Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. desember 1975.
Leikhds um 3ól\n
Leikhús höfuðstaðarins bregða ekki af
þeim vana sinum að frumsýna leikrit um
jólaleytið. Eru þau oftast með viðameiri
verkefnum húsanna á hverjum vetri og
svo má einnig segja að þessu sinni. Þjóð-
leikhúsið býður mönnum upp á verk eins
mesta snillings leikbókmennta þessarar
alda, Bertold Brechts hins þýska. Leikfé-
lag Reykjavikur er með englendinginn
Peter Schaffer á sinum snærum en hann
var á ferð i Iðnó fyrir tveimur árum með
verk sitt, Svört kómedia.
Auk þessara tveggja frumsýninga frétt-
um við af þvi að Leikfélag Selfoss hygðist
frumsýna barnaleikrit um þessi jól. Er
það eftir danann Benny Anderson sem
tróð upp með visnasöng i Norræna húsinu
ekki alls fyrir löngu. Verður þessara sýn-
inga nú getið nánar.
—ÞH
Hestarnir virðast þarna vera að þjarma að Hjalta Rögnvaldssyni sem leikur annað aðalhlutverkið i Equus.
Leikmyndin er verk Steinþórs
Sigurðssonar en lýsingu sem sögð
ernokkuð sérstæð annastMagnús
Axelsson. Þýðandi verksins er
Sverrir Hólmarsson.
Equus verður frumsýndur 30.
desember og 2. sýning verður á
nýársdagskvöld. Aðrar sýningar i
Iðnó um hátiðarnar verða þessar:
á 2. í jólum verða Skjaldhamrar
Jónasar i Arnasonar sýndir,
Saumastofa Kjartans Ragnars-
sonar laugardaginn 27. og Skjald-
hamrar aftur sunnudaginn 28.
desember.
Hestar á
ferð í Iðnó
Equus (Hestur) eftir Peter Shaffer
frumsýnt 30. desember
Equus er heiti jólaleikrits Leik-
félags Reykjavikur og er eftir
enska leikskáldið Peter Shaffer.
Equus er lati'na og þýðir hestur en
sú dýrategund gegnir miklu hlut-
verki i inntaki og ytra borði
verksins.
PeterShafferer fæddur iLiver-
pool árið 1926 og vakti fyrst á sér
athygli árið 1958 með leikritinu
Five finger exercise eða Æfing
fyrir fimm fingur. Siðan hefur
hann skrifað fjölda leikrita,
þ.á.m. Svarta kómediu, en Equus
mun vera hans rismesta verk til
þessa. Það var frumsýnt i Old Vic
leikhúsinu i London árið 1973 og
vakti mikla athygli. Það hefur
ekki verið sýnt áður hér á landi.
1 frétt frá Leikfélaginu segir að
leikritið fjalli um ungan pilt sem
lendir i andstöðu við umhverfi
sitt. Býr hann sér til eigin heim
tilbeiðslu og sérstæðrar guðs-
dýrkunar, þeysir um á nóttunni
nakinn á hestbaki og fremur ýmis
ódæði. Eins og að likum lætur er
hann sendurlækni til neðferðar og
lendir hjá þreyttum góðborgara
sem lifir i ástlausu hjónabandi.
Samskipti læknisins og piltsins
verða til þess að sá fyrrnefndi fer
að efast um hvort pilturinn þurfi
yfirleitt nokkurrar lækningar
með, heimur piltsins hri'fur lækn-
inn og hans eigin dauðhreinsaði
heimur verður sviplaus i saman-
burði.
Leikstjóri sýningarinnar er
Steindór Hjörleifsson. Jón Sigur-
björnsson leikur lækninn og Hjalti
Rögnvaldsson piltinn. Aðrir leik-
endur eru Soffia Jakobsdóttir,
Helga Baehmann, Guðmundur
Pálsson, Margrét Olafsdóttir,
Kjartan Ragnarsson, Jón Hjart-
arson, Halla Guðmundsdóttir,
Þorleifur Karlsson, Sigurður
Karlsson, Hannes Ólafsson og
Lárus Björnsson.
Hörður óskarsson I hlutverki
löggunnar I Prekanum hása.
Myndin er tekin á æfingu og skýr-
ir það óvirðulegt útlit löggæslu-
mannsins.
Sigriður Jónsdóttir, Pétur Hjalta-
son, Sigurborg Guðmundsson og
Þórmundur Skúlason en hann sér
einnig um lýsingu. Leikmynd er
eftir Herbert Granz. ; Þýðandi
verksins er Nina Björk Árna-
dóttir.
Leikbrúðu-
land vakti
hrifningu
í Chicago
Tvœr sýningar enn á
„Jólasveinunum ”
Þjóðviljanum hefur borist
fréttatilkynning frá islenska
konsúlnum til Chicago, þar sem
greinir frá heimsókn
Leikbrúðulands til leikhúss
Visinda og iðnaðarsafnsins i
borginni, en það er stærsta safnið
þar.
Leikbrúðuland sýndi i Chicago
jólaleikrit sitt, sem nú er verið að
sýna að Frikirkjuvegi 11, og fékk
það mjög góðar viðtökur. Leik-
ritið var upphafið að þriggja
vikna hátfðahöidum, sem safnið
stendur að á hverju ári fyrir jól og
nefnist Jól um allan heim.
Hópar frá 31 landi tóku þátt i
hátiðahöldunum að þessu sinni.
Þetta var i fyrsta sinn sem is-
lenskur ieikhópur tók þátt i þeim.
Leikbrúöuland sýndi i safninu 30.
nóvember þegar hátiðin var
opnuð og komu 40 þúsund manns
þangað á fyrsta degi.
Islenski saumaklúbburinn i
Chicago og Gunnar Sigurðsson,
fulltrúi Loftleiða i borginni,
ásamt fleira fólki af islenskum
ættum, annaðist margháttaðan
undirbúning að islenska þætti
hátiðarinnar. Þegar að honum
kom mælti konsúllinn P.S.
Johnson, nokkur orð, en eigin-
kona hans, Aslaug, kynnti dag-
skrána. tslensk börn sungu og
dönsuðu undirstjórn Ágústu Guð-
mundsdóttur, og siðan kom
Leikbrúðuland. Sýningu þess var
Úr leikriti Leikbrúðulands: „Jólasveinar einn og átta”.
svo vel tekið, að þvi er segir i
fréttatilkynningunni, að forráða-
menn safnsins óskuðu eftir þvi að
islensk heimsókn yrði fastur liður
i jóladagskrá safnsins framvegis.
Visinda- og iðnaðarsafnið er
eina safn sinnar tegundar i
Bandarikjunum og hið stærsta i
Chicago. Safnið sjálft hefur til
umráða 100 þúsund fermetra
sýningarhúsnæði og það
heimsækja um 3 miljónir manna
árlega.
Vegna mikillar aðsóknar sýnir
Leikbrúðuland brúðuleikritið
„Jólasveinar einn og átta”
tvisvar sinnum enn. A sunnu-
daginn 28. verða tvær sýningar kl.
3e.h. og kl. 5. Miðasalan hefst kl.
2e.h. Siminn er 15937 frá 2-3 og 4-
5.
Drekinn
hási
Leikfélag Selfoss
frumsýnir danskt
barnaleikrit
um jólin
Leikfélag Selfoss hyggst gleðja
yngstu kynslóð Suðurlands um
þessi jól með þvi að frumsýna
barnaleikrit. Nefnist það Drekinn
hási og er eftir danann Benny
Andersen.
Þetta er i fyrsta sinn sem
Leikfélag Selfoss setur á svið
barnaleikrit og vonandi fellur
þessi nýbreytni í góðan jarðveg
þar sem litið er um menningar-
viðburði fyrir börn i dreifbýlinu.
Verður leikritið frumsýnt i
Selfossbiói annan dag jóla en
dagana milli jóla og nýárs verður
farið með það um Suðurlands-
undirlendið og það sýnt i Félags-
heimilum.
t frétt frá Leikfélagi Selfoss
segir að leikrit þetta sé barna-
leikrit fyrir börn og alls ekki við
hæfi fulíorðinna. Einkum sé það
óheppilegt fyrir uppeldis-
fræðinga. 1 þvi eru engar venju-
legar hetjur og heldur engir al-
ræmdir skúrkar.
Nokkrir söngvar eru i leikritinu
og eru þeir einnig eftir Benny
Andersen enda maðurinn einkum
þekktur fyrir visnasöng. Undir-
leik við söng annast Sólveig S.
Ragnarsdóttir.
Leikrit þetta hefur verið leikið i
Det Lille Teater i Kaupmanna-
höfn og viða úti á landi i Dan-
mörku. Það er einnig til á
hljómplötu.
Leikstjóri sýningarinnar er
Jón Hjartarson en með helstu
hlutverk fara Hörður Óskarsson,
Hreinn S. Hákonarson, Hrafn-
hildur Karlsdóttir, Guðmunda
Gunnarsdóttir, Agnes Ólafs-
dóttir, Helgi Finnlaugsson,