Þjóðviljinn - 21.01.1976, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 21.01.1976, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. janúar 1976. Leiðbeiningar viö skattaframtal 11. Aðrar eignir Hér skal færa þær eignir eignir (aðrar en fatnað, bækur húsgögn og aðra persónulega muni) sem eigi er getið um hér að framan. II. Skuldir alls Hér skal færa i kr. dálk sam- tölu skulda i C-lið, bls. 3, i sam- ræmi við leiðbeiningar um út- fyllingu hans. III. Tekjur árið 1975 1. Hreinar tekjur af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi samkv. meðfylgjandi rekstrarreikningi eða landbúnaðarskýrslu. Framtölum þeirra sem bók- haldsskyldir eru skv. ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald skal fylgja rekstrarreikningur. beir sem landbúnað stunda skulu nota þar til gerða landbúnaðar- skýrslu. Gögnum þessum skal fylgja fyrningaskýrsla þar sem fram komi a.m.k. sömu upp- lýsingar og til er ætlast að komi fram á fyrningaskýrslu eyðu- blöðum sem fást hjá skattyfir- völdum. Enn fremur skal fylgja á þar til gerðu eyðublaði grein- argerð um mat vörubirgða, samanburður söluskattskýrslna og ársreikninga og yfirlit um launagreiðslur eftir þvi sem við á. Þegar notuð er heimild i D-lið 22. gr. skattalaga til sérstaks frádráttar frá matsverði birgða skal breyting frádráttar milli ára tilgreind sem sérliður i rekstrarreikningi, sbr. áður- nefnda greinargerð um mat birgða. Þegar notuð er heimild 4. tl. 7. gr. laga nr. 7/1972 um breyting á lögum nr. 68/1971 til óbeinna fyrninga skv. verðhækkunarstuðlum sem fjármálaráðuneytið ákveður skal fylgja framtali fullnægj- andi greinargerð um notkun heimildarinnar. Fjárhæð óbeinna fyrninga skal ekki færa á fyrningarskýrslu heldur sem sérlið á rekstrarreikning, sjávarútvegs- eða iandbúnaðar- skýrslu. bessi óbeina fyrning breytir ekki bókfærðu verði eignanna. Ef i rekstrarreikningi (þ.m.t. landbúnaðarskýrsla) eru fjárhæðir sem ekki eru i sam- ræmi við ákvæði skattalaga, svo sem þegar taldar eru til tekna fjárhæðir sem ekki eru skatt- skyldar eða til gjalda fjárhæðir sem ekki eru frádráttarbærar, skal úr þvi bætt með áritun á rekstrarreikninginn eða gögn með honum. Sama gildir ef framteljandi vill nota heimild til frestunar á skattlagningu skatt- skylds hluta söluhagnaðar eigna en sú fjárhæð skal enn fremur sérgreind á efnahagsreikningi. Gæta skal þess sérstaklega að i rekstrarreikningi séu aðeins þeir liðir færðir er tilheyra þeim atvinnurekstri sem reikningur- inn á að vera heimild um. Þannig skal t.d. aðeins færa til gjalda vexti af þeim skuldum sem til hefur verið stofnað vegna atvinnurekstrarins en ekki vexti af öðrum skuldum og ekki skal færa til gjalda á rekstrarreikning önnur persónuleg gjöld sem ekki tilheyra atvinnurekstrinum þótt frádráttarbær séu, svo sem lifeyris- og liftryggingariðgjöld, heldur skal færa þau i viðkom- andi liði i frádráttarhlið fram- tals. Sama gildir um tekjur sem ekki eru tengdar atvinnu- rekstrinum, svo sem eigin húsa- leigu, vaxtatekjur og arð. Þessar tekjur skal færa i við- komandi liði i teknahlið fram- tals. Tekjur af útleigu eða reiknaða húsaleigu af ibúðarhúsnæði, svo og öll gjöld vegna hennar, svo sem fasteignagjöld, fyrningu, viðhald og vaxtagjöld, sem til- greind eru á rekstrarreíkningi, ber á sama hátt að draga út úr rekstrarreikningi með áritun þar á eða gögn með honum. Hreinar tekjur af útleigðu ibúðarhúsnæði ber að telja til tekna i tölulið 2 eins og þar er fyrir mælt. Reiknaða húsleigu skal telja til tekna i tölulið 3 en gjöld tengda henni til frádráttar, sbr. töluliði 1 og 2 i V. kafla framtals. Endurgjaldslaus afnot laun- þega (og fjölskyldu hans) af ibúðarhúsnæði i eigu vinnuveit- anda hans ber vinnuveitandan- um að telja til gjalda i rekstrar- reikningi með 5% af gildandi fasteignamati hlutaðeigandi ibúðarhúsnæðis og lóðar en sömu fjárhæð ber honum að telja til tekna i tölulið 3 i tekna- hlið framtals. Sama gildir ef hluti ibúðarhúsnæðis i eigu at- vinnurekanda er notaður vegna atvinnurekstrarins. Láti vinnuveitandi starfs- mönnum sinum i té bifreiðar til afnota endurgjaldslaust eða gegn óeðlilega lágu endurgjaldi ber að láta fylgja rekstrar- reikningi sundurliðun á rekstrarkostnaði bifreiðanna að meðtöldum fyrningum, ásamt upplýsingum um afnotin i ekn- um km, fjarhæð endurgjalds og nöfn notenda. Hafi atvinnurek- andi hins vegar sjálfur, fjöl- skylda hans eða aðrir aðilar bifreiðar hans til afnota ber að láta fylgja rekstrarreikningi sundurliðun á rekstrarkostnaði bifreiöanna að meðtöldum fyrningum, ásamt upplýsingum um heildarakstur hverrar bif- reiðar á árinu og umrædd afnot i eknum km og draga gjöld vegna þessara afnota frá rekstrar- gjöldum með áritun á rekstrar- reikninginn eða gögn með hon- um. Vinni einstaklingur eða hjón, annað hvort eða bæði eða ófjárráða börn þessara aðila, við eiginn atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi ber að geta þess með athugasemd á rekstrarreikninginn eða gögn með honum og tilgreina vinnu- framlag framteljanda sjálfs, maka hans og ófjárráða barna hans. Laun reiknuð framteljanda sjálfum- eða maka hans, sem hafa verið færð til gjalda á rekstrarreikningnum, ber að tilgreina sérstaklega á honum, aðskilið frá launagreiðslum til annarra launþega, og gera við- eigandi úrbætur, sbr. 4. mgr. þessara töluliðar. Hreinar tekjur skal siðan færa i 1. tölulið III. kafla eða rekstrartap í 12. tölulið V. kafla framtals. 2. Hreinar tekjur af eignaleigu, þ.m.t. útleiga ibúðarhúsnæöis samkv. meöfylg jandi rekstraryfirliti. Hafi framteljandi tekjur af eignaleigu án þess að talið verði að um atvinnurekstur sé að ræða i þvi sambandi ber honum að gera rekstraryfirlit þar sem fram koma leigutekjur og bein útgjöld vegna þeirra, þ.m.t. vaxtagjöld sem eru tengd þessari teknaöflun. Sé slikra tekna aflað i atvinnurekstrar- skyni ber að gera rekstrar- reikning skv. tölulið 1. Hafi framteljandi tekjur af útleigu ibúðarhúsnæðis, hvort heldur hann telur það vera i at- ,vinnurekstrarskyni eða ekki, ber honum að gera rekstraryfir- lit þar sem fram koma leigu- tekjur frá hverjum einstökum leigutaka, svo og leigutimabil og fasteignamat útleigðs ibúðarhúsnæöis og hlutdeildar I lóð. Til gjalda ber að telja kostnað vegna hins útleigða, svo sem fasteignagjöld, viðhalds- kostnað og vaxtagjöld sem beint eru tengd þessari teknaöflun. Enn fremur skal telja fyrningu húsnæðisins sem nemur eftir- farandi hundraðshlutum af fast- eignamati hins útleigða hús- næðis: íbúðarhúsnæöi úr steinsteypu 1,0% Ibúðarhúsnæði hlaðið úr steinum 1,3% Ibúðarhúsnæði úr timbri 2,0% Til frádráttarbærs viðhalds- kostnaðar teljast þau gjöld sem á árinu gengu til viðhalds (ekki endurbóta eða breytinga) hins útleigða húsnæðis, sbr. reglu- gerð nr. 257/1974 sem gekk i gildi 1. jan. 1975. Tilgreina skal hvaða viðhald var um að ræða og sundurliða viðhaldskostnaðinn með sama hætti og sagt er I tölulið 1 c. i V. kafla framtalsins. 1 þessum tölulið má ekki telja tekjur af útleigðu Ibúðarhús- næði sem framteljandi lætur öðrum i té án eðlilegs endur- gjalds, þ.e. ef ársleiga nemur lægri fjárhæð en 5% af fasteignamati ibúðarhúsnæðis Vextir, sem greiddir eru af vlxl- um td. eru frádráttarbærir. og lóðar. Slikar tekjur ber að telja i 3. tölulið III. kafla fram- tals. 3. Reiknuö leiga af ibúðarhúsnæði: a. sem eigandi notar sjálfur. Af ibúðarhúsnæði, sem framteljandi notar sjálfur, skal húsaleiga reiknuð til tekna 5% af fasteignamati ibúðarhúsnæðis (þ.m.t. bilskúr) og lóöar, eins þótt um leigulóð sé aö ræða. A bújörð skal þó aðeins miða við fasteignamat ibúðarhús- næðis. Sé ibúðarhúsnæði i eigu sama aðila notað að hluta á þann hátt sem hér um ræðir og að hluta til útleigu skal fasteignamati húss og lóðar skipt hlutfallslega miðað við rúmmál nema sérmat i fasteignamati sé fyrir hendi. Á sama hátt skal skipta fasteignamati húss og lóðar þar sem um er að ræða annars vegar ibúðarhúsnæði og hins vegar atvinnu- rekstrarhúsnæði i sömu fasteign. 1 ófullgerðum og ómetnum ibúðum, sem teknar hafa verið i notkun, skal reiknuð leiga nema 1% á ári af kostnaðarverði i árslok eða vera hlutfallslega lægri eftir þvi hvenær húsið var tekið i notkun og að hve miklu leyti. b. sem eigandi lætur öðrum I té án eölilegs endurgjalds. Af ibúðarhúsnæði sem fram- teljandi lætur launþegum sinum (og fjölskyldum þeirra) eða öðrum i té án endurgjalds eða lætur þeim i té án eðlilegs endurgjalds (þ.e. gegn endur- gjaldi sem lægra er en 5% af fasteignamati ibúðarhúsnæðis og lóðar), skal húsaleiga reiknuð til tekna 5% af fasteignamati þessa ibúðarhús- næðis i' heild, svo og af fasteignamati lóðar, eins þótt um leigulóð sé að ræða. Á bújörð skal þó aðeins miða við fast- eignamat ibúðarhúsnæðis. I ófullgerðum og ómetnum ibúðum gildir sama viðmiðun og i a-lið. 4. Vaxtatekjur Hér skal færa i kr. dálk sam- tölu skattskyldra vaxtatekna i A- og B-liðum, bls. 3, i samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu þeirra. 5. Arður af hlutabréfum. Hér skal færa arð sem fram-. teljandi fékk úthlutaðan á árinu af hlutabréfum sinum. -6. Laun greidd f peningum. I lesmálsdálk skal rita nöfn launagreiðenda og launa- upphæð i kr. dálk. Ef vinnutimabil framteljanda er aðeins hluti úr ári eða árs- laun óeðlilega lág skal hann gefa skýringar i G-lið, bls. 4, ef ástæður, svo sem nám, aldur, veikindi o.fl. koma ekki fram á annan hátt i framtali. 7. Laun greidd í hlunnindum. a. Fæði: Skattskyld fæðishlunnindi: (1) Fullt fæði innan heimilis- sveitar: Launþegi , sem vann innan heimilssveitar sinnar, skal telja til tekna fullt fæði sem vinnuveitandi lét honum I té endurgjaldslaust (fritt). Rita skal dagafjölda i lesmálsdálk Viðhald (þó ekki viðhaldið!) er frádráttarbært, sé það á eigin húsnæði. og margfalda hann með 500 kr. fyrir fullorðinn og 400 kr. fyrir barn, yngra en 16 ára, og færa upphæðina til tekna. Fjárhæð fæðisstyrks (fæðispeninga) skal hins veg- ar teljast að fullu til tekna. Sama gildir um hver önnur full fæðishlunnindi, láti.n endurgjaldslaust i té, þau skal telja til tekna á kostnaðarverði. (2) Fæðisstyrkur (fæðispening- ar) á orlofstíma. Fjárhæð fæðisstyrks (fæðispeninga), sem laun- þega er greidd meðan hann er i orlofi, skal teljast að fullu til tekna. (3) önnur skattskyld fæðis- hlunnindi: a. Launþegi, sem vann utan heimilissveitar sinnar og fékk fæðisstyrk (fæðispeninga) i stað fulls fæðis, skal telja til tekna þann hluta fæðisstyrks- ins sem var umfram 700 kr. á dag. Sama gildir um fæðis- styrk greiddan sjómanni á skipi meðan það var i, höfn. b. Launþegi, sem vann hvort heldur innan eða utan heimilissveitar sinnar og fékk fæðisstyrk (fæðispeninga) i stað hluta fæðis skal telja til tekna þann hluta fæðisstyrks- ins sem var umfram 280 kr. á dag. c. Allt fæði, sem fjölskylda- framteljanda fékk endur- gjaldslaust (fritt) hjá vinnu- veitanda hans, fjárhæð fæðis- styrkja (fæðispeninga), svo og hver önnur fæðishlunnindi, látin endurgjaldslaust i té, skal telja til tekna aá sama hátt og greinir I lið (1). Fritt fæði, sem eigi telst fullt fæði, *-látið þessum aðilum i té, skal telja til tekna eins og hlutfall þess af mati fyrir fullt fæði segir til um. 1 þessu sambandi skiptir eigi máli hvort framteljandi vann innan eða utan heimilissveitar sinnar. b. Ilúsnæði: Hafi framteljandi (og fjölskylda hans) afnot af ibúðarhúsnæði, sem vinnu- veitandi hans lætur endur- gjaldslaust i té, skal framtelj- andi rita i lesmálsdálk fjár- hæð gildandi fasteignamats þessa ibúðarhúsnæðis og lóðar og mánaðafjölda af- nota. Telja skal til tekna 5% af þeirri fjárhæð fyrir ársaf- not en annars eins og hlutfall notkunartima segir til um. Hafi framteljandi (og fjöl- skylda hans) afnot af ibúðar- húsnæði, sem vinnuveitandi hans lætur i té gegn endur- gjaldi sem er lægra heldur en 5% af gildandi fasteignamati ibúðarhúsnæðis og lóðar, skal framteljandi telja mismuninn til tekna eftir þvi sem hlutfall notkunartima segir til um. c Fatnaður eða önnur hlunnindi: Til tekna skal færa fatnað sem vinnuveitandi lætur framteljandi i té án endurgjalds og ekki er reiknaður til tekna i öðrum launum. Tilgreina skal hver fatnaðurinn er og telja til tékna skv. mati sem hér segir: Einkennisföt karla ...13.800 kr. Einkennisföt kvenna . 9.500 kr. Einkennisfrakka karla.............10.700 kr. Einkenniskapu kvenna............ 7.100 kr. Einkennisfatnað flugáhafna skal þó telja sem hér segir: Einkennisföt karla ....6.900 kr. Einkennisföt kvenna ..4.700 kr. Einkenisfrakka karla .5.400 kr. Einkenniskápu kvenna 3.600 kr. Kostnaður við skólanám eldra fólks en 15 ára er frádráttar- bært, mismikið eftir eðli náms- ins. Fatnaður, sem ekki telst ein- kennisfatnaður, skal talinn til tekna á kostnaðarverði. Sé greidd ákveðin fjárhæð i stað fatnaðar ber að telja hana til tekna. önnur hlunnindi, sem látin eru i té fyrir vinnu, ber að meta til peningaverðs eftir gangverði á hverjum stað og tima og telja til tekna i tölulið 7. c., III, á framtali. M.a. teljast hér sem hlunnindi af- not launþega af bifreiðum, látin honum i té endurgjalds- laust af vinnuveitanda eða gegn óeðlilega lágu endur- gjaldi. t lesmálsdálk skal rita afnot bifreiðarinnar i eknum kilómetrum (þ.m.t. akstur úr og i vinnu) og margfalda þann kilóm.fjölda með 22 kr. fyrir fyrstu 10.000 kiló- metraafnot, með 19 kr. fyrir næstu 10.000 kilómetra afnot og 16 kr. fyrir hver kilómetra- afnot þar yfir Fjárhæð, þannig fundna, ber að færa i kr. dálk, þó að frádregnu endurgjaldi ef um það var að ræða. Fæði húsnæði og annað fram- færi framteljanda, sem býr i foreldrahúsum, telst ekki til tekna og færist þvi ekki i þennan lið nema foreldri sé atvinnurekandi og telji sér nefnda liði til gjalda. 8. Elli- og örorkulífeyrir frá alm.trygg. Hér skal telja til tekna ellilif- eyri og örorkulifeyri frá al- mannatryggingum. Lifeyrishækkun vegna lágra tekna (svonefnd „tekju- trygging”) og frekari uppbót á elli- og örorkulifeyri, ef greidd var, skal talin til tekna með lifeyrinum. Örorkustyrk skal hins vegar ekki telja hér til tekna heldur I tölulið 13 III á framtali. Með bótagreiðslum frá al- man-natryggingum á árinu 1975 ber að telja 3% hækkun á bóta-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.