Þjóðviljinn - 17.12.1975, Page 16
DJOÐVIUINN
40 hlutu viðbótarritlaun
Miövikudagur 17. desember 1975.
Enn eitt
banaslys í
umferðinni
Banaslys varð á veginum
milli Hnifsdals og Isafjarðar i
gær.Þórarinn Leópold Jensson
til heimilis á Hmfsdal lést, er
bifreið i framúrakstri ók á
manninn, sem var á gangi ut-
an vegar. Þórarinn heitinn var
61 árs er hann lést. Hann lætur
eftir sig eiginkonu og uppkom-
ið barn.
Jarð-
skjálftar i
Grímsey
Jarðskjálftar fundust i
Grimsey i gærmorgun og i
fyrrinótt. Voru kippirnir allt
upp i 4,8 stig á Richterkvarða.
Kippirnir voru þvi mjög
greinilegir á eynni, en engar
skemmdir urðu á mannvirkj-
um af neinu tagi.
Kröfur
ródesískra
blökku
manna í
athugun
SALISBURY 16/12 — Joshua
Nkomo, leiðtogi ródesiskra
blökkumanna, og Ian Smith,
forsætisráðherra Ródesiu,
hafa orðið sammála um að
formleg athugun fari fram á
kröfum blökkumanna um að
völdin i landinu verði afhent
þeim fljótlega. Nefndir full-
trúa frá báðum aðilum munu
fjalla um málið á næstu vik-
um, og er búist við að þær
muni starfa fram á næsta ár.
Um sex miljónir blökkumanna
en aðeins rúmlega 270.000
hvitir menn búa i Ródesiu.
Kissinger
hvetur til
verðlækk-
unar á olíu
PARÍS 16/12 — Ráðstefna 27
iðnrikja, oliuframleiðslurikja
og þróunarlanda um orku og
hráefni hófst i Paris i dag.
Meðal þeirra fyrstu, sem á-
varpaði ráðstefnuna, var
Henry Kissinger, utanrikis-
ráöherra Bandarikjanna og
hvatti hann til þess að heims-
markaðsverð á oliu væri lækk-
að. Ræða Kissingers var hóf-
samari en búist hafði verið
við, en Bandarikin hafa áður
gefið i skyn að þau kynnu að
beita þau þróunarlönd efna-
hagslegum refsiaðgerðum,
sem tækju afstöðu með oliu-
framleiðslurikjum i orkuverð-
lagsmálum.
Uthlutunarnefnd viðbótarrit-
launa hefur lokið störfum og út-
hlutað viðbótarritlaunum til 40
höfunda, 300 þúsundum til hvers
þeirra eða samtals 12 miljónum
króna. Þetta er i þriðja og siðasta '
sinn sem viðbótarritlaunumer út-
hlutað i þessu formi. Reglurnar
um viðbótarritlaunin eru nú i
endurskoðun og eru uppi ýms
sjónarmið um hvernig þær eiga
að vera. Fyrir þremur árum þeg-
ar umræður um söluskatt á bók-
um stóðu sem hæst ákvað alþingi
að veita upphæð á fjárlögum til
ritlauna, sem þá svöruðu sem
næst til tekna af söluskatti bóka.
Viðbótarritlaunin sem nú hafa
verið ákveðin miðast við ritverk
útgefin á árinu 1974. í nefndinni,
sem úthlutaði þeim að þessu sinni
áttu sæti, Bergljót Kristjánsdótt-
ir, B.A. og Bergur Guðnason, lög-
fræðingur, tilnefnd af Rithöf-
undasambandi Islands, og Sveinn
Skorri Höskuldsson, tilnefndur af
kennurum i islenskum bókmennt-
um við Háskóla Islands, og var
hann jafnframt formaður nefnd-
arinnar.
Hér fer á eftir listi yfir nöfn
þeirra höfunda, sem úthlutað var
viðbótarritlaunum i ár:
Agnar Þórðarson, Asa Sólveig
Þorsteinsdóttir, Ástgeir Ólafsson
(Asi i Bæ), Bergsveinn Skiúla-
son, Birgir Sigurðsson, Dagur
Sigurðarson, Einar Laxness, Ein-
ar Bragi Sigurðsson, Erlingur E.
Halldórsson, Guðbergur Bergs-
son, Halldór Laxness. Heimir
Þorleifsson, Helgi Skúli Kjart-
ansson, Hjörleifur Guttormsson,
Hrafn Gunnlaugsson, Indriði
Úlfsson, Ingimar Erl. Sigurðsson,
Jakobina Sigurðardóttir, Jón
Gislason, skólastjóri úthlið 5, Jón
Guðnason, Jökull Jakobsson,
Kristmann Guðmundsson, Krist-
mundur Bjarnason, Matthias
Johannessen, Oddur Bjömsson,
Ólafur Jóh. Sigurðsson, Sigurður
A. Magnússon, Steinar Sigurjóns-
son, Steingerður Guðmundsdótt-
ir, Thor Vilhjálmsson, Unnur
Eiriksdóttir, Olfar Þormóðsson.
Vésteinn Lúðviksson, Þorgeir
Þorgeirsson, Þorsteinn Antons-
son, Þorsteinn frá Hamri Jóns-
son, Þorsteinn Matthiasson,
Þórarinn Eldjárn, Þorleifur
Bjarnason, Þráinn Bertelsson.
ANGQLA:
Suðurafrískir her-
menn handteknir
LUNDTJNUM, WASHINGTON
16/12 — Fjórir striðsfangar, sem
her MPLA i Angólu hefur hand-
tekið, játuðu i dag frammi fyrir
blaðamönnum i Luanda, höfuð-
borg landsins, að þeir væru her-
menn i fastaher Suður-Afriku,
samkvæmt útvarpssendingu frá
Luanda til Lundúna. Einn her-
mannanna kvaðst vera liðþjálfi i
suðurafriska hernum en hinir
voru sagðir vera óbreyttir her-
menn. Samkvæmt útvarpsfrétt-
inni sagði liðþjálfinn að hann og
félagar hans hefðu verið látnir
skilja eftir persónuskilriki og
SPÁNN:
skipta um einkennisbúning áður
en þeir voru sendir til Angólu.
MPLA hefur þrásinnis sakað Suð-
ur-Afriku um að hafa sent margt
hermanna til stuðnings UNITA,
annarri þeirra tveggja angólsku
stjórnmálahreyfinga er berjast
gegn MPLA og erlendir frétta-
menn telja þær ásakanir á rökum
byggðar.
Fulltrúar frá bandarisku leyni-
þjónustunni CIA og bandariska
utanrikisráðuneytinu gáfu i dag
öldungadeild Bandarikjaþings
skýrslu um ihlutun Bandarikj-
anna i Angólu. Fór fundurinn
fram fyrir luktum dyrum. Banda-
riskir þingmenn i báðum þing-
deildum hafa nú þungar áhyggjur
af vaxandi stuöningi Bandarikj-
anna við FNLA og UNITA og er
talað um iþvi sambandi að hætta
sé orðin á þvi að Angóla verði nýtt
Vietnam. Bandarikjastjórn hefur
þegar viðurkennt að Bandarikin
hafi varið 25 miljónum doliara til
kaupa á vopnum og útbúnaði til
handa FNLA og UNITA,
andstæðingum MPLA, og CIA
hefur fengið umboð til að verja
jafnmiklu fé til styrktar sömu
aðilum.
Kommúnistar
bannaðir áfram?
Ntf VERÐUR
BEIN LÍNA
FRÁ MIÐUM
TIL LANDS
Fréttamönnum hér
eftir heimilt að vera
um borð i
varðskipunum
Landhelgisgæslan hefur á-
kveðið að heimila hér eftir öll-
um þeim fréttamönnum, sem
þess óska, að fara með varð-
skipunum út á miðin og senda
þaðan fréttir beint til lands.
Hefur málið að sögn verið i
undirbúningi i fjórtán daga og
þessi ákvörðun var tekin að
Vonbrigði með umbótaloforð stjórnarinnar
MADRID 16/12 — Sú yfirlýsing
hinnar nýju spænsku stjórnar um
að hún hyggist færa stjórnmál
landsins og réttarfar til samræm-
is við það, sem tiðkast i Vestur-
Evrópu hefur vakið vissa bjart-
sýni á Spáni, en margir láta i ljós
vonbrigði með yfirlýsinguna og
telja hana óljósa. Kaþólska blaðið
Ya skrifar að menn hefðu átt von
Sambandsstjórnarfundur
Málm- og skipasmiðasambands'
ins sem haldinn var i Reykjavík
fyrr i mánuðinum gerði ályktun
um landhelgismálið sem hér fer á
eftir I heild:
1: Fiskimiðin umhverfis landið
eru hornsteinn islensks efnahags-
kerfis. A gengi sjávarútvegsins
velta þvi kjör allra landsmanna.
Landhelgismálið er þvi stærsta
og þýðingarmesta kjaramál
verkaíýðshreyfingarinnar i dag.
2: Nauðsyn ber til að renna
fleiri stoðum undir islenskt efna-
hagslif með aukinni fjölbreytni
atvinnuveganna einkum eflingu
iðnaðar. Reynslan sýnir þó, að
orkufrekur iðnaður i samvinnu
við erlend fjölþjóðafyrirtæki
leysir ekki þennan vanda þar eð:
1. Slfk stóriðja hefur takmarkaða
vinnuaflsþörf. 2. tslendingar hafa
litil eða engin áhrif á framleiðslu-
og dreifingarferil þessara fyrir-
tækja.
á áþreifanl. umbótum en ekki
óljósum loforðum. Pólitiskir
fréttaskýrendur telja að stjórnin
muni viljug til að viðurkenna þá
stjórnmálaflokka, sem ekki eru
mjög kröfuharðir um umbætur,
svo sem Sósialistaflokkinn,
sósialdemókrata og kristilega
demókrata, en Kommúnista-
flokkurinn verði bannaður áfram.
Fiskimiðin eru því og
verða áfram hornsteinn
efnahagsiegs sjálfstæðis.
3.: Samkvæmt skýrslum Haf-
rannsóknarstofnunarinnar og
Rannsóknarráðs rikisins, sem
staðfestar eru i meginatriðum af
breskum fiskifræðingum, eru nú
allir helstu stofnar nytjafiska hér
við land fullnýttir eða ofnýttir.
Framtið þorskstofnsins, — verð-
mætustu tegundarinnar — leikur
á bláþræði, á allt sitt undir einum
sterkum árgangi, sem kæmi til
hrygingar eftir 4—5 ár. Ljóst er,
að veiðifloti islendinga er meira
en nógu stór til aö anna þeirri
þorskveiði við landið, sem leyfi-
lega má teljast. Hluta flotans yröi
að beina að öðrum fisktegundum.
Það verður ekki gert, án þess að
stofna þeim fisktegundum i
hættu, nema útlendingar verði
brott úr fiskveiðilögsögunni.
t yfirlýsingunni hét rikisstjórn-
in þvi meðal annars að breyta
kosningum til þingsins þannig, að
það yrði frekar umboðsaðili fyrir
þjóðina en fyrr, og draga úr rit-
skoðun á blöðum. Samkvæmt nú-
verandi kosningafyrirkomulagi
er aðeins fimmtungur þingmanna
kjörinn beinum kosningum.
Allir samningar við útlend-
inga eru því framsal á
frumburðarrétti islend-
inga til mannsæmandi lifs i
landi sínu i hendur erlend-
um þjóðum
4: Fundurinn harmar að samn-
ingar við vestur-þjóðverja um 60
þúsund tonna veiði þeirra á ári,
næstu 2 árin innan fiskveiðimark-
an..a skuli hafa verið gerðir, og
telur þá háskalegt fordæmi fyrir
öðrum hugsanlegum samningum
við aðrar þjóðir og fiskveiðirétt-
indi. Fundurinn fordæmir her-
skipaárás breta innan islensku
landhelginnar og skorar á stjórn-
völd að svara henni á viðeigandi
hátt með slitum stjórnmálasam-
bands við breta og úrsögn íslands
úr NATO, einnig eflingu land-
helgisgæslunnar um 4—6 skip,
sem nægja mundi til að verja
Framhald á 14. siðu
þaulhugsuðu máli.
Fréttamaður hljóðvarps og
fréttamaður BBC héldu i gær
með varðskipi út á miðin. Mun-
um við þvi væntanlega fá beinar
fréttir heim i gegnum hljóð-
varp og aðrir fjölmiðlar mega
einnigsenda menn sina um borð
eftir þörfum.
Þrýstingur á Landhelgisgæsl-
una vegna fréttaþjónustu af
miðunum hefur verið mikill
undanfarið og margir kvartað
yfir seinagangi I afgreiðslu tið-
inda af þorskastriðinu. Breskir
fréttamenn hafa verið i beinu
sambandi við sina þjóð frá frei-
gátum og herskipum og þaðan
hafa gjarnan borist fréttir hing-
að til lands, löngu áður en
heyrst hefur frá yfirmönnum
gæslunnar. Hefur nú verið ráðin
bót á þessu. —SSP
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóðviljinn óskar eftir
blaðberum í eftirtalin
hverf i
Brúnir
Fossvog
Sólheima
Skúlagötu
Höfðahverfi
Kap laskjól
Mela
Tómásarhaga
Kvisthaga
Vinsamlega hafið sam-
band við afgreiðsluna
sími 17500.
Ályktun Málm- og skipasmiðasambands íslands:
Fiskimiðiii homsteinn
sjálfstæðis þjóðarinnar