Þjóðviljinn - 24.12.1975, Page 15
Miðvikudagur 24. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Rætt viö
Sigurð
Blöndal um
störf fjórðu
nefndar
allsherjarþings
Sameinuðu
þjóðanna og
fleiri atburði
á þinginu
Aðalbækistöðvar Sameinuðu þjúðanna i New Vork. Skvjakljúfurinn til hægri er nýtekinn i notkun.
Stormasamt
allsherjarþing
Sigurður Blöndal/ vara-
þingmaður Alþýöubanda-
lagsins sat nýafstaðið alls-
herjarþing Sameinuðu
þjóðanna sem fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í sendi-
nefnd Islands. Sigurður
starfaði einkum í svokall-
aðri fjórðu nefnd þingsins,
sem fjallar um nýlendu-
mál og hefur að tilgangi að
tryggja nýlendum sjálf-
stæði. Þjóðviljinn hafði tal
af Sigurði er hann kom
heim frá New York fyrir
jólin og spurði hann um
störf fjórðu nefndarinnar
og það sem á þinginu gerð-
ist yfirleitt.
— Hvað var helst á döfinni i af-
nýlendunarnefndinni að þessu
sinni, Siguröur?
— Fyrir rúmri viku var þess
minnst með sérstökum fundi i
allsherjarþinginu að fimmtán ár
voru liðin frá þvi að samþykkt
var á þinginu yfirlýsing um það,
að veita nýlenduþjóðum og lönd-
um sjálfstæði. Allir þeir fulltrúar
sem tóku til máls i sambandi við
þetta, að veita nýlenduþjóðum
sjálfstæði, vitnuðu i þessa sögu-
legu ályktun frá 1960, og kom
fram'ab fulltrúar almennt litu á
hana sem þáttaskil i nýlendu-
málastarfi Sameinuðu þjóðanna.
Allar ályktunártillögur, sem
fram voru lagðar i afnýlendunar-
nefndinni, hófust á tilvisun til
þessarar ályktunar. 1 þessari
sögulegu ályktún er meðal annars
tekið fram að það sé gagnstætt
sáttmála Sameinuðu þjóðanna að
halda þjóðum undir erlendum
yfirráðum, drottnun og arðráni
og að það sé jafnframt afneitun á
grundvallarmannréttindum. I
framhaldi af þvi væri kannski á-
stæða til að ræða nánar hvað
gerðist hjá okkur i afnýlendunar-
nefndinni núna, en félagar minir i
fastanefndinni töldu að þar hefði
verið óvenju fjörugt á þessu
þingi. Að minnsta kosti var þar
fjörugra nú en 1973, þegar ég sat
þar þá. Alyktunartillögur um að
veita þjóðum sjálfstæði voru
miklu fleiri nú. Hér var um að
ræða lönd undir stjórn Ástraliu,
Frakklands, Nýja-Sjálands,
Portúgals, Spánar, Bandarikj-
anna en einkum Bretlands, auk
Namibiu, sem að formi til er
gæsluverndarsvæði Sameinuðu
þjóðanna, en Suður-Afríka hefur
ólöglega undir sinni stórn. Hér er
einkum um að ræða eyjaklasa i
Kyrrahafi og Karibahafi, en einn-
ig fáein svæði á meginlöndum.
Allar þessar tillögur um að veita
nýlendum sjálfstæði voru sam-
þykktar með miklum meirihluta
atkvæða, flestar samhljóða.
Herstöðin á Gúam
— Um einhverjar nýlendurnar
urðu þó deilur?
— Já, mál einstakra af þessum
nýlendum reyndust harla við-
kvæm. Á þessu þingi urðu sjálf-
stæðismál einkum fjögurra ný-
lenda hitamál, það er að segja
Belize eða breska Honduras,
Austur-Timor, franska Sómali-
lands og spænska Sahara. Til
gamans má geta þess, að i tveim-
ur tilfellum kom upp nokkuð
sérkennilegur ágreiningur við at-
kvæðagreiðslur. Annað ,var i
sambandi við þann hluta Samoa-
eyja, sem Bandarikin ráða, og
Gúam, sem einnig er bandarisk
nýlenda. bað var vegna þess, að i
formála að ályktunartillögunni
var vikið að herstöð Bandarikj-
anna á Gúam. í atkvæðagreiðsl-
unni i afnýlendunarnefndinni
greiddu Bandarikin eitt rikja at-
kvæði á móti tillögunni um að
veita Gúam sjálfstæði, en tsland
og öll hin Norðurlöndin, nema
Danmörk, voru meðai þeirra sem
greiddu atkvæði með. En svo
gerðist 'það sniðuga að þegar til-
lagan var afgreidd á allsherjar-
þinginu sem ályktun þess, þá
voru Noregur og tsland búin að
breyta afstöðu sinni og sátu hjá.
Ég bað sendiherrann að láta það
koma skýrt fram i skýrslu að ég
væri þvi algerlega ósamþykkur
að Island breytti þannig afstöðu
sinni i þessu máli. Það var ekkert
leyndarmál að afstaða Banda-
rikjanna stafaði af þvi, að minnst
var á herstöðina i tillögunni, og
varla er gerandi ráð fyrir öðru en
að breytingin á afstöðu tslands og
Noregs — tveggja Nató-landa og
annars með bandariska herstöð
— hafi orðið vegna þessarar af-
stöðu Bandarikjanna. t tillögunni
var látið að þvi liggja að óæski-
legt væri að herstöðin yrði áfram
þar á Gúam.
Nýju-Suðureyjar
og frakkar
Það sama gerðist i sambandi
við Nýju-Suöureyjar, eyjar á Suð-
ur-Kyrrahafi sem bretar og
frakkar stjórna sameiginlega. 1
einni grein ályktunarinnar um
þær voru kjarnorkutilraunir
frakka á Kyrrahafi fordæmdar.
Af þessari ástæðu greiddu frakk-
ar atkvæði á móti tillögunni. I
fyrra hafði tsland setið hjá i at-
kvæðagreiðslu um þessa tillögu —
sumar þessara tillagna koma fyr-
ir allsherjarþirígið ár eftir ár —
og mér þótti gaman að þvi að ekki
færri en þrir úr frönsku sepdi-
nefndinni höfðu samband við mig,
bæði munnlega og i sima, til að
forvitnast um það hvort ísland
myndi ekki örugglega sitja hjá i
þetta sinn lika. Frakkarnir höfðu
uppi talsverðan áróður fyrir þvi
að þau riki, sem höfðu verið á
móti tillögunni eða setið hjá síð-
ast, breyttu ekki afstöðu sinni. En
i þetta sinn greiddi Island atkvæði
með tillögunni og þar með for-
dæmingunni. Danmörk sat hjá.
Siðan Danmörk gekk i Efnahags-
bandalag Evrópu er það orðið á-
berandi hvað hún fylgir öðrum
EBE-rikjum fast eftir á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna virðist ekki
treysta sér til að breyta gegn vilja
stóru bræðra sinna þar. Hvað
þetta snertir sker Danmörk sig
allmjög úr öðrum Norðurlöndum
núorðið.
Hitamál
— En það urðu sem sagt harð-
ari deilur um nokkrar nýlendur?
— Mergurinn málsins viðvikj-
andi Belize er að bretar hafa veitt
þvi landi sjálfstjórn og greiddu
sjálfir atkvæði með þvi að það
yrði sjálfstætt riki. En á móti var
Guatemala, sem vill sölsa Belize
undir sig. Sum riki Rómönsku-
Ameriku komust þarna greini-
lega i vanda, og ef ég man rétt
fylgdu ellefu þeirra Guatemala.
Þarna urðu á lokastigi afskaplega
skemmtilegar umræður um
málsmeðferð, þar sem sendi-
herra Guatemala beitti allri sinni
leikni til þess að reyna að tefja
málið og sveigja það til. Næsta
hitamál var svo spænska Sahara,
og fór i það langur timi. Þarna
komu fulltrúar frá sjálfstæðis-
hreyfingunni Polisario, sem
nefnd á vegum Sameinuðu þjóð-
anna, er var i spænska Sahara i
fyrra, taldi ráða yfir miklum
meirihluta landsins. Svo var að
skilja að hreyfing þessi sé vinstri-
sinnuð. Fulltrúar Polisario reif-
uðu sitt mál fyrir afnýlendunar-
nefndinni og voru mjög reiðir út
af samkomulagi Máritaniu,
Marokkó og Spánar um þetta
svæði, en samkvæmt þvi munu
Marokkó og Maritania eiga að
skipta þvi á milli sin. En einnig
komu fyrir nefndina aðrir fulltrú-
ar frá spænska Sahara, þar á
meðal bedúinahöfðingi i miklum
skrúða, sem greinilega voru
handbendi marokkomanna. Poli-
sariomenn sögðu ljótar sögur af
framferði marokkómanna á þeim
hluta svæðisins sem þeir hafa lagt
undir sig. Héldu þeir fram að
marokkómenn ynnu að þjóðar-
morði, og bentu ,á það til dæmis
að i bæ nokkrum, sem marokkó-
menn hefðu tekið, væru allir karl-
menn undir sextugu skotnir. Alsir
styður Polisario og var geysimik-
il harka á milli þess rikis og
Marokkó i þessu máli.
t þessu máli voru lagðar fram
tvær ályktunartillögur, og var
Alsir helsta stuðningsriki annarr-
ar. 1 henni var samkomulag rikj-
anna þriggja hundsað og lagt til
að haldið yrði áfram við að veita
^pænsku Sahara sjálfstæði. 1
hinni tillögunni, sem Marokkó og
Máritania stóðu að, var lögð
blessun yfir samkomulagið. Þvi
miður fór svo, að báðar tillögurn-
ar voru samþykktar.
Austur-Timor
Mesta hitamálið i nefndinni
varð þó portúgalska Timor.
Þanng stóðu málin að fjórða
nefndin átti að ljúka störfum
samkvæmt áætlun, og var aðeins
eftir að afgreiða tillögu um Aust-
ur-Timor, sem var mjög i hefð-
bundnum anda og fól i sér áskor-
un til Portúgals að hraða þvi að
landið yrði sjálfstætt. Indonesia,
Indland og fleiri riki suður þar
stóðu að þeirri tillögu og Ástralia
lika. En svo skeður það að indó-
nesar hernema Austur Timor.
Portúgalar slita strax stjórn-
málasambandi við Indónesiu og
kæra til öryggisráðsins. A næsta
fundi i afnýlendunarnefndinni
ætlaði Ástralia, sem var fyrsti
flutningsaðili framkominnar til-
lögu, að halda áfram með hana
eins og ekkert hefði i skorist, en
margir aðrir fulltrúar mótmæltu
þvi og bentu á að innrásin hefði
gerbreytt viðhorfunum. Þá var
flutt einhver áhrifamesta ræða,
sem ég heyrði á allsherjarþing-
inu, og flutti hana Salim, fulltrúi
Tansaniu. Hann er ungur maður
og stundar jafnframt nám i
Columbia-háskóla i New York.
Hann sagði að nú hefði sýnt sig að
tillagan hefði aðeins verið rykský
fyrir Indónesiu til að leyna inn-
rásarfyrirætlunum sinum. Svo
iagði Ginea-Bissá fram breyt-
ingartilögu, þar sem innrásin var
fordæmd og tekin mið af þvi
breytta ástandi. sem skapast hef-
ur vegna hennar. Og svo fóru
fjórir dagar i þetta mál, áður en
tókst að afgreiða það. Astralia
vildi ekki standa að svona hörðu
orðalagi, og var að lokum sæst á
það að innrásin var hörmuð
djúpt. Fulltrúi Mósambik var
mjög óánægður með þá niður-
stöðu. þvi að Mósambik var búið
að viðurkenna stjórn Fretelin á
Austur-Timor og vildi að gengið
yrði út frá þvi að þar væri þegar
sálfstætt riki.
Samstaða olíurikja
— Var Indónesia þarna ein á
báti?
— Nei, siður en svo. Indland.
Japan og Filippseyjar studdu við
bakið á henni i atkvæðagreiðsl-
um, svo furðulegt sem það nú er,
og flest oliuframieiðslurikin. að
Alsir og Venesúelu fratöldum. Þá
gerðist og það merkilega, að okk-
ur fa.nnst, að Noregur sæti hjá i
þessu máli. Við vorum að striða
norska fulltrúanum á þvi að
' stjórn hans væri farin að stila upp
á að ganga i OPEC, samband
oliuframleiðslurikja. En þetta
var tvimælalaust mesta hitamál-
ið i nefndinni á þinginu.
— Aðrar nýlendur?
— Tillögurnar, sem fólu i sér á-
skoranir á hlutaðeigandi riki að
veita nýlendunum sjálfstæði.
voru allar samþykktar, þar á
meðal varðandi smáeyjar eins og
St. Helenu og Kókoseyjar. þar
sem sárafáir ibúar eru, en gengið
var út frá þvi að gengið hefði ver-
ið úr skugga um að ibúar allra
hlutaðeigandi nýlendna óskuðu
eftir sjálfstæði. Sér á parti var
mál Namibiu, en hjá Sameinuðu
þjóðunum hefur verið margsam-
þykkt að henni skuli veitt sjálf-
st?eði, og meira að segja liggur
fyrirdómur frá Alþjóðadómstóln-
um um það. Namibia er stórt land
og eitt, auðugasta land Afriku.
Þar er mikið af úrani. þannig að
meðan Suður-Afrika hefur
namibiska úranið til viðbótar sinu
eigin, þá eru tök hennar á þvi
sviði mjög sterk.
Ég sat einnig i fjórðu nefndinni
1973, en þá voru portúgölsku ný-
lendurnar i Afriku einkuni til um-
ræðu, og Ródesia. Um þau mál
voru fluttar margar ræður, hver
annarri efnislikar. svo að umræð-
urnar voru ekki mjög spennandi.
En i þetta sinn voru umræðurnar
miklu f jölbrey ttari og maður
kynntist vinnubrögðunum miklu
betur en áður vegna þess hve
margar tillögur voru afgreiddar.
Orðhákurinn
Moynihan
— Onnur mál á þessu allsherj-
arþingi?
— 1 þriðju nefndinni urðu lang-
ar umræðurum málefni kvenna. i
framhaldi af kvennaráðstefnunni
i Mexikó. Ályktunin um þau mál.
sem samþykkt var af allsherjar-
þinginu. var sú yfirgripsmesta.
sem samþykkt var þar að þessu
sinni. með tuttugu ályktunar-
greinum. Ég var við i allsherjar-
þinginu þegar hún var endanlega
samþykkt með 107 atkv. gegn
einu. tsraels. Mótatkvæði tsraels
stafaði af þvi að i ályktuninni var
vikið að sionismanum.
— Þetta allsherjarþing hefur
verið kallað það stormasamasta.
sem haldið hafi verið lengi.
— Já. það er nokkuð til i þvi.
Mál nýlendnanna. sem við vikum
að. áttu sinn þátt i svip. og auk
þess varð mikill úlfaþytur út af
ályktunartillögunni um sionism-
Framhald á 22. siðu.