Þjóðviljinn - 21.01.1976, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 21.01.1976, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 21. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 LEIÐBEININGAR VIÐ ÚTFYLLINGU SKATTFRAMTALSÁRIÐ1976 1. Áritun. Framtalseyðublaðið, sem áritað er i skýrsluvélum, skal senda skattyfirvöldum, sbr. þó 3. mgr. Notið aukaeintak af eyðublaði til að taka afrit af framtali yðar og geymið afritið með þeim upplýsingum og gögnum til stuðnings framtali sem yður ber að geyma a.m.k. i 6 ár. Framteljanda skal bent á að athuga hvort áritanir, gerðar af skýrsluvélum, nöfn, fæðingardagar og —ár, svo og heimilisfang,séu réttar rhiðað við 1. des. sl., sbr. 2. mgr. Ef svo er ekki skal leiðrétta það á framtalinu. Einnig skal bæta við upplýsingum um breytingar á fjölskyldu í desember, t.d. giftur (gift), hverri (hverjum), hvaða dag, nafn barns og fæðingardagur eða óskirð(ur) dóttir (sonur) fædd(ur) hvaða dag Ef áritanir eru ekki réttar miðað við 1. des. sl. skal fram- teljanda bent á að senda einnig leiðréttingu til Hagstofu íslands (þjóðskrá), Reykjavik. Ef áritað eyðublað er ekki fyrir hendi skal fyrst útfylla þær eyður framtalsins sem ætlaðar eru fyrir nafn og nafnnúmer framteljanda, fæðingardag hans og —ár, svo og heimilisfang hans 1. des. sl. Eyður fyrir nafn eiginkonu, nafnnúmer hennar, fæðingar- dag og —ár, svo og nöfn, fæðingardag og —ár barna, sem fædd eru árið 1960 og siöar, skal útfylla á sama hátt. Sérstök athugasemd varöandi „sambýlisfólk". Við áritun á framtalseyðublöð karls og konu, sem búa saman i óvigðri sambúð háfa öll börn á heimili þeirra verið skrifuð á framtal sambýliskonunnar eins og áður hvort sem hún er móðir þeirra eða ekki. Skattfrádrætti vegna barnanna var áður skipt milli sambýliskonu og sam- býlismanns i samræmi við ákvæði skattalaga eins og þau þá voru en skv. lögum nr. 11/1975 gildir nú eftirfarandi: a. Börn á heimili sambýlis- fólks, sem átt hefur barn saman, skulu öll talin hjá sambýlismanninum hvort sem hann er faðir þeirra eða ekki. b. Börn á heimili sambýlis- fólks, sem ekkihefur átt barn saman, skulu talin hvert hjá sinu foreldri. 2. Fengið meðlag og barnalífeyrir. Fengið meðlag og barnalif- eyrir frá almannatryggingum ef annað hvort foreldra er látið eða barn er ófeðrað er nú skatt- skyldar tekjur að hálfu hjá mót- takanda nema um sé að ræða einstætt foreldri, sbr. tölulið 10, III. Fengið meðlag-' með börnum, yngri en 17 ára skal að fullu færa i þar til ætlaða eyðu á bls. 1 neðan við nöfn barna heima hjá framteljanda sem fædd eru árið 1960 eða siðaé. Sé um að ræða fengið meðlag með börnum sem urðu 16 og 17 ára á árinu 1975, þ.e. með börnum, fæddum á árunum 1959 og 1958 skal það meðlag einnig talið i áður- nefndri eyðu á bls. 1 en nöfn þeirra barna skráð i G-lið á bls 4 og þar tekið fram að fengið meðlag með þeim sé talið á bls 1. Sama gildir um barnalifeyri frá almannatryggingum ef annað hvort foreldra er látið eða barn er ófeðrað. Sé um að ræða slikan barna- lifeyri eða meðlag með barni til móður, sem býr i óvigðri sam- búð með manni sem hún hefur átt barn með, skal slikur barna- lifeyrir eða meðlag talinn i áðurnefndri eyðu á bls. 1 á framtali sambýlismannsins. A framtali sambýliskonunnar skal jafnframt tekið fram að barnalifeyririnn eða meðlagið sé talinn á framtali sambýlis- mannsins. Aðrar barnalifeyrisgreiðslur frá almannatryggingum og all- ar barnalifeyrisgreiðslur frá öðrum (t.d. lifeyrissjóðum) skal hins vegar telja undir tekjulið 13, „Aðrar tekjur” hjá móttak- anda. Þó skulu þær greiðslur sem um ræðir i þessari mgr., greiddar til konu sem býr i óvigðri sambúð með manni sem hún hefur átt barn með, allar taldar til tekna i tekjulið 13 á framtali sambýlismannsins. 3. Greidd meðlög. Meðlög, sem framteljandi greiðir með barni til 17 ára aldurs þess, eru nú frádráttar- bær að hálfu hjá þeim sem greiðir, sbr. tölulið 7, IV. Upplýsingar um greidd með- lög með börnum til 17 ára aldurs skal framteljandi færa i þar til ætlaðan reit á fyrstu siðu fram- talsins. 4. Greidd heimilisaðstoð. Greidda heimilisaðstoð, sem ber að gefa upp á launamiðum (eyðublöð fást hjá skattyfir- völdum), skal tilgreina i kr. dálk. Llfeyri hvers konar þarf að telja fram. 5. Álagt útsvar. Hér skal tilgreina i kr. dálk álagt útsvar á gjaldaárinu 1975. 6. Greidd húsaleiga. Hér skal tilgreina i kr. dálk greidda húsaleigu og aðrar þær upplýsingar sem um er beðið i þessum reit. 7. Slysatrygging við heimilisstörf. Skv. ákvæðum 30. gr. laga nr. 67/1971 um almannatryggingar geta þeir, sem heimilisstörf stunda, tryggt sér rétt til slysa- bóta við þau störf með þvi að skrá i framtal sitt ósk um það i þar til gerðan reit. Arsiðgjald verður nú 2.392 kr. Þeir sem atvinnurekstur hafa með höndum geta tryggt sér og mökum sinum, sem með þeim starfa að atvinnurekstrinum, rétt til slysabóta, sbr. upp- lýsingar þar um á launamiða- fylgiskjölum. óski þessir aðilar að tryggja sér eða mökum sin- um jafnframt rétt til slysabóta við heimilisstörf skulu þeir geta þess i umræddum reit og mun þá slysatryggingin i heild reikn- ast 52 vikur á vikugjaldi þess áhættuflokks sem hærri er. I. Eignir 31. des. 1975 Framtölum þeirra, sem bók- haldsskyldir eru skv. ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald, skal fylgja efnahagsreikningur. I efnahagsreikningi eða i gögnum með honum skal vera sundurliðun á öllum eignum sem máli skipta, svo sem inn- stæðum i bönkum og sparisjóð- um, vixileignum, og öðrum úti- standandi kröfum (nafngreina þarf þó ekki kröfur undir 10.000 kr. ), birgðum (hráefnum, rekstrarvörum, hálfunnum eða fullunnum vörum,) skulda- bréfum, hlutabréfum og öðrum verðbréfum, stofnsjóðsinnstæð- um, fasteignum (nafngreindum á þann veg er greinir i 3. tl. — Fasteignir), vélum og tækjum og öðrum þeim eignum sem eru i eigu framteljanda. Allar fyrnanlegar eignir skulu til- greindar á fyrningaskýrslu. Greinargerð um mat birgða skal fylgja framtali á þar til gerðu eyðublaði. Sjá 1. mgr. 1. tl. III. kafla leiðbeininganna. A sama hátt ber að sundurliða allar skuldir, svo sem yfir- dráttarlán, samþykkta vixla og aðrar viðskiptaskuldir (nafn- greina þarf þó ekki viðskipta- skuldir undir 10.000 kr.), veð- skuldir og önnur föst lán, svo og aðrar skuldir framteljanda. Einnig skal sýna á efnahags- reikningi hvernig eigið fé fram- teljanda breytist á uppgjörs- árinu. ' Það er ekki einfalt mál að telja fram bústofn. Skýringar þar um fylgja hér með. Ef i efnahagsreikningi eru fjárhæðir, sem ekki eru i sam- ræmi við ákvæði skattalaga, svo sem tilfært verð fasteigna, eða eru undanþegnar eignarskatti, sbr. t.d. 21. gr. skattalaga, skal úr þvi bætt með áritun á efna- hagsreikninginn eða gögn með honum. Hreina skattskylda eign skal siðan færa á framtal i 1. tölulið I. kafla eða Skuldir um- fram eignir i c-lið, bls. 3. 2. Bústofn skv. meöf. landbúnaðarskýrslu Framtölum bænda og ann- arra, sem bústofn eiga, skulu fylgja landbúnaðarskýrslur og færist bústofn skv. þeim undir þennan lið. Fasteignir. Fasteignir skal telja til eignar á gildandi fasteignamatsverði skv. aðalmati sem gildi tók 31. des. 1971 eða siðar staðfestum matsgjörðum fyrir árslok 1975. Ef staðfest fasteignamat á full- byggðu mannvirki er ekki fyrir hendi má þó áætla matsverð. Margföldun á verðmæti fast- eigna með 2,7 skv. lögum nr. 97/1975 verður framkvæmd af skattstjórum. Metnar fasteignir ber að til- greina i lesmáladálk og kr. dálk á þann veg er hér greinir: Rita skal nafn eða heiti hverr- ar sérmetinnar fasteignar i les- málsdálk eins og það er tilgreint i fasteignamatsskrá. Sé fasteign staðsett utan heimilissveitar framteljanda ber einnig að til- greina það sveitarfélag þar sem fasteignin er. I fasteignamatsskrám er hverri fasteign skipt niður i ýmsa matshluta eða matsþætti. T.d. er jörðum i sveitum skipt i eftirtalda matsþætti: tún, land, hlunnindi. ibúðarhús, útihús o.s,frv. Óðrum sérmetnum fasteignum er skipt i eftirtalda matshluta eða —þætti: land eða lóð, hlunnindi, sérbyggðar (sér- greindar) byggingar eða önnur mannvirki. Hins vegar er sér- byggðum byggingum ekki skipt eftir afnotum, t.d. i ibúðar- og verslunarhúsnæði sem vera kann i sömu sérbyggðri byggingu. I lesmálsdálk ber að tilgreina einstaka matshluta eða —þætti fasteignarinnar, sem eru i eigu framteljanda, á sama hátt og með sama nafni og þeir eru til- greindir i fasteignamatsskrá. Sé matshluti eða —þáttur ekki að fullu eign framteljanda ber að geta eignarhlutdeildar. Séu sérbyggðar byggingar notaðar að hluta til ibúðar og að hluta sem atvinnurekstrarhúsnæði ber einnig að skipta þeim eftir afnotum og skal skiptingin gerð i hlutfalli við rúmmál. Sérregl- ur, sbr. næstu málsgrein, gilda þó um skiptingu leigulanda og leigulóða til eignar milli land- Bllinn á að telja fram og af- skrifa eftir ákveðnum reglum. eiganda og leigutaka. Fjárhæð fasteignamats hvers matshluta eða —þáttar skal færð i kr. dálk i samræmi við eignar- og af- notahlutdeild. Eigendur leigulanda og leigu- lóða skulu telja afgjaldskvaðar- verðmæti þeirra til eignar. Af- gjaldskvaðarverðmætið er fundið með þvi að margfalda ársleigu ársins 1975 með 15. 1 lesmálsdálk skal tilgreina nafn landsins eða lóðarinnar ásamt ársleigu en i kr. dálk skal tilgreina ársleigu x 15. Leigjendur leigulanda og leigulóða skulu telja sér til eign- ar mismun fasteignamatsverðs og afgjaldskvaðarverðmætis leigulandsins eða -lóðarinnar. I lesmálsdálk skal tilgreina nafn landsins eða lóðarinnar, svo og fullt fasteignamatsverð lóðar- innar eða landsins eða þess hluta sem framteljandi hefur á leigu og auðkenna sem ,,L1.” en i kr. dálk skal tilgreina mismun fasteignamatsverðs og af- gjaldskvaðarverðmætis (sem er land- eða lóðarleiga ársins 1975 x 15). Hafi eigandi bygginga eða annarra mannvirkja, sem byggð eru á leigulandi eða leigulóð, ekki greitt leigu fyrir landið eða lóðina á árinu 1975 ber land- eða ló.ðareiganda að telja fasteignamatsverð lands eða lóðar að fullu til eignar. Mannvirki, sem enn eru i byggingu eða ófullgerð, svo sem hús, ibúðir, bilskúra og sumar- bústaði, svo og ómetnar viðbyggingar og breytingar eða endurbætur á þegar metnum byggingum eða öðrum mann- virkjum, skal tilgreina sérstak- lega i lesmálsdálki undir nafni skv. byggingarsamþykkt eða byggingarleyfi og kostnaðar- verð þeirra i árslok 1975 i kr. dálk. Eigendum slikra eigna ber að útfylla húsbyggingarskýrslu sem fylgja skal framtali. 4. Vélar verkfæri og áhöld. Hér skal færa i kr. dálk bók- fært verð landbúnaðarvéla og - tækja sk. landbúnaðarskýrslu. Enn fremur skal hér færa eignarverðmæti véla, verkfæra, tækja og áhalda, annarra en bif- reiða sem ekki eru notuð i at- vinnurekstrarskyni eða ekki ber að telja i efnahagsreikningi, sbr. tölulið 1. Slikar eignir skulu teljast á kaup- eða kostnaðar- verði i kr. dálk. Heimilt er þó að lækka þetta verð um 8% fyrningu á ári miðað við kaup- eða kostnaðarverð, svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó má aldrei telja eignarverð lægra en 10% af kaup- eða kostnaðar- verði. Fyrning þessi kemur að- eins til lækkunar á eign en ekki til frádráttar tekjum. 5. Bifreiö Hér skal færa i kr. dálk kaup- eða kostnaðarverð bifreiða sem ekki eru notaðar i atvinnu- rekstrarskyni eða ekki ber að telja i efnahagsreikningi, sbr. tölulið 1. Heimilt er þó að lækka verðið um 10% fyrningu á ári miðað við kaup- eða kostnaðar- verð, svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó má aldrei telja eignarverð lægra en 10% af kaupverði. Fyrning þessi kemur aðeins til lækkunar á eign en ekki til frádráttar tekjum. 6. Peningar Hér á aðeins að færa peninga- eign um áramót en ekki aðrar eignir, svo sem bankainn- stæður, vixla eða verðbréf. 7. Inneignir. Hér skal færa i kr. dálk sam- tölu skattskyldra innstæðna og verðbréf i A-lið, bls. 3, i sam- ræmi við leiðbeiningar um út- fyllingu hans. 8. Hlutabréf. Rita skal nafn hlutafélags i lesmálsdálk og nafnverð hlutabréfa i kr. dálk ef hlutafé er óskert .. Sé hlutafé skert skal aðeins færa raunverulegt verð- mætt þess tíl eignar. 9. Veröbréf, útlán, stofnsjóðsinnstæður o.fl. Hér skal færa i kr. dálk sam- tölu eigna i B-lið, bls. 3, i sam- ræmi við leiðbeiningar um út- fyllingu hans. 10. Eignir barna. Hér skal færa i kr. dálk sam- tölu skattskyldra eigna barna i E-lið, bls. 4, i samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu hans nema farið sé fram á sér- sköttun barns (barna) til eignarskatts.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.