Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 24. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Yísir yfirtekur rekstur Alþýðublaðsins:
Kenedikt Urondal iormaOur Al-
þýðuflokksins staðfestir I viðtaii
við Dagblaðið i gær, að frá og með
áramótum hefjist „samvinna við
Visi” um útgáfu Alþýðublaðsins.
Óagblaðiðgefur þessum samruna
nafnið „Alvfs”.
betta samstarf mun vera i þvi
fólgið að Visir eða eigandi hans,
Eeykjaprent hf., yfirtekur rekst-
ur Alþýðublaðsins frá áramótum
næstkomandi. Verður rekstur
blaðsins algerlega á ábyrgð Visis,
en sagt er að Alþýðuflokkurinn
ráði áfram pólitikinni i blaðinu.
Alþýðublaðið hefur átt við
veruiega rekstrarorougleika aö
etja að undanförnu eins og
reyndar fleiri dagblöð. En for-
ustumenn Alþýðuflokksins hafa
gefist upp við að gefa blað sitt út
— og afhentihaldinu rekstur þess.
bað sem aðstandendur Visis telja
sig vinna við yfirtökuna er að þar
með tekst þeim að koma i veg
fyrir að Dagblaðið fái útkomu-
tima þann sem Alþýðublaðið á
rétt á samkvæmt stofnsamningi
Blaðaprents, sem er kl. 11 á
morgnana, rétt á undan Visi, sem
hefði styrkt samkeppnisaðstöðu
Dagblaðsins stórlega.
Óvenjugóð fœrð
Færð er með þvi besta eftir þvi
sem hægt er að hugsa sér á þess-
um tima árs, samkvæmt upplýs-
ingum sem bjóðviljinn fékk hjá
Vegaeftirliti ríkisins i gær. Veg-
urinn u,m Möðrudaisöræfi er
meira að segja fær fólksbilum án
þess að mokað sé. Fært er að
vestan og austur með ströndum
til Vopnafjarðar. Einnig er fært
til Ólafsfjarðar, en færðin
norðanlands mun einna lökust á
Siglufjarðarvegi i Fijótum. bar
er nokkuð mikiil jafnfaliinn snjór
og hætt við að vegurinn lokist ef
hreyfir vind. Siglufjarðarvegur
var i gær lokaður við göngin
vegna snjóflóðs, en gert var ráð
fyrir að hann yrði opnaður fljót-
lega.
Færð á Vestfjörðum er óvenju
góð eftir þvi sem gerist um þetta
leyti árs, og er fært öllum bilum
milli bingeyrar og tsafjarðar og
áfram til Bolungavikur og inn i
Djúp. t nágrenni Patreksfjarðar
eru allir vegir færir, meira að
segja er jeppum talið fært gegn-
um Hálsana i Austur-Barða-
strandarsýslu.
Yarð sennilega úti
Ekkert bendir til að dauðsfallið á Þórshöfn
hafi orðið af mannavöldum
Stefán Tryggvason, lögregiu- likinu, virðist hann hafa fengið
maður á Ilaufarhöfn skýrði blað- við fall.
inu svo frá laust fyrir kl. 3 i gær Eins og kunnugt er orðið af
að þeim, sem hafa með höndum fréttum fannst Alfréð Guðmunds-
rannsóknina vegna fráfalls Al- son látinn i útjaðri bórshafnar
freðs Guðmundssonar, fiskimats- laust eftir hádegi á sunnudag.
manns á bórshöfn, hefði borist Voru áverkar á andliti og vinstri
úrskurður eftir krufningu, sem hendi og föt úr lagi færð.
gerð var á likinu. Samkvæmt Stefán Tryggvason lögreglu-
þeim úrskurði benti ekkert til maður á bórshöfn skýrði frá þvi
annars en að Alfreð heitinn hefði seinnipartinn i gær að veski Al-
orðið úti. Áverkana, sem eru á freðs heitins hefði fundist i fötum
Tíðir jarðskjálfta-
kippir í Kelduhverfi
i fyrrakvöld og þó alveg
sérstaklega undir morgun-
inn komu nokkrir alt
snarpir jarðskjálftakippir
í Kelduhverfi, en deginum
áður hafði dregið úr kipp-
unum. Sagði Páll Einars-
son jarðeðlisfræðingur í
gær að nokkrir kippirnír
hefðu verið all-snarpir, eða
yf ir 4 stig á richterkvarða,
einkum þeir sem komu
milli kl. 4 til 6 um morgun-
inn.
— bað vantar mikið á að þarna
sé að komast á jafnvægi og manni
virðist að allt geti gerst ennþá,
sagði Páll.
Jón Illugason, oddviti i Reykja-
hlíð sagði að þar i hverfinu hefði
dregið mjög úr jarðskjálfta,
þannig að þeir fyndust varla leng-
ur. Ekki kvað hann jarðskjálft-
ana hafa valdið neinum skaða i
Reykjahlið utan hvað sprunga
kom i vegg eins húss sem stendur
á jarðspurngu sem misgekk.
Nokkrar skemmdir munu hins-
vegar hafa orðið á húsum i Keldu-
hverfi,enda hefur meira gengið á
þar en i Reykjahlið, þó munu þær
ekki vera miklar.
—S.dór
Skipstjórar
og skipverjar
á skipum Sambands islenskra samvinnu-
félaga.
Bestu jóla- og nýársóskir ykkur til handa.
Þakka mannlegt samstarf og viðmót á ár-
inu sem er að liða.
Kveðja. Mánafoss-Markús
hans við nánari rannsókn og hefði
allt verið óhreyft.
Lögreglan á Raufarhöfn hefur
þar með visað málinu frá sér, og
eru þvi allar getsakir sem komið
hafa af stað ósmekklegum að-
dróttunum um ránmorð dauðar og
ómerkar lýstar.
Alfreð heitinn var 56 ára að
aldri. Hann lætur eftir sig eigin
konu og fimm uppkomin börn.
'AUMIUÓ IVPMt
*m
STOFNSETT 1886
Simi (96) 21400
EIGIN SKIPTISTÖU
— 15 línur.
Símnefni: KEA
Gleöileg
Gott
nýtt ár
Aðeins felagsmenn hafa mogu-
leika að fá endurgreiddan arð.
KEA starfrækir nú yfir 40 verzl-
anir og þjónustufyrirtæki og um
20 framleiðslufyrirtæki á Akur-
eyri og viö Eyjafjörö.
Ekki þarf að vera félagsmaður
til að verzla i kaupfélagi.
Þetta er meðal annars avoxtur
89 ára samvinnustarfs bænda
og bæjarbúa við Eyjafjörð og i
nágrenni hans.
Kaupfelogin eru frials samtök
til bættra lifskjara og aukinna
framfara.
ollum er frjálst að gerast fé-
lagsmenn.
KAUPFELAG EYFIRÐINGA, AKUREYRI