Þjóðviljinn - 17.12.1975, Page 11

Þjóðviljinn - 17.12.1975, Page 11
Miðvikudagur 17. desember 1975. 1* 1 ÓÐVILJINN — StÐA 11 Minning Sigurður Sigurbjörnsson F. 13.4. 1911 - D. 7.12. 1975 Kveðja frá Tollvarðafélagi íslands t dag verur til moldar borinn Sigurður Sigurbjörnsson, yfirtoll- vörður, en hann andaðist 7. desember s.l. Hann var fæddur 13. júli 1911 i Reykjavik og ólst þar upp. For- eldrar hans voru Margrét Þórðardóttir og Sigurbjörn Sigurðsson. Þeim hjónum fæddust niu börn, auk þess sem þau ólu upp tvö fósturbörn. Af börnum þeirra Margrétar og Sigurbjörns lifa þrjú Elisabet, Daniel og Þórður deildarstjóri við tollgæsluna i Reykjavik. Sigurður kvæntist 20. april 1939 Ingibjörgu Sigurðardóttur frá Kvennabrekku i Dölum. Þeim varð fimm barna auðið, sem öll eru á lifi. Barnabörnin eru nú orðin átta. Sigurður Sigurbjörnsson hóf störf við tollgæsluna i Reykjavik i mai 1933. Starf hans var þá fólgið i samanburði vara við framlagða, tollpappira, sem var fyrsti visir að starfsemi vöruskoðunar i þeirri mynd, sem hún er i dag. Samstarfsmenn Sigurðar þessi fyrstu ár voru Sigurmundur Gislason og Helgi Jörgensson en forsögu fyrir hópnum hafði Þórður, bróðir Sigurðar. Sigurður og Sigurmundur voru lausráðnir frá árinu 1933 til 1936 en voru þá fastráðnir sem tollverðir. Sig- urður vann allan sinn starfstima i vöruskoðun tollgæslunnar, fyrst sem undirmaður en siðustu tvo áratugina sem yfirmaður. Margir munu þeir vera, kunnugir jafnt sem ókunnugir, sem leitað hafa til skrifstofu vöruskoðunarinnar i tollinum, eftir fyrirgreiðslu eða leiðbein- ingum. Þar hittu menn jafnan Sigurð Sigurbjörnsson, yfirtoll- vörð, reiðubúinn til að leiða mál manna til réttra lykta. Skyldu- störf hans i aðalstöðvum vöru- skoðunarinnar, margþætt og ábyrgðarmikil, verða ekki rakin i þessum fáu og fátæklegu orðum. En hann hafði i löngu farsælu starfi, öðlast reynslu, sem sam- fara skyldurækni auðveldaði honum lausn þeirra vandamála, sem að steðjuðu hverju sinni. Sig- urður var gleðimaður i lund, hlát- urmildur, hreinn og beinn i fram- komu. 1 þessu starfi komu sér vel þeir eiginleikar hans að geta sýnt þolinmæði, velvilja og skilning gagnvart þvi fólki, sem i hlut átti og alloft gætti misskilnings hjá. Sigurður Sigurbjörnsson var einn af stofnendum Tollvarða- félags Islands. Hann var ávallt mjög áhugasamur um félagsmál og hafði ákveðnar skoðanir á ýmsum málum og barðist ótrauður fyrir þeim málstað, sem hann taldi vera réttan og talaði þá enga tæpitungu, ef þvi var að skipta. Sigurður undi sér vel i hópi starfsfélaga og tók virk- an þátt i félagsstörfum, skemmtunum og ferðalögum tollvarða. Þætti henta, að skjóta saman i tækifærisgjöf eða stofna til einhverra samtaka annarra, var hann jafnan meðal frum- kvöðlanna. Bókagjafir Sigurðar til orlofs- húsa Tollvarðafélags Islands að Munaðarnesi verða ávallt áþreifanlegur minnisvarði um góðan dreng, sem bar heill og hamingju félaga sinna fyrir brjósti. Lifsskoðun hans mótaðist af þeirri riku samúð, sem hann hafð með þeim minni máttar, og einlægri trú á sigur hins góða. Nú er skarð fyrir skildi, þegar Sigurður er horfinn. Þrátt fyrir að við starfsfélagarnir vissum, að hann var ekki heilsuhraustur, hin siðari ár, vorum við ekki við þvi búnir að sjá honum á bak svo skjótt. Við tollverðir, eldri sem yngri, söknum nú félaga okkar Sigurðar Sigurbjörnssonar, en minningin um góðan dreng mun lifa meðal okkar. Eftirlifandi konu hans, börnum og öðrum ástvinum vottum við okkar dýpstu samúð. Vinarminning Er ég heyrði andlátsfregn, Sigurðar Sigurbjörnssonar, hugs- aði ég: Nú er mesti vinur vina minna allur.” Og vil ég, að þessi orö hugsunar minnar, verði að einkunnarorðum þessarar grein- ar. Þessi mesti vinur vina minna lést skyndilega á árshátið toll- varða nú um daginn. Var hann á miðju dansgólfi er dauðinn sótti hann heim. Stund hans var kom- in, og þar með féll öðlingur i val- inn. Ég minist nú þeirra mörgu stunda, sem við áttum saman. Þær voru margar og ánægjuleg- ar. Hann reykti vindil, en ég pipu, og fór vel á með okkur. En nú er hann allur og reykur vindils hans einnig. Ég sakna þessa vinar meir en allra vina, sem ég hef átt fyrr og siðar. Hann var drengur góður og vildi öllum aðeins hið besta. Okk- ar góða og fagra Landi er 'mikil eftirsjá af honum. Ég votta konu hans, Ingibjörgu Þriðja bókin um Húgó og Jósefínu Út er komin hjá bókaútgáfunni Iðunni þriðja og siðasta bókin um Jósefínu og Húgó eftir Mariu Gripe. Nefnist hún Húgó. Maria Gripe er óumdcilanlega einn fremsti barnabókahöfundur svia, og hefur hún hlotið margvislegar viðurkenningar. Fyrir bækurnar um Húgó og Jósefinu hlaut hún virtustu viður- kenningu sem veitt er fyrir sænskar barnabækur, Nils Holgersson-verðlaunin, og „Húgó” hlaut verðlaun sænska dagblaðsins Expressen sem besta barnabókin árið sem hún kom út. Auk þess hlaut Maria Gripe árið 1974 þau alþjóðlegu barnabóka- verðlaun sem mestrar virðingar njóta i dag, H.C. Andersens-verð- launin Hér á eftir fer örlitið brot af þeim lofsamlegu blaðadómum sem bækurnar hafa fengið: „Höfundurinn lýsir heimili barnsins með ótrúlegri nærfærni, hlýju og kimni...Húgó er svo heil- brigður, athafnasamur og vak- andi að hann þarf á engum prakkarastrikum að halda til að láta timann liða'. Húgó er mikið listaverk i litlu broti og leiðar- stjarna öll þeim sem hyggja að bókmenntalegu gildu barna- bóka.” — Finn Jor, Aftenposten. „Húgó og Jósefina” er heillandi bók...Hún er skemmtileg af- lestrar og oft fyndin.” — Berg- þóra Gisladóttir, Visi. „Það er óblandin ánægja að lesa bækurnar um Húgó og Jóse- finu. Saman mynda þær barns- lýsingu sem er bæði frumleg, raunsæ og viðkvæm...ég held að fullorðið fólk geti mikið lært af þessum bókum.” — Bo Strömstedt, Expressen. Eftir bókinni „Húgó og Jóse- fina” hefur verið gerð samnefnd kvikmynd sem hlotið hefur mikið lof. Það er óhætt að mæla með þessum bókum handa börnum á öllum aldri og öllum fullorðnum sem unna góðum bókum. LAUST EMBÆTTI er forseti íslands veitir Prófessorsembætti i grasafræði við liffræðiskor verk- fræði og raunvisindadeildar Háskóla tslands er laust til umsóknar. Aðalkennslugrein er almenn grasafræði. Umsóknarfrestur er til 15. janúar n.k. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. , Umsækjendur um prófessorsembætti þetta skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og náms- feril sinn og störf. Menntamálaráðuneytið, 15. desember 1975. Sigurðardóttur, mina samúð, og ég bið guð miskunnsemdanna að varðveita þau, bæði þessa heims og annars. Ég votta konu hans, Ingibjörgu Sigurðardóttur, mina samúð og ég bið guð miskunnsemdanna að varðveita þau, bæði þessa heims og annars. „Bera bý bagga skoplitinn hvert að húsi heim. En þaðan koma ljós hin logaskæru á altari hins göfga guðs.” Þess er góðs að minnast. Guðbrandur Jakobsson Styrkur til háskóla- náms í Hollandi Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk handa islendingi til háskólanáms i Hollandi námsárið 1976-77. Styrkurinn er einkum ætlaður stúdent sem kominn er nokkuð áleiðis i háskólanámi eða kandidat til framhaldsnáms. Nám við listaháskóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við almennt háskólanám. Styrkfjárhæðin er 950 flórinur á mánuði i 9 mánuði og styrkþegi er undanþeginn greiðslu skólagjalda. Þá eru og veittar allt að 300 flórinur til kaupa á bókum eða öðrum námsgögnum og 300 flórinur til greiðslu nauðsynlegra útgjalda i upphafi styrktimabils- ins. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gott vald á hol- lensku, ensku, frönsku eða þýsku. Umsóknir um styrki þessa, ásamt nauðsynlegum fylgi- gögnum, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. janúar n.k. Umsókn um styrk til myndlistarnáms fylgi ljósmyndir af verkum umsækjenda, en segulbandsupptaka, ef sótt er um styrk til tónlistarnáms. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 15. desember 1975. BÖKHFORLIIGSBJEKUR ÁFRAM VEGINN SAGANUM STEFÁN ISLANDI Indriöi G. Þorsteinsson skráöi Allir íslendingar vita hver Stefán Islandi óperu- söngvari er. En fáir kunna ævintýrið um hinn um- komulausa. skagfirzka pilt, sem ruddi sér leið til frægðar og frama úti í hinum stóra heimi með hina silfurtæru rödd, sem hann fékk i vöggugjöf, að veganesti. Hér rekur Indriði G. Þorsteinsson þessa undraverðu sögu mannsins, sem varð einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Hér kemur fjöldi manns við sögu, stíll Indriða er leikandi léttur og frásögn Stefáns fjörug og skemmtileg. Fjöldi mynda prýðir bókina FINNUR SIGMUNDSSON SKÁLDIÐ SEM SKRIFAÐI MANNAMUN Sendibréf frá Jóni Mýrdal ÞORSTEINN STEFÁNSSON FRAMTÍÐIN GULLNA GUÐJÓN SVEINSSON HÚMAR AÐ KVÖLDI GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR ÞAÐ ER BARA SVONA KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK SÓLIN OG ÉG JENNA JENSDÓTTIR ENGISPRETTURNAR HAFA ENGAN KONUNG DOUGAL ROBERTSON HRAKNINGAR Á SÖLTUM SJÓ FRANK G. SLAUGHTER HVÍTKLÆDDAR KONUR ARTHUR HAILEY BÍLABORGIN ÁRMANN KR. EINARSSON LEITARFLUGIÐ ÁRMANN KR. EINARSSON AFASTRÁKUR HREIÐAR STEFÁNSSON BLÓMIN BLÍÐ INGEBRIGT DAVIK ÆVINTÝRI í MARARÞARABORG Jökulsárdljúfur Islenzkur undraheimur Theódór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi 34 LITMYNDASÍÐUR 40 SVART-HVlTAR MYNDIR Margir eru þeir ferðalangar, sem lagt hafa leið sina um Jökulsár- gljúfur og hrifizt af undrafegurð og hrikaleik nátturunnar þar. Þeir hafa þá að likindum séð Hljóðakletta, komið i Hólmatungur og Forvöðin og skoðað Grettisbæli i Vigabjargi. En hve margir hafa komið i Tröllahelli, Hallhöfðaskóg eða Lambahvamm? Hér er að finna glögga leiðarlýsingu meðfram öllum gljúfrunum og vísað á ótal undurfagra staði sem hinn almenni ferðamaður hefur aldrei augum lilið hingað til. En nú kemur tækifærið upp i hendurnar. Bókaforlag Odds Björnssonar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.