Þjóðviljinn - 21.01.1976, Qupperneq 7
Miðvikudagur 21. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
LEIÐBEININGAR
VIÐ ÚTFYLLINGU SKATTFRAMTALSÁRIÐ1976
1. Áritun.
Framtalseyðublaðið, sem
áritað er i skýrsluvélum, skal
senda skattyfirvöldum, sbr. þó
3. mgr. Notið aukaeintak af
eyðublaði til að taka afrit af
framtali yðar og geymið afritið
með þeim upplýsingum og
gögnum til stuðnings framtali
sem yður ber að geyma a.m.k. i
6 ár. Framteljanda skal bent á
að athuga hvort áritanir, gerðar
af skýrsluvélum, nöfn,
fæðingardagar og —ár, svo og
heimilisfang,séu réttar rhiðað
við 1. des. sl., sbr. 2. mgr. Ef svo
er ekki skal leiðrétta það á
framtalinu. Einnig skal bæta
við upplýsingum um breytingar
á fjölskyldu í desember, t.d.
giftur (gift), hverri (hverjum),
hvaða dag, nafn barns og
fæðingardagur eða óskirð(ur)
dóttir (sonur) fædd(ur) hvaða
dag
Ef áritanir eru ekki réttar
miðað við 1. des. sl. skal fram-
teljanda bent á að senda einnig
leiðréttingu til Hagstofu íslands
(þjóðskrá), Reykjavik.
Ef áritað eyðublað er ekki
fyrir hendi skal fyrst útfylla þær
eyður framtalsins sem ætlaðar
eru fyrir nafn og nafnnúmer
framteljanda, fæðingardag
hans og —ár, svo og
heimilisfang hans 1. des. sl.
Eyður fyrir nafn eiginkonu,
nafnnúmer hennar, fæðingar-
dag og —ár, svo og nöfn,
fæðingardag og —ár barna, sem
fædd eru árið 1960 og siöar, skal
útfylla á sama hátt.
Sérstök athugasemd
varöandi
„sambýlisfólk".
Við áritun á framtalseyðublöð
karls og konu, sem búa saman i
óvigðri sambúð háfa öll börn á
heimili þeirra verið skrifuð á
framtal sambýliskonunnar eins
og áður hvort sem hún er móðir
þeirra eða ekki. Skattfrádrætti
vegna barnanna var áður skipt
milli sambýliskonu og sam-
býlismanns i samræmi við
ákvæði skattalaga eins og þau
þá voru en skv. lögum nr.
11/1975 gildir nú eftirfarandi:
a. Börn á heimili sambýlis-
fólks, sem átt hefur barn
saman, skulu öll talin hjá
sambýlismanninum hvort
sem hann er faðir þeirra eða
ekki.
b. Börn á heimili sambýlis-
fólks, sem ekkihefur átt barn
saman, skulu talin hvert hjá
sinu foreldri.
2. Fengið meðlag
og barnalífeyrir.
Fengið meðlag og barnalif-
eyrir frá almannatryggingum
ef annað hvort foreldra er látið
eða barn er ófeðrað er nú skatt-
skyldar tekjur að hálfu hjá mót-
takanda nema um sé að ræða
einstætt foreldri, sbr. tölulið 10,
III.
Fengið meðlag-' með börnum,
yngri en 17 ára skal að fullu
færa i þar til ætlaða eyðu á bls. 1
neðan við nöfn barna heima hjá
framteljanda sem fædd eru árið
1960 eða siðaé. Sé um að ræða
fengið meðlag með börnum sem
urðu 16 og 17 ára á árinu 1975,
þ.e. með börnum, fæddum á
árunum 1959 og 1958 skal það
meðlag einnig talið i áður-
nefndri eyðu á bls. 1 en nöfn
þeirra barna skráð i G-lið á bls 4
og þar tekið fram að fengið
meðlag með þeim sé talið á bls
1.
Sama gildir um barnalifeyri
frá almannatryggingum ef
annað hvort foreldra er látið eða
barn er ófeðrað.
Sé um að ræða slikan barna-
lifeyri eða meðlag með barni til
móður, sem býr i óvigðri sam-
búð með manni sem hún hefur
átt barn með, skal slikur barna-
lifeyrir eða meðlag talinn i
áðurnefndri eyðu á bls. 1 á
framtali sambýlismannsins. A
framtali sambýliskonunnar
skal jafnframt tekið fram að
barnalifeyririnn eða meðlagið
sé talinn á framtali sambýlis-
mannsins.
Aðrar barnalifeyrisgreiðslur
frá almannatryggingum og all-
ar barnalifeyrisgreiðslur frá
öðrum (t.d. lifeyrissjóðum) skal
hins vegar telja undir tekjulið
13, „Aðrar tekjur” hjá móttak-
anda. Þó skulu þær greiðslur
sem um ræðir i þessari mgr.,
greiddar til konu sem býr i
óvigðri sambúð með manni sem
hún hefur átt barn með, allar
taldar til tekna i tekjulið 13 á
framtali sambýlismannsins.
3. Greidd meðlög.
Meðlög, sem framteljandi
greiðir með barni til 17 ára
aldurs þess, eru nú frádráttar-
bær að hálfu hjá þeim sem
greiðir, sbr. tölulið 7, IV.
Upplýsingar um greidd með-
lög með börnum til 17 ára aldurs
skal framteljandi færa i þar til
ætlaðan reit á fyrstu siðu fram-
talsins.
4. Greidd heimilisaðstoð.
Greidda heimilisaðstoð, sem
ber að gefa upp á launamiðum
(eyðublöð fást hjá skattyfir-
völdum), skal tilgreina i kr.
dálk.
Llfeyri hvers konar þarf að telja
fram.
5. Álagt útsvar.
Hér skal tilgreina i kr. dálk
álagt útsvar á gjaldaárinu 1975.
6. Greidd húsaleiga.
Hér skal tilgreina i kr. dálk
greidda húsaleigu og aðrar þær
upplýsingar sem um er beðið i
þessum reit.
7. Slysatrygging við
heimilisstörf.
Skv. ákvæðum 30. gr. laga nr.
67/1971 um almannatryggingar
geta þeir, sem heimilisstörf
stunda, tryggt sér rétt til slysa-
bóta við þau störf með þvi að
skrá i framtal sitt ósk um það i
þar til gerðan reit. Arsiðgjald
verður nú 2.392 kr.
Þeir sem atvinnurekstur hafa
með höndum geta tryggt sér og
mökum sinum, sem með þeim
starfa að atvinnurekstrinum,
rétt til slysabóta, sbr. upp-
lýsingar þar um á launamiða-
fylgiskjölum. óski þessir aðilar
að tryggja sér eða mökum sin-
um jafnframt rétt til slysabóta
við heimilisstörf skulu þeir geta
þess i umræddum reit og mun
þá slysatryggingin i heild reikn-
ast 52 vikur á vikugjaldi þess
áhættuflokks sem hærri er.
I. Eignir 31.
des. 1975
Framtölum þeirra, sem bók-
haldsskyldir eru skv. ákvæðum
laga nr. 51/1968 um bókhald,
skal fylgja efnahagsreikningur.
I efnahagsreikningi eða i
gögnum með honum skal vera
sundurliðun á öllum eignum
sem máli skipta, svo sem inn-
stæðum i bönkum og sparisjóð-
um, vixileignum, og öðrum úti-
standandi kröfum (nafngreina
þarf þó ekki kröfur undir 10.000
kr. ), birgðum (hráefnum,
rekstrarvörum, hálfunnum eða
fullunnum vörum,) skulda-
bréfum, hlutabréfum og öðrum
verðbréfum, stofnsjóðsinnstæð-
um, fasteignum (nafngreindum
á þann veg er greinir i 3. tl. —
Fasteignir), vélum og tækjum
og öðrum þeim eignum sem eru
i eigu framteljanda. Allar
fyrnanlegar eignir skulu til-
greindar á fyrningaskýrslu.
Greinargerð um mat birgða
skal fylgja framtali á þar til
gerðu eyðublaði. Sjá 1. mgr. 1.
tl. III. kafla leiðbeininganna.
A sama hátt ber að sundurliða
allar skuldir, svo sem yfir-
dráttarlán, samþykkta vixla og
aðrar viðskiptaskuldir (nafn-
greina þarf þó ekki viðskipta-
skuldir undir 10.000 kr.), veð-
skuldir og önnur föst lán, svo og
aðrar skuldir framteljanda.
Einnig skal sýna á efnahags-
reikningi hvernig eigið fé fram-
teljanda breytist á uppgjörs-
árinu. '
Það er ekki einfalt mál að telja
fram bústofn. Skýringar þar um
fylgja hér með.
Ef i efnahagsreikningi eru
fjárhæðir, sem ekki eru i sam-
ræmi við ákvæði skattalaga, svo
sem tilfært verð fasteigna, eða
eru undanþegnar eignarskatti,
sbr. t.d. 21. gr. skattalaga, skal
úr þvi bætt með áritun á efna-
hagsreikninginn eða gögn með
honum. Hreina skattskylda eign
skal siðan færa á framtal i 1.
tölulið I. kafla eða Skuldir um-
fram eignir i c-lið, bls. 3.
2. Bústofn skv. meöf.
landbúnaðarskýrslu
Framtölum bænda og ann-
arra, sem bústofn eiga, skulu
fylgja landbúnaðarskýrslur og
færist bústofn skv. þeim undir
þennan lið.
Fasteignir.
Fasteignir skal telja til eignar
á gildandi fasteignamatsverði
skv. aðalmati sem gildi tók 31.
des. 1971 eða siðar staðfestum
matsgjörðum fyrir árslok 1975.
Ef staðfest fasteignamat á full-
byggðu mannvirki er ekki fyrir
hendi má þó áætla matsverð.
Margföldun á verðmæti fast-
eigna með 2,7 skv. lögum nr.
97/1975 verður framkvæmd af
skattstjórum.
Metnar fasteignir ber að til-
greina i lesmáladálk og kr. dálk
á þann veg er hér greinir:
Rita skal nafn eða heiti hverr-
ar sérmetinnar fasteignar i les-
málsdálk eins og það er tilgreint
i fasteignamatsskrá. Sé fasteign
staðsett utan heimilissveitar
framteljanda ber einnig að til-
greina það sveitarfélag þar sem
fasteignin er.
I fasteignamatsskrám er
hverri fasteign skipt niður i
ýmsa matshluta eða matsþætti.
T.d. er jörðum i sveitum skipt i
eftirtalda matsþætti: tún, land,
hlunnindi. ibúðarhús, útihús
o.s,frv. Óðrum sérmetnum
fasteignum er skipt i eftirtalda
matshluta eða —þætti: land eða
lóð, hlunnindi, sérbyggðar (sér-
greindar) byggingar eða önnur
mannvirki. Hins vegar er sér-
byggðum byggingum ekki skipt
eftir afnotum, t.d. i ibúðar- og
verslunarhúsnæði sem vera
kann i sömu sérbyggðri
byggingu.
I lesmálsdálk ber að tilgreina
einstaka matshluta eða —þætti
fasteignarinnar, sem eru i eigu
framteljanda, á sama hátt og
með sama nafni og þeir eru til-
greindir i fasteignamatsskrá.
Sé matshluti eða —þáttur ekki
að fullu eign framteljanda ber
að geta eignarhlutdeildar. Séu
sérbyggðar byggingar notaðar
að hluta til ibúðar og að hluta
sem atvinnurekstrarhúsnæði
ber einnig að skipta þeim eftir
afnotum og skal skiptingin gerð
i hlutfalli við rúmmál. Sérregl-
ur, sbr. næstu málsgrein, gilda
þó um skiptingu leigulanda og
leigulóða til eignar milli land-
Bllinn á að telja fram og af-
skrifa eftir ákveðnum reglum.
eiganda og leigutaka. Fjárhæð
fasteignamats hvers matshluta
eða —þáttar skal færð i kr. dálk
i samræmi við eignar- og af-
notahlutdeild.
Eigendur leigulanda og leigu-
lóða skulu telja afgjaldskvaðar-
verðmæti þeirra til eignar. Af-
gjaldskvaðarverðmætið er
fundið með þvi að margfalda
ársleigu ársins 1975 með 15. 1
lesmálsdálk skal tilgreina nafn
landsins eða lóðarinnar ásamt
ársleigu en i kr. dálk skal
tilgreina ársleigu x 15.
Leigjendur leigulanda og
leigulóða skulu telja sér til eign-
ar mismun fasteignamatsverðs
og afgjaldskvaðarverðmætis
leigulandsins eða -lóðarinnar. I
lesmálsdálk skal tilgreina nafn
landsins eða lóðarinnar, svo og
fullt fasteignamatsverð lóðar-
innar eða landsins eða þess
hluta sem framteljandi hefur á
leigu og auðkenna sem ,,L1.” en
i kr. dálk skal tilgreina mismun
fasteignamatsverðs og af-
gjaldskvaðarverðmætis (sem er
land- eða lóðarleiga ársins 1975
x 15).
Hafi eigandi bygginga eða
annarra mannvirkja, sem
byggð eru á leigulandi eða
leigulóð, ekki greitt leigu fyrir
landið eða lóðina á árinu 1975
ber land- eða ló.ðareiganda að
telja fasteignamatsverð lands
eða lóðar að fullu til eignar.
Mannvirki, sem enn eru i
byggingu eða ófullgerð, svo sem
hús, ibúðir, bilskúra og sumar-
bústaði, svo og ómetnar
viðbyggingar og breytingar eða
endurbætur á þegar metnum
byggingum eða öðrum mann-
virkjum, skal tilgreina sérstak-
lega i lesmálsdálki undir nafni
skv. byggingarsamþykkt eða
byggingarleyfi og kostnaðar-
verð þeirra i árslok 1975 i kr.
dálk. Eigendum slikra eigna ber
að útfylla húsbyggingarskýrslu
sem fylgja skal framtali.
4. Vélar verkfæri og
áhöld.
Hér skal færa i kr. dálk bók-
fært verð landbúnaðarvéla og -
tækja sk. landbúnaðarskýrslu.
Enn fremur skal hér færa
eignarverðmæti véla, verkfæra,
tækja og áhalda, annarra en bif-
reiða sem ekki eru notuð i at-
vinnurekstrarskyni eða ekki ber
að telja i efnahagsreikningi,
sbr. tölulið 1. Slikar eignir skulu
teljast á kaup- eða kostnaðar-
verði i kr. dálk. Heimilt er þó að
lækka þetta verð um 8%
fyrningu á ári miðað við kaup-
eða kostnaðarverð, svo og um
áður reiknaða fyrningu. Þó má
aldrei telja eignarverð lægra en
10% af kaup- eða kostnaðar-
verði. Fyrning þessi kemur að-
eins til lækkunar á eign en ekki
til frádráttar tekjum.
5. Bifreiö
Hér skal færa i kr. dálk kaup-
eða kostnaðarverð bifreiða sem
ekki eru notaðar i atvinnu-
rekstrarskyni eða ekki ber að
telja i efnahagsreikningi, sbr.
tölulið 1. Heimilt er þó að lækka
verðið um 10% fyrningu á ári
miðað við kaup- eða kostnaðar-
verð, svo og um áður reiknaða
fyrningu. Þó má aldrei telja
eignarverð lægra en 10% af
kaupverði. Fyrning þessi kemur
aðeins til lækkunar á eign en
ekki til frádráttar tekjum.
6. Peningar
Hér á aðeins að færa peninga-
eign um áramót en ekki aðrar
eignir, svo sem bankainn-
stæður, vixla eða verðbréf.
7. Inneignir.
Hér skal færa i kr. dálk sam-
tölu skattskyldra innstæðna og
verðbréf i A-lið, bls. 3, i sam-
ræmi við leiðbeiningar um út-
fyllingu hans.
8. Hlutabréf.
Rita skal nafn hlutafélags i
lesmálsdálk og nafnverð
hlutabréfa i kr. dálk ef hlutafé
er óskert .. Sé hlutafé skert skal
aðeins færa raunverulegt verð-
mætt þess tíl eignar.
9. Veröbréf, útlán,
stofnsjóðsinnstæður o.fl.
Hér skal færa i kr. dálk sam-
tölu eigna i B-lið, bls. 3, i sam-
ræmi við leiðbeiningar um út-
fyllingu hans.
10. Eignir barna.
Hér skal færa i kr. dálk sam-
tölu skattskyldra eigna barna i
E-lið, bls. 4, i samræmi við
leiðbeiningar um útfyllingu
hans nema farið sé fram á sér-
sköttun barns (barna) til
eignarskatts.