Þjóðviljinn - 17.12.1975, Side 12
12 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN Miðvikudagur 17. desember 1975.
Nú er aö duga eða
drepast annað kvöld
Degar íslenska landsliðið í
nandknattleik leikur gegn því
júgóslavneska í
undankeppni Olympíuleikanna
Leikurinn sem allur undirbúningur landsliðsins i
handknattleik i haust hefur miðast við og augu allra
handknattleiksunnenda mæna á fer fram i Laugar-
dalshöllinni annað kvöld, leikur íslands og Júgó-
slaviu i undankeppni ólympiuleikanna. Þetta verð-
ur þungur róður fyrir islenska landsliðið og vönirn-
ar um að komast i lokakeppni ÓL hverfandi. Bæði
er að undirbúningur liðsins i haust hefur verið ónóg-
ur, liðið að flestra áliti ekki rétt vaiið og svo það
sem erfiðast verður, að leika gegn Júgóslövunum
siðari leikinn ytra i byrjun næst árs, þótt svo ótrú-
lega vildi til að við sigruðum annað kvöld. Og þegar
við tölum um að sigra júgóslava, þá má geta þess að
þeir hafa undirbúið sig i heilt ár fyrir þessa undan-
keppni, þeir eru ólympiumeistarar og ætla sér að
verja þann titil. Á sama tima hefur islenska liðið
ekki undirbúið sig nema i 2 til 3 vikur svo einhverju
nemi.
Leikurinn annab kvöld hefst kl.
20.30 i Laugardalshöllinni. For-
sala aðgöngumiöa hefst i happ-
drættisbil HSl i Austurstræti I dag
kl. 12 og verða miðar seldir þar tii
kl. 18 og alveg eins verður það á
fimmtudag.
Á blaðamannafundi hjá HSl i
gær lögðu blaðamenn margar
spurningar fyrir landsliðsþjálfar-
ann Viðar Simonarson svo og for-
ráðamenn HSÍ. Þar kom fram, að
þeir virðast harla ánægðir með
Danmerkurförina og æfingar og
leiki landsliðsins þar.
— Ég er að visu ekki mjög
bjartsýnn fyrir leikinn annað
kvöld sagði Viöar, en ég tel aö
þessi dvöl i Danmörku hafi gert
liðinu mikið gagn. Sagöi Viðar að
þar hefði margt nýtt verið æft og
reynt með góðum árangri og
sumir leikkaflar liösins verið frá-
bærir.
Vonandi nær landsliðið sinu
besta annaö kvöld og það er
aldrei að vita hvað gerist fái það
nægan stuðning frá áhorfendum.
—S.dór
íslenska
tslenska landsiiðiö sem mætir
júgóslövum annað kvöld veröur
þannig skipað:
liðið
Árni Indriðason Gróttu
Stefán Gunnarsson Val
Gunnar Einarsson Göppingen
Jón Karlsson Val
Jón Karlsson hefur komið manna best úr leikjum Islenska Iandsliðsins I
nýafstaöinni Danmerkurför og við hann eru miklar vonir bundnar ann-
að kvöld.
Júgóslavar
leika tvo
aukaleiki
Júgóslavneska landsliðið i
handknattleik mun að öllum lik-
indum leika þrjá leiki hér á landi
að þessu sinni. Þar skal fyrst telja
landsleikinn annað kvöld, sem er
liður i undankeppni ÓL. Siðan
mun það leika annan landsleik á
taugardag og það býðst til að
leika 3ja leikinn hér nk. mánu-
dagskvöld og hefur blaðamönn-
um verið boðið að veija lið gegn
þeim þá, cn engin ákvörðun hefur
verið tekin i þvl máli ennþá.
Drætti
frestað í
happdrætti
BSÍ
Drætti i happdrætti Blaksam-
bands Islands hefur verið frest-
aði til 5. janúar nk. af óviðráðan-
legum ástæðum.
Tennis-
leikarar
ársins
Bandariska tennisritið hefur
valið þau Marinu Navratilovu frá
Tékkóslóvakiu og Vitas
Gerulaitis tennisleikara ársins
1975.
Navratilova er 19 ára gömul og
talin I sérflokki kvenna i tennis
um þessar mundir, en Gerulaitis
er aftur á móti minna þekktur.
Hann er 21 árs og sigraði i tviliöa-
leik ásamt Dandy Mayer á HM i
tennis á þessu ári.
Ólafur Benediktsson Val
Guöjón Erlendsson Fram
Ólafur H. Jónsson Dankersen
Axel Axelsson Dankersen
Ingimar Haraldsson Haukum
Björgvin Björgvinsson Vikingi
Viggó Sigurðsson Víkingi
Páll Björgvinsson Vikingi
Ólafur Einarsson Donstorf
Sigurbergur Sigsteinss. Fram
Friðrik Friðriksson Þrótti
Fyrsta stórmótið i
knattspyrnu í USA
— verður háð í vor með þátttöku USA-Ítalíu-Brasilíu og
Englands USA, Ítalíu, Brasilíu og Englands
Bandarikjámenn láta nú æ
meira að sér kveða i knattspyrn-
unni, og má trúlegt telja, aö þeim
hafi nú loks tekist að láta knatt-
spyrnuiþróttina festa rætur þar
vestra eftir margar tilraunir. Til
marks um það hve áhuginn fyrir
knattspyrnu hefur aukist þar
vestra er, að I vor, nánar tiltekiö
dagana 23. til 31 mai, fer fram i
Bandarikjunum fjögurra landa
keppni i knattspyrnu, og það eru
ekki nein smálið sem taka þátt I
henni: Brasilia, England, ítalia
og svo gestgjafarnir, bandarikja-
menn.
Þetta er i fyrsta sinn sem slikt
knattspyrnumót landsliða fer
fram i USA. Margir munu eflaust
ætla að bandarikjamenn hafi litið
að gera i slika keppni, en þvi fer
fjarri. Ekki ófrægari knatt-
spyrnumenn en Pele, Eusebio,
Jimmy Johnstone frá Skotlandi
og Steven David frá Trinidad,
leika með bandariskum liðum og
munu leika með bandariska
úrvalsliðinu sem þarna tekur
þátt.
Unnusinnfyrsta
meistaratitil á
20 ára ferli
Keppnin I 1. fl. I handknattleik hefur aldrei þótt mikið fréttaefni
og þá siður I Reykjavikurmóti en islandsmóti. Ástæðan er eflaust
sú, að 1. fl. hefur vanalega verið flokkur þeirra sem hafa gaman af
að leika sér i iþróttinni, entakahana ekki mjög alvarlega. Hafa þeir
sem hætt hafa keppni I mfl. gjarnan tekið þátt i 1. fl. eitt eða tvö ár
eftir að þeir hætta i mfl.
Nú nýlega lauk keppni 11. fl. Reykjavlkurmótsins I handknattleik
með sigri iR og þelta væri ekki i frásögur færandi, ef það skemmti-
lega hefði ekki gerst þarna, aö tveir af kunnari handknattleiks-
mönnum okkar, þeir Þórarinn Tyrfingsson og Vilhjálmur Sigur-
geirsson unnu þarna sinn fyrsta meistaratitil á 20 ára ferli slnum
sem handknattleiksmenn. Þeir hafa að vlsu báðir tekiö þátt I þvl
með mfl. ÍR að vinna 2. deildar keppnina, en þaö heitir ekki að vinna
meistaratitil. En Reykjavlkur- eða islandsmeistarar hafa þessir
fyrrum snjöllu handknattleiksmenn aldrei oröið fyrr en nú, að
Reykjavlkurmeistaratitillinn féll þeim i skaut.
—S.dór