Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. desember 1975.
■
;
HHHHnÍ
. . . ■ ....... ■ ' ,.;...
■ ;• ■ ...-
V
...
W3<& '-' -:■ - - ■■'>, >•• v "'i-
Guðsorð og mikil músík
Rikisútvarpift bregst ekki
hlustenduni og sjáendum sinum
um þessi jól hvað snertir guðs-
orðið. Ekki færri en sex prestar
konia við sögu, þá.m. sjálfur
biskupinn sem menn geta bæði
heyrt i hljóðvarpi og séð i sjón-
varpi að kvöldi aðfangadags kl.
22.20.
Annað sem að vanda ein-
kennir dagskrá hljóðvarps er
hve sigild tónlist, einkum þó
kirkjutónlist, er mikil að vöxt-
um. Á aðfangadagskvöld geta
menn hlýtt á slika tónlist i hálfa
þriðju klukkustund, ber þar
hæst jólatónleika Sinfóniu-
hljómsveitarinnar að loknum
aftansöng en hún flytur verk
eftir Mozart, Haydn og tvo
menn af Bach ættinni.
Á jóladag stöldrum við fyrst
við dagskrárlið i hljóðvarpi kl.
15 sem nefnist Frá sjöunda
himni að ránarrönd. Verður þá
endurflutt dagskrá sem Björn
Th. Björnsson tók saman á
aldarafmæli Einars Benedikts-
sonar skálds árið 1964. Klukkan
19.20 um kvöldið minnist
Hjörtur Pálsson annars skálds,
H.C. Andersen, en 100 ára ártið
hans var i sumar. Dagskránni
lýkur svo á jóladag með flutn-
ingi þátta úr Messiasi eftir
Handel.
Dagskrá sjónvarps á jóladag
hefst kl. 17 á endurflutningi
myndar þeirrar sem sjónvarpið
gerði til minningar um Hall-
grim Pétursson. Sálin i útlegð
heitir hún. Að henni lokinni er
jólaskemmtun fyrir börnin i
sjónvarpssal.
Eftir kvöldfréttir birtist svo
viðamesta framlag sjónvarps-
manna til jóladagskrárinnar að
þessu sinni. Þá verður sýnd
rúmlega klukkustundarlöng
kvikmynd sem þeir gerðu i
Gimli i Manitoba á sl. sumri þar
sem vestur-islendingar héldu
upp á 100 ára landnám þar um
slóðir. Kl. 21.50 er svo á dagskrá
1. þáttur leikritsins Benóni og
Rósa eftir norska skáldið Knut
Hamsun en alls verða þættirnir
sex.
Klukkan 13.15 á annan dag
jóla verður fyrri hluti jólaleik-
rits hljóðvarpsins á dagskrá. Að
þessu sinni verður ráðist i flutn-
ing á verki Henriks Ibsen, Pétri
Gaut i þyðingu Einars Bene-
diktssonar, og er óþarft að
kynna það nánar. Leikstjóri er
Helgi Skúlason en með helstu
hlutverk fara Gunnar Eyjólfs-
son, Guðrún Stephensen, Ragn-
heiður Steindórsdóttir, Jón
Sigurbjörnsson og Kristbjörg
Kjeld. Seinni hlutinn er á dag-
skrá kl. 13.25 sunnudaginn 28.
desember.
Dagskrá sjónvarps hefst
þennan dag kl. 20 með fréttum
en að þeim loknum verða fluttir
dansar úr Coppeliu sem mynd-
aðir voru á sviði Þjóðleikhúss-
ins i haust. Koma þar fram
Helgi Tómasson og Auður
Bjarnadóttir. Að þvi loknu, eða
kl. 20.40, verður sýnd heimildar-
kvikmynd sem sjónvarpið lét
gera um sjávarþorp. Varð
Ólafsvik fyrir valinu, en ætlun
sjónvarpsmanna er að bregða
upp svipmynd af dæmigerðu is-
lensku sjávarþorpi. Umsjón
með gerð myndarinnar hafði
Sigurður Sverrir Pálsson.
útvarp
Miðvikudagur
24. desember
Aðfangadagur jóla
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tiikynningar. Tónleikar.
13.10 Sólskrikjan okkar Asgeir
Guðmundsson iðnskóla-
kennari flytur stutt erindi.
13.20 Jólakveðjur til sjómanna ■
á hafi úti Margrét Guð-
mundsdóttir og Sigrún
Sigurðardóttir lesa
kveðjurnar.
15.25 „Gleðileg jól”, kantata
eftir Karl O. RunóIfssonRut
L. Magnússon, Liljukórinn
og Sinfóniuhljómsveit Is-
lands flytja undir stjórn
Þorkels Sigurbjörnssonar.
15.45 ,,Ást á jólanótt”, smá-
saga eftir Eirik Sigurðsson
Sigmundur Orn Arngrims-
son leikari les.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir Jólakveðj-
ur til islenzkra barna
17.15 (Hlé).
18.00 Aftansöngur i Dómkirkj-
unni Prestur: Séra Þórir
Stephensen. Organleikari:
Ragnar Björnsson.
19.00 Jólatónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar islands i út-
varpssal
20.00 Organleikur og einsöng-
ur i Dómkirkjunni Sólveig
Björling og Erlingur Vig-
fússon syngja við orgel-
undirleik Ragnars Björns-
sonar. Dr. Páll ísólfsson
leikur orgelverk eftir Bach,
Pachelbel og Buxtehude.
(Af hljómböndum útvarps-
ins frá fyrri árum).
20.30 Jólahugleiðing Séra
Gunnar Arnason flytur.
20.45 Orgelleikur og einsöngur
I Dómkirkjunni— framhald
21.05 ,,Þau brostu i nálægð,
min bernskujól” Helga Þ.
Stephensen og Þorsteinn ö.
Stephensen lesa jólaljóð og
kvennakvartett leikur jóla-
lög.
21.35 Þættir úr jólaóratorlu
eftir Johann Sebastian Bach
Gundula Janowitz, Christa
Ludwig, Fritz Wunderlich
og Franz Crass syngja með
Bach-kórnum og hljóm-
sveitinni i Munchen, Karl
Richter stjórnar.
22.15 Veðurfregnir
22.20 Jólaguðsþjónusta i sjón-
varpssal Biskup Islands,
herra Sigurbjörn Einars-
son, predikar og þjónar fyr-
ir altari. Kór Menntaskól-
ans við Hamrahlið syngur
undir stjórTr Þorgerðar
Ingólfsdóttur. Organ-
leikari: Hörður Áskelsson.
Guðsþjónustan er flutt sam-
timis i sjónvarpi og útvarpi.
—■ Dagskrárlok um kl. 23.10.
Fimmtudagur
25. desember
Jóladagur
10.40 Klukknahringing. Litla
lúðrasveitin leikur jóla-
sálma.
11.00 Messa i Hallgrimskirkju
Prestur: Séra Ragnar Fjal-
ar Lárusson. Organleikari:
Páll Halldórsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tónleikar.
13.00 Jól I SviþjóðKristinn Jó-
hannsson lektor i Gautaborg
tekur saman þátt, sem fjall-
ar m.a. um sænska jólasiði
fyrr og nú. Einnig verða
leikin nokkur lög og rætt við
Brittu Gislason.
14.10 Miðdegistónleikar: Frá
tónleikum i Háteigskirkju
sunnudaginn 7. þ.m.
15.00 ,,Frá sjöunda himni að
ránarrönd” Dagskrá á
aldarafmæli Einars Bene-
diktssonar skálds. Umsjón:
Björn Th. Björnsson (Áður
útv. 1964)
16.15 Veðurfregnir. Við jóla-
tréð: Barnatími I útvarps-
sal Stjórnandi: Sigrún
Björnsdóttir. Hljómsveitar-
stjóri: Magnús Pétursson,
sem einnig stjórnar telpna-
kór Melaskólans. Séra Arni
Pálsson ávarpar börnin.
Kristin Ölafsdóttir les sögu
eftir Guðrúnu Helgadóttur
og Erlingur Gislason les
sögu eftir Odd Björnsson.
Jólasveinninn Kjötkrókur
kemur i heimsókn. Enn-
fremur verður gengið
kringum jólatréð og sungin
jóla- og barnalög.
17.45 Miðaftanstónleikar a.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir
19.20 Sonur skósmiðsins og
þvottakonunnar i Óðinsvé-
um Hjörtur Pálsson raöar
saman nokkrum myndum
frá bernskuslóðum H. C.
Andersens á Fjóni i tilefni af
hundruöustu ártið hans 4.
ágúst siðastliðinn. Lesarar
með honum: Broddi Jó-
hannesson og Valgerður
Dan. Tónlistin i dagskránni
er eftir Carl Nielsen.
20.20 Samleikur I útvarpssal
Blásarasveit Sigurðar Inga
Snorrasonar leikur lög eftir
Beethoven og Mozart
21.00 Spjallað um gömui jól og
fleiraJónas Jónasson ræðir
við Guðmund H. Guð-
mundsson fyrrverandi sjó-
mann og Gunnar Vagnsson
framkvæmdastjóra.
21.40 Jólalög frá ýmsum lönd-
um Kammerkórinn syngur
undir stjórn Rutar L.
Magnússon. Andrés Björns-
son kynnir.
22.15 Veðurfregnir. „Nóttin
helga”, jólasaga eftir Selmu
Lagerlöf i þýðingu Sigriðar
Einars frá Munaðarnesi.
Sigriður Þorvaldsdóttir
leikkona les.
22.35 Þættir úr óratoriunni
„Messias” eftir Georg
Friedrich Handel Flytj-
endur: Joan Sutherland,
Grace Bumbry, Kenneth
McKeller og David Ward
ásamt kór og Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna. Sir
Adrian Boult stjórnar.
00.15 Dagskrárlok.
Föstudagur
26. desember
Annar dagur jóla.
9.00 Fréttir.
11.00 Messa i Laugarnes-
kirkju. Prestur: Séra Garð-
ar Svavarsson. Organleik-
ari: Gústaf Jóhannesson.
13.15 Jólaleikrit útvarpsins:
„Pétur Gautur”, leikrit i
ljóðum eftir Henrik Ibsen.
Fyrri hluti. — Þýðandi:
Einar Benediktsson. Leik-
stjóri Helgi Skúlason.
Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor flytur inngangs-
orð. Persónur og leikendur:
■ Pétur Gautur: Gunnar
Eyjólfsson, Asa, móðir
hans: Guðrún Stephensen,
Sólveig: Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Dofrinn: Jón
Sigurbjörnsson, Sú græn-
klædda: Kristbjörg Kjeld,
Brúðguminn: Þórhallur
Sigurðsson, Áslákur, smið-
ur: Sigurður Karlsson, Aðr-
ir leikendur: Valdimar
Helgason, Þóra Borg,
Margrét Guðmundsdóttir,
Pétur Einarsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Jón
Aðils, Klemenz Jónsson,
Guðmundur Pálsson,
Hrafnhildur Guðmundsdótt-
ir, Nina Sveinsdóttir,
Harald G. Haralds, Sigurð-
ur Skúlason, Hrönn
Steingrímsdóttir, Halla
Guðmundsdóttir og Rand-
ver Þorláksson
Sögumaður: Helga B ach-
mann.
15.00 Óperukynning: „Ido-
meneo” eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Flytjend-
ur: Nicolai Gedda, Anne-
sjónvarp
Miövikudagur
24. desember
aðfangadagur
14.00 Fréttir og veður
14.15 Björninn Jógi.Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
14.40 Kaplaskjól Breskur
myndaíiokkur byggður á
sögurh eftir Monicu
Dickens. Verðlaunin.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
15.05 Tumi þumalL Tékknesk
teiknimynd. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
15.50 Jólasaga. Bresk teikni-
mynd gerð eftir sögu
Charies Dickens: A
Christmas Carol. Þýðandi
Jón Skaptason.
16.35 Hlé
22.20 Jólaguðsþjónusta I
s j ón v a r p s s a 1. Biskup
tslands, herra Sigurbjöm
Einarsson, prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór
Menntaskólans i' Hamrahlið
syngur undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Organleikari Hörður
Askelsson. Guðsþjónustan
er flutt samtimis i sjónvarpi
og hljóðvarpi.
23.10 Tónleikar. Erling
Blöndal Bengtsson og Arni
Kristjánsson leika saman á
selló og pianó.
23.30 Dagskrárlok
Fimmtudagur
25. desember
jóladagur
17.00 „Sálin I útlegð er....”
Sjónvarpið lét gera þessa
mynd sumarið 1974 um séra
Hallgrim Pétursson.
Leiðsögumaður visar hópi
ferðafólks um helstu sögu-
slóðir skáldsins, svo sem
Suðurnes og Hvalfjarðar-
strönd, og rekur æviferil
hans eftir tiltækum heimild-
um, en inn á milli er fléttað
leiknum atriðum úr lifi
hans. Höfundur myndarinn-
ar eru Jökull Jakobsson og
Sigurður Sverrir Pálsson.
Kvikmyndun Sigurliði Guð-
mundsson. Hljóð Jón A.
Arason.. Kvikmyndin var
frumsýnd 27. október 1974.
18.15 Stundin okkar. Jóla-
skemmtun i sjónvarpssal
með leikurunum Þorsteini
O. Stephensen, Margréti
Helgu Jóhannsdóttur,
Sólveigu Hauksdóttur og
Sigurði Karlssyni. Einnig
koma fram börn úr Barna-
músikskólanum i Reykjavik
og hljóðfæraleikararnir
Arni Elfar, Árni Scheving
og Reynir Sigurðsson.
Umsjónarmenn Hermann
Ragnar Stefánsson og
Sigriður Margrét
Guðmundsdóttir. Stjórn
upptöku Kristin Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.15 tslendingadagurinn
Kvikmynd, sem sjónvarps-
menn tóku sl. sumar á Gimli
i Manitobafylki i Kanda, er
þar fór fram árleg hátiö
Vestur-íslendinga, en
dagskráin var að þessu
sinni mun viðhafnarmeiri
en almennt gerist, þar sem
þess var minnst að 100 ár
eru liðin frá upphafi land-
náms tslendinga á strönd
Winnipeg-vatns. Kvik-
myndun örn Harðarson.
Hljóðupptaka og tónsetning
Oddur Gústafsson. Klipping
Erlendur Sveinsson. Stjórn
og texti Ólafur Ragnarsson.
21.20 Lofsöngur Ballett eftir
Barry Moréland um atburði
Ur lifi og starfi Krists.
Tónlist Peter Maxwell
Davies. Dansarar William
Louther og dansflokkur úr
„London Contemporary
Dance Theatre”.
21.50 Benóní og Rósa. Leikrit i
sex þáttum, byggt á skáld-
sögum eftir Knut Hamsun.
1. þáttur. A undan þessum
fyrsta þætti verður flutt sér-
stök dagskrá, sem norska
sjónvarpið hefur gert til
kynningar á Hamsun og
verkum hans. Aðalleikend-
ur I myndaflokknum eru
Knut Husebö, Ingolf Rogde
og Unni Evjen. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
(Nordvision —- Norska sjón-
varpið)
Annar jóladagur
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Dansar úr Coppellu
Helgi Tómasson og Auður
Bjarnadóttir dansa. Tónlist-
in er eftir Delibes.
Upptakan var gerð á sviði
Þjóðleikhússins sl. haust.
Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
20.40 Sjávarþorp Fyrir tveim
ur árum ákvað Sjónvarpið
að láta gera heimildarmynd
um sjávarpláss, sem gæti
talist samnefnari hinna
mörgu fiskiþorpa á strönd-
inni, þar sem afkoma fólks
og örlög eru bundin sjónum.
Ólafsvik varð fyrir valinu
og umsjón með gerð
myndarinnar hafði Sigurður
Sverrir Pálsson. Kvik-
myndataka Þórarinn
Guðnason. Hljóð Marinó
Ólafsson. Klipping Erlendur
Sveinsson.
21.10 Dansleikur i sjónvarps-
sal. Hljómsveit Ingimars
Eydals leikur fyrir dansi.
Söngvarar með hljómsveit-
inni eru Grimur Sigurðsson,
Helena Eyjólfsdóttir og
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.45 Sagan af Jakobi og Jósef
Ný, bandarisk biómynd.
tekin á söguslóðum Gamla-
testamentisins. Leikstjóri
er Michael Cacoyannis, en
aðalhlutverk leika Keith
Mitchell, Tony Lo Bianco,
Colleen Dewhust og
Herschel Barnardi. Tónlist
Mikos Theodorakis. Myndin
hefst, er Jakob nær frum-
burðarréttinum frá Esaú
bróður sinum og segir sögu