig við bók
sem er skrifuð i þessum anda,
þeir eru frekir og forvitnir margir
hverjir.
Hvað sem þvi liður: þessi frá-
sögn er vönduð og yfirveguð. Les-
andanum finnst hann verði sjald-
an var við einhvern óþarfa. Yfir
þáttum bókarinnar er hófsamleg-
ur ljóðrænn þokki — eins og t.d.
þegar sagt er frá jörðinni, sem
ættin sat i niutiu ár og „togar i
mann” alltaf siðan. Gamansemi,
sem getur verið ismeygileg, læð-
ist inn i mannlýsingar — ekki sist
þar sem segir af vinnufólki og svo
forfeðrum. Eftirminnilegust og
fyrirferðarmest er lýsing Jó-
hannesar Sigurjónssonar, föður
Lineyjar, sem kunni fuglamál og
sögur af fjarlægðum slóðum, sem
gat hvorki drepið fugl né heldur
ráðið við veiðigleðina, sem var
fullur með kapp og vinnuhörku og
um leið hlédræga tillitssemi. Af
honum segir til dæmis sem svo:
„Þegar pabbi minn kom úr
Kaupmannahafnarferðinni fór
hann i Lærðaskólann. Arið eftir
Þorgeir Þorgeirsson.
að hann lauk skólanum fór hann
til Ameriku. Eg held að sú ferð
hafi verið af allt öðrum toga en
Amerikuferðirnar þá voru. Hann
var allur i grösum og grasafræði,
hafði safnað flestöllum jurtum Is-
lands nema einni sem var of
fjarri. Hún óx við rætur Vatna-
jökuls.
Hann pakkaði grasasafninu i
járnkassa og fór til Bandarikj-
anna með þeim ásetningi að fá
aðgang þar að háskóla til að læra
náttúrufræði. Hélt þeir tækju sig
ef hann gæfi þeim jurtirnar.
En til þess kom aldrei. A leið-
inni var jurtunum stolið. Þeir
héldu að þetta væri gull. Eftir
það átti hann ekki jurtasafn
en fullorðinn maður fór hann upp
að Vatnajökli að sækja sér þessa
einu jurt sem vantaði i safnið
forðum. Þá jurt átti hann þegar
hann dó.”
Það er i dæmum sem þessum
sem höfundar ná lengst með afar
einföldum ráðum. Hér eru engin
sjaldhafnarorð, engar skáldlegar
likingar, hér er ekkert annað en
örfáar valdar staðreyndir og nið-
urskipan þeirra. Útkoman heil
ævisaga. Og það er ekki erfitt að
trúa þvi, að þessi maður hafi ver-
ið mikill trúnaðarvinur yngsta
bróður sins, Jóhanns skálds.
En úrræðin eru fleiri, það er
stundum horfið alllangt frá þess-
um hlutlæga tón með persónu-
legri útleggingu. Það segir til
dæmis frá þvi að móðir Laufeyjar
hefur sungið á vetrarferð i kaup-
staðinn: „Endalaus glitrandi
lausamjöll. Sótrauður hestur og
dökkbúinn maður kafa snjóinn.
Þeir taka hátt upp fætuma og
smeygja þeim aftur oni fönnina
til að forðast allan hávaða. Það er
eins og þeir læðist með sleðann
yfir hvitt og þögult landið.
Og svo þessi söngur. Fullur af
tilfinningu sem er eins og fjar-
stæða, eins og ótrúleg náð i kaldri
draumaveröld landsins.”
A.B.
Lífleg saga frá Danmörku
Thöger Birkeland: Veslings
Krummi. Teikningar eftir
Kirsten Hoffmann. Skúli
Jensson islenskaði. Steinholt
117 bls.
Thöger Birkeland mun vera
mest lesni barna- og unglinga-
bókahöfundur dana. Bækur
hans koma út i mörgum og stór-
um upplögum og heil verk hafa
verið gefin út á plötu. Kostir
höfundarins njóta sin afar vel i
þessari sögu, lifleg atburðarás,
hlýleg og lúmsk kimni og næmi
á sálarlif barna og unglinga.
Ságan „Veslings Krummi” er
sögð frá sjónarhóli stálpaðs
stráks og lýsir reynslu hans i
skólanum þar sem hrekkjusvin
og kennarasleikjur eru til ama
og svo heima þar sem foreldr-
arnir hafa ekki tlma til að sinna
honum og stóra systir gengur
alveg fram af honum með
gelgjuvafstri sinu Sannfærandi
lýsing er dregin upp á sálarlifs-
sveiflum söguhetjunnar i bliðu
og þó einkum i striðu. Frásagn-
arhátturinn er þó raunar rofinn
öðru hvoru með athugasemdum
sem einungis fullorðnir geta
gert.
Þýðing er yfirleitt lipur og
skilar vel andrúmslofti sögunn-
ar. Nokkrar gloppur koma þvi á
óvart. Dæmi úr fyrsta kafla:
Skyndilega skipti heppnin....
Þið skulið fá barsmið.... Nýi
hópurinn vann ekki við græn-
lensk dýr.
Einnig bregst stundum að
orðavali sé haldið innan ramma
eðlilegs talmáls barna og ung-
linga eins og gert er i frumtext-
anum. Til dæmis getur varla
talist eðlilegt að Mads og Stina
gripi til orða eins og „fá bar-
smið” eða „eiga kröfu á einka-
griðastað”.
Mikill fengur er i að fá bækur
eftir jafn vandvirkan og frjóan
sögumann og Thöger Birkeland
þýddar á islensku og vonandi að
framhald verði á útgáfu verka
hans. Af nógu er að taka.
Hörður Bergmann.
HUSEIGENDUR,
HÚSBYGGJENDUR
# Hverskonar rafverktakaþjónusta.
Nýlagnir
0 Viðgeröir á gömlum lögnum — setjum
upp lekarofavörn 1 eldri hús.
0 Dyrasimauppsetning.
0 Kynnið ykkur afsláttarkjör Rafafls svf,-
sérstakur simatimi milli kl. 1-3 daglega.
RAFAFL
Vinnufélag
rafiðnaðar-
manna
Barmahliö 4
Auglýsingasíminn er 17500
UOBVIUINN
Umboðsmenn Happdrættis Þjóðviljans
REYKJANES
Kópavogur: Alþýðubandalagið, Alfhólsvegi 11, simi
41746.
Hafnarfjörður: Alþýðubandalagið, Þorbjörg Samúels-
dóttir, simi 51636.
Garðahreppur: Hilmar Ingólfsson, Simi 43809.
Garður, Gerðum: Sigurður Hallmannsson, simi 92-
7042.
Mosfellssveit: Runólfur Jónsson, simi 66365.
Keflavik, Grindavik, Sandgerði, Njarðvik: Alþýðu-
bandalagið, form. Karl Sigurbergsson, simi 92-2180.
• '
VESTURLAND
Akranes: Sigrún Gunnlaugsdóttir, simi 931656
Borgarnes og Borgarfjörður: Flemming Jessen, simi
937438.
Hellissandur, Rif: Skúli Alexandersson, simi 936619.
Ölafsvik: Kristján Helgason, simi 936198.
Grundarfjörður: Matthildur Guðmundsdóttir, simi
938715.
Stykkishólmur: Rafn Jóhannsson, simi 938278.
Dalasýsla, Búðardalur: Kristján Sigurðsson, simi
952175.
VESTFIRÐIR
Isafjörður og Djúp: Þuriður Pétursdóttir, simi 943057.
Hólmavik, Strandir: Sveinn Kristinsson, Klúkuskóla.
Dýrafjörður: Guðm. Friðgeir Magnússon, Þingeyri.
Súgandafjörður: Gisli Guðmundsson, simi 946118.
V-Barðastrandarsýsla: Unnar Þór Böðvarsson,
Tungumúla.
A-Barðastrandarsýsla: Jón Snæbjörnsson, Mýrar-
tungu.
önundarfjörður, Flateyri: Guðvarður Kjartansson
NORÐURLAND VESTRA
Skagaströnd: Kristinn Jóhannsson, simi 954668.
Blönduós: Sturla Þórðarson, simi 954357.
Hvammstangi: Eyjólfur Eyjólfsson, simi 951384.
Sauðárkrókur, Skagafjörður: Hulda Sigurbjörnsdóttir,
simi 955289.
Siglufjörður: Kolbeinn Friðbjarnarson, simi 9671271.
Hofsós: Gisli Kristjánsson, simi 956341.
NORÐURLAND EYSTRA
Akureyri: Haraldur Bogason, simi 96-11079.
Dalvik: Hjörleifur Jóhannsson, simi 96-61237.
Ólafsfjörður: Sæmundur Ólafsson, simi 96-62267.
Húsavik: Snær Karlsson, simi 96-41397.
S-Þingeyjarsýsla: Þorgrimur Starri, Garði.
N-Þingeyjarsýsla: Angantýr Einarsson, simi 96-51125.
AUSTURLAND
Höfn, Hornafirði: Benedikt Þorsteinsson, simi 97-8243.
Djúpivogur: Eysteinn Guðjónsson.
Breiðdalsvik: Guðjón Sveinsson
Fáskrúðsfjörður: Baldur Björnsson.
Eskifjörður: Alfreð Guðnason.
Reyðarfjörður: Anna Pálsdóttir, simi 97-4166.
Seyðisfjörður: Jóhann Jóhannsson, simi 97-2425.
Borgarfjörður: Sigriður Eyjólfsdóttir, Asbyrgi.
Egilsstaðir og Hérað: Guðrún Aðalsteinsdóttir, simi
97-1292.
Neskaupstaður: Bjarni Þórðarson, simi 97-7178.
SUÐURLAND
Eyrarbakki, Stokkseyri: Frimann Sigurðsson, simi 99-
3215.
Hveragerði: Sigmundur Guðmundsson, simi 99-4259.
Arnessýsla: Sigurður Björgvinsson, Neistastöðum.
Selfoss: Iðunn Gisladóttir, simi 99-1689.
Þorlákshöfn: Þorsteinn Sigvaldason, simi 99-3745.
Hella, Hvolsvöllur: Guðrún Haraldsdóttir, Hellu.
Rangárvallasýsla: Hulda Jónasdóttir, Strandarhöfði.
Vik i Mýrdal, V-Skaftafellssýsla: Magnús Þórðarson,
Vik, simi 99-7129.
Vestmannaeyjar: Jón Traustason, simi 98-1363.