Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. desember 1975. DlOÐVIUINN MÁL'GAGN SÖSfALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. ÍJtgefandi: útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri; E^inar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. ÁJÓLUM Stjórnarvöldin höfðu ákveðið að skrá- setja skyldi alla heimsbyggðina, með öðr- um orðum að taka skyldi viðtækt manntal. Manntalið gat siðar orðið traustur grund- völlur fyrir skattlagningu yfirvaldanna svo að þau gætu kostað eigin bilifi og vig- vélar og annað hernaðarbrölt. Löghlýðnir borgarar lögðu á sig langar ferðir til þess að láta skrá sig. Var þó margur farkobtur- inn fátæklegur og hefði þótt hæggengur á öld bilismans i neysluþjóðfélaginu. Jósep smiður lagði við ösnu sina og Maria heit- kona hans, sem þá var þunguð, steig á bak, og þau héldu áleiðis til manntals- skrifstofunnar. Þegar þangað kom reynd- ist ekki vera rúm fyrir þau i mannabú- stöðum, gisistaðina höfðu þeir rikari lagt undir sig og þci urðu þau að láta fyrirber- ast i gripahúsi. Um nóttina fæddi Maria sveinbarn. Var það vafið reifum og lagt i jötu, þvi engin var vaggan i þessu sauða- húsi. Nú i dag, á aðfangadag jóla, er þessarar yfirlætislausu barnsfæðingar enn minnst vitt um heim, enda þótt senn séu liðin 2000 ár siðan þessir atburðir gerðust — fyrir botnum Miðjarðarhafsins, eins og nútima- fréttamenn komast að orði. Þessara atburða er enn viða minnst vegna þess að vandamál mannkynsins eru enn i dag þrátt fyrir allt býsna lik þeim sem þau Jósep og hin þungaða heitkona hans áttu við að striða á sinum tima. Enn er það svo að miljónum saman verður mannkynið að láta sér nægja að hafast við i gripahúsum, sumum jafnvel sýnu lakari en þeirra hús forðum, Jóseps og Mariu. Enn er það svo að börnin fæðast án þess að unnt sé að búa þeim sæmilegt rúm, þau eru enn lögð i ámóta vöggur og forðúm, jötur eða þess háttar. Og hvað eiga þau að borða? Börn deyja og veikjast daglega um allan heim vegna hungurs og langvarandi hungursjúkdóma. En á sama tima — einn- ig eins og forðum, hreiðrar auðstéttin um sig i glæsilegum höllum, enn leggur hún á ofurþunga skatta til þess að standa undir vigvélum og morðtólum. Miljörðum á miljarði ofan er varið til hernaðarbrölts um allan heim, einkum meðal stór- veldanna. Þessum auðæfum mætti að sjálfsögðu verja til þess að metta hinar svöngu miljónir, en það er ekki gert. Valdastéttin þarf enn vopn og vigvélar til þess að verja veldi sitt. Þannig eru vandamálin nú um margt furðulik þeim sem þungbærust voru fyrir árþúsundum. Þó hefur eitt breyst og það er býsna mikilvægt atriði: Fólkið gerir sér æ betur grein fyrir orsökum rangsleitn- innar. Fleiri og fleiri eru þar af leiðandi reiðubúnir til þess að leggja til atlögu við arðrán, kúgun og misrétti. Þessir full- trúar jafnréttis og frelsis láta hvarvetna i sér heyra og þeir láta sér ekki nægja orðin tóm, á hverjum einasta degi fréttist af nýjum landvinningum i frelsisbaráttu alþýðunnar. Vissulega er viðsvegar reynt að færa frelsið i fjötra og stundum tekst það, en aðeins skamma hrið. Þvi að nú- orðið hefur alþýðan fundið ráð til þess að höggva á þá fjötra sem hún er bundin. Þau ráð felast i samtakamættinum og visinda- legri rýni i þjóðfélagsaðstæðurnar á hverjum tima, i stéttabaráttuna og orsak- ir hennar. Enn er þó langt i land. Enn úthýsir auðstéttin fátæklingum og neitar þeim um brauð. Enn verður þrautpind alþýðan að leggja á sig þungbært erfiði vegna alls- kyns duttlunga valdhafanna. Enn eru börnin lögð i jötur, stundum eru ekki einu sinni til reifar að vefja um þau. En þrátt fyrir allt miðar áfram i rétta átt. Þess er gott að minnast um leið og fagnað er sigri ljóssins yfir myrkrinu. Ströyers dagbok Þannig Htur Ströyer í Dagens Nyheter á átökin innan VPK. Rudolf Meidner. 1 haust skýrði Þjóðviljinn ýt- arlega frá tillögum Rudolfs Meidners, hagfræðings sænska Alþýðusambandsins, um aukið vald sænskra launamanna i fyrirtækjum. Þessar tillögur voru þess efnis i stórum dráttum að hluti af gróða fyrirtækjanna skyldi renna i sérstaka launafólks- sjóði, seni siðan væru skuld- bundnir til þess að kaupa hluta- bréf i fyrirtækjunum. Þannig átti sænskt verkafólk að geta eignast meirihluta i fyrirtækj- um, fyrst og fremst stórfyrir- tækjunum á vissu árabili. Þetta þóttu róttækar tillögur, og þær hafa nú verið til umsagn- ar innan sænska jafnaðar- mannaflokksins, verkalýðs- hreyfingarinnar og hjá sænsku stjórninni. Innan verkalýðs- hreyfingarinnar taka um 30 þúsund manns þátt i umræðunni um tillögurnar. í lok janúar verður ljóst hver útkoman verður. Hún liggur þó að verulegu leyti fyrir, þvi að áhrifamiklir ráðherrar i stjórninni, svo og Gunnar Nilsson, forseti sænska Alþýðusambandsins, hafa lagst gegn hugmyndum Meidners. Kosturinnvið aætlun Meidn- ers er af sænskum krötum talinn sá helstur, að peningar eru ekki teknir út úr fyrirtækjunum, heldur skipta þeir um eigendur. Gallinn er hinsvegar af sömu aðilum talinn sá helstur, að um of er einblint á valda spurning- una,en minna á fjárfestinguna i iðnaðinum, sem þó er aðalatrið- ið fyrir land sem byggir á fáum stórfyrirtækjum i harðri alþjóð- legri samkeppni. Nýr AP-sjóður Þeir sem þannig lita á málin telja að valdaspursmálið i fyrir- tækjunum megi leysa með laga- setningu. Einn liðurinn i þvi að styrkja stöðu verkafólks gagn- vart auðmagninu væri að fella niður grein 32 i vinnulöggjöf- inni, sem felur i sér rétt at- vinnurekenda til þess að ráða og segja upp starfsfólki. Þetta var einnig i tillögum Meidners. í framtiðinni væri að mati margra sænskra krata hægt að láta valdajafnvægi ráða í stjórnum fyrirtækja, sem þó gæti verið breytilegt eftir þvi hvort hlutur vinnuafls eða fjár- magns er stærri i fyrirtækinu. Tillögum Meid ners hafnað Meðal sænskra krata hefur komið fram annað módel sem passar iðnaðinum betur, en hef- ur þó áhrif á eignamyndun i þjóðfélaginu. 1 dag fær fjár- magnseigandinn i sinn hlut alla gróðaaukningu og getur hvort heldur sem er ráðstafað henni i fjárfestingu eða einkasóun. Þessu mætti breyta með þvi að þvinga gróðafyrirtækin til þess að leggja i sérstakan fjárfest- ingarsjóð launafólks, þar sem það hefði meirihluta. Þetta yrði nokkurskonar fimmti lifeyris- sjóður allra landsmanna i Svi- þjóð — Allmánna Pansion- fonderna — AP-sjóðirnir. At- vinnurekendurgreiða hlutfall af launum verkafólks i þessa sjóði, en I fimmta sjóðinn yrði greiddur nokfcurskonar gróða- skattur. Enn eru þessar tillögur ekki fullmótaðar, og allsendis ó- víst að samstaða sé milli launa- fólks i gróðafyrirtækjum að taka ekki út hærri laun, en láta heldur gróðann i sjóð, sem yfir- færði peningana til fyrirtækja sem þurfa að fjárfesta til að geta grætt. Vafalitið verða sænskir krat- ar lengi að ákveða hvernig eigi að auka vald verkafólks eða verkalýðshreyfingar yfir fjár- magninu — og varlega munu þeir fara að fjármagnseigend um, en allt.um það er fróðlegt að fylgjast með þessari umræðu i Sviþjóð. Klofningur hjá sœnskum kommum Eins og frá var skýrt i grein- argóðu yfirliti Gisla Gunnars- sonar, sagnfræðings, um sósial- iska flokka i Sviþjóð i Þjóðvilj- anum á dögunum hafa „centr- istar” i Vinstri flokknum — kommúnistunum undir forystu nýja flokksformannsins Lars Werners, hafist handa um að skapa þá reglu i flokknum, sem forvera Werners, hinum vin- sæla C.H. Hermansson, tókst aldrei að skapa. Mottó Werners i þessari við- leitni hefur verið: „Állir flokks- félagar verða skilyrðislaust að hlýða þvi sem samþykkt er á flokksþingum.” Leiðtogar VPK i Norðurbotni og héruðunum þar I kring, sem hafa Norrskensflamman — Norðurljósalogann — sem mál- gagn hafa verið óhlýðnir, neitað að framfylgja flokksþingsá- kvörðunum dreifa upplýsingum frá flokksstjórninni o.s.frv. Hér er um gamla deilu að ræða, sem hefur verið fylgifiskur VPK frá þvi eftir uppgjörið austur i Kreml við Stalin. Norðurbotna- kommarnir eru af „gamla skól- anum”, harðir i horn að taka i verkfallsbaráttu, og hafa haft Moskvustimpilinn á sér gegn um árin. Nú hafa Lars Werner og „centristarnir” i VPK rekið Gunnar Norberg, formann , flokksdeildarinnar i Norður- landi vestra — Vásternorrland, — úr flokknum. Hann er áhrifa- mikill maður og hefur þegar boðið flokksstjórninni byrginn ásamt fleiri „norðanmönnum” og Norðurljósaloganum. Það geta þvi orðið afdrifarik átök á svæðisþinginu i Norðurlandi vestra i febrúar. Tapi Werner þar má gera ráð fyrir að þorri „norðanmanna” klofni frá VPK. Vinni hann slaginn við Norberg gera menn þvi skóna að honum takist að koma „reglu á i flokknum”, þvi að þá muni andstaðan i norðurhluta Svi- þjóðar hjaðna. —ekh K ratasmyglið enn NU er peningasmyglið til finnsku kratanna fyrir kosning- arnar i Málmiðnaðarsamband- inu að komast á dómsstig i Svi- þjóð. Eins og menn muna voru þrir finnskir toppkratar gripnir á Arlanda flugvelli með 194 þús- und sænskar krónur upp á vas- ann, en þeim fjórða hafði tekist að sleppa i gegn um tollskoðun með 50 þúsund til viðbótar. Peningum þessum var safnað saman á „dularfullan” hátt af Eugen Loderer, formanni i v-þýska Málmiðnaðarsamband- inu, og gjöfinni ætlað að duga finnskum krötum i baráttunni við kommana. Kollegar hans i Sviþjóð og Finnlandi koma við sögu i smyglmálinu svo og gjaldkerar sænska og finnska jafnaðarmannaflokksins, Nils- Gösta Damberg og Pentti Ket- ola. Sá siðarnefndi var gripinn á Arlanda og hafa forystumenn finnska flokksins skel't allri skuldinni á hann Nú hafa þessir tveir gjaldker- ar skilað eiðsvörnum skýrslum til dómstóls i Stokkhólmi, og ber þeim ekki saman. Damberg segist hafa skýrt Ketola frá v-þýsku „gjöfinni” og hvernig hann ætti að koma peningunum frá Sviþjóð til Finnlands 29. september, en Ketola kveðst ekkert hafa fengið að vita fyrr en 4. september. Málið á þvi eftir að þvælast fyrir dómstólunum eitthvað og væntanlega fæst aldrei botn i það hvaðan peningarnir komu. Um leið verður ekki hægt að svipta þeim grun af „gjöfinni” að hún sé komin til að tilstuðlan bandarisku leyniþjónustunnar CIA. Þegar þetta smyglmál var til umræðu blandaðist Isl. Alþýðu- flokkurinn inn i dæmið, vegna þess að Sten Andersson, fram- kvæmdastjóri bróðurflokksins i Sviþjóð, kvaðst hafa skenkt Is- lenskum krötum úr sjóði sinum eins og öðrum sem ættu erfitt. Gylfi Þ. lagði höfuð sitt að veði fyrir að Alþýðuflokkurinn hefði aldrei þegið erlendar peninga- gjafir. Það hefði hann ekki átt að gera. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.